Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Page 12
12 Spumingin MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990. Fylgistu með drottningarheimsókninni? Kristín Gísladóttir skólastjóri: Ég horfði á í sjónvarpinu í gær en hef ekki fylgst nánar með. Ég heyrði ræöu Vigdísar í boðinu í gær og var stolt af henni. J>órhildur Geirsdóttir verslunarmað- ur: Já. Mér fmnst heimsóknin vel þess viröi að eyða peningum í hana. Arna L. Þorgeirsdóttir, 11 ára: Já. Mér finnst drottningin fín en ég vildi ekkert frekar vera drottning. Logi Viðarsson, 12 ára: Já. Mér finnst full mikill viðbúnaður en sumu er ábótavant. Til dæmis finnst mér kór- ónuna vanta. Marianne Andersen veitingastúlka: Nei, ég hef ekki haft tíma. Guðbrandur Vigfússon ellilífeyris- þegi: Ég fylgdist með í sjónvarpinu í gær. Mér fannst drottningin virki- lega góð. Lesendur Snyrting vesturbæjarstrandlengjunnar: Hvað varð um hugmyndina? Páll Ólafsson skrifar: Þegar góðviðrisdagar koma hér í höfuðborginni fara margir af stað í gönguferðir, ýmist eftir vinnutíma eöa að kvöldi til sem ekki er síðra ef fólk vill njóta kvöldsólarinnar. - Einn ákjósanlegasti staðurinn í borg- inni til þessa hefur löngum verið í vesturbænum og ekki síst við strand- lengjuna, allt út á Granda. En ekki er nóg að veður sé fallegt og sólin björt því ef umhverfið er ekki aðlað- andi þá dregur það mjög úr ánægju gönguferðanna. Eitt kvöldið sem oftar var ég í gönguferð á ströndinni meðfram Ánanaustum og Vesturgötu og þar í kring. Við sjóinn voru þónokkrir að virða fyrir sér útsýnið sem var eins fallegt og það getur orðið á góðviöris- kvöldum. Fólk var þama einnig í bílum enda eins gott því sums staðar þarna er vart hægt að drepa niður fæti fyrir msli og óþrifum. Segja má að allt frá JL-húsinu <nú Miklagarði) og að húsi Slysavarnafé- lagsins sé hvergi fært fótgangandi fólki nema öðrum megin götunnar. Ruslið og óþrifin sjávarmegin eru yfirþyrmandi. Þama ægir saman steypuúrgangi, jafnvel brotnum veggjum eða niðurrifnum, ónýtum hellum, timbri, dekkjum, jámarusli og hverju öðru sem menn henda þarna óáreittir. - Þó er bannað að henda þarna rusli og hefur það bann verið í gildi lengi þó að vísu sé það ekki sérstaklega merkt þarna. Þegar lengra kemur í átt að Selt jarnarnesi er ekki sama kraðakið því Strandlengjan meðfram Ananaustum. - Utlitið sifellt versnandi. þar er búið að fylla upp í hól eða háa brún sem er þakin grasi. Það er all- snyrtilegt að sjá. - En á áðurnefndu svæði, aðallega við Ánanaust, er að- koman og umhverfið hroðalegt og því sorglegra aö þarna er einhver íjölfarnasti umferðarkaflinn og íjöl- sóttasti, t.d. af þeim sem ekki til þekkja en vilja njóta kvöldsólarinn- ar, svo sem erlendir ferðamenn. - Ég held að útlitið þarna fari meira að segja sífellt versnandi. Ég mælist til þess að þið hjá blaðinu gerið ykkur ferð þama á strandlengj- una og myndið svæðið til að sanna að hér er ekki ofmælt. - Ég vænti þess svo að borgaryfirvöld sjái til þess að þarna verði gert átak eins og til hefur staðið í mörg ár en aldrei orðið af. - Eða hvað varð um hug- myndina? Þarna mættu að sjálfsögðu vera nokkrir bekkir svo að fólk gæti setið og virt fyrir sér útsýnið. Það er meira en þess virði. „Laugardagur er einn aðalverslunardagur margra í matvörubúðum nú orð- ið,“ segir hér m.a. Laugardagslok- un í vesturbæ Valgerður hringdi: Manni finnst að þegar samkeppni og þjónusta í verslun hefur verið eitt aðalumræðuefni í þjóðfélaginu svo lengi sem raun ber vitni sé það keppi- kefli verslananna aö láta ekki þjón- ustuna drabbast niður heldur sýna í verki að kaupmenn vilji halda uppi orðstír sinna fyrirtækja. Ekki er svo að sjá á verslanasam- steypunum Miklagarði og Hagkaupi þar sem þær láta loka verslunum sínum í vesturborginni, Miklagarði við Hringbraut og Hagkaupi á Sel- tjamamesi. Báðar hafa þessar versl- anir stórmarkaðanna nú lokað á laugardögum og mun svo veröa í allt sumar. Það skal þó tekið fram að verslanir