Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Síða 12
12
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1990.
Lesendur
Með hlýhug til litaðra
Sæunn Ólafsdóttir skrifar:
Undanfarnar vikur hef ég æ oftar
rekið augun í greinar fólks sem
vill láta banna „innflutning" þel-
dökks fólks. Við sem búum á ís-
landi höfum lítinn skilning á þeim
hörmungum, sem yfir þetta fólk
hefur dunið, eða þeim ömurlegu
lífsskilyröum sem það býr við. -
Því þykir mér leitt að sjá að fólk
sem býr í okkar velferðarþjóðfélagi
vilji hindra örfáa útlendinga í að
njóta lífsgæðanna með okkur.
Allt er þeim fundið til foráttu.
Þeir séu „ljótir á litinn", lagi vond-
an mat, og læri aldrei að tala al-
mennilega íslensku! Það nýjasta er
að þeir hafi ekki sambærilega
greindarvísitölu! - Aðallega hefur
fólk þó áhyggjur af kynblöndun-
inni. Aíleiðingar kynblöndunar
gætu orðið ýmis óæskileg litaaf-
brigöi - sá ég eftir mann nokkurn
um daginn! Þessi ummæli gætu
e.t.v. átt við í hesta- eða hunda-
rækt, en mér flnnst mjög óviðeig-
andi að tala svona um manneskjur.
Ég get samt sagt þeim til huggunar
sem hafa af þessu áhyggjur, að þó
að genin sem stjóma litarhætti
manna séu ríkjandi í dekkri kyn-
stofnum, þá murtu þau ræktast úr
á nokkrum mannsöldrum. - ísland
framtíðarinnar mun því verða al-
veg jafn hvítt, hreint og fallegt á
u.þ.b. 100 árum og það er nú. Að
því tilskildu að innflytjendur verði
ekki því fleiri.
Annars skil ég ekki þá andúð sem
skyndilega ríkir á þessum hör-
undslit. Ég veit ekki betur en ís-
lendingar þyrpist þúsundum sam-
an á sólarstrendur og á ljósastofur
til þess að fá þennan sama lit, ger-
ast þeldökkt! Fyrir fáum árum
gekk hérlendis tískubylgja meðal
unglinga, sem létu lita hár sitt
svart. - Það voru engir sem fettu
fmgur út í það. - Ég hélt að ölium
misskilningi af þessu tagi hefði ver-
ið útrýmt. Þvi miður hafði ég rangt
fyrir mér.
Hvað varðar matargerð og trú þá
efast ég stórlega um að þessum fáu
einstaklingum takist eða hafi
nokkurn áhuga á að troða ein-
„Veit ekki betur en Islendingar þyrpist til sólarlanda - til þess að ger-
ast þeldökkt!" segir m.a. í bréfinu.
hverri trúvillu upp á okkur eða að
brasa ofan í okkur eitraðan mat. -
Það gerum við hins vegar ríkulega
gagnvart þeim. Við verðum að
skilja að okkar lifnaðarhættir eru
þeim álíka framandi og þeirra eru
okkur. Þess vegna ber okkur að
sýna þessu fólki umburðarlyndi og
taka á móti því meö hlýhug því hér
á íslandi er ef til vill eina von þeirra
um betra líf.
Ólafur reið með
björgum fram
Kvennalistaviðhorf til bama:
María Guðmundsdóttir skrifar:
Ég var að enda við að hlusta og
horfa á umræðuþátt sem sendur
var út vegna borgarstjórnarkosn-
inganna í Reykjavik. Maður varð
svo sem ekki mikils vísari og ekki
var fyrir að fara frjóum máltlutn-
ingi hjá neinum þessara þátttak-
enda. Einkennilegt hvað fulltrúar
Sjálfstæðísflokksins taka við hnút-
um og brigslyrðum frá hinum
ósamstæða hópi andstæðinganna.
