Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990. Í5 Tegasveit feðganna með Sigurð Ágústsson á bassa, Guðvin Flosason á trommur og Sigurð Sigurðsson á munnhörpu. DV myndir: Ragnar Sigurjónsson. Pétur Tyrfingsson, söngvari Tregasveitarinnar, með Claptonstæla á gít- arnum. < Feðgar í tónlistinni: frí stundum „Tregasveitin leikur blús í kvöld“. Þessi auglýsing heyrðist oft í vetur og ekki hægt að álykta ann- að en hér væru vinsælir menn á ferð. Reyndar var oftast troðfullt á tónleikum og skyndilegur fjöldi blúsáhugamanna með ólíkindum. Feðgarnir Pétur Tyrfingsson og Guðmundur Pétursson spila blús af mikilli innlifun í frístundum með Tregasveitinni. Þeir búa sam- an í Breiðholtinu með yngri syni og bróður, Gunnlaugi Má, 7 ára, og einum ketti. Guðmundur, sem er gítarleikari hljómsveitarinnar, er sautján ára gamaU. Guðmundur er fyrst spurður af hverj u hann hafi valið blúsinn en ekki eitthvað annað sem krakkar á hans aldri falla helst fyrir? „Þaö er ekkert víst að ég hefði hlustað á blús ef ég hefði ekki byrj- að að spila á gítar,“ svarar Guð- mundur. „Annars lætur fólk eins og blús sé eitthvert gamalt fyrir- bæri en í dag er jafnmikið að ger- ast í þessari tónhst og fyrr á öld- inni. “ „Mér kemur alltaf á óvart hvað margir eru hissa á því að strákur á þessum aldri skuli hafa áhuga á blús. Hinir sömu átta sig ekki á því hvað er orðið sígilt í dag og hvern- ig þessari músík er skilað áfram til okkar,“ segir Pétur. Mikill blúsáhugi „Þaö var mikið að gerast í músík frá því að breska rokkið fer í gang og fram til ársins ’80,“ segir Pétur ennfremur. „Eftir það gerist lítið sem ekki neitt nýtt í músíkinni að mínu mati frá því Dire Straits komu fram og þar til Steve Ray Vaughan gaf út sína fyrstu plötu. Staðreyndin er bara sú að ungt fólk, sem pælir eitthvað í músík að ráði, hættir ekki fyrr en það hefur hlustað á allt sem það kemst yfir. í dag er hægt að fá gömlu plötumar í öllum plötubúðum en áður fyrr var ekkert fáanlegt nema það nýj- asta.“ Guðmundur tekur undir þetta og segir að blúsáhuginn sé töluverður hjá sínum jafnöldrum sem hlusti á gamla meistara jafnt og nýja. Pétur tilheyrir kynslóðinni sem lifði og hrærðist í rokkinu hér á árum áður. „Ég komst yfir mína fyrstu blúsplötu árið 1970 og síðan hef ég verið að sanka þessu að mér,“ segir hann. Ég bara spilaði á gítar Guðmundur vakti mikla athygli í kosningasjónvarpi fyrir þremur árum, þá fjórtán ára gamall. Gaml- ir rokkarar gripu andann á lofti við tækin og hrifust af gítarleik stráksa. Hann var ekki að koma fram í fyrsta sinn því hann hafði starfrækt hljómsveit með félögum sínum um tíma. Tólf ára eignaðist Guðmundur sinn fyrsta gítar og fór að æfa sig á eigin spýtur. „Svo bara spilaði ég á gítar. Eng- inn galdur og afar einfalt,“ segir Guðmundur og vill greinilega lítið gera úr hæfileikum sínum. „Það geta allir spilað eitthvað á gítar ef þeir leggja sig eftir því. Ég lærði mest á því aö hlusta á plötur og heyra hvemig aðrir spila.“ Pétur sér um gítarleik og söng Tregasveitarinnar. Hann er líka sjálflærður gítaristi. „Ég átti gamlan kassagítar eins og algengt var á heimilum þar sem partí voru haldin oft en kunni ekk- ert að spila. Fyrir nokkrum árum keypti ég saxófón en gafst upp á honum vegna hávaðans sem aðrir heimilismenn urðu að þola. Ég skipti þá yfir í rafmagnsgítar því á hann er auðvelt að plokka án þess að hafa allt í sambandi,“ segir Pét- ur. „Árið 1987 lést konan mín og móðir strákanna og ég varð að flnna mér eitthvað til að dreifa huganum. Ég fór að mæta á æfmg- arnar með strákunum úti í bílskúr og spila með.