Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1990, Qupperneq 27
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1990.
27 '
Neytendur
Rabarbari og jarðarber
Rabarbari er eitt ódýrasta hráefni til matargerðar sem hægt er að fá hér á iandi.
Aima Bjamasan, DV, Flórída;
Þegar maður er í Róm verður mað-
ur að gera eins og Rómverjarnir og
þegar maður er á íslandi verður
maður að reyna að bjarga sér þar
með það hráefni sem ódýrast er á
markaðnum hverju sinni.
Rabarbari er sennilega eitthvert
ódýrasta hráefni til matargerðar sem
hægt er að fá á íslandi. Langsamlega
flestír garðeigendur eiga nokkra
hnausa í garðinum sínum, ef ekki
þá þekkja þeh eflaust einhvem sem
á rabarbaragarð.
Hægt er að búa til dýrðlega rétti
úr rabarbara. Allh þekkja rabar-
barasultuna, sem verið hefur aðal-
sultan á íslandi svo lengi sem elstu
menn muna. Nú er meha að segja
farið að framleiða hana í stórum stíl
og selja undh skemmtilegu vöm-
merki. Gott framtak það.
En margh kjósa að búa til eigin
sultu, jafnvel þótt þeir noti annars
ekki mikið af sultu. Enda er óþarfi
að búa til alltof mikið í einu.
Á meðan ég hef dvahð hér í Banda-
ríkjunum hef ég nokkmm sinnum
búið til rabarbarasultu því mér
finnst hún ómissandi svona við há-
tíðleg tækifæri. Hér fæst ferskur rab-
arbari, hefur einmitt verið til undan-
farið. Hann kostar hér svipað og jarð-
arberin. Hann fæst einnig frystur og
er þá niðurskorinn. Ég hef notað
hann þannig í sultuna mína. Ég nota
bara gömlu uppskriftína þar sem er
kíló af sykri á móti kíló af rabar-
bara, en dreg svolítið úr sykrinum.
Blanda gjaman saman til helminga
venjulegum strásykrir og púður-
sykri og bragðbæti svo sultuna með
vanilludropum.
Á dögunmn rakst ég á uppskrift að
ábætisrétti úr rabarbara. Jarðarber
og rabarbari em hvort tveggja vor-
ávextir og eiga vel saman. Ég prófaði
þessa uppskrift og reyndist hún vel.
Þetta er léttur desert með ekki nema
170 hitaeiningum í hveijum
skammti, en öll uppskriftin er fyrir
fjóra.
Uppskrift fyrir fjóra
3 bollar sundurskorin jarðarber
(um 11/2 karfa)
1/4 + 2 msk. sykur
1 msk. sítrónusafi
kalt vatn
2 msk. kartöflumjöl
1 bolli rabarbarabitar
1/2 tsk. rifinn appelsínubörkur
fitulítil jógúrt
myntublöð til skreytingar
Látíö jaröarberin í skál, stráið 2
msk. af sykri yfir með sítrónusafan-
um. Geymið í 30 mínútur eða þar til
sykurinn er bráðnaður og berin orð-
in lin og safarík. Merjið berin þá í
sigti, haldið berjunum og safanum
aðskildum. Bætið vatni út í safann
þannig að það verði einn bolb.
Látið safann í þykkbotna pott og
hrærið sykrinum og kartöflumjölinu
út í og bætið svo rabarbarabitunum
út í ásamt 1/2 bolla af jarðarberjun-
um. Sjóðið þar til þetta þykknar og
rabarbarinn er orðinn mjúkur.
Hrærið stöðugt í, þetta tekur svona
um 10 mínútur.
Hellið nú „grautnum“ í stóra skál
og kælið við stofuhita í ca 20 mínút-
ur. Bætíð nú afganginum af jarðar-
berjunum út í með rifna appelsínu-
berkinum. Skiptíð þessu síðan í fjög-
ur desertglös eða stór vínglös, látíð
smávegis af jógúrtínni ofan á og
skreytíð með myntublöðunum.
í staðinn fyrir jógúrtína má einnig
nota skyr en þá er betra að nota ann-
aðhvort ijómaskyr eða hræra það
aðeins upp með mjólk eða ijóma.
Pönnukökur með rabarbara-
sultu og vanillubúðingi
Fyrir mörgum árum fékk ég upp-
skrift hjá Valgehi Sigurðssyni í
Cockpit Inn í Lúxemborg að óhemju-
lega góðum fylltum pönnukökum. Á
Neytendur
dögunum var ég með matarboð og
langaði til að bjóða upp á pönnukök-
ur í desert. Stældi ég uppskrift Val-
geirs en breytti henni smávegis.
Skemmst frá því að segja er að gest-
imir ruku upp til handa og fóta yfir
þessum pönnukökum og allir vildu
fá uppskrift. Ég læt hana því fylgja
hér með:
Reiknið með 1-2 pönnukökum á
hvern gest, þeir geta hæglega borðað
fleiri en hafa ekkert gott af því.
