Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Page 26
34 MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1990. Afmæli Þórarinn Óskarsson Þórarinn Óskarsson, deildarstjóri hjá Varnarliöinu, Eiðistorgi 15, Sel- tjarnamesi, er sextugur í dag. Þór- arinn er fæddur í Hvammi í Vatns- dal í A-Húnavatnssýslu en ólst að mestu leyti upp á Blönduósi og Hjaltabakka. Hann lauk námi frá Iðnskólanum í Reykjavík 1948 en sneri sér síðan að hljómlistarnámi og stundaði hljóðfæraleik sem aðal- starf til 1954 er hann hóf störf hjá Varnarliðinu á Keílavíkurflugvelli. Þórarinn var einn af stofnendum Sinfóníuhljómsveitar íslands og lék með henni 1950-1954. Hann gerðist félagi í Lúðrasveit Reykjavíkur 1949 og hefur starfað með henni samfellt síðan. Þórarinn lét um tíma ýms félagsmál til sín taka og hefur setið í stjórnum Lúðrasveitar Reykjavík- ur, Félagi frímerkjasafnara, Félagi íslenskra bifreiðaeigenda og Ferða- skrifstofu FÍB. Þá var hann um ára- bil í trúnaðarmannaráði Verslunar- mannafélags Reykjavíkur. Hann var tilnefndur Member of the Int- ernational Biographical Association í Cambridge í Englandi 1977. Þórar- innkvæntist9.júní 1956Sjöfn Mörtu Haraldsdóttur, f. 30. mars 1931. Foreldrar Sjafnar voru Har- aldur Erlendsson og kona hans, Kristbjörg Aradóttir Börn Þórarins og Sjafnar eru: Kristbjörg, f. 28. maí 1961, sambýlismaður hennar er Sig- urður Tómasson, þau eiga þrjú börn, og Hjalti, f. 3. september 1962, sambýliskona hans er Edda Linda Gunnlaugsdóttir og eiga þau tvær dætur. Sonur Þórárins fyrir giftingu er Þórarinn Óskar, f. 23. febrúár 1954. Synir Sjafnar frá fyrra hjóna- bandi eru Ari og Helgi Daðasynir Hjörvar. Bróðir Þórarins er Þor- valdur, skólastjóri í Rvík, kvæntur Karen Vilhjálmsdóttur. Foreldrar Þórarins eru Óskar Jak- obsson, f. 24. september 1892, d. 24. ágúst 1935, b. á Efra-Holti á Ásum í A-Húnavatnssýslu, og kona hans, Ingibjörg Þórarinsdóttir, f. 17. okt- óber 1903. Ingibjörg var dóttir Þór- arins, alþingismanns á Hjaltabakka, Jónssonar, b. á Halldórsstöðum, Þórarinssonar, b. í Grófargili, Jóns- sonar, prests og skálds á Hjaltastað, bróður Helgu, ömmu Stephans G. Stephanssonar skálds. Jón var son- ur Guðmundar, b. á Torfum í Eyja- firði, Magnússonar. Móðir Guð- mundar var Guðrún Guðmunds- dóttir, b. á Krýnastöðum, bróður Þórárins, prests og skálds í Múla, langafa Kristjáns Eldjárns, afa Kristjáns Eldjárns forseta. Annar bróðir Guðmundar var Benedikt Gröndal skáld, afi Benedikts Grön- dal skálds yngra. Móðir Þórarins í Grófargili var Margrét Stefánsdótt- ir, systir Einars, afa Einars Bene- diktssonar skálds. Móðir Jóns á Halldórsstöðum var Elísabet Magn- úsdóttir, systir Rannveigar, langömmu Páls Péturssonar þing- flokksformanns og Jónasar Kristj- ánssonar ristjóra. Móðir Þórarins alþingismanns var Margrét Jó- hannsdóttir, b. á Kjartansstöðum í Skagafirði, Guömundssonar og konu hans, Guðrúnar Ólafsdóttur. Móðir Ingibjargar var Sigríður Þorvaldsdóttir, prests á Hjaltabakka, bróður Kristínar, langömmu Matthí- asar Johannessen, skálds og rit- stjóra. Þorvaldúr var sonur Ásgeirs, dbrm. og bókbindara á Lambastöð- um á Álftanesi, bróður Jakobs, prests í Steinnesi, langafa Vigdísar forseta. Móðir