Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Side 23
LAUGARDAGUR 26. MAl 1990.
23
Konur stjóma kosningasjónvörpunum:
Geysihörð
samkeppni
Það eru konur sem stjórna kosning-
asjónvarpi beggja stöðva í kvöld.
Þuríður Magnúsdóttir stjórnar Rík-
isstöðinni og Maríanna Friðjónsdótt-
ir hinni. Maríanna hefur starfað við
öll kosningasjónvörp nema eitt frá
árinu 1971 svo hún hefur mjög víð-
tæka reynslu. Þuríður hóf störf hjá
Ríkissjónvarpinu 1973 sem skripta
og var t.d. hjálparhella Maríönnu á
sínum tíma. Þetta er fyrsta kosninga-
sjónvarpið sem Þuríður stjórnar en
hún segist hafa lært mikið af Marí-
önnu á sínum tíma.
Báðar sjónvarpsstöðvarnar leggja
mesta áherslu á að birta kosninga-
tölur svo fljótt sem auðið er frá öllum
stöðum landsins. í bæjar- og sveitar-
stjómarkosningum koma tölur mun
örar en í þingkosningum. Þess vegna
verða skemmtiatriðin ekki eins mik-
ilvæg og í þingkosningunum þar sem
minni tími gefst fyrir þau.
Undirbúningur Ríkissjónvarpsins
byijaði strax í janúar. Sjónvarpið
leggur mikið kapp á að tölvuvinnslan
og grafík verði sem best úr garði
gerð en miklar framfarir hafa orðið
á því sviði frá síðustu kosningum.
Það er Hewlett Packard sem sér um
tölvubúnaðinn en Verk- og kerfís-
fræðistofan um hugbúnaðinn.
„Kosningasjónvarpið í kvöld verð-
ur með hefðbundnum hætti. Allt
starfsfólk tæknideildarinnar, margt
starfsfólk í leikmyndadeild og nánast
afíir starfsmenn fréttastofunnar
munu starfa við útsendinguna. Við
verðum með útsendingar frá þrjátíu
kaupstöðum en þar af eru fimm stað-
ir fyrir utan Reykjavík sem við erum
með myndavélar og sýnum beint frá
talningastöðum. Frá hinum stöðun-
um fáum við símhringingar frá
fréttariturum," segir Þuríður. Helgi
Helgason er stjórnandi kosninga-
sjónvarpsins auk Þuríðar. Hann seg-
ir að gífurlegar framfarir hafi orðiö
í allri grafíkvinnslu og komi það að
góðum notum í kvöld. Áhorfendur
fá mjög fljótt að sjá hvernig tölur
koma til með að raða frambjóðend-
um upp og hveijir séu næstir því að
ná kosningu. „Þetta verður með
miklu meiri glæsibrag en áður.“
Á Stöð 2 er einnig mikið lagt upp
úr hraðvirkum upplýsingum. IBM
sér um tölvur en Tölvumynd um
hugbúnað. „Við byrjuðum undir-
búning í desmber sl. en mesta undir-
búningsvinnan hefur farið fram á
undanförnum vikum. Um leið og
framboðslistarnir voru tilbúnir voru
þeir tölvukeyrðir og einnig
kosningaúrslit 1982 og 1986. Þá getum
við einnig haft til viðmiðunar þing-
Marianna Friðjónsdóttir sér um út-
sendingu á Stöð 2. Báðar stöðvar
leggja mesta áherslu á að birta
kosningatölur sem fyrst.
kosningar varðandi fylgi flokkanna
í þessum kosningum," sagði Mar-
íanna Friðjónsdóttir á Stöð 2. Hún
verður með tvo aðstoðarútsending-
arstjóra, Gunnlaug Jónasson og
Kristínu Pálsdóttur, enda verða
beinar útsendingar úr þremur sölum
á Stöð 2.
