Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1990.
Fréttir
Skoðanakönnim DV:
A4lokkarnir halda
ekki meirihluta
- Sjálfstæðisflokkur og Kvennalisti vinna hvor sinn manninn
Samkvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar DV mundi meirihluti Al-
þýðuflokks og Alþýðubandalags falla
ef gengið yrði til kosninga nú. Þessir
flokkar fengu samanlagt 52,4 prósent
atkvæða í síðustu kosningum og 6
af 11 fulltrúum í bæjarstjórn. í skoð-
anakönnun DV mældist fylgi þeirra
nú 35,5 prósent eða 16,9 prósentustig-
um minna en í kosningunum. Þetta
fylgi mundi ekki tryggja þessum
flokkum nema 4 bæjarfulltrúa ef úr-
sbt kosninganna yrðu eins og niður-
stöður könnunar DV.
Sjötti maður Sjálfstæðis-
flokksins á þröskuldinum
Miðað við niðurstöður könnunar-
innar hefur Sjálfstæðisflokkurinn
bætt mest við sig síðan í kosningun-
um 1986. Þá fékk hann 32,1 prósent
atkvæða en fær nú 44,1 prósent fylgi
í könnun DV. Það er ívið meira fylgi
en hann hafði fyrir ósigurinn í kosn-
ingunum 1986 en hann fékk 42,1 pró-
sent fylgi í kosningunum 1982.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins í könnun
DV nú gefur honum 5 fulltrúa af 11
bæjarstjórnarmönnum. Sjötti sjálf-
stæðismaðurinn er næstur inn sam-
kvæmt niðurstöðum könnunarinnar
og mundi hann þá fella annan mann
á lista Alþýðuflokks sem stendur
tæpast af þeim sem eru inni.
A-flokkarnir tapa miklu
Alþýðuflokkurinn hefur tapað
mestu frá síðustu kosningum. Þá
fékk hann 24,5 prósent atkvæða og 3
menn kjörna. Nú mælist fylgi hans
14,8 prósent eða 9,7 prósentustigum
minna. Þetta fylgi nægir til þess að
flokkurinn fái 2 menn í bæjarstjóm
en annar maður flokksins stendur
tæpt.
Alþýðubandalagið, hinn meiri-
hlutaflokkurinn, tapar einnig en
ekki eins miklu og Alþýðuflokkur-
inn. í kosningunum 1986 fékk Al-
þýðubandalagið 27,9 prósent at-
kvæöa og 3 menn kjörna. Nú mælist
fylgi hans í 20,7 prósentum eða 7,2
prósentustigum lægra en í kosning-
unum. Alþýðubandalagið missir því
mann samkvæmt skoðanakönnun
DV.
Fylgi Framsóknar breytist btið.
Það var 13,6 prósent í kosningunum
1986 en mælist nú 11,8 prósent. Einn
fulltrúi flokksins í bæjarstjórn held-
ur því sæti sínu.
Kvennalistinn býður nú í fyrsta
sinn fram í Kópavogi. Miðað við nið-
urstöður skoðanakönnunar DV nær
bstinn inn einum manni í bæjar-
stjórn með 8,6 prósent fylgi af þeim
sem tóku afstöðu.
Margir óákveðnir
Samkvæmt skoðanakönnun DV
em um 35,3 prósent Kópavogsbúa
enn óákveöin og 8,3 prósent neita að
svara. Þeir sem taka afstöðu em því
56,4 prósent af úrtakinu. Það er mun
minna en í könnun sem gerð var í
Reykjavík á sama tíma en þar vom
65,1 prósent Reykvíkinga sem voru
búnir að gera upp hug sinn.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns og skiptist það jafnt á mibi
karla og kvenna í Kópavogi. Spurt
var: Hvaða lista mundir þú kjósa ef
bæjarstjómarkosningar færu fram
nú? -gse
Núverandi bæjarstjórn Kópavogs. Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnun-
ar DV mundu báðir meirihlutaflokkarnir, Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag,
missa mann og þar með meirihlutann. Sjálfstæðismenn fengju annan mann-
inn og Kvennalistinn hinn.
