Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Blaðsíða 18
18
Veiðivon
Það mun eflaust hýrna allverulega
yfir íslenskum stangaveiðimönnum
þegar laxakvótakaupin eru i höfn,
fleiri laxar á stangirnar.
DV-mynd Addó
Allt brjálað að
gera hjá Orra
Vigfússyni
„Það skipast fljótt veður í lofti og
Orri Vigfússon verður ekki hjá okk-
ur fyrr en 23. mars, þaö er allt vit-
laust hjá honum aö gera þangað til,“
sagði Stefán A. Magnússon, for-
maður skemmtinefndar Stangaveiði-
félags Reykjavíkur, í vikunni. En
Orri Vigfússon laxakvótakaupandi
átti að vera hjá Stangaveiðifélaginu
um næstu helgi en verður ekki fyrr
en helgina 23. mars. „Það eru ferðir
til útlanda hjá Orra og aöalfundur
Laxárfélagsins sem fresta þessum
fundi, nóg af gera hjá honum,“ sagði
Stefán ennfremur. -G.Bender
Stangaveiðifélag Reykjavíkur:
„Við vonum að veiðimenn á öllum
aldri íjölmenni á Geitabergsvatnið á
laugardaginn,-17. mars, til að dorga,
allir eru velkomnir," sagði Jón G.
Baldvinsson, formaður Stangaveiði-
félags Reykjavíkur, í vikunni, en fé-
lagið ætlar að standa fyrir dorgveiði-
keppni fyrir í fyrsta skipti á Geita-
bergsvatni í Svínadal um næstu
helgi.
Veiðileyfi mun ekkert kosta og
verða veitt verðlaun fyrir flesta fiska
og stærsta fiskinn. Orvis með Magn-
ús Jónasson í broddi fylkingar mun
gefa verðlaunin. Veiðihúsið sem
Stangaveiðifélagið á við Geitabergs-
vatnið mun verða afdrep fyrir veiði-
menn, heitt verður á könnunni, kakó
og eitthvert snarl.
ísinn á vatninu er mjög traustur
þessa dagana enda hefur verið nokk-
urt frost þarna uppi í Svíndal, í næsta
nágrenni við allsherjagoðið Svein-
bjöm Beinsteinsson.
Það eina sem getur komiö í veg
fyrir keppina er að verðurfarið verði
slæmt á laugardaginn, en sunnudag-
urinn 18. mars verður notaður til
vara. En við skulum bara vona það
Þessir „hörkudorgarar" mættu á Geitabergsvatnið og dorguðu, eflaust mun
einhver þeirra mæta um helgina. DV-mynd G.Bender
besta.
Frá því að DV sagði frá keppninni
fyrir fáum dögum fyrst, hafa margir
haft samband, bæði úr Reykjavík, frá
Akranesi og ofan úr Borgarfirði.
Áhuginn er mikill og eflaust mætti
halda oftar svona dorgveiðikeppni
víða um land. Útiveran eflir hreysti
allra.
-G.Bender
Dorgveiðikeppni
á Geitabergsvatni
um næstu helgi
Laxveiði í Skotlandi:
Ekki öll nótt úti að lengja veiðitímann
„Það er mikið spurt um þessar lax-
veiðiferðir til Skotlands, en veitt er
í ánum Dee og Spey en í Tweed í
haust,“ sagöi Birgir Sumarliöason
hjá Feröabæ í samtali við DV í vik-
unni, en þeir hafa boðið þessar ferð-
ir. Svo virðist sem íslenskir stanga-
veiðimenn ætli að nota sér þetta þó-
nokkuð. Biðin eftir að laxveiðitíminn
hefjist styttist mikið ef farin er ein
svona ferð. „Fáar stangir eru lausar
núna í mars, apríl og júlí, en eitthvað
er til. En meira er til í Tweed ánni í
haust og það eru september, október
og nóvember sem um er að ræða.
Veiöileyfin í viku í þessum veiðiám
kosta um 40 þúsund en eru kringum
65-70 þúsund með ferðum og fæöi.
Ef menn velja lúxushótel verður
þetta nálægt 80 þúsund gæti ég trú-
að. Fyrir fáum dögum hringdi veiði-
maður, sem mikið hefur veitt hérna
á íslandi, og sagðist ekki eyöa meiri
pening í okkar dýru ár. Frekar færi
hann með fjölskylduna til Skotlands
og Grænlands til veiða, veiðileyfi hér
væru oröin alltof, alltof dýr,“ sagði
Birgir í lokin.
Laxarnir, sem veiðast í þessum
veiöiám, eru mest frá 6 til 12 pund,
þó þeir veiðist stærri eins og í ánum
heima á íslandi. Kannski maður ætti
að skella sér?
-G.Bender
LAUQARDAGUfl TL0..^^RST^9til.
tt- ♦ r >c
Þjoðar-
spaug DV
Fjárans
lykkjan
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
fréttamaður á Stöð 2, þótti fremur
ódæll á skólaárum sínum. Ein-
hverju sinni, er hann var búinn
að hegða sér fremur illa í dönsk-
utíma í Menntaskólanum á Akur-
eyri, spurði hann dönskukennar-
ann, sem var kona, hvort hann
mætti ekki bara pijóna í dönsk-
utímanum þvi þá skyldi hann
þegja. Hún hélt það nú. En ekki
hafði Simmi setiö lengi með
prjónadótið í lúkunum er hann
kallaði til kennarans: „Ragnhild-
ur, heldurðu að þú getir hjálpaö
mér með þessa lykkju?“
Flott Einar
Er Kristín Ólafsdóttir, núver-
andi borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavik, var út-
varpsþulur, varð henni eitt sinn
heldur betur á í messunni er hún
var aö lesa yfir auglýsingar:
„Flott Einar nýkomnir," mælti
hún og endurtók nokkrum sinn-
um.
Það var ekki fyrr en kunningi
hennar benti henni á að í um-
ræddri auglýsingu heföi verið um
aö ræða flotteina og að hún hefði
líklega átt aö segja:
„Flotteinar nýkomnir."
KLP-open
Samvinnuferðir-Landsýn aug-
lýstu golf- og sólarlandaferð til
Mallorca í Morgunblaðinu 10.
september 1989. Ekkert hefði nú
verið við það að athuga en þegar
kemur aö því að telja upp það sem
innifalið er í verðinu vakti það
athygli margra: en þar stóð:
„Innifalið: flug, ferðir að og frá
flugvelli á Mallorca, íbúðargist-
ing og Kjartan L. Pálsson eins og
hann leggur sig.“
Skyldi Kjartan leggja sig i
hverri íbúð, eða hvað?
Finnur þú fiiran breytíngai? 45
Eddl minn er sannarlega áreiöanlegur. Hann hringir heim daglega klukk- Nafn:.........
an hálffimm og segir að honum seinki í kvöldmatinn.
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur 1 ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1) Hitateppi fyrir bak og
hnakka, kr. 3.900,-
2) Svissneska heilsupannan,
kr. 2.990,-
Vinningarnir koma frá Póst-
versluninni Príma, Hafnar-
firði.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 45
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Sigurvegarar fyrir fertu-
gustu og þriðju getraun
reyndust vera:
1. Oddur Tómas Oddsson,
Búðarstíg 1, 820 Eyrarbakka
2. Elsa Rut Hjaltadóttir,
Heiðarbóh 2, 230 Keflavík
Vinningarnir verða
sendir heim.
I