Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Side 39
; LÁÚGÁHÐA(51ÍR ÍO/MARS 1990.
Oð <
51
Afmæli
Signý Pálsdóttir
Signý Pálsdóttir, leikhúsritari Þjóð-
leikhússins, Melgerði 19, Kópavogi,
verður fertug á morgun.
Signý fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í foreldrahúsum. Hún lauk
stúdentsprófl frá MR1969, stundaði
nám við HÍ í forspjallsvísindum,
þýsku, frönsku og sænsku 1969-70
og við Kaupmannahafnarháskóla í
leikhúsfræði og menningarfélags-
fræði 1970-74 en þaðan lauk hún
EA-prófi í leikhúsfræðum í ársbyrj-
un 1975.
Signý sá um skrifstofu Húseig-
endafélags íslands 1974-75, var
kennari við Grunnskólann í Stykk-
ishólmi 1975-82, var leikhússtjóri
LA1982-86 og hefur starfað við Þjóð-
leikhúsið frá hausti 1986.
Signý var leikhúsritari Þjóðleik-
hússins 1986-87, markaðsstjóri þess
frá 1987-88 og aftur leikhúsritari frá
1988. Hún var lausráðinn dagskrár-
gerðarmaður við Ríkisútvarpið á
Akureyri 1983-86 og sá þá um þátt-
inn Kotru. Hún hefur verið lausráð-
inn dagskrárgerðarmaður við RÚV,
rás 1, sl. tvö ár og hefur þá verið
með þættina Ómur að utan, Sveita-
sæla og Furðusögur úr leikhús-
heiminum. Signý hefur leikstýrt hjá
áhugaleikfélögum og hjá LA. Hún
hefur þýtt leikritin Markólfa, eftir
Dario Fo, Ég elska þig, eftir
Comedievognen, Gúmmí-Tarsan,
eftir Ole-Lund Kirkegaard, Þegar
jólasveinninn viUtist, eftir Jan Vörs, |
Einkalíf, eftir Noel Coward og Jóla-
ævintýri, eftir Charles Dickens. Þá
samdi hún barnaleikritið Siggi var
úti, frumsýnt hjá LA1982,18. júní,
flutt í ríkisútvarpið 1986 og nokkra
leikþætti fyrir skóla.
Signý var meðstofnandi og leikari
með leikhópnum Andrókles í Kaup-
mannahöfn 1970-71, formaður Fé-
lags íslenskra námsmanna í Kaup-
mannahöfn 1971-72, formaður Leik-
félagsins Grímnis í Stykkishólmi
1977-82, í stjórn Bandalags íslenskra
leikfélaga 1979-82, stofnforseti Mál-
freyjudeildarinnar Emblu í Stykkis-
hólmi 1981-82 og í stjórn Zonta-
klúbbs Akureyrar 1985-86.
Signý giftist 5.7.1969, Ólafi Torfa-
syni, ritstjóra Þjóðviljans frá 1989,
en hann var áður forstöðumaður
Upplýsingaþjónustu landbúnaðar-
ins, f. 27.7.1947. Foreldrar Ólafs eru
Jóhanna Gunnars, húsmóðir í
Kópavogi, og Torfi Ólafsson, búsett-
ur í Reykjavík, fyrrv. deildarstjóri í
Seðlabanka íslands og formaður
Félags kaþólskra leikmanna, en Jó-
hanna og Torfi er fráskilin.
Börn Signýjar og Ólafs eru Mel-
korka Thekla Ólafsdóttir, f. 5.1.1970,
nemi í íslensku og bókmenntum við
HÍ; Guðrún Ólafsdóttir, f. 29.8.1973,
d. 4.9.1973; Torfi Frans Ólafsson, f.
13.5.1975, og Guðrún Jóhanna Ólafs-
dóttir, f. 22.7.1977.
Alsystkini Signýjar eru Stefán, f.
