Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990.
Fréttir
Umdeildir hrossadómar:
Fjórðungur hestanna
er bókstaf lega rusl
„Þessar kvartanir hafa alltaf
verið fyrir hendi en það var aldrei
neitt sem ónáðaði mig. Ég ákvað
það fyrir löngu að hætta að hlusta
á þaö þó að menn væru aö hringja
í mig og kvarta yfir dómum sem
hestar þeirra fengu. Ástæðan fyrir
því núna að þessar kvartanir eru
óvenjumiklar og erfiðar er sú að
ný nefnd, svokölluð hrossaræktar-
nefnd, var skipuð meö þátttöku
hrossabænda. Umbjóðendur þeirra
hafa sjálfsagt séð ástæðu til að
kvarta viö þá og þeir höfðu ekki
sama lagið og ég hafði heldur hafa
hlustaö á þetta. Þeir hafa orðið
samnefnarar í því máh að magna
þetta upp úr því að þeir fóru aö
hlusta á þetta,“ sagði Þorkell
Bjarnason hrossaræktarráöunaut-
ur þegar hann var spurður að því
hvaða ástæðu hann teldi fyrir þeim
miklu mótmælum sem heyrst hafa
í vor og sumar út af dómum þeirra
hrossaræktarráðunauta.
Þorkell játaði að kvartanir væru
óvenju háværar í ár sem væri að
- segir Þorkell Bjamason hrossaræktarráðunautur
hluta til eðlilegt vegna breyttra
vinnubragða viö dómstörfm.
„Ég ætla ekki að segja til um
hvort þessar kvartanir eru rétt-
mætar en ég tel að það eigi ekki
að vera að hlusta á þetta. Það voru
allir búnir að samþykkja að gera
þessa tilraun í þetta skiptið og það
skyldi allt saman nákvæmlega út-
lagt og skoðað í haust þegar þetta
væri búið og síðan yrði farið í að
kanna hvort það væri til einhvers
að breyta kerfinu," sagði Þorkell.
Hann sagðist hafa verið óánægð-
ur með að ráðunautarnir voru ón-
áðaðir á miðju tímabili með fund-
arboöi í hrossaræktarnefndinni.
Hann sagði að það hefði tekist að
lægja öldurnar á fundinum og fá
afstýrt því að róttækar samþykktir
yrðu bomar upp sem hefði getað
orðið mjög óþægilegt. Þá sagði Þor-
kell að þær tölfræðiupplýsingar
sem lagðar hefðu verið fyrir fund-
inn hefðu verið ráðunautunum í
hag. Sagði hann að þær sönnuðu
til dæmis að einkunnadreifingin
hefði orðið mun meiri en margir
héldu fram.
Fjórðungur hestanna rusl
Þorkell sagðist hins vegar geta
gagnrýnt það hrossaúrval sem
ráðunautamir væru látnir dæma:
„Það er svo mikið af rasli sem
við erum látnir skoöa og dæma að
það er alveg makalaust. Maður
hefði haldið að á landsmótsári
myndu menn geyma það lélega
þangað til í haust, enda verða þá
aftur sýningar, en það er nú ekki
aldeilis. Mér fmnst að það sé komiö
mikið af hrossum inn í þetta sem
eiga ekkert erindi í dóm. Ég tel
skýringuna á því vera þá að þegar
hefðbundinn búskapur fór að drag-
ast saman fóru bæði bændur og
lausamenn að fjölga hrossum og
þá virðist hafa verið slakað á öllum
kröfum. Nú er þetta allt að koma
fram,“ sagöi Þorkell. Hann sagði
að þessi þróun hefði hafist upp úr
1980 og nú væm menn að súpa
seyðið af því að allt of mikið hefði
verið sett á.
Sagði Þorkell að af þeim 1200
hrossum sem hefðu verið dæmd í
ár væri um fjórðungur sem gæti
bókstaflega kallast msl.
