Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 12-. JÚNÍ 1990. Fréttir Rannsóknir á sviði arfgengra heilablæðinga: Nýjar greiningarað- ferðir uppgötvaðar Nokkrar nýjungar hafa komiö fram á sjónarsviðið í rannsóknum á arfgengri heilablæðingu eftir ára- tuga rannsóknir. „Það er einkum tvennt sem komið hefur fram á síðustu árum“ sagði Eiríkur Benedikz líffræðingur en hann er einn af þeim sem að rann- sóknunum standa. „í fyrstu má nefna greiningaraðferðir sem fram- kvæma má með athugun á blóðsýn- um og hefur Ástríöur Pálsdóttir stað- ið að baki þeim rannsóknum. Einnig er mögulegt að greina sjúkdóminn á fósturstigi. í öðru lagi er greining á húðsýnum ný aðferð sem nú er fram- kvæmanleg og er hún nokkuð fljót- legri. Viðhorfsbreyting hefur orðið til sjúkdómsins rannsóknarlega séð þar sem komist hefur verið að því að hann er bundinn við fleiri líffæri en áður var talið og beinast því rann- sóknir nú að líkámanum í hefld sinni en ekki að eingöngu hefla og mænu eins og áður var.“ Það eru þeir Gunnar Guðmunds- son, Hannes Blöndal og Eiríkur Benedikz sem einkum hafa staðið að þessum rannsóknum. Mikið og náið samstarf hefur einnig verið við And- ers-hópinn í Lundi. Sú tegund arfgengrar heilablæð- ingar, sem hér er rannsökuð, er stað- bundin og finnst eingöngu hérlendis. Sjúkdómurinn hefur þó sameigin- lega snertifleti við aðrar tegundir heflablæðinga. Heilablæðingin geng- ur í erfðir og er að finna innan átta íslenskra ætta. Dauösfóll eru einkum áberandi meðal yngra fólks og er meðalaldur þeirra sem látist hafa u.þ.b. 33 ár. Dæmi eru þó um það að einstaklingar hafa greinst með sjúk- dóminn og náð háum aldri. Sjúk- dómurinn leggst jafnt á bæði kynin. Frumorsök arfgengrar heilablæð- ingar er að efni í líkamanum, sem er kallað Cystatin, er gallað og feflur út í vefi og leggst á æðaveggina með þeim afleiðingum að þeir rofna. í fyrstu var talið að útfellingin tengd- ist eingöngu miðtaugakerfi (heila og mænu) en nýjar uppgötvanir sýna að svo er ekki. Sjúkdómseinkenni geta gert vart við sig áður en blæðing á sér stað og geta verið í formi svæ- sinna höfuðverkjakasta. Blæðingin orsakar meðal annars lömun og skyntruflanir. „Rannsóknir eru í fullum gangi,“ sagði Hannes „og okkur miðar vel áfram.“ Athuganir beinast einkum að því að reyna að kortleggja hvar útfellingar verða og hvaða breyting- um sjúkdómurinn tekur. „Við þekkj- um efnið en vitum ekki af hveiju það fellur út,“ sagði Eiríkur „við erum að leita að ástæðu fyrir því.“ Lang- tímamarkmiðið er að skflja hvemig sjúkdómurinn á sér stað og koma í veg fyrir hann en lækning er ekki tfl við honum. Rannsóknir hafa nú staðið yfir í 30 ár og liggja fyrir upplýsingar um eitt- hvað í kringum 130 tilfelli. Aöstoð ættingja og sjúklinga hefur verið ómetanleg og hefur skipt hvað mestu máli í þeim árangri sem náðst hefur til þessa. -tlt Eins og kunnugt er ráðgera meðlimir í Sieipni, félagi hóp- ■ ferða- og langferðabílstjóra, að fara í verkfall á miðnætti á morg- un ef ekki semst fyrir þann tíma. Á rútudeginum, sem haldinn var sl. laugardag, dreiföu félagar í Sleipni blöðummeð upplýsingum um kaup þeirra og kjör, Fengu þeir til verksins unglinga sem gengu um meðal sýningargesta. Ekki var Gunnar Sveinsson, framkvæmdastjóri BSÍ, hriflnn af uppákomunni og rak ungling- ana á dyr. „Mér hefði þótt sjálfsögð kurt- eisi að biðja umleyfi og hefði tek- ið það til athugunar ef Sleipnis- menn hefðu farið fram á slíkt,“ sagöi Gunnar. „Ég bauð honum tfl viðræöna en hann hafði ekki samband,“ sagði hann ennfrem- ur. Magnús vildi ekki kannast við slíkt boð en sagöi aö Gunnar heíöi sagt unglingunum að ef dreifi- bréfin væru frá formanni gæti hann haft samband viö sig. Að- spurður sagði Magnús aö sér „liði bara vel“ og allur taugatitringur væri víösfjarri. -tlt Gránges fyrirtækiö yfirtekiö? Hefur ekki áhrif á álviðræðurnar Nýlega birtist frétt í Sænska dag- blaðinu þar sem gefið er í skyn að verið sé að selja sænska álfyrirtæk- ið Gránges. Gránges á meðal ann- ars hlut að Atlantsáli sem hyggur á stofnun nýs álvers hér á landi. Gránges er í eigu Electrolux fyr- irtækisins og samkvæmt fréttum munu yfirmenn beggja fyrirtækj- anna hafa neitað þessum fregnum. Ef hins vegar rétt væri væri hér um stórfrétt að ræða en fyrirtækið, sem nefnt var í sambandi við yfir- tökuna á Gránges, var stærsta ál- fyrirtæki heims, Alcoa í Bandaríkj- unum. í fyrra mun Alcoa hafa framleitt hátt í 2,5 milljónir tonna af áli auk þess að vera stærsti súrálsframleiðandi heims. Samkvæmt heimildum