„Fréttamennirnir okkar hafa í all-
langan tíma kynnt sér bæjarstjórn-
armál á hveijum stað á landinu og
verða tilbúnir með ýmsar upplýsing-
ar þegar tölur berast um menn og
málefni. Ég gæti trúað að fólk hefði
gaman af þeim upplýsingum. Ég get
nefnt sem dæmi að ef bæjarstjóri á
einhverjum stað er að missa meiri-
hluta koma fréttamenn Stöðvar 2
með upplýsingar um hvað hann
gerði áður en hann varð bæjarstjóri
og þess háttar,“ sagði Maríanna.
Um áttatíu manns verða í vinnu í
kvöld og nótt á Krókhálsinum og um
þrjátíu manns víðs vegar um landið.
Þá munu nemendur í fjölmiöladeild
Fjölbrautarskólans í Breiðholti
svara síma í stúdíói og fá um leið
ágætis starfskynningu.
Þuríður og Maríanna eru sammála
um að kosningasjónvarpið verður
erfitt í vinnslu enda kemur raun-
verulega ekki allt í ljós fyrr en í beinu
útsendingunni og þá þurfa menn að
vinna saman svo dæmið geti gengið
upp. Samkeppnin er talsverð milli
stöðvanna og báðar leggja mikla
áherslu á að tölurnar berist sem fyrst
og á sem myndrænastan hátt. Svo
koma þeir Ragnar Reykás og Mar-
teinn Mosdal ásamt fleiri skemmti-
kröftum og létta mönnum kosninga-
skapið. „Það er um að gera að taka
þetta létt, slappa af og njóta einhverr-
ar skemmtunar af öllu saman," sagði
Maríanna Friðjónsdóttir. -ELA
Tissues
MYKT ER OKKA'R STYRKUR
HEILDSOLUB. JOHN LINDSAY H.F.
Kennarar
Kennara vantar að Grenivíkurskóla í almenna
kennslu, íþróttir og hannyrðir.
Frítt, gott húsnæði.
Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri í síma
96-33118 eða 96-33131.
Ritari
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða ritara til starfa í utanríkis-
þjónustunni.
Krafist er góðrar kunnáttu í ensku og a.m.k. í einu öðru
tungumáli auk góðrar véltritunarkunnáttu.
Eftir þjálfun í utanríkisráðuneytinu má gera ráð fyrir að ritar-
inn verði sendur til starfa í sendiráðum íslands erlendis.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf sendist utanríkisráðuneytinu, Hverfisgötu
115, 150 Reykjavík, fyrir 12. júní nk.
Utanrikisráðuneytið
FJárhagsKORN 3.0
Fullkomið fjárhagsbókhald á aðeins
18.924 krónur með vsk.
Full endurgreiðsla ef kerfinu
er skilað innan 30 daga.
Engin takmörk á fjölda ára.
Engin takmörk á fjölda reikninga.
Engin takmörk á fjölda fyrirtækja.
Hámark 10 milljón fylgiskjöl á einu ári.
Taktu enga áhættu í kaupum á fjárhagsbókhaldi. Hjá
hugKORNi getur þú skilað kerfinu innan 30 daga og fengið
fulla endurgreiðslu efþað hentar þér ekki.
Eldri notendur af FjárhagsKORNi eða HeimilisKORNi fá
FjárhagsKORN 3,0 með nýjum handbókum og diskum fyrir
2,500 krónur með vsk.
IAuðlært er á FjárhagsKORN og fylgirþví ítarleg handbók.
Höfum einnig mörg önnur forrit til sölu á góðu verði.
hugKORH sf. Ármúla 38 Sími 91-689826
GORI88
Einstakt litaúrval!
GORI 88
• er olíuleysanleg vióarvörn.
• Lekur ekki, slettist ekki og er auöveld í meðförum.
• Auðveldar viðhald, því hún gefur jafna yfirborðs-
á ferð og jafnt slit.
• Hrindir frá sér vætu/er vatnsfælin.
Viðarlitir
eru gegnsæir, skerp:
fínlegt æóamynstur
ogyfirborósáferó
vióarins.
Ö/GORI
/viðarvörn
Útsölustaðir:
BYKO
Húsasmiðjan hf.
og kaupfélögin um land allt