3.7.1945, hrl í Reykjavík, kvæntur
Hólmfríði Árnadóttur, viðskipta-
fræðingi og forstöðumanni hjá Flug-
leiðum, og eiga þau þrjú börn; Sess-
elja, nú kölluð Sella Palsson, f. 25.10.
1946, leiksýningaframleiðandi og
myndbandagerðarmaður í Uthah í
Bandaríkjunum, Bs í sálarfræði,
fráskilin og á einn son; Páll Amór,
f. 5.6.1948, hrl. í Reykjavík, kvæntur
Ragnheiði Valdimarsdóttur, klipp-
ara hjá ríkissjónvarpinu, og eiga
þau þrjú börn; Þórunn, f. 3.11.1951,
kennari og leikari í Reykjavík, frá-
skilin og á tvö börn; Sigþrúður, ber
listamannanafnið Sissú, f. 22.11.
1954, BFA í myndlist, myndlista-
maður í Santa Fe í Nýju Mexíkó í
Bandaríkjunum og á eitt barn; Anna
Heiða Pálsdóttir, f. 14.11.1956, for-
stjóri heildverslunarinnar ísport og
eigandi verslunarinnar Partý, gift
Hilmari Ævari Hilmarssyni, fram-
kvæmdastjóra og kaupmanni, og
eiga þau tvö börn, og ívar, f. 26.2.
1958, viðskiptafræðingur og forstjóri
útflutningsfyrirtækisins Sævörur
sem hann rekur í samvinnu við
breska fyrirtækið Sea Products Int-
emational, kvæntur Gerði Thor-
oddsen lögfræðingi og eiga þau sam-
an eitt barn auk þess sem ívar átti
barn áður. Hálfbróðir Signýjar,
samfeðra, er Gísli Hlöðver Pálsson,
doktor og prófessor í stjömueðlis-
fræði og yflrmaöur kenningadeildar
geimvísindastofnunar Bandaríkj-
anna í Los Alamos í Nýju Mexíkó
en þar kallast hann Jack Gilbert
Hills, f. 15.5.1943, sonur Kristínar
Gísladóttur, en Gísli er kvæntur
Cindy Hills og eiga þau eina dóttur.
Foreldrar Signýjar: Páll S. Páls-
son, f. 29.1.1916, d. 11.7.1983, hrl. í
Reykjavík, og eftirlifandi kona hans,
Guðrún Stephensen, f. 11.5.1919,
kennari, fyrrv. forstöðumaður á
barnaheimili í Reykjavík, nú starfs-
maður á Þjóðminjasafni.
Meðal foðursystkina Signýjar má
nefna Hermann, prófessor í Edin-
borg, Jón, sem var formaður Garð-
yrkjufélags íslands um skeið, og
Gísla, b. á Hofi.
Páll var sonur Páls, b. í Sauðanesi
í Torfuiækjarhreppi, Jónssonar, b.
þar, Jónssonar. Móðir Páis í Sauða-
nesi var Helga Gísladóttir. Móðir
Páls hrl var Sesselja Þórðardóttir,
b. í Steindyrum, ættfóður Stein-
dyraættarinnar, Jónssonar, og konu
hans, GuðrúnarBjörnsdóttur.
Foreldrar Guðrúnar vora Stefán
Hansson Stephensen, trésmiður í
Winnipeg, síðar í Reykjavík, og
kona hans, Friðný Gunnlaugsdóttir.
Föðurbróöir Guðrúnar var Ög-
mundur, faðir Þorsteins Ö. leikara.
