Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990.
3
dv Viðtaliö fréttir
Húsnæðisstofnun:
Byggingarsjóður gjald
þrota um aldamótin
- óskað eftir 2 milljörðimi frá ríkinu
Nafn: Úlfhildur RÖgnvaldsdótlir
Aldur:43 ár
Starf: Starfsmaður LifeyrissjóðS"
ins Sameiningar
„Ég var glöð yfir því aö við vor-
um sigurvegarar kosninganna en
okkar flokkur bætti við sig tveim-
ur fulltrúum í bæjarstjórnar-
kosningunum. Áöur höfðum við
tvo fulltrúa í bæjarsijórn en feng-
um nú fjóra. Við vorum hins veg-
ar útilokuö frá meirililuta með
vinnubrögöum þeirra sem meiri-
hlutann mynda,“ sagöi Úlfhíldur
Rögnvaldsdóttlr en hún skipaði
efsta sæti á lista Framsóknar-
flokksins á Akureyri í nýafetöðn-
um sveitarstjómarkosningum.
Sjálfstíeðisflokkur og /Vlþýöu-
bandalag hafa nú myndað mciri-
hluta í bæjarsfjórn Akurcyrar.
„Meirihluti Sjálfstæöisflokks
og Alþýðubandalags er ekki það
mynstm- sem kjósendur vildu en
þessir flokkar _ töpuðu báðir í
kosningunum. Ég hef fengið mik-
il viðbrögð frá fólki í bænum sem
er undrandi á þessu. Samstarfs-
samningurinn cr lítið merkiiegur
og er mest um skiptingu cmb-
ætta.“
Öðlingablak
■ Ultlnldur er fædd í Mývatns-
sveit en fluttist ung til Akur-
eyrar. Þar hefur hún að mestu
búið síðan og lauk gagnfræða-
prófi frá Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar. Úlfhildur var við nára í
Danmörku í gluggaútstillingum
um eins árs skeið en kveöst lítið
hafa starfaö við það.
„Mér íinnst frábært að búa á
Akureyri og best á landínu þó ég
hafi aldrei búið annars staðar.
Þar er margt sem spilar inn í og
ekki síst veðráttan. Svo er fjöl-;
skyldan hér.
Kg er í öldungablaki og finnst
það alveg nauðsynlegt. Það er
fastur kjami sem æflr tvisvar i
viku undir leiðsögn þjálfara. Við
erum í íþróttafélaginu Eik og
höfum tekið þátt í árlegu íslands-
móti eldri flokka. Mótið stendur
: yfir í þijá daga og í fyrra fengum
við gull í öðlingaflokki en í ár
náðum við í silfrið. Öðlingaflokk-
ur er flokkur 40 ára og eldri. Þetta
er skemmtilegur hópur og sam-
staðan er góð. Á vctuma fer ég
svo á skíði.
Éghef slaifað nokkuö að verka-
iýðsmálum og félagsmálum. í
bæjarstjórn hef ég setið frá 1982,“
sagði úlfhildur. Hún starfar nú
hiá Lífeyrissjóðnum Samelningu
en vann áöur í 11 ár hjá Iðnaðar-
bankanum á Akureyri. Einnig
hefur hún verið við ræstingar hjá
Akureyrarbæ í 16 ár en er ný-
hætt því vegna aukinnar þátttöku
í bæjarmáleíhum.
„Það er ekkert sumarfri ákveð-
iö enn og verður örugglega ekki
næstu mánuði nema stuttar ferð-
ir. Við erum með sumarbústað í
Mývatnssveit og fórum eitthvað
þangað. Það er ailtaf gott aö koma
í gömlu sveitina sína. Við vorum
þar mikiö á meöan krakkamir
voru litlir en fórum minna
núna.“
Eiginmaður Úifhildar er Hákon
Hákonarson. Þau eiga tvö börn,
Hákon Gunnar, sem er 22 ára, og
Helgu Hiin, 18 ára. -hmó
Nú þykir ljóst að ef Byggingarsjóð-
ur ríkisins heldur áfram lánveiting-
um er útiit fyrir gjaldþrot hans um
aldamótin.
Hefur Húsnæðismálastjórn sent
bréf tii forsætisráðherra þess efnis
að ríkið leggi fram 2 milljarða til
sjóðsins á næsta ári. Fyrirliggjandi
nú eru 8000 umsóknir og er útilokað
að afgreiða þær með núverandi
skipulagi sjóðsins. Þyrfti 20 milljarða
til að ganga frá þeim.
