Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Side 6
6
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1990.
Fréttir
Skoðanakönnum DV:
Ummæli frambjóðenda í
Reykjavík og Kópavogi
Sigrún Magnúsdóttir:
Fylgi D-listans
er ofvaxið
mínum skilningi
„Fylgi Sjálfstæöisflokksins er of-
vaxið mínum skilningi. Ég hefði talið
að málflutningur okkar hinna væri
farinn að síast inn þannig að þessi
skoðanakönnun kæmi öðruvísi út.
Hvað minn flokk varðar þá sýnist
mér að við séum á réttri leið, þó að
ég hefði talið að við værum komin
meira á skriö en þetta,“ sagði Sigrún
Magnúsdóttir sem skipar efsta sæti
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 3.0 Allir
Sparireikningar
3ja mán. uppsogn 3-4 Ib.Sb,-
Sp
6mán. uppsogn 4-5 Ib.Sb
12mán.uppsögn 4-5,5 ib
18mán. uppsögn 11 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema íb
Sértékkareikningar 3.0 Allir
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6mán. uppsögn 2.5-3.0 Lb.Bb,- Sb
Innlán meðsérkjörum 2.5-3,25 Ib
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 7-7,25 Lb.Sb
Sterlingspund 13,6-14,25 Sb
Vestur-þýskmörk 6.75 7.5 Lb
Danskarkrónur 9,25 10.75 Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 13,5-13,75 Bb.Sb
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 14,0 Allir
Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
H!aupareikningar(vfirdr.) 16,5-17,5 Bb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb
Útlán til framleiöslu
Isl. krónur 13,75-14.25 Bb
SDR 10,75-11 Bb
Bandaríkjadalir 10,10-10,25 Bb
Sterlingspund 16.8-17 Sp
Vestur-þýskmörk 9.9-10,5 Bb
Húsnæðislán 4.0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. maí 90 14,0
Verðtr. mai 90 7,9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala mai 2873 stig
Lánskjaravisitala april 2859 stig
Byggingavísitala mai 541 stig
Byggingavísitala maí 169,3 stig
Húsaleiguvisitala 1,8% hsekkaði 1. april.
VERÐBREFASJOÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,858
Einingabréf 2 2.656
Einingabréf 3 3,200
Skammtímabréf 1.648
Lífeyrisbréf
Gengisbréf 2.123
Kjarabréf 4,823
Markbréf 2,568
Tekjubréf 1,972
Skyndibréf 1,443
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,341
Sjóðsbréf 2 1.757
Sjóðsbréf 3 1,637
Sjóðsbréf 4 1,388
Vaxtasjóðsbréf 1,6590
Valsjóðsbréf 1,5565
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 420 kr.
Flugleiðir 168 kr.
Hampiðjan 159 kr.
Hlutabréfasjóður 180 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 159 kr.
Skagstrendingur hf. 367 kr
íslandsbanki hf. 155 kr.
Eignfél. Verslunarb. 126 kr.
Olíufélagið hf. 449 kr.
Grandi hf. 166 kr.
Tollvörugeymslan hf. 105 kr.
Skeljungur hf. 441 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast í DV á fimmtudögum.
B-lista Framsóknarflokks í Reykja-
vík.
„Ég finn að það verður að berjast
mjög ötullega fram aö kosningum og
það er þó jákvætt að ég sé næsta
vonin til að fella þrettánda mann
íhaldsins. Ég trúi ekki ööru en aö
borgarbúar hjálpi mér til þess að
veita sjálfstæöismönnum það aðhald
sem allir þurfa. Það hefur enginn
gott af að fá þetta mikið fylgi, sama
hvaða flokkur á í hlut.“
-hlh
Magnús L. Sveinsson:
Mjög villandi
niðurstöður
„Það sem strax vekur athygli er að
meira en þriðjungur aðspurðra tekur
ekki afstöðu. Reynslan er nú sú að
Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki
eiga mikið fylgi meðal þeirra óá-
kveðnu. Þannig eru niðurstöður
þessarar skoðanakönnunar mjög
villandi og langt frá því að gefa rétta
mynd af því sem í raun verður á kjör-
dag. Ég bendi lika á mun á þessari
könnun og könnun Félagsvísinda-
stofnunar þar sem Sjálfstæðisflokk-
urinn er með milli 55 og 56 prósent
fylgi. Sú niðurstaða er miklu nær
raunveruleikanum í mínum huga.