Smyijið rabarbarasultuna (með
vaniUu) á pönnukökurnar, látíð
skeið af góðum vanUlubúðingi, sem
hrærður hefur verið upp með þeytt-
um ijóma, á sultuna og brjótíð
pönnukökuna í femt.
Ristíð niðurskornar möndlur fí
smjöri (íslensku) á heitri pönnu og
stráið yfir pönnukökurnar, sem er
raðað þannig á fatið að þær séu ekki
hver ofan á annarri.
21 kók á tilboðsverði
Vífilfell hefur ákveðið að veita sér-
stakan afslátt á 2 1 plastflöskunum
séu þær keyptar í kippu. Mun lítrinn
kosta 76-79 krónur, sem verður að
teljast mjög gott verö. TUboð þetta
mun standa um óákveðinn tíma, en
aUavega út þennan mánuð.
Framleiðsluvörur VífilfeUs hækk-
uðu um 6% að meðaltaU þann 14.
maí sL, en vegna þrýstings frá verka-
lýðsfélögum og neytendum vár
ákveðið að fresta um ótíltekinn tíma
hækkunum á 300 cc flöskum og 33
cl dósum, og jafnframt auka mögu-
leika launþega á tUboðum.
Auk 2 1 tilboðsins verður efnt tíl
mikiUar söluherferðar er tengist
heimsmeistarakeppninni í fótbolta á
Ítalíu og mun þá neytendum einnig
gefast kostur á freistandi tílboðum.
Nýjung hér á landi:
Grenn brauð
- ekkert hvítt hveiti, sykur eða fita
í Bjömsbakaríi á Hringbrautínni
og á Austurströnd á Seltjamarnesi
er nú byijað að baka og selja svoköll-
uð Gronn brauð. Grenn brauðið er
um margt óvenjulegt því ekkert hvítt
hveiti er notað við bakstur þess né
sykur og á þaö að vera meö öUu fitu-
laust.
Margir eiga við offituvandamál að
stríða og þola Ula þessi efni. Gronn
brauðunum er sérstaklega ætiað að
koma til móts við þennan hóp. Auk
þess að vera bökuð í Björnsbakaríi
em þau einnig bökuð og seld í Sigur-
jónsbakaríi í Keflavík.
-GHK
Gronn brauðin eru nýjung hér á landi, en i þeim er ekkert hvitt hveiti, syk-
ur eða fita. DV-mynd GV/
T.IÖRN',
20% verðmunur er á „ódýru“ pokunum. Sá ódýrari fæst í Bónus en sá dýrari, til hægri, fæst í versluninni Norðurbrún.
DV-myndir BG
Stjömukleinur:
20% verðmunur
Stjörnukleinur fást víða í verslun-
um á höfuðborgarsvæðinu, en ekki
er sama hvar kleinupokinn er keypt-
ur eins og sést á meðfylgjandi mynd-
um þó svo að báðir pokarnir séu
kirfilega merktir með límmiðum sem
stendur á „ódýrt“.
Ódýrari kleinupokinn fæst í Bónus,
sem selur hann á 163 krónur, en sá
dýrari er seldur í versluninni Norð-
urbrún. Þar kostar pokinn 197 krón-
ur og er hann því 20% dýrari en sá
sem fæst í Bónus.
Ef maður gefur sér þær forsendur
að sex kleinur séu í pokanum, þá
kostar kleinan í Bónus rúmlega 27
krónur, en hún er um sex krónum
dýrari í Norðurbrún þar sem hún
kostar tæplega 33 krónur. Það er því
augljóst af þessu að „ódýrt“ er ekki
allsstaðaródýrt. -GHK
Græn hátíð í Hlaðvarpanum
Dagana 19. til 23. júní verður efnt
til grænnar hátiðar í Hlaðvarpanum,
Vesturgötu 3. Mun þá framleiðend-
um og innflytjendum gefast kostur á
að kynna almenningi vörur til dag-
legra nota sem skaðlausar eru um-
hverfinu, svo sem vörur til hrein-
gerninga, þvottaefni, sápur og ýmsar
endurunnar vörur.
Mikil umræða hefur átt sér stað
um umhverfismál að undanförnu og
athygli fólks hefur verið vakin á
brýnni nauðsyn þess að breyta um-
gegni okkar við móður jörð og draga
úr mengun. Nú er vitað að mörg þau
efni sem fólk notar dags daglega,
m.a. til heimilisnota, skaða umhverf-
ið. Samfara þeirri vitundarvakningu
í umhverfismálum sem átt hefur sér
stað í heiminum er nú farið að fram-
leiða ýmsar þær vörur úr skaðlaus-
um efnum..
Með kynningunni í Hlaðvarpanum
mun fólki gefast kostur á aö koma
og kynna sér þær vörur sem fáanleg-
ar eru hér á landi og þaö getur beint
innkaupum sínum að í framtíðinni.
< -