Niðurstöður skoöanakönnunarinnar urðu þessar:
Til samanburðar eru úrsiit kosninganna 1986 innan sviga
Af úrtaki Af þeim sem tóku af- stöðu Fulltrúar
Alþýðuflokkur 8,3% 14,8% (24,5%) 2(3)
Framsóknarflokkur 6,7% 11,8% (13,6%) 1 (1)
Sjálfstæðisflokkur 24,8% 44,1% (32,1%) 5(4)
Alþýðubandalag 11,7% 20,7% (27,9%) 2(3)
Kvennalisti 4,8% 8,6% (-) 1 (“)
Svara ekki 8,3%
Óákveðnir 35,3%
Skodanakönnun DV, Kopavogur
Ummæli fólks í könnuninni
„Þaö er kominn timi til að losna ur kjósandi. „Ég kýs abavega ekki á bsta Alþýðubandalagsins,“ sagði
við þetta vinstrahð úr bæjarstjóm- Sjalfstæðisflokkinn," sagði karl. þriðji karlinn. „Ég er mikill aðdá-
inni,“ sagði karl. „Ég hef búið í „Ég er ánægöur með núverandi andi Davíös og vbdi að ég fengi að
Kópavogi í þrjátíu ár og stjóm- stjórn og kýs þvi Alþýðubandalag- kjósa hann,“ sagði kona. „Ég hef
málamennimir hér kunna ekki aö ið,“ sagði kona. „Eg kýs alltaf alltaf kosið D-bstann en ætla ekki
klára verkin. Ég kýs því ekki,“ Framsókn,“ sagði önnur kona. að gera það núna því þeir ætla að
sagði annar karl. „Þó viö eigum „Mér finnst komið of mikið af fé- hætta við byggingu íþróttahallar-
engan Davíð hér í Kópavogi þá lagsmálastússi hér í bæ. Ég kýs því innar,“ sagði karl. „Alþýðuflokk-
ætla ég að kjósa Sjálfstæðisflokk- Sjábstæðisflokkinn,“ sagöi karl. urinn er minn flokkur,“ sagöi
inn," sagði kona. „Herbergið mitt „Ég hef ekki prófað Kvennabstann kona. „Ég er að flytja úr Kópavogí
er orðið fubt af abs konar kosning- og ætla þvi að kjósa hann,“ sagði og ætla að kjósa G-bstann og leyfa
abæklingum. Þaö er sjálfsagt kom- annar karl. „Ég er ánægður með Kópavogsbúum að fá þaö sem þeir
inn timi til aö bta á þá,“ sagði ung- handboltahöhinaogefstamanninn eigaskbiö,“sagðikarl. -gse
Kosningarl986
M
1,9%
13,6%
Könnunl990
v
11,8%
í dag mælir Dagfari
Steingrímur plataður?
Steingrímur Hermannsson átti
aldeibs erindi til fundar við Arafat.
Steingrímur fékk nefnilega með sér
sönnunargagn um að ísraelsmenn
hefðu í hyggju að leggja undir sig
öll Arabarikin í kringum ísrael.
Arafat sýndi Steingrími pening og
leyfði honum meira að segja að
taka peninginn með sér heim. Á
þessum peningi sést landakort af
svokölluðu Stór ísrael segir Arafat,
sem sýnir auðvitað fram á hvað
fyrir ísraelsmönnum vakir.
Þessi peningur sem Arafat gaf
Steingrími er helsta umræðuefni
Vesturlandabúa um þessar mund-
ir. Sumir andstæðingar Arafats og
Steingríms hafa verið að véfengja
sannleiksgildi þessarar fréttar og
myntsérfræðingar segja að þetta sé
brot úr gömlum peningi frá
Makkabea- tímabibnu frá því fyrir
Krists burð. Þar blasir við kerta-
stjaki með sjö örmum og enginn
hafi áður getað lesið út úr mynd-
inni að þar sjáist landakort.
