Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1990. Spurningin Trúirðu á líf eftir dauðann? Hulda Sigurðardóttir bankastarfs- maður: Já, en ég veit ekkert meira um þaö. Kristinn Ragnarsson sjómaður: Já, en ég hef ekkert meira spáö í það. Jean Vartabedian nemi: Já. Það er eðlilegt og ég trúi því ekki að sálin deyi. Hörður Hólm sjómaður: Já, það held ég miðað við þær kenningar sem ég hef lesið. örlygur Sigurðsson listmálari: Nei, guð hjálpi mér. Ég hef aldrei verið í trúarþörf. Jakob Jónsson vélsijóri: Ég trúi að maður lifi bara einu lífi og eigi því að lifa því lífi hratt. Lesendur Nú kámar gamanið á Gazasvæðinu og 1 ísrael: Kvennalistinn er kominn í málið Þorbjörg Jónsdóttir skrifar: Ég heyrði í fréttum hádegisútvarps í dag (8. júní) að Kvennalistinn á Is- landi heíði sent bréf til ráðamanna í ísrael og bent þeim á þá óhæfu sem fælist í því að beita Palestínumenn á Gazasvæðinu því harðræði og ofbeldi sem frést hefur um hingað til lands. - Bendir Kvennahstinn á að þeir ísraelsmenn ættu að líta til baka til þess tíma þegar þeir sjálfir voru of- sóttir og þoldu útrýmingarherferð í seinni heimsstytjöldinni. Sagöi í þessari sömu frétt að Kvennahstinn hefði líka sent ís- lensku ríkisstjórninni bréf svipaðs efnis - og lagt ríka áherslu á að ríkis- stjórnin ætti að fordæma hegðun ísraelsmanna á hinum herteknu svæðum þarna austur frá. Það er hætt við að ísraelsmönnum bregði í brún þegar þeim berst svo skeleggur pistill frá Kvennalistanum á íslandi! - Eða þá ríkisstjóm ís- „Hvað gerist næst í ísrael?“ spyr bréfritari m.a. - Bréf Kvennalistans til ríkisstjórnar ísraels, sent frá Al- þingi. lands? Hvað gerist næst í Israel? hljóta margir að spyrja. Verður þetta til þess að binda enda á deilur ísraels- manna og araba á óróasvæðunum við ísrael? Eða sendir íslenska ríkis- stjórnin menn út af örkinni th að koma vitinu fyrir ísraela með afrit af bréfi Kvennahstans að vopni? Við verðum að vona að hér sé stórmál á ferðinni og augu heimsins beinist til þessa svæðis þar sem Kvennahstinn á íslandi ætlar að gera það gott og beita áhrifum sínum til að skakka stríðsleikinn. Það er bara óskandi að hér sé meiri alvara að baki en þegar frambjóðandi Kvennahstans í Reykjavík kom fram í Sjónvarpinu fyrir kosningar og sagðist heldur vhja dvelja meö starfs- systkinum sínum og borða með þeim í hádeginu heldur en að þurfa sífellt að fara heim og gefa bömum sínum að borða. Flestir tóku það sem spaug þótt sumir tækju konuna alvarlega, yrðu saltvondir og segðu að þessar kvennahstakonur ættu htið erindi til barneigna ef þær vildu frekar borða í friði á vinnustað en seðja hungur lyklabarna sinna sem biðu vannærð heima eftir að móðirin færði björg í bú. Við væntum þess því að nú sé al- vara í spihnu hjá þeim á Kvennahst- anum og þær láti kné fylgja kviði gegn ísraelsmönnum og fari sjálfar þangað th að tukta þá almennilega th líkt og Steingrímur Hermannsson gerði þegar hann fór þangað og setti upp skyndinámskeiö í verðbólgu- hjöðnun. Síðan hefur allt annar og betri efnahagur verið í ísrael. Kvennahstakonur ættu ekki að láta sitt eftir hggja og fara til ísrael. Það myndi sópa að þeim, það er ég viss um. Og enginn myndi sjá eftir dag- peningum th þeirra - jafnvel þótt þær yrðu þar eftir - th að halda friðinn á ég við... Jafnmikið af klassískri tónlist Húsmóðir í vesturbænum hringdi: Þar sem ég var eitthvað að sýsla heima hjá mér einn daginn sem oftar datt mér í hug að opna fyrir útvarpið og kanna hvort þar væri ekki nothæf tónhst til hlustunar. Því fleiri stöðvar sem ég prófaði þeim mun fleiri sýnishom fékk ég af því sem ég kaha garg og lág- menningu í tónhst - ef þetta svo- kallaða popp flokkast þá undir tón- hst yfirleitt. Mérer ofarlega í huga hve þessar útvarpsstöðvar ahar, þar með tald- ar stöðvar Ríkisútvarpsins, leggj- ast lágt með því að bjóða upp á fátt annað tónhstarefni en hið gargandi geggjaða flóð lágmenningar sem virðist eiga svo mjög upp á pah- borðið hjá þeim öhum. Það er hrein vitfirring að varpa þessu yfir þjóð- ina án þess að neitt annað mótvægi komi til. Ég sem greiði full og skhvís af- notagjöld th Ríkisútvarpsins hvem mánuð geri hreinlega kröfu til þess aö þaö