Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990. Iþróttir Einstakur árangur irska landsliðsins á HM: „Gíraffinn“ er orðinn þjóðhetja á írlandi - Englendingurinn Jackie Charlton hefur náð frábærum árangri með írska liðið • Jackie Charlton hitar upp með sínum mönnum fyrir leikinn mikilvæga gegn Rúmenum á mánudaginn. Nú býr hann sitt lið undir slag við sjáifa ítali i 8 liða úrslitunum á laugardaginn. Símamynd/Reuter Það lið sem vakið hefur hvað mesta athygh á heimsmeistaramót- inu er án efa landslið írlands en liðið er sem kunnugt er komið í 8 liða úrsht. Og það er nokkuð sem mjög fáir hefðu trúað áður en flaut- að var til leiks á HM. Maðurinn á bak við þennan glæshega árangur írska liðsins er Englendingurinn Jackie Charlton og er nú svo kom- ið að fáir menn eru vinsælli á eyj- unni grænu en einmitt hann. Áhugi íra á HM hefur stóraukist í kjölfar vaskrar framgöngu írska liðsins á Ítalíu. Velflestir hinna 3,5 mihjón íbúa írlands fylgjast nú spenntir með gangi mála á Ítalíu en fyrir keppnina var knatt- spyrnuáhugi á Irlandi vart umtals- verður. Charlton og hðsmenn hans hafa gert stórgóða hluti og fært írum heim sanninn um að þegar öhu er á botninn hvolft eiga írar ekki lakari knattspymumenn en Englendingar. Og það er ekki hths virði. írar miða flest við granna sína Englendinga enda ekki miklir kærleikar á mhli þjóðanna vegna dehna á öldum áður. Enginn leikmannanna býr á írlandi Það merkhega við írska landshðið er aö enginn leikmaður þess er búsettur á írlandi. Foreldrar þeirra, afar eða ömmur eru hins vegar írar og það nægir til að fuh- nægja reglum Alþjóða knatt- spymusambandsins. írska hðið þykir ekki leika fahegustu knatt- spymu hðanna á HM en barátta leikmanna liðsins er aðdáunarverð og til eftirbrey tni hvaða liði sem er. Jackie Charlton hóf ferilinn með tapleik Fall er fararhehl stendur einhvers staðar og Jackie Charlton fékk að reyna það árið 1986 er hann tók að sér þjálfun írska landsliðsins. Fyrsti leikur liðsins undir hans stjórn var gegn Wales á heimavelh og hann tapaðist, 0-1. Síðan eru hð- in íjögur og hálft ár og á þessum tíma hefur írsk knattspyrna skotist til vegs og virðingar. Og það þakka menn Jackie Charlton. Frá því að lið hans tapaði gegn Wales hefur írland ekki beðið ósigur á heima- velli í 20 leikjum og af 18 útileikjum hefur liðið aðeins tapað fimm þeirra. Engar undirskriftir en orð skulu standa Þrettán þjálfarar sóttu um lands- hðsþjálfarastöðuna hjá írum þegar Jackie var ráðinn. Það sem gerir ráðningu hans eftirtektarverða er að enginn skriflegur samningur var gerður. Það var ákveðið að orð skyldu standa. Og þau hafa staðið. Jackie sagði forráðamönnum írska sambandsins hveijar hugmyndir hann hefði um framtíðina og að hann skildi ekki af hverju írska landsliðið næði aldrei viðunandi árangri. Lærði akkúrat ekki neitt í Mexíkó 1986 Eftir að Jackie tók við stjórninni lét árangurinn ekki á sér standa. írar komust í úrslit Evrópukeppn- innar og alla leið í úrslitakeppni HM sem nú stendur yfir og þetta hafði aldrei gerst áður. Þegar Jackie var ráðinn landsliðsþjálfari mætti ráðning hans mótmælum úr mörgum áttum. Fannst mörgum það í hæsta máta óviðeigandi að ráða Englending í þessa stöðu. En álit íra á „Gíraffanum" eins og Jackie er jafnan nefndur, átti eftir að breytast mikið. Eitt af því fyrsta sem hann gerði eftir að hann varð landsliðsþjálfari, var að leggja land undir fót til Mexíkó á HM 1986. Minnisblokkin var með í för og í Mexíkó ætlaði Jackie að skrifa það hjá sér sem hann teldi merkilegar nýjungar í knattspyrnunni. Hann segir: „Ég sat tilbúinn með minnis- blokkina á öllum þeim leikjum sem ég sá en þegar keppninni var lokið hafði ég ekki skrifað eitt einasta orð hjá mér. Eitt lærði ég þó og það var að við mættum aldrei leika svipaðan leik og andstæðingurinn. Slíkt væri ekki vænlegt til árang- urs. Við yrðum að leika okkar eigin bolta.