Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Síða 45
57 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990. Áfram klám Ég þakka Ingibjörgu Hafstað grein hennar í DV þ. 18. apríl. Það er gott að fólk geti talast við þó það sé ekki sammála. Goðsagnir kvenna um karlmenn Ingibjörg meinar að ég „mis- skilji" málstað „Kvenna gegn klámi“ og að misskilningur minn sé dæmigerður. En ég misskil svo sem ekki eitt né neitt. Kjaminn í rökleiðslu Ingibjargar er sá að þjóðfélagið sé byggt upp af körlum og fyrir þá. „Konur hafa aldrei í þekktri sögu haft marktæk áhrif á uppbyggingu þessa samfélags... “ Klámið sé ein birtingarmynd þess- arar veiku stöðu kvenna og „ýti undir þá kvenfyrirlitningu sem er ríkjandi og virðist innbyggð í hug- arfar okkar menningarsvæðis." Og Ingibjörg telur greinilega þessar staðhæfingar sínar vafalausar. Væri það rétt að kvenfyrirlitning eða kvennahatur sé ríkjandi hug- arfar okkar menningarsvæðis hlyti það aö stafa af því að yfirgnæfandi meirihluti karla, hinn upp og ofan vestræni karlmaður, fyrirliti kon- ur. - Annars væri þetta hugarfar ekki ríkjandi ástand heldur aðeins einkenni á minnihlutahópum. í framhaldi af því er einnig rétt að álykta, eins og Ingibjörg gerir, að klámið birti þetta almenna kvenhatur, vitni um afstöðu hins dæmigerða karlmanns til kvenna. Og þá er aðeins eitt skref út í þá kenningu aö kyntilfinningar karla séu að öllu jöfnu á lægra plani en kvenna. Og Ingibjörg stígur einmitt það skref: „Enn finnast unglingspiltar og fullorðnir menn sem hæðast að og fyrirlíta þær konur sem sofa hjá þeim“. Það er svo sem lítil frétt. Ein vinkona mín iðkaöi það drukk- in að draga stráka upp í til sín en rak þá svo burtu harðri hendi þeg- ar þeir reyndu að láta það leiða til dýpri og varanlegri kynna. Það er nefnilega ein af hinum nýju goðsögnum kvenna um karl- menn að þeir fyrirlíti konur eitt- hvað meira en þær fyrirlíta þá. - Það kemur þá reyndar í ljós að barátta „Kvenna gegn klámi" og hliðstæðra öfgahópa í jafnréttis- baráttunni er fyrst og fremst árás á karlmenn sem hugsana-, tilfinn- KjaHarinn Sigurður Þór Guðjónsson rithöfundur inga- og kynverur! Svar Ingibjarg- ar Hafstað sýnir það mætavel. Frumhvatirnar og fantasían Klámið birtir ekki kvenhatur karlmanna yfirleitt. Það vitnar að- eins um fantasíuheim klámiðnað- arins sjálfs sem fer síst verr með konur en karla. Ingibjörg telur að pomóofbeldið sé ekki sambærilegt við annað leikiö ofbeldi af því að konur séu sýndar ósköp sælar með sig. En karlmennirnir eru að henn- ar sögn útmálaðar kynmaskínur og sadistar. Mér er spum: Er það meiri auðmýking fyrir konur að vera sýndar sælar í niðurlægingu sinni en karla að vera hæstánægðir að valda slíkri niðurlægingu? Ég segi fyrir mig að heldur vildi ég vera fórnarlamb kynferðislegs of- beldis en sá sem beitir því. Klámiö niðurlægir því konur andskotann ekkert meira en karla. Það er sjálfsagt að leggja ýmsar hömlur á klámið líkt og marga aöra starfsemi en það er hreinasta vit- leysa að banna það með öllu. Klám- ið spilar á kynhvötina, ekki ósvipað og ofbeldi og horror leikur á mann- legar aggressjónir og hjátrú. Og engan þarf að undra þó mikið hat- ur, hrollur losti og „ógeð“ gægist fram í hvers kyns fantasíu. Þetta býr í mannskepnunni og knýr lífið áfram, alla vega um- breytt að vísu. Og það er einkenni á glímu mannsins við frumhvatir sínar í öryggisleysi og vanmætti lífsins að afskræma þær oft og tíð- um og magna þær upp úr öllu valdi í huganum. Fara fram á ystu nöf í fantasíunni: Morð, nauðganir, kyn- órar, draugar, djöflar, heimsendir! Þannig losum við okkur við gífur- lega spennu. Þetta er auðvitað ekki hættulaus leikur en þó miklu skárri en þrýsta