Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1990, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 1990.
5
Ferðalög og
góðar bækur
;:y. . ;;
Nafn: Borgþór S.
Kjærnested
Alaur: 47 ár
Staða: Framkvæmdastjóri
norræna flutningaverka-
mannasambandsins
„í þessu starfi felst samræming
á starl'semi norrænna flutninga-
verkamannasambanda í fimm
löndum. Ails eru það 41 samtök
sem aðild eiga að heildarsamtök-
unuin. Hér á íslandi er þaö Sjó-
mannasamband fslands," segir
Borgþór Kjæmested um fram-
kvæmdastjórastöðu sambands
norrænna flutningaverkamanna
sem hann hefur verið ráðinn í frá
1. október næstkomandi.
Sambandsskrifstotán er í
Stokkhólmi og þangað er Borgþór
að flytja. Hann er þó ekki með
öllu ókunnugur á Noröurlönd-
unum enda hefur hann verið bú-
settur í Finnlandi í 16 árogí Sví- ;
þjóð í 2 ár.
„Starfið leggst vel í mig. Þetta
er spennandi og verðugt við-
fangsefni. Samtökin em stór,
telja um 300 þúsund félagsmenn
á öllum Norðurlöndunum. Ég er
fyrsti íslendingurinn sem fer í
samsvarandi stöðu erlendis og
það ætti að styrkja stöðu ís-;
lenskrar verkalýöshreyfingar,“
sagði Borgþór.
í iýðháskóla í Finnlandi
„Ég er fæddur í Sandgeröi, í
miðri styijöld. Aftur á móti cr ég
; alinn upp í Staflioltstungum í
Mýrasýslu. Árið 1958, þegar ég
var 15 ára gamall, flutti ég til
Reykjavíkur og tók gagnfræði-
próf í Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar. Síðan fór ég í lýðháskóla
í Finnlandi og var meira eða
inmna erlendis alveg til 1975.“
Á þessutn tíma starfaði Borgþór
; meðal annars víð dagskrárgerð
hjá finnska ríkisútvarpinu. Um
miðjan 8. áratuginn var hann
fréttaritari norrærma fréttastofa
á íslandi og síðan ffamkværada-
stjóri Sambands norrænu félag-
anna með aösetur í Helsingfors.
„Undanfarin tvö ár hef ég svo
verið hér á íslandi og stundað
þýðingar og túlkun ásamt frétta-
þjónustu viö ýmsa fjölmiðla í
Fitmlandi og Svíþjóö. Einnig hef
ég aðstoðað verkalýðshreyfing-
una í norrænu samstarfi."
Ferðalög og útivist
Að sögn Borgþórs eru áhuga-
málin margvísleg. „Ferðalög,
lestur góöra bóka og útivist eru
mín helstu áhugamál. Ég hef
ferðast mikið um ísland og var
um hríð fararstjóri. Þá gat ég
samræmt áhugamálið og vinn-
una.“ Borgþór er mikill göngu-
gaipur og' á veturna stundar
hann skíði. En á hann ekki eftir
að sakna íslands? „Þaö er nú
bæði og. Ég hef búið það lengi
erlendis að ég er orðinn nokkuð
beggja blands. Ég kann oröið vel
við mig viða.
Borgþór er kvæntur Sólveigu
Pétursdóttur og eiga þau tvö
börn, Sólveigu Fríöu, 11 ára, og
Pétur Friðfmn, 7 ára. -BÓl
,Fréttir
Magnús Guðmundsson með nýja kvikmynd 1 smíðum:
Fjallar um ýmis samtök
á borð við Greenpeace
- frægar kvikmyndastjörnur koma fram í mýndinni
Magnús Guðmundsson með fyrsta eintakið af kvikmyndinni Lifsbjörg í norð-
urhöfum. Nú hefur hann hafist handa við gerð nýrrar kvikmyndar.
„Ég er byrjaður að gera nýja kvik-
mynd. Hún verður ekki beint fram-
hald kvikmyndarinnar Lífsbjörg í
norðurhöfum en hún mun hreyfa við
sömu málefnum og sú mynd gerði.
Nýja myndin verður byggð meira á
alþjóðlegum grunni og í henni mun
ég skoða nánar en ég gerði í Lífs-
björginni ýmsar hreyfingar á borð
við Greenpeace sem kenna sig við
umhverfisvernd,“ segir Magnús
Guðmundsson kvikmyndagerðar-
maður.
„Það þarf að setja spumingarmerki
við starfsaðferðir margra umhverfis-
verndarsamtaka. Þar á ég ekki bara
við hreyfingar sem hafa verið að gera
íslendingum lífið leitt. Margar þess-
ara hreyfinga og samtaka eru orðnar
plágur víða um heim og eru að ieggja
lífsafkomu fiölda fólks í rúst. Því
verður nýja kvikmyndin mun fiöl-
breyttari og alþjóðlegri en Lífsbjörg-
in var.
Hvatnig víða að
„Ástæðuna fyrir gerð þessarar
nýju myndar má meðal annars rekja
til þess að ég hef fengið hvatningu
frá sjónvarpsstöðvum víða um heim.
Ég hef einnig fengið hvatnigu frá fé-
lagasamtökum, almenningi og fleiri
sem velta umhverfismálum fyrir sér.
Það eru margir sem hafa boðist til
að leggja mér lið við gerð myndar-
innar.
Meðal annars hafa nokkrir frægir
einstaklingar komið að máh við mig
og boðist til að koma fram í kvik-
myndinni og segja sína skoðun á
þessum málum, þar á meðal eru
frægar kvikmyndastjörnur.