“ Stöðug gagnrýni en Jackie svarar fyrir sig írska landsliðið hefur verið gagn- rýnt fyrir að leika leiðinlega knatt- spymu en Jackie hefur svörin á reiðum höndum: „í fyrsta lagi þá þarf hættan á því að missa knöttinn á eigin vallarhelmingi að vera í lág- marki. í öðru lagi beitum við ekki bara löngum sendingum heldur sendingum sem fara aftur fyrir öft- ustu varnarmenn andstæðing- anna. Þeir eru því tilneyddir til að snúa sér við og þannig er einfald- lega erfiðast að veijast í knatt- spyrnu," segir Charlton. Og hann ætti að vita hvað hann talar um, margfaldur enskur landsliðsmað- urinn, heimsmeistari með Eng- landi 1966 og miðvörður Leeds Un- ited á gullaldarárum félagsins. Þegar Jackie var ráðinn var peningakassinn tómur Þegar Jackie Charlton tók við írska landshðinu var tómahljóð í pen- ingakassa írska knattspyrnusam- bandsins og áhorfendur á lands- leikjum á írlandi um 12 þúsund að meðaltali. Upp á síðkastið er með- altalið komið í 45 þúsund áhorfend- ur. Þessar tölur segja mikla sögu og auðvitað er ekki hægt að túlka þær öðruvísi en „gíraffanum“ til tekna. Mánaðarferðalag um þvert og endilangt landið Jackie Charlton er þekktur fyrir að fara ótroðnar slóðir. Hann vildi gefa almenningi á írlandi tækifæri til að ræða málin við landsliðs- þjálfarann. „Gíraffmn“ brá fyrir sig betri fætinum sl. haust og ferð- aðist um írland þvert og endilangt, talaði við fólk á krám, félagsheimil- um knattspymufélaga og alls stað- ar sem í raun var pláss fyrir mikið af fólki, að deginum við börnin og fullorðna fólkið á kvöldin. í hálfan annan tíma var orðið laust á fund- unum og mikið skrafað. Eftir fundaherferðina hafði Jackie unn- ið hug og hjörtu knattspyrnuá- hugamanna um allt írland. A fund- ina mættu á bilinu 400-1200 manns og í dag er „gíraffmn" frá Englandi þjóðhetja á Irlandi og skyldi engan undra. -SK Ragnheiður stóð sig vel í Charlotte - fimmta í 100 og 200 m bringusundi Stórleikur á Hlíðarenda Ragnheiður Runólfsdóttir, sund- kona frá Akranesi, tók um helgina þátt í feiknasterku sundmóti í Charl- otte í Suður-Karólínu í Bandaríkjun- um. Mótiö fór fram á vegum banda- rísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC. Ragnheiður náði ágætum árangri og hafnaði í fimmta sæti í 100 og 200 metra bringusundi. Ragnheiður synti 100 metra bringusund á 1:15,32 mín og 200 metr- ana á 2:41,06 mín. Báðar tímamir eru þó nokkuð frá íslandsmetum hennar í þessum sundgreinum. Margt af besta sundfólki í heiminum tók þátt í mótinu og má þar nefna landslið Austur-Þýskalands og Bandaríkj- anna. Danielle Haller frá Austur- Þýskalandi sigraði bæði í 100 og 200 metra bringusundi, 100 metrana synti Haller á 1:12,90 og 200 metrana á 2:37,00. „Ég hafði gaman af því að skreppa á þetta sundmót en það var mjög • Ragnheiður Runólfsdóttir. sterkt. Ég var svona þokkalega á- nægð með útkomuna. Ég mun æfa hér á landi í sumar og undirbúa mig sem best fyrir heimsbikarkeppnina sem verður haldin í Róm í ágúst,“ sagði Ragnheiður Runólfsdóttir í samtaliviðDVígær. -JKS Stúlknalandsliðið: íslenska stúlknalandsliöið lék sinn fyrsta landsleik i knatt- spymu á Norðurlandamótinu í Svíþjóð í gær. íslensku stúlkurn- ar gerðu þá 1-1 jafntefli við Hol- lendinga en þeir leika sem gesta- lið á mótinu. fsland tekur nu þátt í þessu móti í fjrsta skipti en það er haldið í þriðja sinn. íslensku stúlkurnar komust vel frá sínu I leiknum við hollensku stöllur sínar og aö sögn Siguröar Hannessonar þjálíara stóöu ís- lensku stúlkurnar sig mjög vel og frammistaða þeirra var til sóma. Hollendingar komust yfir í fyrri hálfleik en Hrafnhildur Gunn- laugsdóttir jafnaöi metin fyrir ís- lenska liðið í seinni hálfleik. ís- lensku stúlkurnar mæta Norð- mönnum í dag en norsku stúlk- urnar era Norðurlandameistarar í þessum aldursfiokki. _RR Fjórir leikir fara fram í kvöld í 1. deild karla, Hörpudeild, á íslands- mótinu í knattspyrnu og hefst þar með 7. umferð mótsins. Stórleikur umferðarinnar er án efa leikur Vals og KR á Hliðarenda. Vals- Framarar heimsækja FH-inga í Kaplakrika, ÍA og Þór leika á Akra- nesi og íslandsmeistar KA leika á heimavelh gfegn ÍBV og verður fróð- legt að sjá hvort KA tekst að vinna þriöja leikinn í röð. Umferðinni lýk- ur svo á fóstudagskvöld þegar Vík- ingar taka á móti nýliðum Stjörn- unnar. Atli leikur með KR-ingum gegn Val í kvöld Nú er ljóst að Atli Eðvaldsson leikur með KR gegn gömlu félögunum sín- um í Val í kvöld. Öll gögn frá tyrk- neska félaginu Genclerbirligi, liðinu sem Atli lék meö, varðandi félaga- skiptin, bárust í fyrradag svo Ath er orðinn löglegur með KR. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hve gífurlegur styrkur Atli er fyrir vest- urbæjarliðið sem er aðeins einu stigi frá efsta sæti í 1. deild. Staðan í deildinni er þannig fyrir leikina í kvöld: Fram .6 4 1 1 13-1 13 Valur .6 4 1 1 11-5 13 KR .6 4 0 2 10-7 12 ÍBV .6 4 0 2 8-10 12 Víkingur .6 2 2 2 7-7 8 Stjarnan .6 2 1 3 7-12 7 FH .6 2 0 4 9-9 6 KA .6 2 0 4 6-10 6 ÍA .6 1 2 3 5-10 5 Þór .6 1 1 4 3-8 4 • Víkingar verða án Einars Ein- arssonar þegar þeir mæta Stjörnunni á fóstudagskvöldið. Hann var í gær úrskurðaður í eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda. -GH/VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.