Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1990, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1990, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLl 1990. 11 Utlönd Lögreglumenn í Kólumbíu bera lík starfsbróður síns sem varð fyrir skoti eiturlyfjasala. Símamynd Reuter Kólumbía: Vaxandi ofbeldi í Medellín Pablo Escobar, einn alræmdasti eiturlyfjabarón heims og leiðtogi eiturlyfja- hringsins í Medellínborg. Simamynd Reuter Þrátt fyrir gífurlegan tjölda lög- reglumanna og hermanna í borginni Medellín í Kólumbíu hafa eiturlyfja- kóngarnir enn sannað að það eru þeir sem leiða fíkniefnastríðið, sem háð hefur verið í borginni um hríð, en ekki yfirvöld. Lögreglumenn og hermenn geta lítið gert til að koma í veg fyrir þann gríðarlega fjölda glæpa sem eiga sér stað í Medellín. Glæpirnir eru ógntm eiturlyfjasala við yfirvöld. Með ofbeldi sýna þeir hvers þeir eru megnugir og hóta enn meira ofbeldi eftir því sem lögreglan aðhefst meira. í lok síðasta mánaðar létust 16 menn og yfir 30 slösuðust þegar mjög öflug sprengja sprakk fyrir utan lög- reglustöðina í MedelÚn. Á sömu stundu var nýr lögreglustjóri að taka við embættislyklum sínum. Líkams- partar fundust á stóru svæði í grenndinni en talið er að þrjú böm hafi látið lífið í sprengingunni. Borgin Medellín er hringiða eitur- lyfjabrasks í Kólumbíu og þar á sér stað mesta ofbeldið í tengslum við eiturlyf. Þátttakendum í eiturlyfja- hringum, sem koma margir frá fá- tækrahverfum borgarinnar, fmnst sem þeir geti beitt mesta ofbeldinu á sínum heimaslóðum. Og með því að beita ofbeldi láta þeir í ljósi hvemig þeir stjóma. Fyrir skemmstu voru tveir Kólumbíu- menn framseldir til Bandaríkjanna því þar átti að taka fyrir mál þeirra varðandi eiturlyfjadreifmgu. Fram- sali þeirra var mótmælt með auknu ofbeldi. Röð sprengjuárása fylgdi í kjölfar svipaðs máls sem kom upp í mars síðastliðnum. 150 lögreglumenn verið drepnir Mikil herferð eiturlyfjasalanna hefur beinst að lögreglunni í landinu. Pablo Escobar, leiðtogi eiturlyfja- hringsins í Medellín, er gmnaður um að hafa dreift bækhngi þar sem boðin em laun fyrir að skjóta niður yfir- menn innan lögreglunnar. Launin voru frá 240.000 íslenskum krónum til 600.000 íslenskra króna. En það sem af er þessu ári hafa rúmlega 150 lögreglumenn verið drepnir. Þess má geta að Escobar er talinn einn af 20 ríkustu mönnum heims. Um 11.000 lögreglumenn og her- menn starfa í borginni og nágrenni hennar. Á sumum svæðum er borgin nánast hersetin. En fyrstu sex mán- uði þessa árs hafa um 3000 borgarar faliið í valinn. í hverri viku berast nýjar fregnir af hörmulegum atburðum. Einn af svæsnari atburðum átti sér stað ný- lega í einu úthverfi borgarinnar er 25 vopnaðir menn gerðu innrás á krá. Þeir skipuðu öllum innandyra að fara út fyrir þar sem fjöldaaftaka fór fram. Gestir kráarinnar voru skotnir þar sem þeir stóðu, sumir voru hæfðir beint í augun. Flest fóm- arlambanna vom ungir og efnaðir menn. Florez Velez, borgarstjóri Medellín, hefur vitaskuld miklar áhyggjur af þróun mála eins og aðrir borgarbú- ar. Segir hann ljóst að ekki sé búandi við ástand af þessu tagi en hvað hægt sé að gera vefst fyrir honum, því eiturlyfjabarónarnir em erfiðir viðureignar. Unglingar