Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1990. Útlönd Stríðið 1 Líberíu: Bandaríkjanna Prestur í Liberíu biður um frið. Simamynd Reuter Forseti Liberiu, Damuel Doe, ítrekaði í gær ósk sína um að Bandaríkin aðstoðuðu við að binda enda á stríðið milli ætt- ílokka sem geisað hefur í landinu í sex mánuði. Skæruliðar undir stjórn Char- les Taylor nálgast nú höfuöborg- ina Monrovíu en Doe forseti neit- ar enn að semja við hann. Kveðst hann ekki ræða við „glæpa- menn“. Um helgina skipulagði sendiráð Bandaríkjanna í Monrovíu heim- flutninga á nokkur hundruö Bandaríkjamönnum sem vildu yfirgefa landið. Bandarísk her- skip eru undan ströndum Líberíu sem var stofnuð af bandarískum þrælum sem gefið haíði verið frelsi. Helmingur íbúa höfuðborgar- innar, sem eru um sex hundruð þúsund, hafa flúið af ótta við skæruliða. Fundist hafa mörg lík undanfarn'a daga og er talið að þau séu fórnarlömb manna Tayl- ors- D * Reuter Biður um aðstoð Sjálfstæðisbarátta lýðvelda Sovétríkjanna hefur hér orðið teiknaranum Lurie efni í skopmynd. Teikning Lurie Sjálfstæðisdeila Litháa og sovéskra ráðamanna: Moskva réttir Leiktæki óskast Vantar ýmis leiktæki til leigu, t.d. tölvuspil, minigolf o.fl. Góð aðstaða. Upplýsingar í síma 92-15967 og 92-11542. Tónlistarkennarar! Kennara vantar að Tónlistarskóla Árnessýslu. Kennslugreinar: Blásturshljóðfæri, strokhljóðfæri og söngur. Upplýsingar veitir Ásgeir Sigurðsson skóla- stjóri í síma 98-21691, Selfossi. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta sala á fasteigninni Eyjasandi 6, Hellu, talin eign Stefáns Árnasonar, fer fram á eigninni sjálfri, miðvikudag 13. júní 1990 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru Byggðastofnun, Iðnþróunarsjóður, Iðnlánasjóður og Landsbanki islands, lögfraeðingadeild. Uppboðshaldarinn í Rangárvallasýslu. Nauðungaruppboð önnur og síðari sala á fasteigninni Ormsvelli 5, Hvolsvelli, þinglýst eign Ás hf. - byggingafélags - verður haldin í skrifstofu embættisins að Austurvegi 4, Hvolsvelli, miðvikudaginn 13. júní 1990 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru Byggðastofnun, Iðnþróunarsjóður, Iðnlánasjóður og Landsbanki is- lands, lögfræðingadeild. Uppboðshaldarinn í Rangárvallasýslu. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum Dugguvogur 12,4. hæð, talinn eigandi Þorkell Diego Þorkelsson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 14. júní ’90 kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru Biynjólfru: Eyvindsson hdl., Stein- grímur Eiríksson hdl. og Helgi V. Jónsson hrl. Nökkvavogur 4, ris, þingl. eigandi Gylfi R. Guðmundsson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 14. júní ’90 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru Magnús Fr. Ámason hrl., Gjaldheimt- an í Reykjavík, Sveinn H. Valdimars- son hrl., Ásgeir Thoroddsen hdl., Gjaldskil sf. og Sigurmar Albertsson hrl. Borgarfógetaembættið í Reykjavík fram sáttahönd Yfirvöld í Moskvu hafa fallist á að ræða við fulltrúa Litháa, að því er varaforsætisráðherra Litháen skýrði frá í gær. Ráðherrann, Algimantas Cekuohs, sagði að forsætisráðherra Sovétríkjanna hefði skýrt Kazimiera Prunskiene, forsætisráðherra Lithá- en, frá þessum samningavilja Sovét- manna símleiðis í gær. Til grundvallar þessum fyrstu op- inberu viðræðum Moskvu og Litháa verður boð ráðamanna í Litháen að fresta gildistöku nokkurra laga sem sett hafa verið í lýðveldinu frá því að það lýsti yfir fullveldi þann 11. mars síðastliðinn. Varaforsætisráð- herrann sagði það hreyfingu í sam- komulagsátt að Moskva hefði ekki krafist þess að gildistöku fullveldis- yfirlýsingarinnar yrði frestaö eða að hún yrði afturköúuð eins og hefur verið afstaða sovéskra ráöamanna alveg frá