Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Side 5
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1990. dv Fréttir Sumarbústaðir við Lagarfljót hjá Fellabæ. DV-mynd Sigrún Mikil aðsókn í sumarhús bænda á Héraði Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstööum; Á Héraði eru nú 10 sumarhús til útleigu hjá bændum. Þau eru nú þeg- ar nær fullbókuð og að mestum hluta eru þau leigð starfsmannafélögum eða fyrirtækjum sem borga fyrir- fram og skipiúeggja dvölina sjálf. Það eru því síðustu forvöð fyrir einstakl- inga aö nota þennan háttinn til að dvelja í Austfjarðasólinni í sumar. En svo eru Alþýöusamband íslands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja með fjölda bústaða á Héraði og nú er Landsbankinn að heíja bygg- ingu sumarhúsa í landi Ketilsstaða á Völlum. Kirkjubæjarklaustur: Tónlistar- gyðjan dýrkuð Valgeir Ingi Ólafeson, DV, Klaustri: Óhætt er að segja að tónhstargyðj- an hafi ákaft verið dýrkuð hér í sveit- inni undanfarið. Nýlega efndi karla- kórinn Skafrenningur til hátíðar í félagsheimilinu Kirkjuhvoh. Kórinn hefur æft stíft i allan vetur undir stjóm Guðmundar Óla Sigurgeirs- sonar kennara og á skemmtuninni söng kórinn nokkur lög. Einnig söng Kirkjukór Prestbakkakirkju undir stjórn Ara Agnarssonar, skólastjóra Tónhstarskólans hér. Gerður var góöur rómur að söng kóranna en hápunktur skemmtunarinnar var heimsókn karlakórsins Jökuls frá Höfn í Hornafirði. Söng hann undir stjórn Sigjóns Bjarnasonar svo unun var á að hiýða. En Jökull var ein- mitt á söngferð og hafði kórinn fyrr um daginn sungið i Leikskálum í Vík. Þann 1. maí hélt svo Tónlistarskól- inn á Kirkjubæjarklaustri sína ár- legu vortónleika í Kirkjuhvoli. Þar komu fram flestir nemendur skólans og léku á sín hljóðfæri bæði áður flutt og frumsamin lög. í ávarpi Ara skóla- stjóra kom fram að starfið í vetur var mjög blómlegt, nemendur á vorönn 36 og var kennt á píanó, orgel, gítar, blokkflautu, þverflautu og trompet. Kennarar við skólann voru 3 í vetur. í máli Ara kom einnig fram að nú væri skólinn að undirbúa kennslu á málmblásturshljóðfæri. Til stendur að hún hefjist næsta haust. 5 Áskriftareiningar — Lífeyriseiningar Þeir búa vel sem fylgja fastri reglu Smágerðir vinir okkar flétta sér og sínum trausta hreiðurkörfu með þolinmæði og elju og einu strái í nefi í hverri ferð. Með Áskriftareiningum Kaupþings getur þú einnig smám saman byggt upp trausta umgjörð um framtíð þína og þinna nánustu. Aðferðin er einföld og fyrirhafnar- lítil. Þú gerir samning við Kaup- þing um að leggja fyrir mánaðar- lega tiltekna fjárhæð sem ræðst að öllu leyti af efnum þínum og aðstæðum. Fé, sem þú sparar þannig, er varið til kaupa á Einingabréfum 1, 2 eða 3. Kaup- þing býður þér örugga hámarks- ávöxtun og þú eignast smám sam- an þinn eigin sjóð, aflar þér fjár til framkvæmda eða leggur grunn að fjárhagslegu öryggi á efri árum. Jafnhliða sparnaðinum gefst þér kostur á tryggingum sem greiða umsaminn reglubundinn sparnað þegar veikindi eða slys draga úr möguleikum til tekjuöflunar um lengri eða skemmri tíma. Kynntu þér Áskriftar- og Lífeyris- einingar Kaupþings og búðu þér og þínum örugga framtíð. Kring/unni 5, 103 Reykjavíl; Sími 91-689080 KAUPÞING HF Löggi/t verbbréfafyrirtœki HOLTABAKKI - VÖRUAFGREIÐSLA SKIPADEILDAR - IMÚTÍMA VÖRUAFGREIÐSLUSTÖÐ TRYGGIR ÞÉR GÓÐA VÖRUMEÐFERÐ - TÖLVUSTÝRÐ STAÐSETNIIMGAR- OG DREIFINGARKERFI - UPPHITAÐAR VÖRUGEYMSLUR - FULLKOMINIM TÆKJAFLOTI - STRANDFLUTNINGS- OG HEIM- AKSTURSÞJÓNUSTA - FRYSTIGEYMSLUR, KÆLIGEYMSLUR - PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA ER OKK- ARAÐALSMERKI SK/PADEILD r&kSAMBANDS/NS\ u SAMBANDSHÚSINU KIRKJUSANDI 105 REYKJAVlK SÍMI 91-698300 VERÐUGUR VALKOSTUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.