Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1990. Fréttir Geðveikur fangi hafður í Síðumúlafangelsi: Þjóðarósómi sem gengur ekki lengur - segir séra Ölafur Jens Sigurðsson fangaprestur „Ég hélt að ekki væri hægt að gera slíkt á íslandi árið 1990. Mað- urinn er haldinn formlegri geð- veiki. Fangelsi er ekki staður fyrir mann eins og hann og allra síst Síðumúlafangelsið. Ég vildi fá að sjá framan í þann mann sem getur mælt þessu bót,“ sagði Ólafur Jens Sigurðsson fangaprestur. I Síðumúlafangelsinu er nú vist- aður geðsjúkur afbrotamaður. Hann var sendur á geðdeild Landspítalans í þeirri von að hann fengi vist á Kleppsspítala. Svo varð ekki. Til þess var gripið aö loka hann inni í Síðumúlafangelsi sem er einangrunarfangelsi. „Það var farið með hann á geð- deild Landspítalans í þeirri von að hann fengi vistun á Kleppi. Því var alfarið synjað. Ég skil þetta ekki. Fangelsis- og dómsyfirvöld ráða ekki við þetta vandamál. Vandinn er sá að geðsjúkum mönnum á Is- landi er neitað um læknishjálp. Þetta er þjóöarósómi og þetta geng- ur ekki lengur. Það er hægt að leita hjálpar við öllum öðrum meinum og enginn amast við. Ef um geð- sjúkdóma er að ræða er dyrum bara skellt. Þetta er búið að vera vandamál lengi. Nú sýnist mér ætla að keyra alveg um þverbak.“ Alvarlega sjúkur „Maðurinn er sakhæfur afplán- unarfangi og er haldinn formlegri geðveiki. Það er viðurkennt. Hann er alvarlega sjúkur og því er auð- velt fyrir geðheilbrigðiskerfið að segja að þaö eigi ekki að gæta dóm- felldra manna og það er það sem gert er.“ - Er þetta dæmi með því versta sem þú hefur orðið vitni að? „Hann sætir ekki slæmri með- ferð. Fangaverðir, sem gæta mannsins, gera allt sem þeir geta til að honum líði sem best. Það er ekki á honum niðst eða illa með hann farið á neinn máta. Hitt er augljóst mál að einangrunarklefi í Síðumúla er ekki réttur staður fyr- ir geðsjúkan mann. Þessi staður er ekki sá rétti, hefur aldrei verið það og verður það aldrei." Kannski hættulegur „Á Kleppsspítala eru málin leyst með því að setja aukavaktir yfir mönnum. Þegar aö dómfelldum mönnum kemur stendur þeim þessi læknisþjónusta ekki til boða. Samt ber öllum landsmönnum samkvæmt heilbrigðisreglum að fá læknisþjónustu. Þessi ákveðni maður tapar veruleikaskyni og lifir í eigin heimi. Því er hann kannski hættulegur. Ég segi kannski. Hann er ekki hættulegri en menn sem dvelja á sjúkrahúsum og eins menn sem ganga jafnvél lausir og fara í svpna ástand.“ Ólafur Jens sagði að dómskerfið hefði ekki brugðist skyldum sínum og raunverulega hefði það teygt sig lengra en því ber að gera. Hann benti á að maðurinn, sem framdi voðaverk í Þverholti fyrir nokkr- um árum, hefði ekki fengið neina læknishjálp. Brúðuhús sem vill ekki erfiða sjúklinga „Geðheilbrigðiskerfið virðist vera þvílíkt brúðuhús að það vill ekki erfiða sjúklinga. Þetta er ekki bara umhugsunarefni fyrir þá sem nálægt fóngum starfa. Þetta er til umhugsunar fyrir alla þjóðina. Geðheilbrigðiskerfiö er að komast á það stig að það hafnar erfiðum sjúklingum. I hvað stefnir þá? Ég og þú getum orðið vitlausir á morg- un. Ef við verðum alvarlega veikir þá pössum við ekki inn í þessa brúðuhúsamynd. Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra hef- ur gert allt til að finna hugsanlega lausn á þessu máli. Þeir hjá ráðu- neytinu hafa eytt mikilli vinnu í þetta mál. Það er einhver flösku- háls þar sem allt stoppar." - Hver er hann? „Ég þarf ekki að segia þér það. í mínum huga er þetta stóralvarlegt mál. Landlæknir er búinn að reyna mikið - allt án árangurs. Geðheil- brigðiskerfið stendur ekki við skyldur sínar. Þó að vilji æðstu yfirvalda sé góður þá virðast þeir ekki ráða við kerfið," sagði Ólafur Jens Sigurðsson. -sme yg'4 i m * « Bessastaðastofa er að koma í Ijós eftir nær algera endurbyggingu sem staðið hefur yfir um nokkurra mánaða skeið. DV-mynd GVA Steingrímur Njálsson: Dæmdur í fangelsi og öryggisgæslu - í Sakadómi Reykjavikur Sakadómur Reykjavíkur hefur dæmt Steingrím Njálsson, marg- dæmdan kynferðisafbrotamann, í átján mánaða fangelsi og til að sæta sérstakri gæslu eftir að hann hefur lokið afplánun refsingarinn- ar. Gæsluvarðhald kemur til frá- dráttar fangelsisvistinni. Stein- grímur hefur rétt á aö ákvörðun um öryggisgæslu verði endurskoð- uð af dómstólum að sex mánuðum liðnum. Steingrímur er dæmdur fyrir aö hafa í febrúar í vetur hænt heim til sín ungan dreng og fært hann úr ytri buxum. Dómarinn segir að framburður drengsins, um leynd- armál og þögn, veki grunsemdir um annarlegan tilgang Steingríms. Steingrímur bar því við að hann hefði fært drenginn heim til sín til að þurrka buxur hans. Vitni tóku ekki eftir að buxumar væru sérs- taklega blautar. Þá segir dómarinn að Steingrími hlyti að vera ljóst að slík afskipti hans af ungum drengj- um hlytu að kalla á viðbrögð hins almenna borgara og lögreglu. „Með hliðsjón af óvenjulegum sakaferli ákærða þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánaði," segir í dóminum. Ríkissaksóknari krafðist þess að Steingrími yrði gert að vera í ör- yggisgæslu að lokinni afplánun. „Þegar litið er til brotaferils ákærða og þess að ákærði hefur framið kynferðisafbrot gagnvart samtals fjórtán ungum drengjum, verður framangreind krafa ákæru- valdsins tekin til greina," segir í dóminum. Hjörtur 0. Aðalsteinsson saka- dómari kvað upp dóminn. -sme Bandalag háskólamanna: Halldór boðar þá til fundar Halldór Ásgrímsson, starfandi for- sætisráðherra, hefur boðað fulltrúa BHMR til fundar við sig í Stjórnar- ráðinu í dag. Um næstu mánaðamót á umsamin leiðrétting BHMR, sem náðist í síðustu kjarasamningum, að taka gildi. Gert er ráð fyrir því að farið verði fram á það við fulltrúa BHMR að leið- réttingunni verði frestað. Birgir Björn Sigurjónsson, hagfræðingur BHMR, sagðist eiga bágt með að trúa því að slíkt væri unnt. Hann sagði að í samningnum væri hins vegar gert ráð fyrir umræðum um fram- kvæmd hans og menn myndu því skoða tillögur forsætisráðherra. -SMJ Dansarar frá San Francisco bal- lettinum verða með sína fjóröu sýningu í Borgarleikhúsinu kl. 20.30 í kvöld. I-Ielgi Tómasson er listdansstjóri og 2 af 4 verkum sýn- ingarinnar eru samin af honum. ; Sinfóníuhljómsveit íslands verð- ur meö hljómleika í Háskólabíói kl. 20.30 í kvöld. Stjórnandi veröur Gunther Schuller og einleikari er Sovétmaðurinn Leodíd Tsjísjík. Á tónleikunum verður eingöngu leik- in bandarísk tónlist. I Salonisti kvintettinn frá Sviss spílar í síöasta skipti í kvöld kl. 21.00. Tónleikarnir verða í Sigur- jónssafni. Klukkan 1717 koma fram í Aust- urstræti Dansskóli Jóns Péturs og kvæöamannafélagið Iðunn. A Hressó hefst dagskrá kl. 21. Þar koma fram Big band tónlistarskóli Seltjamarness, Njáll Sigurðsson og Diddi fiðla með þjóðlega tónlist, Friðrik Guðni Þórleifsson á lang- spil, frönsk hreyfilistakona, Kristín Quoiraud, Bergur_ Þórðarson trúbador og Bragi Ólafsson. Vil- borg Dagbjartsdóttir lesa upp ljóð. -pj Námsmenn: Engin aðstoð frá ríkinii Beiðni námsmanna um aukafjár- veitingu til atvinnuátaks hlaut ekki hljómgmnn á ríkisstjómarfundi í gær. Ráðamenn bera þvi við að ekki sé til fjármagn til slíkra hluta. Atvhmulausir unglingar og náms- menn skipta þúsundum um allt land en verst er ástandið á höfuðborgar- svæðinu. Ekki er þó öll nótt úti enn því hugs- anlegt er að einhver ríkisfyrirtækj- anna taki námsmenn upp á sína arma og leysi úr brýnasta vanda þeirra. -GRS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.