því í upphafi þessarar deilu. Þetta boð sovéskra yfirvalda, sem reyndar hefur enn ekki fengist stað- festing á frá Moskvuvaldinu, þýöir að um afstöðubreytingu er að ræða hjá ráðamönnum í Kreml. Og það er fleira sem bendir til þess að sáttahugur sé nú kominn í báða aðila. Forsætisráðherra Litháen mun aö öllum líkindum ræða við Ryzhkov, forsætisráðherra Sovét- ríkjanna, í dag og forseti Litháen, Vytautas Landsbergis, hefur fallist á að sækja fund forseta allra fimmtán lýðveldanna sem haldinn verður í Moskvu í dag. Gorbatsjov Sovétfor- seti mun þar skýra forsetunum frá niöurstöðum nýafstaðins leiðtoga- fundar risaveldanna sem haldinn var í Washington fyrir skömmu. Á þessum fundi í dag mun sovéski for- setinn í fyrsta sinn hitta að máh einn helsta keppinaut sinn, Boris Jeltsin, frá því að sá síðarnefndi var kosinn forseti stærsta lýðveldisins, Rúss- lands. Þá verður Vytautas Lands- bergis, forseti Iitháen, auk forseta hinna Eystrasaltsríkjanna einnig á fundinum. Reuter Meintir morðingjar halda læknaleyfi Sænsku læknarnir tveir, sem ákærðir voru fyrir að hafa myrt og síðan bútað niður konu, fá að starfa áfram sem læknar sam- kvæmt úrskurði hæstaréttar í Sví- þjóö í gær. Félagsmálastofnunin vildi láta svipta þá læknaleyfi en hæstiréttur telur að rannsaka þurfi máhð betur og á meðan fá þeir að halda læknaleyfinu. Læknamir voru báðir ákærðir fyrir að hafa um hvítasunnu 1984 myrt vændiskonu og síðan bútað hk hennar niöur. Þeir áttu einnig að hafa tekið myndir af því þegar þeir bútuðu líkið niður í viðurvist nokkurra ára gamallar dóttur ann- ars þeirra. Læknarnir voru sýknaðir af morðákærunni fyrir fyrsta dóm- stigi sem taldi að ekki væri hægt að sanna að þeir heiðu myrt kon- una. Aftur á móti þótti ekki leika vafi á að þeir hefðu bútað líkið nið- ur. Svo langt var um hðið þegar málið kom fyrir dómstóhnn að síð- arnefhdi glæpurinn hafði fymst. Félagsmálastofnun og nefnd heh- brigðismálastofnunarinnar töldu samt að svipta ætti mennina læknaleyfi og snem þeir sér þá th æðra dómstigs sem úrskurðaði að ekki væri hægt að sanna að þeir hefðu bútað hkið niður. Hæstiréttur hefur nú úrskurðað að annað dómstig hefði átt að láta fara fram nýja rannsókn úr því að úrskurður fyrsta dómstigs var ekki viðurkenndur. Á meðan slík rann- sókn fer fram halda mennimir læknaleyfunum. TT Bílasprengjur í Bretlandi: Abyrgðin lögð á herðar dýravina Margir óttast að tvær bílasprengj- ur, sem spmngið hafa í Bretlandi síðustu daga, séu einungis forsmekk- urinn að því sem koma skal í baráttu öfgasinnaðra dýravina fyrir málstað sínum. Herskáir öfgasinnar hafa áð- ur beitt sprengjum í baráttu sinni til að leysa dýr undan þjáningu sem þeir telja að þau hljóta á rannsókna- stofum en þær sprengjur hafa hingað th veriö án mikhs árangurs. Síðustu daga hefur aftur á móti orðið þar breyting á en tvær áhrifamiklar sprenautilraunir hafa verið gerðar gegn einstaklingum sem vinna að rannsóknum með dýr. Sprengjurnar em ákaflega vel gerðar, segja sér- fræðingar, og af þeirri tegund sem IRA, írski lýðveldisherinn, notar í sinni baráttu fyrir frelsi Norður- írlands. Árásirnar síðustu daga vom tvær, annars vegar á sunnudag þegar sprengja sprakk í bifreiö sálfræðings Bristol-háskóla en sálfræðingurinn notar dýr í rannsóknum sínum. Ung- ur drengur, sem var í kerru sinni nærri slysstað þegar sprengjan sprakk, slasaðist þegar sprengjufhs- ar lentu á honum. Hin sprengingin varð í síðustu viku þegar sprengja sprakk í bh starfsmanns rannsókn- arstofu í Suður-Englandi. Starfsmað- urinn slapp ómeiddur. Margir dýravinir hafæfordæmt ár- ásirnar og segja að slík herferð geri ekkert annað en að hræða fólk frá því að styðja málstaðinn. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.