útvarpi mun meira af klass- ísku tónlistarefni og alla vega jafn- miklu og það útvarpar af hinu ömurlega og niðuriægjandi gargi sem nú tíðkast. Ég vona bara, Rík- isútvarpsins vegna, að það sjái að sér og breyti stefnu sinni og snúi frá þeirri óheihaþróun sem nú virðist hafa orðið um langt skeið. Að klappa upp listamenn SS-húsið í Laugarnesi. m.a. í bréfinu. „Frábær hugmynd að rikið kaupi húsið,“ segir SS-húsið í Laugarnesi Þórarinn Björnsson skrifar: Mér finnst það alveg frábær hug- mynd, sem fram hefur komið, að rík- ið kaupi SS-húsið í Laugamesi og flytji Þjóðminjasafnið þangað og um leið að gera það að sýningarhúsnæði fyrir hstmálara. - Þarna er th staðar næghegt rými fyrir málverkasýning- ar og sýningar á þjóðminjum. þetta myndi bæði sameina minjar og hst og ég dreg ekki í efa að þessi aðskildu verk myndu draga til sín miklu meiri aðsókn en að hafa þau hvert á sínum stað. Sumir - og jafn- vel miklu fleiri en mern vita - láta sér nægja að koma á einn staðanna vegna óþæginda við að þurfa að fara á mhli hinna ýmsu sýningarstaða. Listmálarar eru með sýningar á mörgum stöðum og oft í dýrum sýn- ingarsölum. Þá ætti þetta að draga úr kostnaði og fyrirhöfn þar sem þetta tvennt væri sameinað. Þjóð- minjasafnið er í alltof litlu húsnæði og úr sér gengnu sem myndi kosta offjár að lagfæra. Það er hins vegar þetta stóra húsnæði sem vantar og myndi áreiðanlega nægja undir þess- ar hstgreinar um ókomin ár. - Þarna myndi sannarlega verða hátt til lofts og vítt til veggja. Lárus Jónsson hringdi: Ég fór á tvær skemmtanir á listahá- tíð sem nú stendur yfir. Hvor tveggja tónleikar sem voru hinir bestu í alla staði. Þarna var um að ræða frábæra hstamenn og voru áheyrendur yfir sig hrifnir af frammistöðu þeirra. Þegar þeir höfðu lokið sínu pró- grammi og höfðu verið hyhtir með löngu og innhegu lófataki að venju stóð það á endum aö áheyrendur byijuðu á hinu hvimleiða, taktfasta og landlæga klappi sínu, sem þýöir á mannamáh eitthvað á þessa leið: Blessaður, komdu inn aftur og haltu áfram að spila, okkur þykir svo æðis- lega gaman. Og þar sem hstamönnunum hefur áreiðanlega verið sagt (um leið og þeir komu inn af sviöinu, en ekki fyrr) að hér Sé venjan að áheyrendur klappi og klappi, þar til listamaöur er knúinn inn á sviðið, komu þessir hstamenn aftur inn. í fyrra tilvikinu settist hstamaðurinn við píanóið og lióf að sýna tekniska fingrafimi sína (sem hann er reyndar frægur fyrir), gerði nokkrar trillur og sveiflur og stóð svo upp, hneigöi sig og hvarf á brott. Klappinu ætlaði aldrei að linna og hefðu áheyrendur mátt ráða hefðu þeir byijað enn á ný á „komdu-aft- ur“ klappinu. Það varð þó ekki sem betur fór fyrir listamanninn. Hann hafði augljóslega ekki búið sig undir þessa endurkomu. í hinu tilvikinu var listamaðurinn klappaður upp eins og áður er lýst. Hann kom inn aftur (hafði augsýni- lega verið ýtt inn í salinn óundirbún- um) og hóf að leika byrjun á sama verki og í upphafi tónleikanna og hætti síðan í miðju kafi, þ.e. eftir að hafa leikið örstuttan kafla. - Ég spyr nú sjálfan mig og aðra: Er þetta end- urklapp tíðkað annars staðar en hér? Mér virðist sem sumir erlendir lista- menn séu ekki undir þetta búnir og komi þessi vitleysa (sem ég kaha) mjög á óvart. Erfiöleikar Amarflugs: Ófyrirleitni fjölmiðla Regína Thorarensen skrifar: Eg harma það hvað fjölmiðlar eru ófyrirleitnir og hafa það sem aðal- fréttir í flestum fréttatímum hve hla stendur á hjá Amarflugi. Við lands- byggðarfólMð eigum Arnarflugi mikið að þakka, það heldur uppi heilu byggðarlögunum með sinni fuhkomnu þjónustu í hvívetna og sækir oft sjúka þegar mikið hggur við og hafa flugmenn félagsins þar oft lagt ómælt starf af mörkum. - Er fjölmiðlum ekkert hehagt eða mann- legt? Er hugsanlegt að þeir komi fram við aðra eins og þeir vilja að komið sé fram við þá? Maður fær nóg af þvílíkum fréttum og fær nóg af þeim fréttamönnum sem vhja traðka fólk í skítinn. Það þarf taugar th að standa frammi fyrir alþjóð eins og hinn dugmikli framkvæmdastjóri Arnar- flugs gerir. Svo vona ég og veit að Amarflug lifir lengi. Hehl og heiður fylgi þeim í nútíö og framtíð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.