þeirra hafa opið annars staðar í borginni, Hagkaup í Kringl- unni og Mikligaröur við Sund. Þangað förum við sem búum hér á vesturmörkum borgarinnar eða á Seltjamamesi ekki í stað áður- nefndra verslana sem hafa lokað. Á Nesinu emm við svo heppin að þar eru aðrar verslanir fyrir sem hafa opið alla daga vikunnar, allt til kl. 22 eöa lengur og þangað getum við sum farið. - Einnig farin ég svo aðra verslun í vesturbænum í Reykjavík, þ.e. á Bræðraborgarstíg, vestarlega, þar sem áður var ein SS-verslan- anna. Ég mun áreiðanlega ekki versla í búðum þessara stórmarkaða, Hag- kaups og Miklagarðs, þótt þær verði opnaðar aftur á laugardögum með haustinu. Laugardagur er einn aðal- verslunardagur margra í matvöru- búðum nú orðið og þeir sem ekki hafa opiö jafnt á laugardögum sem öðrum dögum mega þá alveg eiga sig aðra daga. - Ég hugsa að ég sé ekki ein um þessa afstöðu í garð þessara stórfyrirtækja sem ætla að haga af- greiðslutíma sínum eftir eigin höfði en ekki eftir því sem viðskiptavinun- um kemur vel. Þessi laugardagslok- un mun því draga dilk á eftir sér þótt síðar verði, eða það vona ég a.m.k. Allir íslensku ráðherramir heima: Einstök tilviljun? Unnur Sigurðardóttir hringdi: Ég var að ljúka við að horfa á beina útsendingu sjónvarps frá móttöku Elísabetar Englandsdrottningar á Reykjavíkurflugveli. Þetta var stutt en fróðleg lýsing á því er þjóðhöfð- ingjar hittast. Allt fór vel fram og það eina sem mér fannst hvimleitt að horfa á voru öll þessi ótímabæru handabönd, er drottning gekk með- fram fjölmennu ráðherraliði og mök- um þeirra. Mér taldist til að þarna væru allir íslensku ráðherrarnir mættir og eng- inn fjarverandi. Einstaka ráðherra var nýkominn heim til landsins og náðu því allir ráðherrar og makar þeirra að vera við móttökuathöfnina. En var það einstök tilviljun að allir skyldu vera heima núna? Lengi hef- ur það verið svo að alltaf eru ein- hverjir ráðherrar erlendis og hefur svo verið frá þinglausnum í vor. Ég á alveg eins von á því að um leið og drottningin hefur kvatt leggist ráð- herrar í ferðalög á ný og þá hefur heimsókn hennar verið góð afsökun fyrir þá að vera heima í nokkra daga samfellt. - En er það ekki einkenni- legt hve mikið ráðherrar okkar þurfa að ferðast erlendis? Ekki virðist borgarstjórinn okkar t.d. þurfa að vera á sífelldum þeyt- ingi og er hann þó í stærra embætti en sumir ráðherrarnir. Það gæti nú hugsast að hann þyrfti að bera sig saman við aðra borgarstjóra í starfi. Eða hvað er það sem ráðherrarnir okkar eru alltaf að sækja til útlanda? - Það er sagt að það hafi tekið eitt ár að undirbúa komu drottningar- innar hingað. Ráðherrarnir hafa kannski verið á sífelldum þeytingi til að sækja eitt og annað sem okkur vanhagði um fyrir móttökuna! Þjónusta stóru fiskmarkaðanna: Annar öðrum betri Magnús Jónsson hringdi: Ég get ekki stillt mig um að hringja til ykkar og láta í ljósi óánægju mína með þann mikla mismun sem er á þjónustu hinna tveggja fiskmarkaða hér á svæðinu, annars vegar Faxa- markaðs í Reykjavík og hins vegar fiskmarkaðsins í Hafnarfirði. Munurinn er sá aö í Faxamarkaði stendur allt eins og stafur á bók, hvað varðar tímasetningar og annað rekstrinum viökomandi og sem snýr að viðskiptavinum markaðarins. - í fiskmarkaðinum í Hafnarfirði man ég hins vegar ekki eftir að t.d. upp- boð hafi byijað á réttum tíma, loforð um leiðréttingu standa ekki, og er þjónusta þar í heildina afar léleg að mínu mati. Uppboð á fiski á Faxamarkaði byrj- ar stundvíslega kl. 07.30 eins og aug- lýst er. í Fiskmarkaði Hafnarfiarðar byrjar uppboð sem t.d. á að hefiast kl. 09.00 kannski kl. 09.30 eða síðar. - Ég er ekki undrandi þótt fiskkaup- endur færi sig til Faxamarkaðar þeg- ar svona er misjöfn þjónustan. Eg vona hins vegar að þjónustan verði betri í Hafnarfirði eftirleiðis, þjón- ustan er það sem viðskiptavinir leita eftir. Hringid í síma 27022 milli kl. 14 og 16, eða skrifið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.