Ég vara fólk alvarlega við að taka
mark á þessari skoðanakönnun sem
raunveruleika," sagði Magnús L.
Sveinsson sem skipar annað sæti á
D-lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík.
-hlh
Sigurjón Pétursson:
Eigum undir
högg að sækja
„Athyglisverðast finnst mér að
svona stuttu fyrir kosningar skuli
meira en 35 prósent aðspurðra ekki
vera búin að taka afstöðu. Þaö sýnir
að þessar tölur geta og munu vænt-
anlega breytast talsvert mikið. Það
er því erfitt að spá í stöðuna en um
leið alveg ljóst að við eigum undir
högg að sækja. Við munum því vinna
af krafti þessa viku sem eftir er til
kosninga," sagði Sigurjón Pétursson
sem skipar efsta sæti á G-lista Al-
þýöubandalags í Reykjavik.
-hlh
Ólína Þorvarðardóttir:
Spyrjum að
leikslokum
„Þessar niðurstöður undirstrika
náttúrlega það að Nýr vettvangur er
eina raunhæfa mótvægið gegn Sjálf-
stæðisflokknum. Um þann valkost
verða menn að fylkja sér ef takast á
að veita Sjálfstæöisflokknum sterkt
aðliald," sagði Ólína Þorvarðardóttir
sem skipar efsta sæti á H-lista Nýs
vettvangs í Reykjavík.
„Þetta eru svipaðar niðurstöður og
úr skoðanakönnun Félagsvísinda-
stofnunar. Það er stór hluti kjósenda
óákveðinn enn. Ég veit að viö eigum
drjúgan þátt í því fylgi. Það eru ekki
öll kurl komin til grafar enn. Við
spyrjum að leikslokum."
-hlh
Elín G. Ólafsdóttir:
Hef áhyggjur
af áhugaleysi
„Ég hef aðallega áhyggjur af því
fylgi sem Sjálfstæðisflokkurinn virð-
ist hafa þó niðurstöðunum beri að
taka með fyrirvara. Þá hef ég áhyggj-
ur af því að fólk taki hreinlega ekki
afstöðu. Mér finnst fólk upp til hópa
áhugalaust um þessar kosningar.
Það er mjög vont. Þetta vandamál á
sér stað á Norðurlöndunum og víðar
þar sem fulltrúalýðræði er. Fólk er
hætt að taka þátt, hætt að kjósa. Það
er hættulegt og gefur tilefni til að
fólk fari að hugsa sinn gang. Varð-
andi fylgi okkar er útkoman ekki
nógu góð en ég átta mig á því að Nýr
vettvangur rær á tvö mið, okkar og
Alþýðubandalagsins. En við gefumst
ekki upp fyrr en í fulla hnefana þó
við höfum ekki úr miklum fiármun-
um að moða,“ sagði Elín G. Ólafs-
dóttir sem skipar efsta sæti á V-lista
Kvennalista í Reykjavík.
-hlh
Kjartan Jónsson:
Við erum
nýr möguleiki
„Þetta er nú opið í alla enda ennþá.
Ég mundi segja að hvað sem er geti
gerst. Okkar staða virðist ekki væn-
leg samkvæmt þessum niðurstöðum
en við erum nýr möguleiki og ég geri
mér vonir um að mörgum óákveðn-
um kjósendum muni finnast við vera
góður kostur á kjördag," sagði Kjart-
an Jónsson sem skipar efsta sæti á
Z-lista græns framboðs.
-hlh
Áshildur Jónsdóttir:
Er ennþá
bjartsýn
„Það er ánægjulegt að við höfum
heldur hækkað frá því í síðustu
könnun Félagsvísindastofnunar.