„Það er nú hreint og beint smekk-
leysa að sýna margt af því sem leitt
hefur verið fyrir okkur. Það er
furðulegt að menn skuli ekki átta
sig á því aö þetta hefur engan tfl-
gang.“
Ekki hengingarsök
- En nú hafið þið verið ásakaðir
fyrir ónákvæmni og að ekki sé
samræmi í dómunum.
„Þær kvartanir get ég alveg skilið
en hins vegar vita það engir nema
þeir sem reynt hafa hvað hrossin
era ótrúlega misjafnlega fyrirköll-
uð og það meira að segja í útliti.
Þetta getur ferið eftir meðferö og
vellíðan. Þá verður líka að hafa í
huga að til að fá samræmi í þetta
ár þá verðum við að dæma öll
hrossin eftir sama kerfi. Það er til
dæmis erfitt fyrir mig persónulega
að vera að dæma hross eftir nýja
kerfinu því að það lítur út eins og
ég sé að snúa blaðinu viö. Ég ákvað
að taka því og standa að því að
dæma hvert hross eftir þessari
nýju aðferð."
- En hvað meö dóminn yfir
Hvönn?
„Það var eiginlega klaufaskapur
okkar. Við vorum með fólk á nám-
skeiði og uröum að gera einhvern
mismun á þeim, sem var ekki alltaf
nógu raunhæfur, til að benda fólki
á einkennin. Við fórum í ýkt dæmi
í sannleika sagt og gáfum einkunn
til að benda fólki á 'einhvern mis-
mun. Þetta var bara dómur sem
gilti sem kennsluefni. Svo kemur
þetta sama hross fyrir okkur aftur
og þá tökum við því eins og hverju
öðru hrossi og þá skakkar tölu-
verðu. Það má leggja þetta illa út
en þetta er ekki hengingarsök,“
sagöi ÞorkeU.
-SMJ
í ]
... 1 j
Prestastefna íslands 1990 var sett í gær og mun standa i þrjá daga. Hér ganga andans menn fylktu liði til messu
í Dómkirkjunni. DV-mynd S
Elísabet vill mangó-
ávexti I morgunmat
„Það er augljóst að drottningin er
hrifin af mangóávöxtum í morgun-
mat. Við höfum verið á höttunum
eftir góöum mangóávöxtum úti um
aUt til að geta afgreitt um borö í skip-
ið,“ sagði Jens Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Skipaversluninni,
en þeir hafa séð um að útvega kost
um borð í Britanníu, skip Breta-
drottningar. Jens sagði að það heíði
verið mikið starf en það era aðallega
ferskvörar sem þeir hafa útvegað
fyrir skipið.
„Þá þurfti fjórar appelsínur sér-
staklega fyrir drottninguna en úr
þeim er gerður appelsínusafi. Við
reyndum að selja þeim íslenskan
appelsínusafa en það gekk ekki
þannig að við þurftum að útvega sér-
stakar appelsínur."
Einnig sagði Jens að sérstök ósk
hefði komið um að útvega nýjar
franskar kartöflur og voru útveguð
25 kíló en af þeim voru aðeins 5 kíló
talin nógu góð fyrir drottninguna.
Þá hefur talsvert af fiski verið selt
um borð og má gera ráð fyrir því aö
skipverjar gæði sér á þorski af Faxa-
markaði í dag. Einnig hafa verið af-
greiddir aðrir ávextir um borð og
sömuleiðis um 300 nýbökuð brauö á
dag.
„Kjötmiðstöð Sambandsins ætlar
að gefa þeim 20 kíló af kindakjöti,
nánar tiltekið Londonlambi, en gest-
irnir brögðuðu það í veislu um dag-
inn og líkaði afskaplega vel,“ sagði
Jens. Þess má geta að mikil öryggis-
gæsla er við skipið og sagði Jens að
ef þeir kæmu ekki á fyrirfram ákveð-
inni mínútu með vörumar þá þyrftu
þeir aö fara aftur og fá nýja tímasetn-
ingu. Það hefði komiö fyrir einu
sinni. Skipið fer úr höfn á morgun.