En Steingrimur veit betur. Arafat
sagði honum að þetta væri landa-
kort og Steingrímur trúir Arafat
og segir aö peningurinn sanni að
ísraelsmenn hafi ekki gefið upp
sína stórveldisdrauma. ''Þeir hafa
annað slagið komið með þetta stóra
landsvæði í sínum hugmyndum".
Nú kann einhver að segja að
Steingrímur hafi verið plataður.
Það hafa minni menn en Arafat
platað Steingrím, enda er Stein-
grímur auðtrúa maður og hjarta-
hreinn og trúir því ekki upp á
nokkurn mann að fara með fleipur.
Aldrei fer Steingrímur með fleipur
og hvers vegna ættu þá aðrir aö
gera það? Nei, Steingrímur trúir
sínum góða vini Arafat úr því Ara-
fat trúði Steingrími fyrir stórvelda-
draumum ísraelsmanna. Stein-
grímur fékk peninginn að gjöf frá
Arafat svo Steingrímur geti sýnt
peninginn á Vesturlöndum og upp-
lýst veröldina um stórvelda-
drauma ísraels.
Síðan Steingrímur var með Ara-
fat hefur hann komið við í Noregi
og Þýskalandi og nú síðast var
hann í Tékkóslóvakíu og svona víð-
förull maður getur auðveldlega
komið því við að sýna viðmælend-
um sínum peninginn frá Arafat
meö landakortinu. Hann getur
þannig breitt út boðskap Arafats
pg varaö við stórveldadraumum
ísraelsmanna, vegna þess að ef ein-
hver efast um að Steingrímur segi
satt, getur Steingrímur dregiö upp
peninginn frá Arafat og sannað sitt
mál.
Allir vita að Palestínumenn eru
ekki of Qáðir og þess vegna var það
mikið örlæti af Arafat að gefa
Steingrími peninginn en það örlæti
getur marg borgað sig ef Steingrím-
ur reynist jafn ötull og raun ber
vitni að segja öðrum frá því sem
Arafat sagði við hann. Steingrímur
er mikils metinn þjóðarleiðtogi sem
lætur ekki plata sig á hverjum degi
og platar ekki aðra að ásettu ráði.
Ef Steingrímur er plataður er hann
vanur aö segja frá því eftir á og þá
eru aðrir að’ plata hann en hann
ekki þá.
Sérfræðingar í alþjóðamálum og
allir þeir stjórnmálafræðingar og
stjórnmálamenn sem árum saman
hafa unnið að lausn mála fyrir
botni Miðjarðarhafs geta hugsan-
lega haft einhverjar efasemdir um
fullyrðingar Arafats og Steingríms.
En Steingrímur hefur svlobtið
umfram aba þessa sérfræðinga
sem enginn þeirra hefur tekið eftir
áður. Steingrímur hefur nefnilega
undir höndum þennan pening frá
Arafat sem flettir ofan af stórvelda-
draumum ísraelsmanna og kemur
upp um þá.
Árafat hefur lengi reynt að gefa
einhverjum viðmælenda sinna
þennan pening sem sönnunargagn
en enginn hefur þegið hann fyrr
en Steingrímur kom alla leið frá
íslandi og sá strax að þarna var
lykibinn að vandamálum ísraels
og Palestínu. Trikkið var nefnilega
það að Steingrímur þáði peninginn
og tók hann með sér heim. Þetta
hefur engum hugkvæmst áður og
það er vegna þess að Steingrímur
lætur ekki plata sig og vill ekki
plata aðra. Þess vegna sýnir hann
peninginn þegar hann þarf að
sanna sitt mál.
Þaö sem Arafat sagði Steingrími
og Steingrímur hefur eftir Arafat
er nákvæmlega það sem Arafat
sagði Steingrími. Og þegar Stein-
grímur segir það sem Arafat segir
honum þá segir Steingrímur satt.
Hann platar engan, hann Stein-
grímur. Þetta veit Arafat.
Dagfari