Stefán var sonur Hans Stephensen,
b. á Hurðarbaki í Kjós, bróður Sig-
ríðar, ömmu Helga Hálfdanarsonar
og langömmu Hannesar Pétursson-
ar skálds. Hans var sonur Stefáns
Stephensen, prests á Reynivöllum í
Kjós, Stefánssonar, Stephensen,
Signý Pálsdóttir.
amtmanns á Hvítárvöllum, Ólafs-
sonar, stiftamtmanns í Viðey, Stef-
ánssonar, ættföður Stephensenætt-
arinnar. Móðir Hans var Guörún,
systir Þuríðar, langömmu Vigdísar
Finnbogadóttur. Guðrún var dóttir
Þorvaldsi prófasts og skálds í Holti,
Böðvarssonar. Móðir Stefáns var
Guðrún Ögmundsdóttir frá
Hlemmiskeiði. Móðir Guðrúnar var
Þórunn Sturlaugsdóttir, b. á Brjáns-
stöðum, Egilssonar, og konu hans,
Þorbjargar Björnsdóttur, systur
Knúts, langafa Tómasar Guð-
mundssonar skálds.
Móðir Guðrúnar Stephensen var
Friðný Gunnlaugsdóttir, b. í Hlíð í
Álftafirði, Gunnlaugssonar, b. á
Svarfhóli, Gunnlaugssonar. Móðir
Friðnýjarvar Jónína, systirEfemíu,
langömmu Gunnars Hanssonar,
forstjóra IBM og Óskars Vigfússon-
ar, formanns Sjómannasambands
íslands.
Margrét Anna Guðmundsdóttir
Margrét Anna Guðmundsdóttir
húsmóðir, Brávöllum 7, Egilsstöð-
um, verður áttatíu og fimm ára á
morgun, 11. mars.
Margrét fæddist í Sporðshúsum í
Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu og
ólst upp í Víðidal og í Kirkju-
hvammshreppi. Hún bjó ásamt eig-
inmanni sínum á Hrísum í Víðidal
og síðar á Kistu í Vesturhópi. Árið
1948 fluttu þau svo að Hnausi í Flóa
og bjuggu þar til 1952. Þá fluttu þau
til Reykjavíkur þar sem Margrét
starfaði á Elli- og hjúkrunarheimil-
inu Grund 1956-74. Hún flutti síðan
til Egilsstaða með syni sínum, Guð-
mundi Ingva, 1979 og hefur dvalið
þarsíðan.
Margrét giftist árið 1933 Jóhanni
Jónassyni bónda, f. 6.1.1898, d. 1956.
Foreldrar hans voru Jónas Jó-
hannsson og Sigríður Hannesdóttir
er bjuggu að Kistu á Vatnsnesi í
Vestur-Húnavatnssýslu.
Börn Margrétar og Jóhanns eru:
Sigurður Helgi, f. 10.2.1930, banka-
maður í Landsbankanum, búsettur
í Reykavík, var kvæntur Sigrúnu
Jóhannsdóttur húsmóður en þau
slitu samvistum og eru börn þeirra:
Þórunn, Margrét Þyrí og Jóhann
Haukur.
Sigríður, f. 10.2.1933, búsett í
Ástralíu, gift Maron Vilhjálmssyni,
en börn hennar frá fyrra hjónabandi
eru: Grétar og Sigurlaug Gústafs-
börn.
Jónas, f. 9.11.1935, afgreiðslustjóri
hjá ÍSAGA, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Sigríði Jónsdóttur og era
börn þeirra: Jóhann, Björk, Bene-
dikt og Atli.
Guðmundur Ingvi, f. 27.7.1942,
tæknifræðingur hjá Pósti og síma á
Egilsstöðum.
Systkini Margrétar: Jónas Ágúst,
f. 20.8.1899, látinn; Ingibjörg María,
f. 17.4.1901, látin, var gift Mathis
Olsen, sem einnig er látinn og eign-
uðust þau eitt barn; Finnbjörg Jón-
ína, f. 25.8.1903, látin og eignaðist
hún eitt barn; Björn Líndal, f. 12.7.
1906, búsettur á Hvammstanga,
kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur og
eiga þau fjögur böm; Petrea Guðný,
f. 15.4.1908, búsett í Danmörku,
ekkja Rasmus Rasmussen og eign-
uðust þau eitt barn; Bjarnheiður
Soffía, f. 20.5.1909, búsett á
Hvammstanga og á hún eitt barn;
Víglundur, f. 12.8.1911, d. 1952; Sig-
urbjörn Ragnar, f. 7.4.1913, búsettur
í Kolugili, kvæntur Ásu Gunnlaugs-
dóttur; Ragnheiður, f. 7.8.1914, bú-
sett á Selfossi, gift Greip Ketilssyni,
og á hún þrjú börn; og Gunnþór, f.
