Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990. 39 að. Starfið hefur mikið breyst. Ég hefði aldrei trúað að flugið gæti orðið svona háþróað. Það er allt gert til að létta undir hjá flugmönnum. Engu að síður þurfa þeir að hafa mikla þekkingu." Á undanfornum árum hafa þeir flugmenn sem byrjuðu í íslensku milhlandaflugi verið að hætta. Dag- finnur kallar þá stríðsframleiðsluna því allir hófu þeir störf um og eftir stríð. „Þetta var tiltölulega stór hóp- ur.“ Samstarf nauðsynlegt Dagfinni finnst ekki bara flugkost- urinn hafa breyst hjá Flugleiðum heldur einnig starfsemin öll. „Mér finnst eins og það hafi verið meiri samheldni áður fyrr. Sigurður Magnússon fyrrum blaðafulltrúi orðaði það þannig: „Þegar maður fór að sofa á kvöldin hlakkaði maður til aö vakna á morgnana og fara í vinn- una.“ Starfsandinn var mjög góður og allir jákvæðir. Það er lífsnauðsyn- legt fyrir flugfélag að þar sé góður starfsandi. Annars getur þetta ekki gengið.“ Þegar Dagfinnur er spurður um samkeppnina svarar hann: „Hér eitt sinn mátti alls ekki vera samkeppni. Nú eru allir að tala um nauösynlega samkeppni. Raunar er mikil sam- keppni því hingað fljúga SAS og Luft- hansa og fleiri eiga eftir að bætast við. Það á eftir að verða mikii breyt- ing í fluginu og ég hef hvatt til sam- starfs við önnur félög. Ég held að það komi ekki annað til greina en sam- starf. Lofleiöir áttu samstarf við norska flugfélagið Braathen (S.A.F.E.) og það kom mjög vel út. Ég held að samstarf við SAS verði til góðs fyrir Flugleiðir. Rangar vélar keyptar Það þarf að leggja miklu meiri áherslu á Atlantshafsflugið. Mín skoðun er sú að það hefði verið rétt á sínum tíma að fara út í breiðþotur.' Þegar félaginu stóð til boða að kaupa DC-10 vélar fyrir sautján milljónir doliara, sem var langt undir fram- leiðsluverði, áttu þeir að fjárfesta í þeim. Núna kosta slíkar vélar yfir fimmtíu milljónir dollara. Flugleiðir áttu kost á þessum vélum í kaupleigu á mjög góðum kjörum. Ef þeir hefðu keypt DC-10 vélarnar á sínum tíma væri félagið mun betra statt núna. Tími var kominn til að endurnýja flugvélaflotann nú en ég er ekki endi- lega viss um að réttu vélarnar hafi verið keyptar. Ég tel að réttara hefði verið að fara út í breiðþotur, þaö hefði verið meiri bylting. Breiðþotur eru langfleygari og bera mun meira. Ég hef trú á að Flugleiðir eigi fram- tíð í Atlantshafsflugi milli Bandaríkj- anna og Evrópu. Það er okkar stærsti markaður og hann þarf að rækta vel. í dag eru fjögur til fimm flugfélög að fljúga milli Evrópu og íslands og Flugleiðir mega þakka fyrir ef þeir halda sínum hlut á þeirri leið. Ef British Airways og KLM fara að fljúga hingað, jafnvel Finnair, þá fer að verða spurning um hvar aukning- in verði. Flugleiðir hafa haft mjög góða að- stööu í Lúxemborg. Nú hafa þeir dregið saman þar og leggja áherslu á Frankfurt. Það er að mínu mati rangt. Frankfurt er yfirsetinn flug- völlur en í Lúxemborg er nóg svig- rúm. Lúxemborgarar hafa líka stutt okkur á margan hátt. Þeir gáfu t.d. Flugleiðum eftir lendingargjöld þeg- ar verst gekk hjá félaginu. Ég gæti best trúað að önnur flugfélög í Evr- ópu fari að líta Lúxemborg hýrum augum vegna þess hversu lítil flug- umferð er þar. Klofinn Lofleiðaarmur Ég skal