Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Blaðsíða 27
MIÐVlKUDÁGUR 27. JÚNÍ1990. 51< DV__________________ LífsstíU Grænmetiskönnun DV: Smásöluverð undir heildsöluverði Samkvæmt verðlistum tveggja heildsala grænmetis og ávaxta á höf- uðborgarsvæðinu er ljóst aö þær verslanir, sem taka þátt í verðkönn- un DV á grænmeti, selja grænmetið langt undir því verði sem eðlilegt ætti að teljast, a.m.k. þá daga sem DV kannar verðið. Það er mjög misjafnt hversu mikið verslanir leggja á grænmeti og ávexti en ljóst er að álagning í hverfaversl- unum hlýtur að vera hærri en í stór- mörkuðum þar sem hverfaverslanir kaupa inn mun minna magn af hverri vörutegund og geta því ekki nýtt sér magnafslátt í eins ríkum mæh og stórmarkaðimir. Algeng álagning er 20-40% og ofan á hana leggst svo virðisaukaskatturinn sem er 24,5%. Erlendar vasabrotsbækur geta verið skemmtilegt lesefni en heldur þykja þær dýrar hér á landi. DV-mynd Brynjar Gauti Nokkrar verslanir á höfuðborgar- svæðinu selja nú grænmeti undir heildsöluverði. DV-mynd Brynjar Gauti Meðalverð lægra en ódýrasta heildsöluverð Sé htið á þær vörutegundir sem kannaðar voru í síðustu viku, en verðhstar heildsalanna eru frá sama tíma, kemur margt í ljós. Ef htið er fyrst á tómatana sést að meðalverðið var tæplega 18% lægra en heildsölu- verð þess heildsala sem ódýrastur var. Meðaltalsverð þessara tveggja heildsala með virðisaukaskatti var 268 krónur en meðalverð verslanana 156 krónur eða 42% lægra. Meðalverð á gúrkum var aðeins 10% hærra en heildsöluverðið og því augljóst að þar var innan við hálfur virðisaukaskattur og engin álagning. Heildsöluverð á gúrkum var 240 krónur kílóið og með fullum virðis- aukaskatti og engri álagningu hefðu þær átt að kosta til neytenda 299 krónur. Þær voru aftur á móti seldar á 264 krónur. Mikhl verðmunur var á heildsölu- verði á vínberjum en meðalverð heildsalanna var 254 krónur með virðisaukaskatti. Meðalverö á vín- beijum í verslunum í vikunni var 300 krónur kílóið og það því 18% h'ærra. Paprika á 385 kr. í stað 497 kr. Græn paprika var seld á 3,5% lægra verði í verslununum en hehd- söluverðið var. Meðalverðið var 385 krónur en hehdsöluverð paprikunn- ar var 399 krónur. Með fullum virðis- aukaskatti og engri álagningu hefði paprikan átt að vera á 497 krónur. Meðalverð á kartöflum var 105 krónur en meðalverð hehdsalanna með virðisaukaskatti var 102 krónur og verslanaverðið því aöeins 3% hærra en hitt. Heildsalarnir voru með erlenda sveppi og því sveppaverðið mjög svipað hjá þeim og í þeim verslunum sem selja íslenska sveppi en íslensku sveppirnir eru talsvert ódýrari en erlendir. Meðalsveppaverð heildsal- anna með virðisaukaskatti var 675 krónur en meðalverð í verslunum var 504 krónur. Verslanirnar voru því 25% ódýrari. Af þeim sex vörutegundum, sem eru inni í könnun DV, var smásölu- verð fjögurra þeirra undir heUdsölu- verði með virðisaukaskatti. Það er því ljóst að neytendur geta gert nokk- uð góð kaup í grænmeti en einhvers staðar hlýtur sú upphæð, sem á vant- ar, að koma fram því enginn rekur verslun með tapi og að lokum borga neytendurbrúsann. -GHK Dýrar vasa- brotsbækur - tvöfaldast í verði á milli landa Nú er sá tími árs er flestir eru á faraldsfæti, annaðhvort innanlands eða utan. Meðal þess sem má oft finna innan um farangur ferða- manna eru erlendar vasabrotsbæk- ur. Gæði þeirra eru misjöfn eins og annarra bókmennta en þær eiga það ahar sameiginlegt að vera fyrirferð- arlitlar og geta stytt manni stundir á löngum ferðalögum. Þeir sem keypt hafa vasabrots- bækur, t.d. í Bandaríkjunum eöa Bretlandi, vita að þær eru yfirleitt Neytendur mjög ódýrar, kosta þetta 3,50 til 4,50 pund eða um 5 