Þarna kom einmitt hvert tæk-
ifærið eftir annað til að kaffæra
málílutning hinna ýmsu tals-
manna vinstri flokkanna, ekki síst
Kvennalista, Framsóknartlokks og
Alþýðubandalags. Ég vil þó taka
fram að mér fannst framkoma
Árna Sigfússonar vera óaðfinnan-
leg, hann var málefnalegur og
traustvekjandi og mun örugglega
ná langt ef hann ber gæfu til að fá
náð fyrir augum samflokksmanna
og nefnda þeirra sem sjá um „nið-
urröðun" áframboðslistaíframtíð-
inni.
í þessum sjónvarpsumræðum,
sem voru hvorki fugl né fiskur,
hvað málefni snertir, fannst mér
þó hneysklanleg ummæli eins full-
trúa Kvennalistans, en sá fiokkur
er með dagvistunarpláss og leik-
skóla á heilanum, er hann sagði
farir foreldra ekki sléttar í sam-
skiptum þeirra við börn sín. For-
eldrar víldu bara fá að eta hádegis-
mat í friði með vinnufélögum en
væru nú neyddir (líklega af borgar-
yfirvöldum?) til að fara heim og
gefa bömum sinum að borða!
Ég hefi sjaldan heyrt pólitíska
talsmenn fara eins Út af laginu í
stjórnmálakarpi og kvennalista-
konur gerðu í þessum þætti. Og það
versta fyrir þær sjálfar var að þær
meintu hvert orð af því sem þær
sögðu. Það er þess vegna sem þær
eiga svo erfitt uppdráttar þegar á
hólminn er komið og eiga að taka
ákvarðanir, að þær fylgja þeirri
sannfæringu sinni; að tala beint frá
hjartanu og hjartalag þeirra er ekki
hreinna eða fegurra en þetta að
þær hugsa fyrst um sig - síðan um
börnin.
Borgarstjórnarkosningamar:
Nei við nýjungagirni
Spumingin
Spilarðu bridge?
Aðalsteinn Einarsson nemi: Nei, ég
hef aldrei lært það.
Ómar Ólafsson, starfsm. í prent-
smiðju: Ég spila stöku sinnum í mat-
arhléum á vinnustað og með félögum
í Félagi bókagerðarmanna.
Hulda Þórarinsdóttir iðnverkakona:
Nei.
Eydun Ellendersen ráðgjafi: Ég kann
ekki bridge.
Helgi Hilmarsson sjómaður: Ég spila
ekki bridge.
H.G. skrifar:
Einhver fjölmiðill sagði svo frá að
um leið og Alþingi lauk eftir jaml og
japl hafi hátt í annan tug þingmanna
flogið á ýmsa fundi, svo sem Nató.
Flaggskip flotans hafði áður siglt til
Ameríku Nató til dýrðar.
Vitanlega þarf heimspólitíkin sitt.
Þar höfum við a.m.k. 4-5 í sérflokki;
Steingrím sem vildi lækna verðbólgu
í ísrael en nú fallinn í ónáð, ál-
kratann, EB-kratann og svo hann
Ólaf Ragnar Grímsson. - Hann var
þó eftir á heimaslóð, en þó, hélt í
pólitískt fundaflakk á kostnað ríkis-
sjóðs. Boðar hann nú endurlausn
þeim sem trúa og gerist spámaður
um framtíðina - enda birting yfir
ásjónu ráðherrans á auglýsinga-
myndunum sérhönnuðu.
Kona í Fellahverfi skrifar:
Loksins er matvöruverslunin í
Eddufelli eins og matvöruverslun á
að vera, allar hillur fullar af vörum
og nóg til af öllu sem venjulegt heim-
ili þarfnast. - Ég hefi búið í nágrenni
verslunarinnar í Fellagörðum í mörg
ár og nú upp á síðkastiö hefur
ástandið hjá tveimur fyrri eigendum
verslunarinnar stundum verið eins
og maður gæti ímyndað sér í Rúmen-
íu - vöruskortur í landinu!
