Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Síða 30
42' LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990. Knattspyma unglinga Reykjavíkurmót 4. flokks: KR-ingar betri og sigruðu IR, 2-4 Jíí - Valur tapaði gegn Víkingi, 3-1 KR-ingar unnu IR í A-liði 4. flokks, sl. mánudag, 2^4, og fór leikurinn fram á ÍR-velli. Staöan í hálfleik var 1-2 fyrir KR. Það var Andri Sigþórs- son sem skoraði fyrsta mark KR- inga, en ÍR-ingar náðu aö jafna með góöu marki Ágústs Guðmundssonar. Vilhjálmur Vilhjálmsson kom síðan KR yfir, 1-2, og enn jafna ÍR-strák- arnir, þegar Haraldur Eiríksson Umsjón: Halldór Halldórsson SKoraði úr víti. Staöan 2-2. KR-ingar áttu síðan mikinn endasprett og skoraði Bjarni Jónsson tvö síðustu mörkin fyrir KR og lokastaðan 2-4 fyrir KR. Sanngjörn úrslit, eftir gangi leiks. ÍR-ingar standa samt sem áöur best að vígi, hafa 13 mörk í plús á Víkinga og hafa lokið keppni. Víkingar verða því að vinna Þrótt stórt í síðasta leik til að hljóta titilinn. Ljóst er að bæði KR og ÍR hafa góðum liðum á að Frá leik KR og IR í 4. flokki A-liða, ÍR-ingar sækja hart að marki KR-inga. B-lið 4. flokks KR varð Reykjavikurmeistari. Liðið er þannig skipað: Þórarinn Ólafsson, Kristinn Victorsson, Páll Jóhannesson, Grímur Sigurðsson, Dagur Jónsson, Anton Pálsson fyrirliði, Andrés Björnsson, Jakob Hrafnsson, Ragnar Bragason, Höskuldur Ólafsson, Páll Gíslason og Haraldur Þorvarðarson. Þjálfari er Sigurður Helgason. N DV-mynd Hson skipa og eiga strákarnir örugglega eftir að láta mikið að sér kveða á komandi íslandsmóti. ÍR-KR4-2 íB-liði í leik B-liöa sigruðu ÍR-ingar, 4-2. Það dugði þó ekki því KR-ingar urðu Reykjavíkurmeistarar á betri markatölu. Mörk ÍR: Einar Örn Ein- arsson 2 mörk, Haraldur Jens Guð- mundsson 1 bg Sverrir Sverrisson 1 mark. Mörk KR gerði Páll Gíslason. VíkingurValur3-l Víkingar unnu Val, 3-1, í leik A-hða á Víkingsvelli sl. þriðjudag. Leikur- inn var jafn framan af og leiddu Vík- ingar, 1-0, í hálfleik, með marki Sig- urðar Elvars Sigurðssonar. Valsmenn náðu að jafna í upphafi síðari hálfleiks þegar Ásmundur Ólason skoraði með þrumufieyg í stöng og inn. Víkingar tóku mikinn fjörkipp við markið og sóttu stíft til loka leiks og náðu að koma boltanum í netið í tvígang og sigruðu nokkuö örugglega, 3-1. Tvö síðustu mörk Víkinga gerðu þeir Sigurður Elvar Sigurösson og Baldvin Kristinsson. Víkingsliðiö er sterkt og lofar góðu fyriríslandsmótið. -Hson íslandsmótið hefst í dag Þá byrjar boltinn að rúlla í íslands- móti yngri flokka í dag. Eftirtaldir leikir verða í karlaflokkum til mánu- dags. Laugardagur 26. maí: (Fyrrnefnda liðið á heimaleikinn). 2. fl. B-rið. ÍBV-Þróttur R. kl. 14.00 2. fl. C-rið. Afturelding-Fylkir kl. 14.00 2. fl. C-rið. KS-Grótta kl. 14.00 Sunnudagur27. maí 2. fl. A-riö. ÍA-KA kl. 16.00 2. fl. B-rið. Völsungur-Fjölnir kl. 14.00 2, fl. B-rið. Skallagr.-FH kl. 14.00 2. n. C-rið. Snæfell-ÍK kl. 14.00 4. fl. A-rið. Týr-ÍA kl. 14.00 Mánudagur28. maí 2. fl. B-rið. Hverag.-Leiknir R. kl. 20.00 2, fl. C-rið. ÍR-Selfoss kl. 20.00 3. fl. A-rið. Fylkir-Fram kl. 20.00 I hita leiks þegar allt er á suðu- punkti og mikið í húfi reynir mjög á þroska áhangenda liða yngri flokka. Þeir geta með framkomu sinni við hliðarlínu haft mikil áhrif á hina ungu leikmenn, bæði til góðs og ills. Vissulega ber að hvetja sína menn til dáöa, en það er hreint ekki sama hvernig það er gert. Ekki er veriö aö beina þessu til ákveðins hóps áhangenda heldur allra sem áhuga hafa á unglinga- knattspymu og fylgjast að stað- aldri með sínu liöi. Neikvæð há- reysti frá hliðarlínu, og þá ekki síst gagnvart dómgæslu, skaðar leik- inn. Verði dómara á mistök á hann ekki skilið að fá sendar illskeyttar glósur frá hliðarlínu. Þeir eru bara ósköp venjulegir menn og eru að reyna að vinna sitt starf vel. Hlut- drægni í dómgæslu hef ég aldrei orðið vitni að í öll þau ár sem ég hef fylgst með unglingaknatt- spyrnu, en að sjálfsögðu geta menn gert mistök. Sagt er að sá dómari sem gerir um 10 mistök í leik sé talinn mjög góður. Því mætti svo við bæta að það er álit unglingasíðu DV að mjög brýnt er að línuverðir séu til staðar í öll- um leikjum yflr 5. flokki. Það gerir starf dómarans léttara og miklu er síður hætta á mistökum. En málið snýst reyndar ekki um dómarana að þessu sinni, - heldur áhangendur liða og framkomu þeirra við hliðarlínuna. Skaðar knattspyrnuna Hvaða áhrif haldið þið, góða fólk, aö þaö hafi á unga leikmenn aö hlusta á grófar athugasemdir full- orðins fólks, frá hliðarlínu til að mynda, varöandi dómgcéslu? Þeir bregðast við á líkan hátt og beita sér af alefli gegn dómaranum og hætta allri einbeitingu að leik sín- um. Þetta skeður ósjálfrátt og dóm- arinn verður, allt í einu, aðalatriðið og um leið sökudólgurinn ef gengið er ekki nógu gott. Hinir áhugasömu áhangendur verða að taka meira tilllt til hinna ungu leikmanna og gæta tungu sinnar betur og eiga reyndar að sýna drengjunum gott fordæmi með góðri hegðun. Ég átti fyrir stuttu tal við leik- mann eftir mikinn átakaleik og kvað hann, hiklaust, að framkoma áhangenda smitaði mjög út frá sér inn í leikinn - og það væri oftast ástæða þess að upp hæflst nokkurs konar aðíor leikmanna aö dómara. Hann kvaðst ekki vera sáttur við ástandið. Vissulega getur spennan oft verið yfirþyrmandi - en það er ekki nógu góð afsökun fyrir fullorðið fólk. sem, þrátt fyrir allt, hefur mjög gaman af að fylgjast með hinu unga og fríska fólki í leik. Hugsum málið. -Hson „Þetta er ekkert skrýtið. Hann hefur verið í körfuboita i allan vetur“! Gústi sweeper: „Ég er búinn að vera á Ítalíu i heilt ár og hef aldrei verið betri!!!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.