Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Page 15
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1990. 15 Nýtt fólk meö nýjar áherslur: Ábyrgð fylgi athöfnum Það er fjör í pólitíkinni í Hafnar- flrði eins og fyrri daginn. Þetta tjör kemur þó minna fram í stóru fjöl- miðlunum en fréttir úr Reykjavík eða utan af landi. Ef til vill er það vegna nálægðarinnar við höfuð- borgina. Veislur og móttökur Nú hafa aðeins komið fram fjórir framboðslistar á móti átta við síð- ustu kosningar. Sú breyting hefur orðið á fjölmiðlaumfjöllun um bæj- armál í Hafnarfirði á sl. kjörtíma- bili að bæjarstjórinn er fjölmiðla- glaður og hefur látið ljós sitt tals- vert skína á því sviði. Hann hefur viðhaft skóflustunguathafnir og vígslur með tilheyrandi borða- klippingum vegna allra hugsan- legra framkvæmda á tímabilinu en slíkt var ekki venja áður þótt engu minna væri framkvæmt í raun. Hann hefur ennfremur haldið fjölda veislna og móttaka af öllu hugsanlegu tilefni á kjörtímabil- inu. Þar hafa varla komið við sögu aðrir fulltrúar meirihlutans, hvorki sjálfur forseti bæjarstjórnar né fuUtrúi Alþýðubandalagsins, enda sér þess merki nú við skoð- anakönnun Pressunnar (Helgar- pósts Alþýðublaðsins) en þar týnist Alþýðubandalagið, hlýtur aðeins 2,8% fylgi. Alþýðubandalagið er nú í sárum, einkum eftir útkomu páskablaðs Alþýðublaðs Hafnarfjarðar en þar eigna kratar sér allt sem unnið hefur verið á kjörtímabiUnu (jafn- vel því þar á undan) en geta hvergi um þátttöku Alþýðubandalagsins. Alþýðubandalagið kvartaði fyrir síðustu kosningar yfir ósanngirni krata vegna minnihlutasamstarfs- ins. Hvað gerir það núna? Allt sem gert hefur verið á kjör- tímabilinu hefur eins og fyrr segir. Kjallariim Jóhann G. Bergþórsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins í Hafnarfirði verið auglýst mikið og i Oestum til- fellum gefnir út kynningarbækl- ingar, undantekningarlítið með myndum af bæjarstjóranum. Jafn- vel auglýsingar frá miðbæjarsam- tökunum um opnun Strandgötu voru með stórum myndum af bæj- arstjóra, enda opnunarhátíðin síð- an að verulegu leyti kostuð af bæn- um. Einræði aldrei méira Til þess að geta sinnt auglýsinga- starfseminni sem skyldi hefur þurft að ráða fleiri menn til stjórn- unar hjá bænum. Störfum sem bæjarstjóri og bæjarritari gegndu áður gegna nú bæjarstjóri, bæjar- ritari, fjármálastjóri, kostnaðareft- irlitsstjóri og fjármálastjóri hafn- arinnar. Það eina sem hefur þó ekki verið kynnt og allt gert til þess að fela er óstjórn á rekstri bæjarins og taumlaus skuldasöfn- un sem hámarki náði á sl. ári. Jafnvel er gripið til þess ráðs að fresta afgreiðslu ársreiknings fyrir árið 1989 þannig að raunveruleik- inn v.erði fyrst ljós eftir kosningar. Bæjarendurskoðandi fær ekki að stilla upp uppgjörinu heldur aðeins að gera skriflegar athugasemdir við uppsetningu bæjarstjóra sem þannig á auðveldara með að halda blekkingunum áfram um sinn. Jafnvel kollegum hans í Kópavögi ofbýður og kalla þeir ekki allt ömmu sína í þessum efnum. Nú er niðurstaða þessarar fyrstu skoðanakönnunar um úrslit kosn- inganna í maí 1990 á þann veg að aðeins verði 2 flokkar með fulltrúa í bæjarstjórn, kratar með 6 fulltrúa og Sjálfstæðisflokkurinn með 5 fulltrúa. Báðir flokkar bæti þannig við sig einum fulltrúa. Viö sjálf- stæðismenn erum þó ekki trúaðir á þennan framgang krata. Helstu áróðursmál krata fyrir fjórum árum voru að þeir hefðu