Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1990, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1990, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR .13; MARS 1990. 6 DV 50 „ódýrir Ungverjaru reisa stálstangaverksmiðju 1 Kapelluhrauni: Fréttir Stóran þarf hluta hráefnis að flytja inn - Eimskip kannar stækkun skipaflotans vegna mikilla flutninga Fimmtíu ungverskir iönaðarmenn vinna nú viö uppsetningu á stórri verksmiöju fyrir Islenska stálfélagið í Kapelluhrauni sunnan við álverið í Straumsvík. Ungverjarnir taka um sex hundruð krónur á tímann fyrir vinnu sína - tæpum eitt þúsund krónum minna en íslenskir kollegar þeirra almennt gera. Ungverjarnir buðust til að annast uppsetningu verksmiðjunnar þar sem þeir hafa mikinn áhuga á að afla sér gjaldeyristekna. Sami hópur tók sams konar verksmiðju niður í Hpl- mot í Frakklandi á síðasta ári. ís- lenska verktakafyrirtækið Fura sér um steypuvinnu og undirstöðugerð. Verksmiðjan mun framleiða stál- stangir úr brotajárni með stórvirk- um járnsteypuvélum sem þegar eru komnar til landsins. Að sögn Gísla H. Guðlaugssonar staðartæknifræð- ings næst best framleiðslunýting með því að fá 60-80 þúsund tonn af brotajárni til framleiðslunnar á ári. Sá galli er þó á gjöf Njarðar að aðeins fást um 20 þúsund tonn á ári hér á landi - því veröur að flytja inn stærstan hluta hráefnisins ef nýta á verksmiðjuna til fulls. Aðaleigandi íslenska stálfélagsins er breska fyrirtækið Ipasco en aðal- Keflavík: Stórsamningur um kaupleiguíbúðir Ægir Már Kárason, DV, Suöumes: „Átta umsækjendur voru um hverja íbúð af félagslegum kaup- Kristján Gunnarsson framkvæmda- stjóri. DV-mynd Ægir Már leiguíbúðum og leiguíbúðum sveitar- félaga í Keflavík,“ sagði Kristján Gunnarsson, framkvæmdastjóri Verkamannabústaða Keflavíkur og Njarðvíkur, í samtali við DV og bætti við: „Við erum búnir að sækja um 40 íbúðir til Húsnæðisstofnunar rík- isins og vonumst eftir svari fljót- lega.“ Nýlega var gerður 80 milljón króna samningur um verkamannabústaði. Þar af voru sjö félagslegar kaupleigu- íbúðir, fjórar í raðhúsi, tvær í fjór- býlishúsi og ein þriggja herbergja blokkaríbúð - og sex leiguíbúðir sveitarfélaga. Fjórar þeirra eru þriggja herbergja blokkaríbúðir og tvær tveggja herbergja íbúðir. Sam- tals verða það því 1253 m2 sem munu bætast við húsakostinn í Keflavík á næstunni. Skagamenn vilja álver „Við erum hálfóhressir með það hér á Akranesi að enginn skuli nefna Hvalfjörðinn sem hugsanlegan stað fyrir nýtt álver. Staðarvalsnefnd hef- ur áður komist að því að þetta sé einn besti staðurinn á landinu," sagði Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, í samtali við DV. „Öll stemmningin virðist vera fyrir Eyjafirði eða Reyðarfirði en það eru fleiri staðir sem koma til greina. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra hefur talað um að meiri stóriðja hér gæti raskað of mikið atvinnulífinu sem er fyrir en það ætti þá ekki síður að eiga við um Reyðarfjörð. Þaö kæmi sér vel á þessu svæði við Hvalíjörðinn að fá nýjan kraft í at- vinnulífið á sama tíma og hvalurinn virðist úr sögunni og mikið á að draga saman umsvif vegna olíu- stöðvarinnar í Hvalfirði.með tilkomu nýrrar stöðvar í Helguvík," sagði Gísli. -GK Selfoss: Sjálfstæðismenn kaupa húsnæði Regina Thorarensen, DV, Selfossi: Ég frétti nýlega að Sjálfstæöisfélagið Óðinn á Selfossi hefði keypt 214 m2 hæð á þriðju hæð að Austurvegi 38 hér á Selfossi á sex milljónir króna af Samtökum sunnlenskra sveitarfé- laga. Hæöin hefur verið á söluskrá frá því í fyrrasumar og enginn gerði tilboð í hana fyrr en Oðinn nú. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga flytja um næstu helgi í mun stærra húsnæði í gamla KÁ-húsinu'sem var byggt 1945 og samtökin keyptu 19. júlí 1988 ásamt Selfossbæ. Hlutur þeirra í þeim kaupum vgr 19,8 millj- ónir króna. Þess má geta að lyfta er ekki í hús- inu að Austurvegi 38. íslandsbanki er á 1. hæð og forráðamenn hans vildu ekki kaupa 3. hæðina vegna þessa lyftuleysis. Það má nú segja að ekki er sama hvar þessi 250 þúsund manna þjóð á íslandi á húseignir. Nýlega var seld 97 m2 íbúð, 22ja ára gömul, í góðu ástandi á 6,2 milljónir króna í Reykjavík. í tilefni sölunnar bauð Hjörtur Þórarinsson, framkvæmda- stjóri Samtaka sunnlenskra sveitar- félaga, öllum sem vinna að Austur- vegi 38 í kaffi og rjómatertu frá Guðnabakaríi. Ungversku iðnaðarmennirnir taka um eitt þúsund krónum minna á tímann fyrir vinnu sína en íslenskir kollegar þeirra. Skammt frá verksmiðjunni eru vinnubúðir þar sem Ungverjarnir búa. DV-mynd Brynjar Gauti eigendur þess fyrirtækis eru sænskir aðilar. íslendingar eiga minnihluta í fyrirtækinu. Heildarhlutafé verk- smiðjunnar er 46 milljónir króna. Áhugi erlendu aðilanna á fram- leiðslu á stálstöngum hér á landi er til kominn vegna hagstæðs raforku- verðs. Gert er ráð fyrir að fimmtán menn verði ráðnir við verksmiðjuna þegar hún hefur framleiðslu næsta sumar. Auk þess munu nokkrir aðilar koma til með að sjá um öflun hráefnis. Heimsmarkaðsverð fyrir stálstangir er um átján þúsund krónur fyrir tonnið en gangverð á tonni af brota- járni hér á landi er um 500 krónur tonnið. Fob-verð á brotajárni erlend- is er um 100 dollarar, um sex þúsund krónur, og á þá eftir að leggja við flutningskostnað til íslands. Miðað við framleiðslu á 20 þúsund tonnum af stálstöngum verður útflutnings- verðmæti um 360 milljónir króna en 1,8 milljarðar miðað við fulla afkasta- getu með 80 þúsund tonnum af inn- fluttu hráefni. íslenska stálfélagið hefur þegar gert samning við stórflutningadeild Eimskipafélags íslands um flutninga á brotajámi til íslands og á stálstöng- um frá landinu. í ráði er að umskip- unarhafnir verði í Straumsvík, Hafn- arfirði eða Reykjavík. Eimskip kann- ar nú möguleika á að útvega skip til viðbótar eða í staðinn fyrir ms. Lag- arfoss sem siglir með hráefni og ál fyrir íslenska álfélagið í Straumsvik. -ÓTT 0FISHER Fermingargjöf - framtíðareign S FISHER ’90 hljómtækjalínan Toppurinn í dag!! system M-82 * Magnari 2x70 W músík * Tónjafnari, 5 banda * Hálfsjálfvirkur plötuspilari * Þráðlaus Qarstýring * Stafrænt útvarp * Tvöfalt segulband m/24 stöðva minni m/Auto reverse * Surround System * Hátalarar, 2x70 W músík Verð kr. 49.900,- stgr. án geislaspilara. Verð kr. 71.500,- stgr. m/geislaspilara SJÓNVARPSMESTÖÐIN HF Síðumúla 2, sími 68 90 90

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.