19.6.1916, búsettur á Hvammstanga,
kvæntur Ingveldi Björnsdóttur og
eiga þau fjögur börn.
Foreldrar Margrétar voru Guð-
mundur Friðrik Jónasson, f. 26.3.
1869, d. 1936, b. í Lækjarkoti og víð-
ar, og Ingibjörg Árnadóttir, f. 14.6.
1873, d. 1954.
Guðmundur Friðrik var sonur
Jónasar, b. í Helguhvammi, Jó-
hannessonar, b. í Kirkjuhvammi,
Jónassonar.
Móðir Jónasar í Helguhvammi var
Margrét Jónsdóttir frá Saurum.
Margrét Anna Guðmundsdóttir.
Móðir Guðmundar Friöriks var Jó-
nesa Jónasdóttir, b. í Kolugili, Jón-
assonar og Sigrúnar Þorgrímsdótt-
ur.
Ingibjörg, móðir Margrétar, er tal-
in vera dóttir Árna nokkurs er síðar
sigldi til Ameríku og er móðir henn-
ar talin heita Elísabet.
Magnús Þóröarson,
Borgarlirauni 1, Grindavík,
Sigríður Valdimarsdóttir,
Vanabyggö 19, Akureyri.
Birgir Þ.M. Guðmundsson,
Grettisgötu 42B, Reykjavík. 1.
Elín Valdimarsdóttir,
Sólvallagötu 38, Keflavík.
Guðlaug J. Vestmann,
Ósi 1, Skilmannahrcppi.
60 ára
Stefán Björnsson,
Smiðjustíg 4, Njarðvík.
Ólafur Sigurðsson,
Fossheiðil3,Selfossi.
Björk Helgadóttir,
Vesturbergi 134, Reykjavík.
Guðmundur Hallgrímsson,
Hagatúm, Hvanneyri, Andakíis-
hreppi.
Karl Sigurðsson,
Breiðumörk 33, Hveragerði.
Magnús Jón Pétursson,
Vitastíg 6A, Hafnarfirði.
Sigurbjörg Ottesen,
Nökkvavogi 56, Reykjavík.
Sigvaldi Ásgeirsson,
Haukadal L Biskupstungnahreppi.
Þeireruvel
séöir í umferft-
inni semnota
endurskins-
merki
yUMFERÐAR
RAÐ
Níels Pétursson,
Glúmsstaðaseli, Fljótsdalstoeppi.
Elisabet Albertsdóttir,
Suðurgötu 76, Hafnarfirði.
Sigurlína Gísladóttir,
Eyrargötu 12, Siglufirði.
Asdis Guðmundsdóttir,
Sogavegi 196, Reykjavík.
70 ára
Eyjólfur Bjarnason,
KyJjuholti, Mýrahreppi.
Áslaug Þorsteinsdóttir,
Helgamagrastræti 12, Akureyri.
60 ára
Sigurfinnur Jónsson,
Öldustíg9, Sauðárkróki.
50 ára
Björg Pálína Jóhannsdóttir,
Suöurgötuðl, Siglufirði.
40ára
Guðrún K. Sigurðardóttir,
Sæbólsbraut 17, Kópavogi.
Bjarni Bœrings Bjarnason,
Merkjateigi 4, Mosfellsbæ.
Guðrún Víglundsdóttir,
Faxastíg 11, Vestmannaeyjum.
Hrönn Andrésdóttir,
Stelkshóium 12, Reykjavík.
Brynja Hrönn Axelsdóttir,
Asparfelii 8, Reykjavilt.
Ólafur Þorbjörnsson,
Látraströnd 22, Seltjarnarnesi.