Fjármagnar myndina sjálfur
Ég veit ekki hvenær myndin verð-
ur fullbúin, það fer meðal annars
eftir tíma og því fiármagni sem ég
hef úr að spila. Myndina fiármagna
ég sjálfur en hef leitað til fyrirtækja
og stofnana um styrki til að gera
myndina. Nú þegar eru nokkrir hlut-
ar hennar tilbúnir. Ég sýndi parta
úr henni á alþjóðlegri hvalaráð-
stefnu sem haldin var í Hollandi fyr-
ir skömmu og vöktu þeir mikla at-
hygli.
Nú þegar hafa margar sjónvarps-
stöðvar lýst yfir áhuga sínum á að
kaupa myndina þegar hún verður
fullgerð enda verður margt sem kem-
ur fram í myndinni alveg nýtt og
mun varpa nýju ljósi á starfsaðferðir
umhverfisverndarhreyfinga.
Mikið um fyrirspurnir
Annars er það einkum tvennt sem
hrjáir mig við gerð þessarar myndar,
annars vegar peningaskortur og hins
vegar tímaleysi. Það eru ótal samtök,
ríkisstjórnir og einstaklingar, sem
eiga undir högg að sækja, sem hafa
samband við mig til að spyrja frétta
og fá ráðleggingar um umhverfismál
þegar vandamál koma upp hjá þeim
eða þegar vantar nánari upplýsingar.
Það fer geysilega mikill tími í að
svara fyrirspurnum og tala við allt
þetta fólk.
Lífsbjörgin hefur nú verið sýnd í
13 löndum og það eru alltaf að koma
fyrirspurnir um hana. Það er mikið
um að félagasamtök úti um allan
heim vilji fá myndina til sýningar svo
og skólar. Nú er til að mynda verið
að sýna hana í mörgum bandarísk-
um háskólum enda er hún enn í fullu
gildi sem heimildarmynd um lífs-
hætti í Norðurhöfum,“ segir Magn-
ús.
-J.Mar
Vogalax:
Sækir um rútínulán
í dag verður haldinn fyrsti aðal-
fundur Vogalax hf. eftir eigenda-
skipti. Fyrir skömmu seldi Fjár-
festingarfélagið Vogalax til Gísla
V. Einarssonar í Mata og Harðar
Jónssonar fyrir 9 milljónir króna.
Kaupverðið getur þó orðið hærra
ef fyrirtækið skilar einhverjum
arði á næstu árum. Á síðasta ári
lagði Fjárfestingarfélagið um 90
milljónir til hliðar vegna fyrirsjá-
anlegs taps á hlutfé í Vogalaxi. Það
hefur nú fengið 9 milljónir upp í
þetta tap.
Vogalax sótti nýlega um skuld-
breytingarlán til Framkvæmda-
sjóðs. Það hefur ekki verið afgreitt.
„Nei, það er nú ekki enn sem
komið er,“ sagði Guðmundur B.
Ólafsson, framkvæmdastjóri
Framkvæmdasjóðs.
„Þetta er eitt af þessum rútínu
skuldbreytingarlánum í fiskeldi.
Það eru flest fyrirtæki á þessu róh.
Þau koma hvert af öðru eins og
gefur að skilja þegar engin
greiðslugeta er fyrir hendi. Þá þyk-
ir okkur betri kostur út af fyrir sig
að skuldbreyta til að réttur veðrétt-
ur haldist tíl vaxta.“
-gse
Táragasið á Tálknafírði:
Málið er enn
óupplýst
Ekki hefur tekist að hafa uppi á
þeim sem henti eiturefni í ruslafót-
una á skemmtistaðnum Flóanum á
Tálknafirði um síðustu helgi. Á ann-
an tug manna leitaði læknis vegna
óþæginda sem fólk varð fyrir vegna
óloftsins sem gaus upp þegar eitrið
varð laust. Margir urðu fyrir óþæg-
indum í öndunarfærum, augum og
eins fengu margir kláða og sviða.
Lögreglan hefur rætt við fiölda
manna sem voru á skemmtistaðnum
þegar eitrið varð laust. Þrátt fyrir
margar yfirheyrslur hefur ekki tek-
ist að hafa uppi á þeim sem var vald-
ur að verknaöinum.
Innihald ruslafótunnar var sent til
Reykjavíkur til efnagreiningar.
Grunur leikur á um að um táragas
hafi verið að ræða. Endanlega fæst
staðfest um efnið þegar niðurstöður
liggj a fyrir á mánudag. -sme
legur „urriðatittur“
Lögreglan handtók tvo pilta um ur ásamt veiðarfærunum. Menn-
tvítugt sem höfðu lagt tvö net við irnir sögðust aldrei hafa átt hlut
Hólmsá, skammt lyrir ofan Gvend- að veiðiþjófnaði áður. Skýrsla var
arbrunna, um helgina. tekm af mönnunum en mál þeirra
„Þeir höföu lagt tvö net í ána og verður síðan sent áfram í dóm-
aflinn var nú ekki mikill hjá þeim, skerfmu.
einn leginn og ógeðslegur urriða- „Ég skil ekki hvers vegna menn
tittur. Ég henti honum strax í tunn- era að þessu þegar það er hægt að
una,“ sagöi Bjami Bjarnason, lög- fá aö veiða á stöng fynr vægt verð
regluþjómi á Árbæjarstöð, í sam- á þessum slóðurn," sagöi Bjarai
tah við DV. lögregluþjónn.
Hinn rýri afli var gerður upptæk- -ÓTT