Hins vegar sýnir niðurstaðan lítið
fylgi miðað við jákvæðar viðtökur
sem við fengum á vinnustöðum og
víðar. Ég vona því að niðurstöður
kosninganna verði aðrar. Einnig
verður að skoða þá staðreynd aö í
könnuninni gefa 43,6 prósent að-
spurðra ekki ákveðið svar. Ég er því
bjartsýn ennþá þrátt fyrir að við
höfum ekki haft aðgang að peningum
eins og aðrir til að auglýsa okkur,“
sagði Áshildur Jónsdóttir í Flokki
mannsins í morgun um niðurstööur
skoðanakönnunar DV. -ÓTT
Guðmundur Oddsson:
Við erum
á uppleið
„Við finnum það að við erum á
uppleið þannig að síðasta vika fyrir
kosningar kemur til með að skipta
sköpum. Ég er bjartsýnn á að við
náum því upp aftur sem við vorum
með. Það er sýnilegt að sjálfstæðis-
menn eru að missa flugið eftir skoð-
anakönnun þar sem hann var kom-
inn meö sjö bæjarfulltrúa. Ég lít
björtum augum á stöðuna en það er
verk að vinna og nauðsynlegt að
bretta um ermarnar," sagði Guð-
mundur Oddsson sem skipar efsta
sæti á A-lista Alþýðuflokks í Kópa-
vogi. _hlh
Sigurður Geirdal:
Eigum gott
fylgi meðal
óákveðinna
„Við framsóknarmenn erum í sókn
en það gengur bara ekki nógu hratt.
Það eru sex dagar til stefnu og því
ljóst að menn verða að taka vel á
fyrir kosningar. Varðandi fiölda óá-
kveðinna, sem er mikill, þá hef ég á
tilfinningunni aö sjálfstæðismenn
séu mjög harðir í að taka afstöðu.
Óákveðna fylgið skiptist því frekar á
milli A-, B-, og G-lista. Þar tel ég okk-
ur framsóknarmenn eiga verulega
marga stuðningsmenn," sagði Sig-
urður Geirdal sem skipar efsta sæti
á B-lista framsóknarflokks í Kópa-
vogi. -hlh
Gunnar I. Birgisson:
Kemur okkur
ekki á óvart
„Þessar niðurstöður koma okkur
ekki á óvart. Ég held að fólkið í bæn-
um kefiist breytinga á stjómun bæj-
arins og þessar niðurstöður sýna
það. Við sjálfstæðismenn erum
ánægðir með þá fylgisaukningu sem
viö fáum. Ég vil hins vegar taka fram
að öllum tölum ber að taka með mik-
illi varúð þegar svo stór hluti að-
spurðra er óákveðinn," sagði Gunn-
ar I. Birgisson sem skipar efsta sæti
D-lista Sjálfstæðisflokks í Kópavogi.
-hlh
Valþór Hlööversson:
Andstæðingar
D-listans
geri betur
„Það er ljóst að þeir sem vilja koma
í veg yfir yfirtöku Sjálfstæðisflokks-
ins hér í Kópavogi þurfi að gera bet-
ur. Mér sýnist á tölunum að G-list-
ann vanti aðeins herslumuninn til
að halda þriðja manninum inni í
bæjarstjórn. Því þurfa allir andstæð-
ingar Sjálfstæðisflokksins að vinna
vel síðustu daga fyrir kosningar, ekki
síst þar sem mér sýnist hætta á að
tilkoma kvennaframboðs í Kópavogi
geti stuðlað að valdatöku Sjálfstæðis-
flokksins í bænum,“ sagði Valþór
Hlöðversson sem skipar efsta sæti á
G-lista Alþýðubandalags í Kópavogi.
-hlh
Hulda Haröardóttir:
Héttvið
fengjum meira
„Samkvæmt niöurstöðunum erum
við í oddaaðstöðu, getum ráðið hvort
við förum með Sjálfstæðisflokki eða
hinum svokölluðu vinstriflokkum.
Ég hafði satt að segja haldið að við
fengjum meira fylgi eða tvo fulltrúa.
Þetta fylgi okkar í könnuninni kem-
ur mér því alls ekki á óvart. Á hinn
bóginn eru niðurstöðurnar ekki al-
varlega marktækar þar sem svo
margir í könnuninni svara ekki. Það
er því enn allt á huldu um úrslitin,"
sagði Hulda Harðardóttir sem skipar
efsta sæti á V-lista Kvennalista í
Kópavogi.
