Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Síða 7
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1990.
7
Haukur Snorrason, F-lista á Dalvík:
Við viljum opnari
umræðu um bæjarmál
i>v
Dalvík og Selfoss:
Nýir listar
DV birti umfjöllun um fram-
boðsmál á Dalvík og Selfossi áöur
en framboðsfrestur fyrir bæjar-
og sveitarstjórnarkosningarnar
rann út 27. apríl. Eftir umfjöllun
DV kom nýr listi með framboð á
báðum stöðum og þvi eru þeim
gerð skil hér.
Á Dalvík bjóða fjórir listar
fram: B-listi Framsóknarfélags
Dalvíkur og vinstrimanna, D-listi
sjálfstæðismanna og óháðra, F-
listi frjálslyndra og G-listi Jafnað-
armannafélags Dalvikur.
Á Selfossi bjóða íjórir listar
fram: B-hsti Framsóknarflokks,
D-listi Sjálfstæðisflokks, F-listi
óháðra og K-listi félagshyggju-
fólks. -hlh
„Við leggjum mikla áherslu á opn-
ari umræðu um bæjarmálin þannig
að þau fái meiri umfjöllun áður en
ákvarðanir eru teknar. Við leggjum
áherslu á uppbyggingu hafnar, hafn-
arsvæðis og atvinnulífs. Forsenda
ölfugs atvinnulífs er efling sjávarút-
vegs og fiskvinnslu. Skjóta þarf
styrkum stoðum undir þær greinar
og í kjölfarið munu þjónustugreinar
síðan eflast,“ sagði Haukur Snorra-
son skrifstofumaður sem skipar efsta
sæti á F-lista frjálslyndra á Dalvík.
„íþrótta- og æskulýðsmál skipa
veglegan sess hjá okkur en á þeim
vettvangi eru mörg félög starfandi.
Þá er uppbygging íþrótta- og skíöa-
svæðis á dagskrá.
Við erum á móti því að nota vatns-
og hitaveituna sem skattstofn fyrir
bæjarsjóð. Við viljum að hitaveitan
verði borguð niður fyrir fólk. Við
munum beita okkur fyrir byggingu
þjónustuíbuða fyrir aldraða. i byg-
inga- , umhverfis- og skipulagsmál-
um viljum við auka framkvæmdir
við uppbyggingu gatna og gang-
brauta en þær framkvæmdir hafa
verið í lágmarki. Við viljum efla allar
deildir skólans hérna, sérstaklega
fiskvinnslubraut og skipstjórnar-
braut. í ferðamálum viljum við skýra
framtíöarstefnu og að stofnuö veröi
ferðamálanefnd." -hlh
Haukur Snorrason skipar efsta sæti
á F-lista frjálsiyndra á Dalvik.
Már Ingólfsson, F-lista á Selfossi:
Breytta stef nu í atvinnumálum
Már Ingólfsson skipar efsta sæti á
F-lista Óháðra.
„Aðaláherslumál F-listans er
breytt stefna í atvinnumálum bæjar-
ins. Við viljum stuðla að flutningi
ríkisstofnana frá Reykjavík til Sel-
foss, eins og Byggðastofnunar. Iðnað-
arlóðir verða að seljast á kostnaðar-
verði og endurheimta verður full-
vinnslu landbúnaðarafurða. Við vilj-
um koma í veg fyrir fastbundið ah
vinnuleysi kvenfólks á Selfossi.
Halda þarf áfram uppbyggingu fjöl-
brautaskólans og stuðla að fjöl-
breytni í verklegu námi. Þá þarf að
undirbúa byggingu nýs barnaskóla í
Rima- og Tjarnarhverfi," sagði Már
Ingólfsson símaverkstjóri sem skipar
efsta sæti á F-lista Óháðra.
„Við viljum að bæjarstjórn móti sér
stefnu í málefnum aldraðra, að hafin
verði bygging langlegudeildar við
Sjúkrahús Suðurlands og bygging
dvalarheimilis fyrir aldraða. í um-
hverfismálum viljum við gera hvers
konar mengun burtræká úr bænum,
að stefnt verði að byggingu skólp-
ræsistöðva og fundin framtíöarlausn
fyrir sorphaugana. Aðkomu að bæn-
um þarf að gera aðlaðandi og snyrti-
lega. í íþrótta- og tómstundamálum
viljum viö stefna að byggingu fjöl-
nota íþróttahúss og að því að fullgera
félagslega aðstöðu í Ársölum. Ljúka
þarf við skipulag á miðbæ Selfoss og
skipuleggja þarf allt bæjarlandið í
hugmyndasamkeppni. Við viljum
stórauka samvinnu sveitarfélaga á
Árborgarsvæðinu í atvinnu- og orku-
málum. Við viljum lækka raforku-
verð og að raforka verði keypt beint
af Landsvirkjun. Við viljum halda
stjórnunar- og fjármagnskostnaði í
lágmarki og að öll verk verði boðin
út nema þjónusta við bæjarbúa."
-hlh
_____________Stjómmál
Dalvlk:
F-listi frjálslyndra.
1. HaukurSnorrason
skrifstofumaður.
2. Snorri Snorrason skipstjóri.
3. ÓskFinnsdóttirhúsmóðir.
4. SigurðurHaraldsson
skipstjóri.
5. ÞórhallurSigurvinJónsson
verkamaður.
6. Anton S. Gunnlaugsson
útgerðarmaður.
7. ÓskSigríður Jónsdóttir
fiskmatsmaður.
8. GuðbjörgStefánsdóttir
húsmóðir.
9. Anton Ingvason sjómaöur.
10. SverrirSigurösson
múrarameistari.
11. Aðalbjörg Snorradóttir
skrifstofumaður.
12. Magnúsjónssonbifvélavirki.
Selfoss:
F-listi Óháðra kjósenda.
1. Márlngólfsson
símaverkstjóri.
2. Drífa Eysteinsdóttir
hjúkrunarfræðingur.
3. HeiðarBjarndal Jónsson
lögregluþjómt.
4. GrétarPállÓlafsson
verktaki.
5. Helga Snorradóttir
verslunarmaður.
6. HaukurÓ.Ársælssonbókari.
7. Valgerður Una Sigurvins-
dóttir verslunarmaöur.
8. Sigurvin Þórkelsson
verkamaður.
9. María Kjartansdóttir
gangavörður.
10. PéturKúldvélvirki.
11. Anna B. Eyjólfsdóttir
umsjónarmaöur.
12. HörðurGuðjónssonbólstrari.
13. AuðurHauksdóttir
hjúkrunarfræöingur.
mui- ónte vh®
CP-75 Hljómtæki
2x60 W, tvöfalt segulband. Fjarstýring, klukka, timer o. fl.
Verð áður 41.830 stgr.
Vcrð ntt 34.500 stgr. (Verð án hátalara o^geislaspilara).
Þetta er
aðeins
lítið
sýnishorn
af því
sem er á
útsölunni.
CA-W85 Ferðatæki 2x11W
Verð áður 34.635 stgr.
Verð nú 25.500 stgr.
XC-002 Geislaspilarí m/Qarstýríngu.
16 bita fjórföld leíðrétting. 20 laga programm mínni.
Verð áður 29.980 stgr.
Verð nú 18.800 stgr.
AD-WX 505 Tvöfalt segulband
Dolby B/C High Speed Dubbíng. Stöðug afspilun milli tækja.
Verð áður 19.260 stgr.
Verð nú 14.500 stgr.
r r r
OPIÐ LAUGARDAGA KL. 10-14
D
Kaaio
Ármúla 38, símar 31133 og 83177,
i