Hofsós:
Fólki
fjölgar
Þórhailur Ásmundsscm, DV, Skagafirðú
„Ég hef ekki orðið var við að fólk
sé að flytja héðan, þvert á móti virð-
ist fólk vera að flytja hingað til Hofs-
óss. Atvinnuástand er líka betra en
á sama tíma í fyrra. Þá voru 18 á
atvinnuleysisskrá en nú sjö,“ sagði
Björn Níelsson, sveitarstjóri á Hofs-
ósi, í samtali við DV. Hann hefur
ákveðið að láta af störfum sem sveit-
arstjóri. Hættir hann nú um mánaða-
mótin vegna fyrirhugaðs náms í
haust í Tækniskóla íslands.
Að sögn Björns er nýflutt til Hofs-
óss sex manna fjölskylda og von er
á annarri á næstu dögum, 4-5 manna.
Þá er vitað um að breytingar verða
á kennaraliði skólans í haust sem
frekar verða til fjölgunar í þorpinu.
Björn hefur umsjón með atvinnu-
leysisskráningu í Hofshreppi og gat
þess að vinna hefði fallið niður einn
og hálfan dag í frystihúsinu í maí og
einn dag í júni.
Góð aðsókn
að listahátíð
„Erlendu atriðin hafa verið vel sótt
en því miður féllu þau íslensku nokk-
uð í skuggann," sagði Egill Helgason,
blaðafulltrúi hstahátíðar.
Samtals komu um 16 þús. manns á
viðburði hátíðarinnar. Þá eru ótaldir
þeir sem komu á myndlistarsýningar
og smærri uppákomur í tengslum við
listahátíð. Þá gætu 3000 bæst við
þessa tölu ef allir miðar seljast á tón-
leikana með Bob Dylan. Enn eru
óseldir nokkur hundruð miðar á þá
tónleika. Fjárhagsleg niðurstaða
verður ekki ljós fyrr en eftir mánaða-
mótin.
-pj
6900 krónur
fyrir að skrá
moldarkerru
Bifreiðaskoðun íslands er ekki
þekkt fyrir lágt verðlag síðan það var
gert aö hlutafélagi. Moldarkerra,
sem nær 500 kílóum, getur kostað
skildinginn. Skráningargjaldið á
hana er 4400 krónur og við bætist
2500 króna númeragjald. Þetta er þó
ekki skoðunargjald heldur skrásetn-
ingargjald og þarf því aðeins að
greiða einu sinni.
Kerfið er mjög fjárfrekt og hefur
lánastefna þess teflt stefnt sjóðnum
í tvísýnu. Vaxtamunur eigna og
skulda Byggingarsjóðs er nú um 2%.
Vaxtakostnaður til lífeyrissjóðanna
er um 6% en er um 4% meðal lántak-
enda. 2 milljarða króna framlag rík-
isins gæti því eingöngu tryggt af-
greiðslu 7-800 umsókna til viðbótar
þeim sem afgreiddar verða á árinu
1991. Ef ekki verður gripið til sér-
stakra aðgerða mun sjóðurinn verða
gjalþrota um aldamótin. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá félagsmála-
ráðuneytinu.
Samkvæmt þessu mun vaxtamun-
urinn éta upp 13,4 milljarða eigið fé
sjóösins á næstu 10 árum. Framlag
ríkisins til að viðhalda sjóðnum án
þess að auka útlán hans þarf því að
vera um 1.340 milljónir á ári fram til
aldamóta.
Nefnd var skipuð í mars síðastliðn-
um sem úttekt átti að gera á fjár-
hagsstöðu og rekstrarafkomu sjóðs-
ins. Niðurstöður hennar munu liggja
fyrir á næstunni.
Almenn útlán hafa aukist með hús-
bréfakerfmu. Voru fyrstu lánin veitt
í nóvember 1989. Nú hafa um 1800
manns fengið afgreiðslu úr sjóönum.
Hin almenna niðurgreiðsla vaxta
sem viðgengist hefur með lánakerf-
inu frá 1986 er hætt með tilkomu
þess. Það kallar því ekki á árlegt rík-
isframlag. -tlt
Hótel Holiday Inn hefur allt sem til þarf svo gjöra megi góða veislu.
Brúðhjónin geta valið um glæsilegt hlaðborð með heitum og köldum réttum,
virðulegt kaffihlaðborð eða spennandi pinnahlaðborð.
Veislusalir hótelsins taka allt að 130 manns í sæti eða 300 manns í standandi hanastél.
Kóróna hótelsins er Háteigur, þar sem gestir njóta hins rómaða útsýnis
tii Esjunnar og yfirsundin blá.
Hótelsvítan fylgir með í veislukaupunum og þegar brúðhjonin draga sig í hlé
bíður þeirra glaðningur frá hótelinu á svítunni.
Að sjálfsögðu er morgunverður framreiddur þegar ungu hjónin óska þess.
Allar upplýsingar eru veittar í síma 689000.
-\^oÚxSjCU^ ^yvyv.
Sigtún 38 - 105 Reykjavík - Sími (91) 689000
-pj