viðurkenna að ég er óánægður með margt hjá Flugleið- um. Lofleiðaarmurinn hefur ekki staðið saman, því miður. Mér finnst einnig að stjórn hjá svona félagi eigi að geta breyst á öllum aðalfundum. Nú er hluti stjórnarmanna kosinn til tveggja ára í senn. Þá vildi ég fá margfeldiskosningu sem myndi þýða að minnihlutinn gæti haft einhver áhrif. Ég ræddi þetta við stjórnar- menn en fékk engar undirtektir. T I Dagfinnur Stefánsson hafði starfað sem flugmaður í 44 ár þegar hann hætti á síðasta ári vegna aldurs. Nú flýgur hann t.d. Landgræðsluvélinni og hefur hug á að fljúga skurðstofu milli þróunarlandanna i sjálfboðavinnu. Margfeldiskosning ætti að vera regla hjá hlutafélögum ekki undantekn- ing. Það má segja að Eimskipafélag íslands ráði öllu og hafi tekið Flug- leiðir yfir,“ segir Dagfinnur. Hann er einnig óhress með hvernig skipað er í sumar stööur hjá félag- inu. „Það koma ungir menn úr ein- hverjum viðskiptaskólum og eru settir í æðstu stöður hjá félaginu. Jafnvel hátæknistöður þar sem sér- þekking er nauðsynleg. Ég hef sagt að það sé ekki hægt að reka flugfélag með eintómum framhaldsskólanem- um en það hefur ekki fengið góðan hljómgrunn. Sumir þessara manna koma alveg grænir, beint úr skóla, og ætla að stjórna mönnum sem hafa unnið við fagið í fiöldamörg ár. Eggið á að kenna hænunni. Breytingar á Ameríkuflugi nauðsynlegar Ég er vitaskuld líka sammála ýmsu t.d. að aðskilja innanlands- og milli- landaflug. Einnig að nauðsynlegt sé að byggja skýli á Keflavíkurflugvelli og færa viðhaldið hingað heim. íslend- ingar gætu vel tekið að sér ýmsar við- gerðir á flugvélum fyrir aðrar þjóðir. Hitt er að tíð verkfoll há flugrekstri mjög á íslandi. Áður en farið verður út í byggingu á skýli verður að ganga frá samningum við stéttarfélögin. Mjög mikilvægt er fyrir félagið að fljúga beint t.d. frá Stokkhólmi eða öðrum stöðum í Evrópu til Banda- ríkjanna. Nú koma vélarnar hvor úr sinni áttinni og skila af sér Banda- ríkjafarþegum í Keflavík. Oft koma því vélar hálfsetnar frá Lúxemborg til að taka upp þá farþega. í mörgum tilfellum hefði verið hægt að selja öll sætin í Lúx. Sama vélin ætti að fara frá Evrópu til Bandaríkjanna. Ég tel það mikilvægt skipulagsatriði fyrir félagið. Flugleiðir hafa leyfi til að fljúga vissan fiölda ferða beint til Bandaríkjanna, án millilendingar á íslandi, en gera það ekki.“ Með 64 milljónir í vasanum Dagfinnur hefur sínar skoðanir á málefnum Flugleiöa. Hann telur að ef Loftleiðir hefðu starfað áfram væri það blómstrandi fyrirtæki. Samein- ingin var honum aö móti skapi og nú hefur hann tekið ákvörðun um að draga sig út úr fyrirtækinu. Að vísu er Dagfinnur ennþá hluthafi en smár. í staðinn hefur hann sextíu og fiórar milljónir í vasanum sem hann hefur ekki haft tíma til að ákveða með hvaða hætti verða ávaxtaðar. Dagfinnur var í Júgóslavíu þegar frétt birtist um sölu hlutabréfanna og tveimur dögum eftir heimkomuna var hann kominn til Flórída. „Ég er ekkert farinn að velta þessum hlut- um fyrir mér,“ segir hann og bætir við að hann hafi ekki nokkrar áhyggjur af fiárfestingum. „Þaö verður bara að koma í Ijós hvað ég geri. Ætli ég haldi ekki áfram að vinna og laga til í kringum húsið mitt.“ -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.