vilhdýrinu lengst niður í sálardjúp- in. Þar þrífst það einmitt best og veldur mestum usla. Ingibjörg fullyrðir að klám sé oft og tíðum eina fræðslan sem strákar fái um kynlíf. Af hveiju sinna for- eldrarnir ekki bömum sínum og kenna þeim um lífið? Barni sem elst upp viö ástúð og umhyggju er hvorki fyrr né síðar hætta búin af klámi. Og þó rannsóknir reki tengsl milli kláms og ofbeldisverka eru þau yfirborösleg; ákvarða kannski tímann, aöferðina, og því um líkt. En raunveruleg ástæöa er þver- brestur í sálarlífinu vegna vonds uppeldis og slæmra lífskjara. Málin eru talsvert flóknari en „Konur gegn klámi" vilja vera láta. Skilningur og skilningsleysi í lok greinar sinnar vill Ingibjörg Hafstað „benda á þá sorlegu stað- reynd að margir karlmenn virðast hvorki skynja né skilja þá veiku stöðu sem konur búa við og aö bar- áttan gegn klámi og kynferðislegu ofbeldi er mikilvægur hlekkur í ,,Mér er spurn: Er það meiri auðmýk- ing fyrir konur að vera sýndar sælar í niðurlægingu sinni en karla að vera hæstánægðir að valda slíkri niðurlæg- ingu?“ „Klámið birtir ekki kvenhatur karlmanna yfirleitt. Það vitnar aðeins um fantasiuheim klámiðnaðarins sjálfs sem fer síst verr meö konur en karla“, segir greinarhöfundur m.a. i grein sinni. baráttu kvenna fyrir því að geta lifaö meö reisn og sjálfsvirðingu í þessu samfélagi". Það er alveg ómögulegt að skilja þessi orð öðruvísi en svo að ég sé nokkuð „dæmigerður" fulltrúi þeirra karllegu lífsgilda sem eiga engan skilning né skynjun á stöðu þeirra sem veikari eru og traöka á reisn og sjálfvirðingu þeirra. Ég býst við að þessi lýsing komi þeim spánskt fyrir sjónir sem fylgst hafa með skrifum mínum síðustu árin. Ég hef í fjölda greina tekið málstaö geðsjúklinga, fanga, geð- veikra fanga, dópista, fórnarlamba sifjaspella - og kvenna sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi - af þvílíkum krafti og einurð að dæmalaust er í seinni tíð. Og ég hef ráðist af hörku á stjóm- völd og embættismenn sem fótum- troða rétt og mannvirðingu þessa fólks, sem nær engir láta sig neinu skipta, hvorki karlar né konur, allra síst „Konur gegn klámi“. Þá hef ég opinberlega lýst aðdáun minni á sjálfshjálparhópum kvenna þó ég gagnrýni sumt í mál- flutningi þeirra. Og ég er sá eini er dró viðeigandi ályktanir af ein- hverju versta dæmi um kvenfyrir- ■ litningu á seinni árum: Þegar van- ræksla á fæðingardeild kostaði ör- kuml og dauöa vöggubarna. Hvar voru þá konur? Hvar var Kvenna- listinn? Já, og hvar faldi sig Kvennahstinn á Akureyri, er hneyklast mjög í Þjóðviljanum 24. apríl á þeim sem ekki falla í stafi yfir „Konum gegn klámi“? Æ,æ! Litlu sætu stelpurnar eru bara svo skítlogandi hræddar við stóm ljótu læknana. Sannlega segi ég yöur. Hinir síð- ustu munu verða fyrstir og hinir fyrstu munu verða síðastir. Sigurður Þór Guðjónsson Fréttatilkynning í íjárlögum 1990 eru veittar 20.820.000 kr. til starfslauna listamanna. Vegna breyttra tjárlagsforsendna Qárlaga lækkaði þessi fjárhæð og verða því 20.403.600 kr. til ráðstöfunar á þessu ári. Alls bárust 218 umsóknir um staifs- laun. Alls hlutu 59 Ustamenn starfslaun að þessu sinni, þar af 4 til 12 mánaða, 5 til 9 mánaða, 15 til 6 mánaða og 35 til 3 mánaða. 12 mánaða starfslaun Hulda Hákon, myndbstarmaður. Jóhanna Kristín Ingvadóttir, myndUstarmaðin'. Leifur Þórarinsson, tónskáld. Sigrún Eðvaldsdóttir, tónlistarmaður. 9 mánaða starfslaun Elías B. HaUdórsson, myndUstarmaður. Jón Óskar, myndlistarmaður. John Speight, tónskáld. Magnús Kjartansson, myndUstarmaður. Þorsteinn Gauti Sigurðsson, tónUstarmaður. 