Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Síða 17
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990.
17
I>V
Frjóvgaði
eiginkonuna
með sæði
sonarins
Mörg undarleg mál koma til kasta
dómsmála. Skilnaðarmál eitt þykir
þó alveg með ólíkindum. Hjónin Ted
og Anita vilja fá úr því skorið hvort
þeirra á að hafa umráðarétt yfir dótt-
ur þeirra, fjögurra ára. Við réttinn
viðurkenndi móðirin að Ted, eigin-
maður hennar, væri ekki faðir
barnsins og það vissi hann vel. Hann
gæti því ekki krafist umráðaréttar.
Málsatvik voru þannig: Árið 1984
ákváöu hjónin að eignast barn. Dótt-
ir þeirra var þá orðin átján ára og
að flytja að heiman. Til að fylla tóma-
rúmið í húsinu langaði þau að eign-
ast annað barn. Það sem kom í veg
fyrir það var að Ted hafði farið í
ófrjósemisaðgerð eftir að dóttirin
kom í heiminn árið 1972. Hann fór í
aðra aðgerð en hún heppnaðist ekki
og Anita varö ekki ófrísk.
Eini möguleiki þeirra var utanað-
komandi frjóvgun - en þau höfðu
ekki efni á slíkri aðgerð. Ted sem er
mikill grúskari og sér um allar við-
gerðir á heimilinu sjálfur tók málið
í sínar hendur. Hann náði sér í allar
bækur sem til voru um frjóvgun og
las sér til um máhð. Anitu leist ekki
meira en svo á málið en sagði ekki
orð. Þegar Ted hafði fundið út hve-
nær heppilegasti tími konunnar væri
fyrir frjóvgun lét hann ekki sitja við
orðin tóm. Hann fór í næstu verslun,
keypti sprautu sem venjulega er not-
uð til að fylla fuglakjöt og þess hátt-
ar, og flösku af hárspreyi. Hann ætl-
aði sér að nota þessi áhöld við
frjóvgunina en þá vantaði einungis
sæði. Hjónin ræddu lengi um hvar
þau gætu fengið sæði og hugleiddu
fyrst að fá einhvern vin til hjálpar.
Ekki leist þeim þó nógu vel á það
enda vildi þau halda málinu leyndu.
Ted átti sautján ára son frá fyrra
hjónabandi og þau gátu talið hann á
að gefa sæði. Hann féllst á þetta með
nokkrum málalengingum. Hjónin
fengu sæði, eiginmaðurinn sprautaði
því í eiginkonuna og tveimur mánuð-
um síðar sagði læknir henni að hún
væri barnshafandi. Fóstrið missti
hún stuttu síðar og var þá reynt í
annað sinn. í það skipti gekk allt upp
og Michaela fæddist 19. desember
1985.
Nú fjórum árum síðar er hjóna-
bandiö búið að vera og Ted og Anita
rífast um hver eigi að hafa barnið.
Viö réttarhöldin, eftir að Anita var
búin aö ljóstra leyndarmálinu upp,
sagði Ted að honum fyndist hann
hafa skapað þetta barn með eigin
höndum. Hvorugt þeirra vill af litlu
telpunni sjá. Dómarar í réttarsalnum
tóku sér alllangan umhugsunarfrest
í þessu sérstæða máli. Á meðan
verða foreldrarnir að bíða úrskurð-
arins.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins
Miðbraut 11, Búðardal, á neðan-
greindum tíma:
Búðarbraut 3, Búðardal, þingl. eig-
andi Kristjana Guðmundsdóttir. Upp-
boðsbeiðandi er Sparisjóður Hafhar-
fjarðar, miðvikud. 30. maí kl. 11.00.
Brekkuhvammur 10, Búðardal, þingl.
eigandi Jóhannes Benediktsson. Upp-
boðsbeiðandi er Landsbanki íslands,
veðdeild, íslandsbanki hf., miðvikud.
30. maí kl. 13.45.
Hóll, Hvammshreppi, Dalasýslu,
þmgl. eigandi Júlíus Baldursson og
fl. Uppboðsbeiðandi Landsbanki ís-
lands, veðdeild, Tryggvi Bjamason
hdl., miðvikud. 30. maí kl. 13.30.
Fóðurstöð og útihús úr landi Fjósa,
þingl. eigandi Svavar Garðarsson.
Uppboðsbeiðandi er Búnaðarbanki
Islands, Brunabótafélag Islands,
Byggðastofhun, miðvikud. 30. maí kl.
10.00._____________________________
Sunnubraut 11, Búðardal, þingl. eig-
andi Svavar Garðarsson. Uppboðs-
beiðandi er Jón Ö. Ingólfsson hdl.,
Gísli Kjartansson hdl., Búnaðarbanki
íslands, miðvikud. 30. maí kl. 10.30.
Skarðsá, Skarðshreppi, þingl. eigandi
Unnsteinn B. Eggertsson. Uppboðs-
beiðandi er Landsbanki íslands, veð-
deild, Lögmenn Kringlunni 4, Reykja-
vík, Sveinn Skúlason hdl., miðvikud.
30. maí kl. 11.30.
Sýslumaður Dalasýslu.
Michaela litla
er fjögurra
ára. Hún var
búin til á all-
sérstæðan
hátt. Nú eru
foreldrar
hennarað
skilja og bæði
vilja halda
dótturinni.
FERÐAÞIÓNUSTA ER
ÞÝÐINGARMIKIL ATVINNUGREIN Á ÍSLANDI
Tökum á móti ferðamönnum eins og við viljum
að tekið sé á móti okkur.
FERÐAMÁLAÁR EVRÓPU1990