haft opið prófkjör, væru með ferskt fólk, vildu opna stjórnkerfið og hefðu haft uppi harða málefnalega stjórnarandstöðu á fyrra kjörtima- bili. Þeir höfðu hins vegar sam- þykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 1985 með þáverandi meifihluta og helsta andstaða þeirra var því sýndarmennska rétt fyrir kosning- ar. Nú höfðu þeir prófkjör en breyttu síðan niðurstöðunni. Einræði í stjórnkerfmu hefur aldrei verið meira og nú er bæjarstjórinn orð- inn sá með lengsta setu i bæjar- stjórn af þeim sem eru í framboði í líklegum sætum. Sýndartillögum hampað Opna prófkjörið án breytinga var hjá Sjálfstæðisflokknum. Samráð liðsheildarinnar og bæjarbúa er lykilorðið hjá Sjálfstæðisflokkn- um. Ungt, frískt og dugmikiö fólk með reynslu í stjórnun er í forystu í Sjálfstæðisflokknum. Enginn þeirra hefur setið sem aðalfulltrúi í bæjarstjórn lengur en eitt kjörtímabil. Fjórir af sex efstu mönnum Sjálfstæðisflokksins hafa unnið innan skóla- og stjórnkerfis Hafnarfjarðar og gjörþekkja að- stæöur, auk setu í flestum nefndum bæjarins. í þessum hópi eru sameinaðir þeir kostir sem eru líklegir til þess að leiða til styrkrar _stjórnunar bæjarfélagsins með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. - Þessi hópur er líklegur til þess að láta hlutina ganga fyrir sig fljótt og vel. Þessi nýi hópur stóð að flutningi breytingartillagna við fjárhagsá- ætlun komma og krata fyrir 1990. Þær tillögur voru ábyrgar og rök- studdar. Þeim var öllum hafnað utan einn- ar sem fjallaði um uppgræðslu í Krísuvík. Tillögu um átak í barátt- unni við fíkniefni var hafnað, til- lögu um stofnsetningu og rekstur skóladagheimilis var hafnað, til- lögu um verndaðan vinnustað fyrir aldraða var hafnað. Öllum tillögum um aðhald og sparnað var hafnað. Tillögum um stofnun fæðingar- deildar við St. Jósepsspítala var vísað til bæjarráðs til athugunar. Tillögu um byggingu vistrýmis fyr- ir aldraða við Sólvang var hafnað. Tillögu um lækkun skulda og minnkun vaxta og verðbóta var hafnað. Sýndartillögum komma og krata um tónlistarskóla, nýtt dagheimili (fjárveiting fyrir ca. 20% bygging- arkostnaðar í áætluninni), nýja slökkvistöð, nýtt safnhús er hamp- að. Skyndilækkun fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði er hampað, nú þegar bæjarsjóður er verr staddur en nokkru sinni síðan á fyrri valda- dögum komma og krata. Fjár- hagsáætlunin fyrir 1990 gerir ráö fyrir enn frekari skuldasöfnun komma og krata. Núverandi meirihluti komma og krata hefur sýnt aö hann getur eytt íjárnninum bæjarbúa langt fram í tímann á stuttum tíma. Hann hefur sýnt að hann getur ekki stjórnað rekstri bæjarins svo vel fari, allar áætlanir hafa farið langt úr böndum. Nú er tími til þess að ábyrgir aðilar setjist við stjórnvölinn og komi fjárhag bæj- arins aftur í lag en framkvæmi jafnframt hlutina fljótt, vel og af hagkvæmni. Veljum fyrir framtíðina, veljum Sjálfstæðisflokkinn - okkar lið. Jóhann G. Bergþórsson „Núverandi meirihluti komma og krata hefur sýnt að hann getur eytt fjármunum bæjarbúa langt fram 1 tím- ann á stuttum tíma.