DV munu íslensk yfirvöld hafa leitað til Gránges til að fá að vita hvað væri á seyði. Var þeim tjáð að þessar fréttir kæmu ekki til með að hafa nein áhrif á íslensku álviðræðum- ar og virðast menn hafa sætt sig við þær skýringar. -SMJ Glæsilegri tilþrif sjást nú varla í ballskák. Hann Sigurbjörn Magnússon, sem er aðeins tveggja og hálfs árs, er orðin harðskeyttur ballskákleikmaður eins og myndin ber með sér. Þá er einbeitingin gífurleg enda veitir ekki af til að geta haldið sér á borðinu um leið og skotið er. DV-mynd S í dag mælir Dagfari________________ Framsóknarflokkur Búlgaríu Framsóknarflokkurinn hefur alltaf átt mikil og góð samskipti við Kommúnistaflokk Búlgaríu. Full- trúar Framsóknar fóru þangað reglulega í opinberar heimsóknir, jafnvel heilu sendinefndimar og Tíminn hefur verið sérstakt mál- gagn búlgaskra yfirvalda þegar kommunum í Búlgaríu hefur þótt mikið liggja við aö fræða íslendinga um gósenlandið handan jámtjalds- ins. Fyrrum framkvæmdastjóri flokksins, Kristinn Finnbogason, sem nú er framkvæmdastjóri Tímans, hefur verið óopinber sendiherra fyrir Búlgaríu á Islandi og meðal annars skipulagt tann- viðgerðir í Búlgaríu fyrir íslend- inga á milli þess sem hann stýrir Framsókn á bak við tjöldin. Almenningur hefur stundum furðað sig á því hvaða tengsl þetta séu milli Frcunsóknarflokksins á íslandi og Kommúnistaflokks Búlgaríu. En á því em skýringar. Búlgarski kommúnistaflokkurinn sat að völdum í fjörutíu ár sam- fleytt og Framsóknarflokkurinn hefur setið í ríkisstjómum meira og minna síðastliðin tuttugu ár. Þessir flokkar áttu því ýmislegt sameiginlegt og þurftu ekki að hafa áhyggjur af kosningaþátttöku eða atkvæðafylgi. Búlgararnir höfðu bara einn flokk í framboði en Framsókn hefur aldrei þurft að þola andvökur vegna fylgisins. Hvort heldur Framsókn fær lítið fylgi eða mikið í kosningum hefur það verið náttúmlögmál að flokk- urinn settist í stjórn enda búinn þeim eiginleikum að semja til vinstri og hægri og segja já, já og nei, nei eftir þörfum. Þá hafa frómir menn bent á það að Búlgaría er landbúnaðarland þar sem sú atvinnugrein stendur fostum fótum í fomöldinni. Það lík- ar íslenska Framsóknarflokknum vel enda stendur flokkurinn traust- an vörð um óbreytta landbúnaðar- stefnu og viðheldur fomum venj- um í búgreininni. Gagnkvæmar heimsóknir þessara flokka komu þar af leiðandi að góðu gagni þar sem menn gátu til skiptis kynnt sér hvemig ekki skyldi hróflað við landbúnaðinum. í Búlgaríu hafa þeir niðurgreitt framleiðsluna í fjömtíu ár og Framsóknarflokkur- inn hefur og haft það á stefnuskrá sinni að niðurgreiða landbúnaðar- framleiðsluna þannig að engin hætta er á þvi aö menn tileinki sé ný vinnubrögö, tækni eða hagræð- ingu þegar allt fæst greitt með gamla laginu. Svo illa tókst til í Búlgaríu að Kommúnistaflokkurinn var skyndilega lagður niður vegna ut- anaðkomandi áhrifa. Fólkið fór að hamast á flokknum og heimta lýð- ræði. Á endanum neyddist Komm- únistaflokkurinn til að breyta um nafn og kalla sig Sósíalistaflokk og búa við það kvalræði að fá fleiri frambjóðendur úr öðmm flokkum. Þetta var ný og óvænt staða fyrir gömlu kommana og nú voru góð ráð dýr. Sem betur fer hefur það spurst um heimsbyggðina að Framsókn- arflokkurinn á íslandi væri í sér- legu vinfengi við kommana fyrir austan og þess vegna kommu boð frá Bandaríkjunum að Steingrímur Hermannsson væri sendur austur yfir til skrafs og ráðagerða og til eftirlits með því að gömlu komm- arnir misstu ekki völdin þótt þeir þyrftu að breiða yfir nafn og núm- er. Gamla valdastéttin þurfti líka að fá ráðleggingar hjá bræðraflokki sínum á Islandi hvernig tryggja mætti áframhaldandi völd flokks- ins með sama hætti og Framsókn hefur tryggt sín völd án þess að hafa alltaf til þess atkvæðafylgi. Steingrími var auðvitað ljúft að bregðast við þessu neyðarkalli. Þegar kommamir í Búlgaríu þurfa á hjálp að halda bregst Steingrímur þeim ekki á örlagastundu. Enda var eins og við manninn mælt að ekki var Denni fyrr mættur í Sofiu en Sósíalistaflokkurinn kippti sín- um málum í lag og sigraði í kosn- ingunum. Varla þarf að taka fram að Steingrímur á drjúgan þátt í þeim sigri enda var hann opinber eftirlitsmaður með því að andstæð- ingar gömlu kommanna svindluðu ekki í kosningunum. Denni passaði upp á sína menn. Nú eru uppi ráöagerðir í Búlgaríu um aö breyta nafni flokksins á nýj- an leik til heiðurs Denna. Hér eftir verður hann kallaður Framsókn- arflokkur Búlgaríu! Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.