Þorvalds var Sigríður, systir Þuríðar, langömmu Vigdísar forseta. Sigríður var dóttir Þorvalds, prests og skálds í Holti undir Eyja- fjöllum, Böövarssonar, prests í Holtaþingum, Högnasonar, „Presta- Högna“, prests á Breiöabólstaö, Sig- urðssonar. Móðir Sigríðar á Hjaltabakka var Hansína Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, prests i Hofteigi, Arnórssonar, prests á Bergsstöðum, Árnasonar Hóla- Þórarinn Oskarsson. biskups. Móðir Þorgríms var Margr- ét, systir Ingibjargar, langömmu Þó- runnar, ömmu Þorsteins heimspek- ings, Vilmundar ráðherra og Þor- valds hagfræðings Gylfasona. Margrét var dóttir Bjöms Jónssonar, prests í Bólstaöarhlíð. Móðir Hans- ínu var Guðríöur Pétursdóttir, b. í Engey, Guðmundssonar, langafa Guðrúnar, móður Bjama Benedikts- sonar forsætisráðherra. Þórarinn og kona hans taka á móti gestum í Félagsheimili Seltjamar- ness frá klukkan 17-20 á afmælis- daginn. Vilhelmína Þorvaldsdóttir Vilhelmína Þorvaldsdóttir kenn- ari, Hrísmóum 1, Garöabæ, er sex- tugídag. Vilhelmína fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hún lauk stúdents- prófi frá MA1950 og síðan BA-prófi í ensku, dönsku og uppeldisfræði við HÍ1954. Hún stundaði ensku- nám við University of London 1952 og sótti enskukennaranámskeið í Hastings 1981. Þá kynnti Vilhelmína sér störf kvenlögreglunnar í ýmsum borgum í Bandaríkjunum veturinn 1953- 54. Vilhelmína stundaði ýmis störf með námi. Hún var þingskrifari á Alþingi veturna 1950-51 og 1951-52. Þá var hún fyrsta lögreglukonan í Reykjavík eftir að stofnuö var sér- stök kvenlögregludeild innan lög- reglunnar en hún starfaði þar frá 1954- 57. Vilhelmína stundaði skrifstofu- störf hjá rannsóknarstofu Fiskifé- lags íslands og siðan Rannsóknar- stofnun fiskiðnaðarins 1957-70 og var í'hálfu starfi 1972-75 en hún var ritari rektors Tækniskóla íslands 1970-72. Hún var um árabil gjald- keri og bókari ferskfiskseftirlits rík- isins og Félags íslenskra fiskfram- leiðenda. Vilhelmina hefur verið kennari við Þinghólsskóla í Kópa- vogi frá 1972. Vilhelmína sat í stjórn Kvenfélags Kópavogs 1970-74 og í stjóm Kvenfé- lagasambands Kópavogs 1973-75. Hún sat í tómstundaráði Kópavogs- kaupstaðar 1972-75 og í stjórn Rauða kross deildar Kópavogskaupstaðar í allmörg ár, þar af gjaldkeri frá 1987. Vilhelmína giftist 10.2.1957 Vern- harði Kristjánssyni, f. 19.9.1912, rannsóknarlögreglumanni og síðan þingverði alþingis, en hann var son- ur Kristjáns Þorkelssonar, b. og hreppstjóra í Álfsnesi á Kjalarnesi og síðar í Víðinesi, og Sigríðar Þor- láksdóttur húsfreyju. Vilhelmína og Vernharður eign- uðust tvær dætur. Þær eru: Elísabet Vemharðsdóttir, f. 26.3.1958, iðju- þjálfi í Karlstad í Svíþjóð, gift Hans Gunnari Erlendssyni lækni og eiga þau tvö börn, og Sigríður Snjólaug Vernharðsdóttir, f. 7.8.1961, auglýs- ingateiknari í Reykjavík, í sambýli með Reinhard Reinhardssyni pípu- lagningameistara. Systur Vilhelmínu: Ólafía Kristín, f. 5.8.1918, d. 30.4.1968, seinustu árin vefnaðarkennari að Laugum í Þingeyjarsýslu, Soffia, f. 6.5.1924, húsmóðir á Akureyri, gift Þorsteini Williamssyni smið og eiga þau fjög- ur börn, og Guðbjörg, f. 28.1.1927, húsmóðir á Seltjarnarnesi, gift Birni A. Blöndal, skrifstofumanni hjá Pétri Snæland hf. og eiga þau fjögur börn. Foreldrar Vilhelmínu voru Þor- valdur Sigurðsson, f. 14.12.1882, d. 8.7.1946, kaupmaður síðar bókhald- Vilhelmína Þorvaldsdóttir. ari hjá Gefjun á Akureyri, og kona hans, Elísabet Friðriksdóttir, f. 14.4. 