“ Lykill að betri borg Undanfarið kjörtímabil hefur mér sem borgarfulltrúa í stjórnar- andstöðu oft þótt örðugt að geta ekki hrint í framkvæmd þeim mál- um sem ég hef áhuga á. Reynslan hefur kennt mér að það er mikil- vægt að stjórnarandstaðan sé virk og veiti öflugt aðhald. Meirihluti má ekki, hvernig sem hann er skip- aður, verða of sterkur vegna þess að slíkt sljóvgar dómgreind. Þrátt fyrir yflrleitt óvæginn og neikvæðan meirihluta í borgar- stjórn hefur mér á síðasta kjör- tímabili tekist að fá samþykktar nokkrar grænar og jákvæðar til- lögur. Ég vfl nefna tvær sem mér tókst að fá samþykktar er varða aðalskipulag þorgarinnar en það' er nú í endurskoðun. Borgargarðar Hin fyrri varðar borgargarða og hljóðar svo: „Borgarstjórn sam- þykkir að beina því til borgarskipu- lags að við endurskoðun aðalskipu- lags verði athugað með land (lönd) undir matjurtagarða fyrir borg- arbúa. Hver garðleigjandi hefði yfir að ráða um 250-300 m- landsvæði og mætti reisa þar smáhýsi allt að 25 m- að stærð.“ í greinargerð með tillögunni seg- ir: Bæjargarðar eru fastur liður í skipulagi flestra stærri borga í Evr- ópu. Þar gilda ströng ákvæði um hvernig garðlöndin eru nýtt. Einn- ig ber að setja skilyrði um útlit smáhýsanna. Garðlöndin við Korpúlfsstaði verða að víkja innan tíðar og ekki hefur verið gert ráð fyrir svæði fyrir garðlönd. Þessi tillaga er ekki um hefðbundna kartöflugarða heldur að sníða þá að fyrirmynd erlendra borgargarða. Gerð yrði skipuleggja Hólmsheiðina sem úti- vistarsvæði fyrir Reykvíkinga. Viðurkennum hestamennskuna Síðari tillagan varðar hestamenn og aðstöðu þeirra. Hún er á þessa leið. „Borgarstjórn samþykkir að fela borgarskipulagi og gatnamála- stjóra að gera áætlun í samráði við Hestamannafélagið Fák um hvern- ig umferð á hestum verði haganleg- ast skipulögð í borginni." Tillögunni fylgir svohljóðandi greinargerð. Hestamennska nýtur sívaxandi vinsælda og er hún aðal- tómstundagaman margra borg- arbúa. Reykjavíkurborg ber að stuðla að því að þessi holla tóm- stundaiðja njóti sem bestra skil- yrða og sem flestum gefist færi á að stunda hana. Ástæða er til þess Kjallaiinn Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins í Reykjavík „Ulfarsársvæðið er afar vel fallið undir borgargarða, ekki síst vegna þess að ákveðið hefur verið að skipuleggja Hólmsheiðina sem útivistarsvæði fyrir Reykvíkinga.“ krafa um gróðursetningu runna eða trjáa umhverfis hvern garð. Borgin skipuleggur svæðið, leggur stíga og lagnir og gróðursetur trjáplöntur umhverfis. Hver og einn á því að geta gengið þarna um og notið útivistar. Garð- löndin væru þannig skipulögö að þau bæru yfirbragö skrúðgarðs. Úlfarsársvæðið er afar vel fallið undir borgargarða, ekki síst vegna þess að ákveðið hefur verið að að benda á aö hestamennska erfjöl- skylduíþrótt og hefur mikið gildi, ekki síst fyrir unglinga. Óhjákvæmilegt er að viðurkenna umferð hestamanna sem hluta af samgöngum í borginni og huga ber að öryggi þeirrar umferðar. Við endurskoðun á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar þarf að sjá til þess að samgöngur milli hesthúsa- hverfa og út úr borginni verði sem greiðastar. Jafnframt skal gætt að „Óhjákvæmilegt er að viðurkenna umferð hestamanna sem hluta af samgöngum i borginni," segir m.a. í greininni. gróðurverndarsjónarmiðum og aö er grænn lykill, lykillinn að betri unnt verði að rækta nægileg beitar- borg. Með þessum lykli ætlum við hólf og séð verði fyrir hentugum framsóknarmenn aö opna betri áningarstöðum. borg fýrir fólkið. Mannlegi þáttur- inn má ekki gleymast - það er lykil- Mannlegi þátturinn atriði. Tákn okkar Framsóknarmanna í Sigrún Magnúsdóttir þessum borgarstjórnarkosningum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.