Það er ánægjulegt að Brekkuval
skuli hafa opnaö aðra verslun, þar
veit maður að traustir menn eru á
ferð. Brekkuval í Kópavogi er þekkt
verslun, langur opnunartími, gott
vöruval og viöráðanlegt vöruverð,
En nú var félagi Jón Baldvin illa
fjarri góðu gamni og rauða týran
þeirra félaga. Félagi Amundi, rótar-
inn góði, á fullu við að koma söng-
stjörnunni og sjónvarpsstjörnunni
inn í borgarstjórn. En enginn veit
hvernig fer með blessaðan Bjarna.
Svo sem alþjóð veit er Ólafur R.
Grímsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins, ekki stuðningsmaður fram-
bjóðenda flokks hans í Reykjavík,
aðalvígi flokksins. Eftir flokksþingiö
sagði Olafur, hinn nýkjörni formað-
ur: Alþýðubandalagið ætlar sér á ný
að verða ráðandi afl í íslenskum
stjórnmálum. - Með þetta markmið
í huga, þykir mörgum sem orð og
gjörðir fari ekki sem best saman. Er
það kannski markmið að fá ráðherra
í íhaldsstjórn?
og vona ég svo sannarlega að Brekk-
uval í Eddufelli sé komið til að vera.
Maður vill geta farið í matvöru-
verslunina i hverfinu sinu, þekkt
kaupmanninn og starfsfólkiö og
myndað persónuleg tengsl, en það
gerist að sjálfsögðu ekki í stórmörk-
uðum.
Þjónustan i góðri hverfisverslun er
mikils virði og ólíkt manneskjulegra
umhverfi heldur en stórmarkaður
þar sem enginn þekkir neinn og
maður berst með straumnum eins
og korktappi sem hent er út í straum-
harða á. - Ég vona svo sannarlega,
að verslunin Brekkuval í Eddufell-
inu í Breiðholti sé komin til að vera.
Þórarinn Björnsson skrifar:
Mig langar til að beina orðum mín-
um til ykkar kjósenda um það sem
ég kalla slitrurnar af núverandi rík-
isstjóm og birtist undir nafninu Nýr
vettvangur og tel vera síðustu dauða-
teygjurnar í stjórnarliðinu. - Það er
þó nokkuð klókt hjá þeim að stilla í
fyrsta sæti þessa „vettvangs" vin-
sælli fjölmiðlastúlku. Þeir þekkja og
treysta á nýjungagirnina sem alltof
margir íslendingar eru haldnir.
Sigild eru dæmin um vinafólkið
sem kaupir sér ný húsgögn og þá
kaupa hinir alveg eins eða jafnvel
enn fínni og henda hinum á haug-
ana. Eða nágrannabílinn með dýru
afborgununum, sem fáir hafa í raun
efni á? - Þetta eru því miður sönn
dæmi, og gengur þetta svona til víðar
í þjóðfélaginu.
Á þetta treystir Nýr vettvangur, að
eins verði með atkvæðin. Þeir vonast
eftir þeim. En viö getum tekið dæmi,
annars vegar af Borgaraflokknum
og hins vegar Samtökum um
kvennalista. Sá síðamefndi treystir
sér ekki til að axla ábyrgð á að vera
í ríkisstjórn. Báðir flokkarnir eru
ágæt dæmi um það sem kallað er að
vera óábyrgur.
Svona gæti farið fyrir Nýjum vett-
vangi og illa væri þá komið fyrir
þeim kjósendum hans sem legðu
honum til atkvæðin fyrir nýjunga-
girnina eina saman. Við kjósendur
vil ég segja: Hugsið ykkur vel og
rækilega um áður en þið kastið at-
kvæðum ykkar á slíkan leikaraskap.
- Við vitum hvað við höfum, en alls
ekki hvað við fáum með því að kasta
atkvæðum okkar í hugsunarleysi.
Hringið í síma 27022
milli kl. 14 og 16, eða skrifið.
Persónuleg tengsl við hverfiskaupmann og starfsfólk hans eru mikilvæg,
að mati bréfritara.
Loksins komin matvöruverslun