starfa sem leigumorðingjar Margir unglingar hafa tekið að sér störf fyrir barónana sem felast yfir- leitt í því aö drepa fólk samkvæmt fyrirskipunum. Borgarstjóri Medell- ín segist hafa fyrir stuttu fengið bréf undirritað af 200 unglingum sem biðja um aðstoð við að snúa aftur til siðsamlegs lífs. Borgarstjórinn kynnti nýlega að drög að aðgerðum í borginni hefðu verið samin. En hann lét þó fylgja með aö ofbeldinu í borginni yrði seint útrýmt með hemaðar- og lögregluað- gerðum einum. Annars var lítið gefið upp hvað fæhst í þessum tiUögum. Reuter Kúba: Aukin ánersla á ferða- þjónustu Ráðamenn á Kúbu leggja nú aukna áherslu á ferðaþjónustuna og reyna að auka fjölbreytni í efna- hagslífmu tU að draga úr neikvæð- um áhrifum minnkandi viðskipta við ríki Austur-Evrópu. En við- skiptabann Bandaríkjanna gegn Kúbu reynist tálmi í vegi áforma yfirvalda. Og minnkandi viðskipti við ríki Austur-Evrópu og jafnvel Sovétríkin, helsta bandamann Kúbu og stærsta viðskiptafélaga, kunna einnig að hafa sitt að segja um áform Fidels Castro, forseta Kúbu. Viðskipti Kúbu við Austur- Evrópuríki og Sovétríkin nema alls áttatíu prósentum af heildarvið- skiptum landsins. Kúba á nú í viðræðum við þjóðir austurhluta Evrópu þar sem lýð- ræðisbylgja hefur umbylt öllu stjórnskipulagi kommúnismans og viðskiptaháttum. Alberto Betan- court Roa, aðstoðarviðskiptaráð- herra Kúbu, sagði nýverið í sam- tah við Reuters-fréttastofuna að hann byggist við að viðskipti Kúbu og ríkja Austur-Evrópu myndu dragast saman á yfirstandandi ári. En hann kvaðst telja að hægt væri að halda samvinnunni við Sovét- ríkin - þar sem Kúbumenn láta af hendi sykur, nikkel og súraldin í staðinn fyrir ohu, tæki og matvæh - áfram þrátt fyrir vaxandi þrýst- ing Bandaríkjanna á Moskvu- stjórnina. Stjórnvöld á Havana hafa þegar skipulagt hvað gera skuh komi th þess að Sovétmenn dragi snögglega úr eða hætti viðskiptunum. Þannig myndi verða dregið úr ýmsum fé- lagslegum framkvæmdum sem ekki væru taldar bráðnauðsynleg- ar og öh áhersla lögð á útflutnings- iðnað sem gæfi af sér erlendan gjaldeyri. Það myndi aftur þýða að tíu milljónir íbúa eyjunnar þyrftu enn frekar að herða sultarólina. Æ síðan Bandaríkin settu viðskipta- Forseti Kúbu, Fidel Castro. Teikning Lurie bann á Kúbu, árið 1961 eða tveimur árum eftir byltingu kommúnista, hafa Kúbumenn þurft að búa við matarskömmtun og skort á ýmsum nauðsynjavörum. Nú er litið á ferðaþjónustuna sem helstu peningavon Kúbu. Árið 1989 halaði ferðaþjónustan inn alls 260 milljónir Bandaríkjadohara. Kúba áformar að margfalda þennan gróða með því að leggja út í sameig- inleg viðskipti með nokkrum vest- ur-evrópskum fyrirtækjum. Spænskir kaupahéðnar eru í far- arbroddi vestrænna fyrirtækja sem vilja íjárfesta á Kúbu. Sú sam- vinna hefur leitt af sér sameigin- lega rekið hótel sem opnað var fyr- ir ferðaménn í mai. Og margt ann- að álíka er í burðarhðnum. Reuter Vinningstölur laugardaginn 7. júlí ’90. VINNINGAR FJÖLDI | VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 3 o 2.037.826 O Z. 4af5^jP 2 176.897 3. 4af 5 70 8.718 4. 3af5 2.794 509 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.424.026 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.