“ Feðgarnir mótmæla því ekki að þetta áfall hafi haft áhrif á blús þeirra en vilja lítið um það ræða. Bjúsinn er öðruvísi í fyrstu spilaöi Pétur aðeins á git- arinn og lét sönginn alveg eiga sig. Guðmundur fer hamförum á gítarinn. Smátt og smátt þreifaði hann sig { áfram og endaði að lokum sem 1 blússöngvari. Blússöngur krefst 1 öðruvísi raddbeitingar en við eig- ] um að venjast sem alin erum upp i við annars konar sönglagastíl. i „Við erum alin upp við hann 1 Tuma sem fór fætur sem er allt { annað en blús. í fy rstu hélt ég varla lagi en mér hefur farið fram með | æfingunni,“ segir Pétur og af svip ' Guðmundar má ráða að þetta hafi verið reyndin. „Það er erfitt að 1 syngja blús ef maður hefur enga ; tilfmningu fyrir honum, nánast ; ómögulegt." I Spila fyrir ánægjuna ; Tregasveitin hefur haft nóg að í gera í vetur og leikið á tónleikum víða. Eftir að John Mayall kom hingað í tónleikaferð snemma árs 1989 hefur blúsinn verið í stöðug- um uppgangi. Munar þar mest um vel sótta tónleika „Vina Dóra“ á Hótel Borg. Guðmundur er fastur gítarleikari með Vinunum og hefur Tregasveitin komið fram með þeim. En af hverju er blúsinn svona vinsæll eins og raun ber vitni? „Fólki finnst einfaldlega gaman á blústónleikum. Við erum að spila ánægjunnar vegna og það finna áheyrendur," segir Guðmundur. Guðmundur spilaði með John Mayall og er haft fyrir satt að May- all hafi spáð honum framtíð á þessu sviði. Jafnframt spilamennskunni stundar hann nám í Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti á myndhst- arbraut. Hann segist hafa áhuga á myndlist en ekkert hafa hugsað um hana með tilliti til framtíðarinnar. Sem stendur á tónlistin hug hans allan. „Það lifir enginn af þessari tónlist hér á landi. Ég gæti vel hugsað mér að fara til útlanda að spila en hvað verður kemur í ljós.“ Pétur hefur unnið sem ráðgjafi hjá SÁÁ síðastliðin þrjú ár. Á árum áður stundaði hann almenna verkamannavinnu í Reykjavík og lét að sér kveða á Dagsbrúnarfund- um. Hann starfaði einnig með ýms- um þekktum samtökum á vinstri vængnum. Það hefur hins vegar lítið borið á Pétri í pólitíkinni síðustu ár og hefur hann að mestu hætt félags- starfi. „Ég er þó enn við sama pólit- íska heygarðshornið og hef ekki breytt mínum skoðunum hvaö sem öðrum félögum í vinstri hreyfmg- unni kann að þykja nauðsynlegt. Ég dró mig að mestu út úr öllu starfl af persónulegum ástæðum en ekki hugmyndafræðilegum." Pólitíkin í blúsnum En blúsinn á sér pólitískar rætur í lífi svertingja í Bandaríkjunum. Hann er tónlist svartra þræla sem strituðu á ökrum hvítra landeig- enda. „Það getur enginn kynþáttahat- ari skynjað blús vegna þess að sá hinn sami hefur engan skilning á lífinu," segir Pétur. „Ef efni text- anna er skoðað má rekja feril svarts vinnulýðs í Bandaríkjunum. Elstu textarnir fjalla um vonina um að komast heim til einhvers fyrir- heitins lands. Síðan flytjast svartir til borganna í atvinnuleit og þá syngja þeir af trega um brostnar vonir vegna borgarlífsins og löng- un til að hverfa heim í sveit aftur. Seinna skynjar maður örvæntingu blússöngvarans sem er fæddur í borginni eða flyst þangað sem barn. Hann er innilokaður." -JJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.