Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990.
Hæstiréttur:
Dæmdur
í öryggis-
gæslu
Bjarni Bernharður Bjarnason hef-
ur í Hæstarétti verið dæmdur í ör-
yggisgæslu á viðeigandi hæli. Bjarni
Bernharður varö Karli Jóhanni Júl-
íussyni að bana á heimili Karls Jó-
hanns í vesturbæ Reykjavíkur í nóv-
ember 1988. Karl Jóhann lést af völd-
um áverka sem hann hlaut af egg-
vopni sem Bjarni Bernharður beitti.
Sakadómur Reykjavíkur dæmdi
Bjarna Bernharð einnig til öryggis-
gælsu á viðeigandi hæli. Hann er nú
á lokaðri deild fyrir geðsjúka af-
brotamenn á sjúkrahú'si í Svíþjóð.
Mat lækna er að meðferðin taki all-
mörg ár. Nefnd lækna segir einnig
að ótvírætt þarfnist Bjarni Bern-
harður meðferðar á lokaðri deild.
Hæstaréttardóminn kváðu upp
dómararnir Guðmundur Jónsson,
Benedikt Blöndal, Bjarni K. Bjarna-
son, Guðrún Erlendsdóttir og Har-
aldur Henrysson. -sme
Dómur í Hæstarétti:
Sumarbústaðurinn
skal tekinn burt
- eftir að hafa staðið á landinu í 47 ár
„Við sjáum mikið eftir bústaðn- fyrir að samningurinn hafi runnið irtilaðfarameðbústaðinnafjörð- an tólf vikna. Þetta þýðir að það
um. Við bjuggum þarna með börn- út árið 1968 var lítið aðhafst fyrr inni. Dóminum var áfrýjað til verður að rífa bústaðinn.
inokkarnánastfrájúníframísept- en fyrir fáum árum. Bústaðurinn Hæstaréttar. Eins og áður sagði var hann
ember. Mér þykir þetta einkenni- stendur í landi Laxnesbúsins hf. í Eigendur bústaðarins eiga for- byggður á árinu 1943 og hann verð-
legur dómur að okkur sé gert að Mosfellsbæ. kaupsrétt að landinu. Þrátt fyrir ur ekki íluttur burt nema hann
eyðileggja bústaðinn," sagöi einn Landeigendur kröfðust þess að að þau verði að fara með bústaðinn verði brotinn niður fyrst.
eigendasumarbústaðaríMosffells- eigendum bústaðarins yrði gert stendur forkaupsrétturimt eftir. Ef Allur málskostnaður á að greið-
bæ - skammt frá Gljúfrasteini. skylt að fara með bústaðinn af landið verður einhvern tíma selt ast úr ríkissjóöi. Dóminn kváðu
Hæstiréttur hefur fellt dóm í landinu. Fógetaréttur hafnaði út- eiga þau rétt á kaupunum þrátt upp hæstaréttardómararnir Bjarni
máli sem höfðaö var vegna leigu- burðarkröfu landeigenda. Landeig- fyrir að bústaöurinn verði farinn. K. Bjarnason, Benedikt Blöndal,
samnings á landi fyrir sumarbú- endur höfðuðu þá einkamál á Hæstiréttur hefur staðfest dóm Hjörtur Torfason, Hrafn Bragason
staðiim. Samningurinn var gerður hendur eigendum bústaðarins. í undirréttar og hefur gert eigendum og Gunnar M. Guðmundsson.
í ágúst 1948 og var til 25 ára. Þrátt undirrétti voru eigendurnir dæmd- bústaðarins að fara með hann inn- -sme
Dylan hatar Ijósmyndara og lífverðir hans gerðu sitt besta til að verja hann ágengni fjölmiðla. DV-mynd Ægir Már
Bob Dylan á útsölu:
Hægt að skipta gömlu
miðunum í útsölumiða
tekur upp plötu með George Harrison
Listahátíð hefur ákveðið að lækka
verðið á miðum að tónleikum Bob
Dylan í kvöld úr 4500 í 3000 krónur.
Umræddir miðar eru á steintröppun-
um umhverfis stúkusætin. Inga
Björk Sólnes sagði að þeir sem keypt
hefðu miða í sætin á 4500 krónur
gætu skipt þeim ef þeir vildu fá miða
á ódýrari stað í húsinu.
Nær engin sala var á þeim 500 mið-
um sem eftir urðu fyrir helgina.
Miðasalan verður opnuð klukkan tvö
í anddyri Laugardalshallar en tón-
leikarnir hefjast klukkan níu í kvöld.
Talið er að meistarinn hafi samið
á milli 600 og 1000 lög. Enginn veit
það með vissu en samt er talið að
hljómsveitin kunni þau velflest. Dag-
skrá tónleikanna verður ákveðin rétt
fyrir tónleikana en reiknað er með
að hann taki aðallega gömlu perlurn-
ar.
Nokkur hræðsla greip um sig með-
al aðdáenda hans vegna seinkunar-
innar því Dylan hefur „skrópað" á
tónleika af minna tilefni. Við kom-
una sáu lífverðir hans um að skýla
goðinu fyrir ágangi fjölmiðla en at-
hygli vakti að hann gaf eiginhand-
aráritanir inni í flugstöðinni.
Eftir Skandinavíutúrinn fer hann
til London að ganga frá plötu með
Traveling Wilbury. í henni er m.a.
George Harrison. -pj
Patreksfjörður:
Varð undir hjólaskóflu
Stór hjólaskófla valt á Patreksfirði
í gærkvöldi og varð ökumaður henn-
ar undir henni. Ökumaðurinn festist
undir vélinni en greiðlega gekk að
ná honum undan. Maðurinn var ekki
talinn vera í lífshættu en hann var
eigi að síður fluttur suður til Reykja-
víkur til frekari skoðunar. Þykir
ganga kraftaverki næst aö maðurinn
skyldi sleppa svo vel en vélin er um
5 tonn aö þyngd. Ekki er vitað um
tildrög slyssins en vélin fór út af veg-
inum og niður grasbarð áöur en hún
valt. -SMJ
LOKI
Ekki verður maður rekinn
burt með blokkaríbúðina.
Veðrið á morgun:
Hlýtt
á Suður-
landi
Á morgun verður austan eða
norðaustan gola eða kaldi. Skúrir
við norðaustur- og suöaustur-
ströndina í fyrstu, annars víðast
bjart veður.
Sæmilega hlýtt verður að deg-
inum sunnanlands og í innsveit-
um norðanlands yfir daginn en
að öðru leyti fremur kalt í veðri.
SKUnilBÍIAR
25050
SENDiBÍLASrÖÐIN Hf
opið um kvöld og helgar
Kentucky
Fried
Ghicken
Faxafeni 2, Reykjavík
Hjallahrauni 15, Hafnaríirði
Kjúklingar sem bragð er að
Opið alla daga frá 11-22