-SMJ
Gerði það gott
í grálúðunni
Regína Thorarensen, DV, Eskifiröi;
Aflaskipið Jón Kjartansson, Eski-
firði, sem stundað hefur grálúöu-
veiöar síðan 27. apríl, hefur gert það
gott. Togarinn hefur farið fimm
veiðiferðir og landað í Hafnarfirði
318 tonnum af frystri grálúðu.
Brúttóverðmæti aflans er rúmar 47
milljónir króna eða 962 þúsund á
úthaldsdag. Hásetahlutur er um 655
þúsund krónur.
Nú er kvótinn búinn og því sjálf-
hætt á grálúðunni. Þar sem langt er
í næstu loðnuvertíð er hugmyndin
að senda þetta mikla aflaskip á veið-
ar á úthafskarfa suður af Reykja-
nesi. Óskandi er að þær veiðar gangi
vel eins og annað sem Aðalsteinn
Jónsson á Eskifirði tekur sér fyrir
hendur og stuðlað hefur að atvinnu-
uppbyggingu.
Gestalistinn að Höfða
Davíð Oddsson borgarstjóri bauð Bergur Tómasson og Margrét Stef-
til móttöku að Höfða í gær fyrir ánsdóttir, framkvæmdastj. lög-
Elísabetu Bretadrottningu. Þessir fræði- og stjórnsýslud. Hjörieifur
mættu þar: Magnús L. Sveinsson B. Kvaran, starfsmannastjóri Jón
og Hanna H. Karlsdóttir, Katrín G. Kristjánsson og Steinunn
Fjeldsted og Valgaröur Egilsson, Bjamadóttir, aðstborgarverkfr.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Anna Stefán Hermannsson og Sigríöur
K. Jónsdóttir og Þorvaldur Gunn- Jónsdóttir, forstm. borgarskipu-
laugsson, Árni Sigfússon og Brynd- lags Þorvaldur S. Þorvaldsson og
ís Guömundsdóttir, Júlíus Hafstein Steinunn Jónsdóttir, formaður
og Erna Hauksdóttir, Páll Gíslason Stmfél. Rvkborgar Haraldur Hann-
og Soffia Stefánsdóttir, Guðrún esson og Sveinbjörg Georgsdóttir,
Zoega, Sveinn Andri Sveinsson, hitaveitustjóri Gunnar Kristins-
Sigrún Magnúsdóttir og Páll Pét- son, gjaldheimtustj. Guöm. Vignir
ursson, Sigurjón Pétursson og Jósefsson og Jóhanna S. Guölaugs-
Ragna Brynjarsdóttir, Ólína Þor- dóttir, hafnarstjóri Hannes Valdi-
varðardóttir og Sigurður Péturs- marsson og María Þorgeirsdóttir,
son,KristínÁ.ÓlafsdóttirogÓskar forsetaritari Komelíus Sigmunds-
Guðmundsson, Elín G. Ólafsdóttir. son og Inga Hersteinsdóttir, prótó-
Egill Skúli Ingibergsson og Ólöf kollstjóri Hörður H. Bjamason og
Elín Davíðsdótör, Frú Vala Ás- Áróra Sigurgeirsdóttir, sendiherra
geirsdóttir Thoroddsen. Gísli HaU- Helgi Ágústsson og Hervör Jónas-
dórsson, Ólafur B. Thors og Jó- dóttir, sendiherra Sveinn Bjöms-
hanna J. Thors, Markús Öm Ant- son og Sigrún Dungal, ambassador
onsson og Steinunn Armannsdótt- Richard R. Best og Mary E. Best,
ir, borgarritari Jón G. Tómassor. Magnús Magnússon, Sígríöur’
og Sigurlaug E. Jóhannesdóttir, Gunnarsdóttir, utanríkisráðuneyt-
skrifstofuststj. borgarstjórnar íð. Caroline Gibson, Alper Mehmet,
Gunnar Eydal og Asgerður Ragn- Ágúst Jónsson og Edda Erlends-
arsdóttir, borgarhagfræðingur dóttir, Ólafur Jónsson og Ólöf
Eggert Jónsson og Sigurlaug Aöal- Bjömsdóttir.
steinsdóttír, borgarendurskoðandi