-hlh
Sandkom i>v
Kristján strandaði
Skípið nýja
semvarsjósett
hjá Slíppstöð-
ímii.i \kurc\u
ádögunum
komstífféttir
þávegnaþess
aðþaðstrand-
aðiviðsjósetn-.
inguna. Ekki er
þelta i fyrsta
skiptisemum-
rættskip
strandar, en segja má að það hafi
veriðstrandað í sjóðakerímu sem
hefur neitað að veita hugsanlegum
kaupendum þess fyrirgreiðslu nema
meö afarkostum. Það er fyrst og
fremst Fiskveiðisjóður sem hefur
staðið i vegi fyrir sölu skipsins og
menn hafa á orði að þar sfiórni Kristj-
án Ragnarsson liarðri hendi. Slipp-
stöðvarmenn á Akureyri hafa því
skírt skipið „Kristján Ragnarsson"
og hefur það einkcnnisstafina FS-0
sem varla þarf að skýra nánar.
Ragnar vakinn
Þegarsund-
lauginviðGler-
árskólaáAkur-
i'yrisaritkmi
; notkun hóf :
lxÓpur„þorp-
ara' að venja
þangaðkomur
sínarkl.Tá
morgnanatilað
syndaog
sprikliisvolítið
áðurenþeir
halda tíl vinnu. Höfuðpaurinn er
Ragnar Sverrisson kaupmaður í
JMJ, og gengur hann hart eftir því
að menn mæti stundvíslega. Hann
hringirumsvifalaustheim til manna
ef þeir eru ekki mættir kl. 7 á morgn-
ana og heimtar skýringai-. Sjálfur
segir Ragnar að sennilega sé hann
ekki mjög vinsæll hjá eiginkonum
roorgunhananna, en það verði bara
aðhafa það. Tveir félaganna sem
höfðu lent í því að Ragnar hringdi
heim til þeirra voru aö skemmta sór
á dögunum og, ,áttu" að mæta í sund
morguninn eftir. Þeir sáu hhisvegar
fram á að vera ekki í formi tii sund-
iðkunar og því hringdu þeir um miðja
nótt heim til Ragnars og boðuðu for-
fóll. Þannig hafa vopnin snúist í
höndum Ragnars, sem mun að sögn
íhuga að fá sér símsvara til að taka
við skilaboðum morgunbananna að
næturlagi þegar þeir eru að afboöa
komusína.
Skýrar fínur
Akun'vring-
ar viröast hafa
þaðnokkuðá
lircinu þegar
þeirgangaað
kjörborðinuá
kuigardag
hvetjirþeirra
flokka sem
bjóðnframeru
fvlgjandiþvíað
álver vri'ði
bvggt við Eyja-
fjörð og hverjir ekkí. Reyndar virðist
stefna Alþýðubandalagsíns ekki vera
skýr og ekki gott að átta sig á afstöð-
unníþarábæ. Sjálfstæðisflokkur,
Alþýðuflokkur og Framsóknarílokk-
ur eru fylgjandi byggingu álvers, en
skýr andstaða hefur komið fram hjá
Þjóðarflokki og Kvennalista við ál-
vershugmyndir í Eyjafirði.
Engin barátta
Annars
finnstflestum
Akui-eyringum
semsáralítil
eðaenginkosn-
ingaharátta
hafifariðfram
aðþessusinni
ögtalaumal- :
gjörandauðaí
þvísambandi.
Þarsemfram-
bjóðendurhafa
komið saman hefur að iangmestu
leyti verið rætt um atvinnumálin,
enda atvinnuástandið slæmt í bæn-
um, en sú umræða hefur nær alltaf
tekið þá stefnu að ál versmáiið hefur
orðið miöpunkturinn. Þá benda
menn á 11:0 atkyteðagreiðslu sem er
ansi algeng í bæjarstjóm Akureyrar
m.a. við fiárhagsáætlun mörg undan-
farin ár. Það er ekki hægt að segja
annað en að áhugi Akureyringa á
politík yfirleittséíalgjörulágmarki.
Gylti Kristjánsson