1888, d. 6.4.1885, handavinnukenn- ari. Föðurbróðir Vilhelmínu var Þór- arinn, faðir Sigurðar jarðfræðings. Þorvaldur var sonur Sigurðar, járn- smiðs á Akureyri, Sigurðssonar og konu hans, Soffiu Jóhönnu Þor- valdsdóttur. Elísabet var dóttir Friöriks, b. á Hallsstöðum, Bjarna- sonar, og konu hans, Kristínar Kristjánsdóttur, b. á Fremri-Bakka í Langadal, Bjarnasonar. Móðir Kristínar var Guðrún Guðmunds- dóttir, b. á Eyri í Mjóafirði, Þor- valdssonar, og konu hans, Salvarar Þorvarðardóttur, b. í Eyrardal, Sig- urðssonar, b. i Eyrardal, Þorvarðar- sonar, ættföður Eyrardalsættarinn- ar. Katrín Hjaltested Hall Katrín Hjaltested Hall ljósmóðir, Láguhlíð í Mosfellsbæ, er sjötug í dag. Katrín fæddist i Reykjavík en ólst upp á Vatnsenda við Elliðavatn. Hún lauk ljósmæðraprófi frá Ljós- mæðraskóla íslands 30.9.1950. Katrín veitti forstöðu Upptöku- heimilinu aö Elliðahvammi viö EU- iðavatn 1950-53, var ljósmóðir við fæðingardeild Landspítalans 1967-75, við mæðradeild Heilsu- vemdarstöðvar Reykjavíkur 1975-79 og hefur stundað hjúk- runarstörf við Sjúkrastöð SÁÁ að Silungapolli og aö Vogi frá 1.6.1980. Katrín sat í stjórn Ljósmæðrafé- lags íslands 1969-77, í kvenréttinda- nefnd félagsins 1972-74, var stofnfé- lagi Sinawik-kúbbs Reykjavíkur (sem er félag eiginkvenna Kiwanis- manna) 1969 og formaður þar 1969-70, í stjórn Landsambands Sinawik-klúbba á íslandi 1976-80 og sat í stjórn kvenfélagsins Hringsins í Reykjavík um skeið. Katrín giftist 4.9.1954 Árna Þóri Hall, f. 19.3.1922, d. 21.1.1981, skrif- stofumanni, syni Nieljohníusar Hall verslunarmanns, og Ragnheiðar Kristínar Árnadóttur húsmóður. Börn Katrínar og Þóris eru Frank Pétur Hall, f. 11.5.1944, vélstjóri á Seltjarnarnesi, kvæntur Guölaugu Magnúsdóttur og eiga þau þrjú börn; Sigurður Lárus Hall, f. 6.8. 1952, matreiðslumaður í Reykjavík, kvæntur Svölu Ólafsdóttur og eiga þau eina dóttur; Ragnheiður Kristín Hall, f. 18.8.1955, læknaritari í Mos- fellsbæ, gift Sigurði Ragnarssyni og eiga þau þrjú börn, og Sigurveig Salvör Hall, f. 19.9.1956, sölumaður í Reykjavík, gift Gunnari Þorsteins- syni og eiga þau tvö börn. Systkini Katrínar: Sigurður Hjalt- ested, f. 11.6.1916, d. 1966, b. á Vatns- enda;PéturHjaltested,f. 11.1.1918, málarameistari í Reykjavík; Sigur- veig Hjaltested, f. 10.6.1923, óperu- söngkona í Reykjavík; Jón Hjalt- ested, f. 27.9.1925, vélstjóri í Reykja- vík; Anna Hjaltested, f. 23.5.1933, sjúkraliði í Reykjavík, og Ingveldur Katrin Hjaltested Hall. Hjaltested, f. 22.5.1935, óperusöng- kona í Reykjavík. Foreldrar Katrínar voru Lárus Pétursson Hjaltested, f. 22.2.1892, d. 8.6.1956, b. að Vatnsenda viö Ell- iöavatn, og Sigríður Jónsdóttir Hjaltested, f. 6.1.1896, d. 12.2.1980, húsmóðir. 