6 mánaða starfslaun Björg Þorsteinsdóttir, myndhstarmaður. Björgvin S. Haraldsson, myndUstarmaður. Guðni Franzon, tónUstarmaður. Gunnar Öm Gunnarsson, myndlistarmaður. Gunnar Reynir Sveinsson, tónskáld. Eggert Pétursson, myndUstarmaður. Helgi Þorgils Friðjónsson, myndUstarmaður. Jónas Ingimundarson, tónUstarmaðm1. Kolbeinn Bjamason, tónUstarmaöur. Magnús Tómasson, myndUstarmaður. Ragnheiður Jónsdóttir, myndUstarmaður. Sigurður Rúnar Jónsson, tónUstarmaður. Sigurður Örlygsson, myndUstarmaður. Sigurjón Jóhannsson, myndUstarmaður. Sverrir Ólafsson, myndlistarmaður. 3 mánaða starfslaun Anna Th. Rögnvaldsdóttir, kvikmyndagerðarmaður. Ásgeir Jakobsson, rithöfundur. Borghildur Óskarsdóttir, myndUstarmaður. Bryndis HaUa Gylfadóttir, tónUstarmaður. BrynhUdur Þorgeirsdóttir, myndUstarmaður. Eyjólfur Einarsson, myndUstarmaður. Georg Guðni, myndUstarmaður. Gunnar Dal, rithöfundur. Gunnlaugur St. Gíslason, myndlistarmaður. Hafliði Amgrimsson, leikhstarfræðingur. HaUgrímur Helgason, tónskáld. Hlíf Svavarsdóttir, listdanshöfundur. Hróðmar Ingi Sigurbjömsson, tónskáld. Ingimar Erlendur Sigurðsson, rithöfundur. Jón Hlöðver Ásgeirsson, tónskáld. Kolbrún BjörgóUsdóttir, myndlistarmaður. Kristján Steingrímur Jónsson, myndlistarmaður. Kristyna Blasiak Cortes, tónUstarmaður. Lára Rafnsdóttir, tónUstarmaður. María EUingsen, leUtari. Nanna Ólafsdóttir, Ustdanshöfundur. Óskar Ingólfsson, tónlistarmaður. Pétur Jónasson, tónlistarmaður. Snorri Sigfús Birgisson, tónskáld. Stefán S. Stefánsson, tónlistarmaður. Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur. Sveinn Björnsson, myndlistarmaður. Tómas Einarsson, tónUstarmaður. Tryggvi Emilsson, rithöfimdur. Viðar Gunnarsson, ópemsöngvari. Vignir Jóhannsson, myndlistarmaður. Þór Vigfússon, myndlistarmaður. Þórarinn Óskar Þórarinsson, Ijósmyndari. Þorbjörg Höskuldsdóttir, myndlistarmaður. Þómnn Sigurðardóttir, leikari og leikskáld. í úthlutunarnefnd áttu sæti: Brynja Benediktsdóttir, sr. BoUi Gústafsson og Þómnn J. Hafstein. Menntamálaráðuneytið 5. mai 1990. pv_______________________ Kvikmyndir Johnny Clegg & Savuka - Cruel Crazy Beautiful World Rokk með hlutverk Rokktónlist og reyndar öll sungin tónhst er í sjálfu sér kjörið verkfæri til að koma ýmsum boðskap á framfæri einsog hver önnur listgrein. Þessu hafa margir popparar gert sér grein fyrir í gegnum tíðina en stærstur hluti popptónhstarmanna hefur þó látið þetta tækifæri sér úr greipum ganga og sungið innihaldslausa texta um ekki neitt. Þetta innihaldsleysi er einkennandi fyrir stærstan hluta af léttri dægur- tónhst samtímans og engu líkara en þeir sem að henni standa séu hug- sjónalaust fólk upp til hópa. Ýmsar undantekningar eru á þessu sem betur fer og þar á meöal má nefna afríska rokktónhst sem nýtur sívaxandi vinsælda og virðingar á Vesturlöndum. Og langflestir þeirra afrísku tónlistarmanna, sem látið hafa að sér kveða á Vsturlöndum, gera sér fullkomlega grein fyrir þeim áhrifum sem þeir geta haft á fólk og skoðanir þess í gegnum tónlistina. Þessir tónhstarmenn geta stoltir þakkað sér að einhverju leyti fyrir það að Nelson Mandela var leystur úr haldi og að ástandið í Suður-Afríku er lýðum ljóst. Einn þessara manna er Suður-Afríkubúinn Johnny Clegg en hann hef- ur ásamt hljómsveit sinni, Savuka, náð mikilli hylh um heim ahan. Og Johnny Clegg hefur einsog svo margir aðrir afrískir tónhstarmenn ekki bara komið sínum boðskap á framfæri í gegnum tónlistina heldur líka þeim tónlistararfi sem Afríka geymir. Þannig hefur þeim tekist að búa til sérstaka blöndu af afrískri tónhst og vestrænu poppi og rokki. í tilfelh Johnny Clegg og félaga er þetta framúrskarandi tórúist, lifandi og innihaldsrík og síðast en ekki síst full af boöskap og vangaveltum um lífið og tilveruna. -SÞSr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.