dollara. Bresk vasa- brotsbók myndi því kosta 360 tU 465 krónur og bandarísk bók myndi kosta um 300 krónur ef miðað er við að gengi pundsins sé 103 krónur og gengi dollarans 60 krónur. Þeim sömu bregður því oft í brún er þeir ætla að kaupa vasabrotsbækur hér á landi því þá hefur verðið oft á tíöum tvöfaldast og vel það. Flutningur vegur þungt Erlendar vasabrotsbækur eru fluttar hingað til lands með flugi og að sögn innilytjenda vegur sá flutn- ingskostnaður ansi þungt í verði bókarinnar, eða aUt frá 20% og aö 40%. Einnig er 5% jöfnunargjald á bókunum og 24,5% virðisaukaskatt- ur. Og auk þess er frjáls álagning á vasabrotsbókum. Innkaupasamband bóksala er einn innflytjenda erlendra vasabrots- bóka. Guðmundur H. Sigmundsson hjá Innkaupasambandinu sagði að hjá þeim væri lögð um 30-35% á bækumar því gifurleg áhætta fylgdi innflutningi þeirra þar sem stór hluti þeirra seldist ekki og afloU væru gríðarlega mikil. I einstaka tUfeUum getur Innkaupasambandið samið um að skila bókunum. Þeir umboðsaðil- ar sem fá bækur frá Innkaupasam- bandinu geta á hinn bóginn skilað þeim aftur. Verðið á vasabrotsbókunum hækkar aftur hjá umboðsaðUum því þeir leggja 30-35% álagningu ofan á bækurnar. Guðmundur sagði að þær verslanir sem flytja sjálfar inn bæk- urnar hlytu að vera með hærri álagningu því þær bera sjálfar allan skaðann af óseldum birgðum. Pundið á 200 krónur Hjá Máli og menningu fengust þær upplýsingar að þar væri svokallaö bókagengi pundsins á 200 krónur og dollarans á 125 krónur. Minni álagn- ing væri á bókum frá Danmörku, Þýskalandi og Frakklandi því flutn- ingskostnaður væri lægri en t.d. frá Bandaríkjunum sem væri mjög hár. MikU áhersla er lögð á þá staö- reynd að bækurnar koma til landsins flugleiðis því t.d. myndu bækur frá Bandaríkjunum vera marga mánuöi á leiðinni með skipi og það tæk^ breskar vasabrotsbækur a.m.k. se^ vikur að komast á áfangastaö. Kristján Snædal hjá Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar sagöi aö þar væri bókagengi pundsins 215 krónur og dollarans 140 krónur. Taxtinn hefði lengi verið sá sami og honum yrði ekki breytt á næstunni. Það er því ljóst af þessu að bók, sem kostar t.d. 5,50 dollara í Bandaríkjun- um eða 330 krónur, myndi kosta 770 krónur hjá Eymundssyni og 687,50 hjá Máli og menningu. Vasabrots- bók, sem kostar 4 pund í Bretlandi eöa 412 krónur, myndi kosta 800 krónur hjá Máh og menningu og 860 krónur hjá Eymundssyni. Verðið hækkar um 133% Ef tekið er dæmið um bandarísku bókina þá kostar hún 330 krónur ís- lenskar í Bandaríkjunum meö þeim fyrirvara þó að á hana myndi leggj- ast söluskattur sem er mishár eftir fylkjum, t.d. 4-6%. Sé miðaö við 330 krónur þá leggst ofan á hana 5% jöfn- unargjald og er þá verðið komið í 346,50 krónur. Síðan er það 33% heildsöluálagning sem hækkar hana í 460,80 krónur og þá er þaö 34% smásöluálagning sem hækkar verðið í 617,50 krónur og að lokum er þaö virðisaukaskatturinn sem er 24,5%^ Samtals er þá bókin komin í 768,80 krónur og hefur hækkað um 133% frá Bandaríkjunum til íslands. Þeir sem hafa gaman af erlendum vasabrotsbókum og eiga leið til Bandaríkjanna eða Bretlands á næst- unni ættu því að bíða með kaup á slíkum bókum og kaupa þær fremui^k erlendisenhérálandi. -GHK Verðmyndun erlendra vasabrotsbóka* Smásölu- álagninq 156,70 VSK 152 50 $5,50 330,00 ísl. kr. Álagning 114,30 Jöfnunar- gjald 16,50 * Miðað er við algengt verð bandarískra vasa- brotsbóka. í þessu tilviki verður endanlegt verð 770 kr. Verð á vasabrotsbókum rúmlega tvöfaldast frá heimalandi þeirra til Is- lands. Vegur þar þyngst flutningskostnaður en hann er 20-40% af verði bókanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.