75 ára Stigahlíð 92, Reykjavík. Sigurjóna Marteinsdóttir, Ásgarði 32, Reykjavík. Steingrímur Sigurðsson, Löngumýri 18, Akureyri. Vallargötu 31, Miðneshreppi. Hann verður ekki heima á afmælis- daginn. A O ára 70 ára 4U cxi d Þórmundur Gunnþórsson, Hreimstöðum Hjaltastaðahreppi. Lilja Guðmundsdóttir, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. Norðurvangi 24, Haínarfirði. Hann og kona hans taka í móti gestum á heimili sínu sunnudaglnn 27.5. klukk- an 16-19. Helena Knútsdóttir, 60 ára Mýrarási 1, Reykjavík. Jóna Jónsdóttir, Sigurður rjónsson, Birkiteig 12, Keflavík. Gilsbakka 61, Suðurfjarðahreppi. Jónína Ástráðsdóttir, Nökkvavogi 7, Reykjavik. 50 ára Haraldur Dungal, Hagamel 2, Reykjavík. Davið Valgeirsson, Túngötu 1, Eskifírði. Guðmundur Haraldsson, Brekkutanga 8, Mosfellsbæ. Hrefna Sigurðardóttir Hrefna Sigurðardóttir, Flúöaseli 88, Reykjavík, er sjötug í dag. Hrefna fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Hún vann mikið að félagsmálum fyrr á árum og var m.a. virkur þátt- takandi í kven- og slysavarnafélög- um og kirkjukórum. Hún er sjálf- lærð bæði á píanó og gítar. Hrefna hefur gefið út tvær ljóðabækur: Hin- um megin götunnar, 1985, og Grýtta gatan, 1987. Hrefna giftist 1944 Kjart- ani Th. Ingimundarsyni frá Tálk- nafirði, sjómanni. Þau reistu bú á Patreksfirði og bjuggu þar til 1961 að þau fluttu til Reykjavíkur. Börn Hrefnu og Kjartans eru fimm en eitt þeirra, drengur, lést rétt eftir fæð- ingu, hin eru: Helga Þóra; Hreinn Hrafnkell; Jóhannes Jens og Þó- runn. Foreldrar Hrefnu: Sigurður Fr. Einarsson, kennari á Þingeyri, og Hrefna Sigurðardóttir. kona hans, Þórdís Jónsdóttir. Sig- urður var sonur Einars, sjómanns á Þingeyri, Brynjólfssonar, b. á Bakka í Tálknafirði, Einarssonar. Móðir Sigurðar var Sigríður Frið- riksdóttir, b. í Litla-Laugardal í Tálknafirði, Magnússonar. Þórdís var dóttir Jóns, formanns í Arnar- firði, Sigurðssonar, og konu hans, Ólínu Ólafsdóttur. Kristján Rögnvaldur Einarsson Kristján Rögnvaldur Einarsson, starfsmaður Orkubús Vestijarða, Goðatúni 4, Flateyri, er fertugur í dag. Kristján Rögnvaldur er fæddur á Flateyri við Önundarfjörð, lærði bifvélavirkjun og er meistari í þeirri iðn. Hann hefur gegnt héraðslög- reglustarfi undanfarin ár en vinnur núna hjá Orkubúi Vestfjarða á Flat- eyri. Kristján gegnir einnig slökkvi- liösstjórastarfi á Flateyri. Kristján kvæntist 13. apríl 1974 Soffiu Margr- éti Ingimarsdóttur, f. 18. júlí 1954, forstöðukonu leikskólans á Flateyri. Foreldrar Soffiu eru Ingimar Sigur- tryggvason, umsjónarmaður á Hótel Sögu, og kona hans, Guðrún Zop- honíasdóttir, sem vinnur í bakaríi Friðriks Haraldssonar í Kópavogi. Böm Kristjáns og Soffiu eru Guðrún Filippía, f. 14. september 1973, Ingi- mar Jón, f. 28. september 1976, og Fannar Þór, f. 2. maí 1984. Systkini Kristjáns eru Agnes, gift Hermanni Friðrikssyni og eiga þau fjögur börn; Elín, gift Hannesi Oddssyni og eiga þau eitt barn; Jóhannes, kvæntur Jóhönnu Jakobsdóttur og Kristján Rögnvaldur Einarsson. eiga þau þrj ú börn og Reynir, kvæntur Ólöfu Stefánsdóttur og eiga þau tvö börn. Hálfsystir Kristj- áns, sammæðra, erÁsbjörgívars- dóttir, gift Jóni Sigurðssyni. Foreldrar Kristjáns: Einar Jó- hannesson, f. 23. júní 1919, d. 5. maí 1988, vélstjóri á Flateyri, og kona hans, Filippía Kristjánsdóttir, f. 16. október 1921, saumakona, býr í Kópavogi síðan 1970.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.