Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1990, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1990.
3
DV
RLR upplýsti nauðgunarmálið í Kópavogi með DNA rannsóknaraðferð:
Fréttir
Sat fyrir fórnarlambinu
grímuklæddur með hníf
- jatning la fljott fyrir eftir að lögfull sönnun barst
Eitt alvarlegasta afbrotamál ársins
1989 upplýstist í síðustu viku. Karl-
maður játaði þá við yfirheyrslur að
hafa nauögað konu við viðbyggingu
íþróttahúss Gerplu að Skemmuvegi
í Kópavogi aðfaranótt 17. nóvember.
Maöurinn var grímuklæddur og
vopnaður hnífi.
Talið er að hann hafi setið fyrir
fómarlambinu. Hann neyddi konuna
með sér inn í byggingu þar sem hann
framdi þennan óhugnanlega ódæðis-
verknað. Maðurinn á ekki feril að
baki sem kynferðisafbrotamaður svo
vitað sé.
Málið upplýstist eftir að rannsókn-
arlögreglan hafði sent blóðsýni úr
sextíu karlmönnum svokallaða
DNA rannsókn til Brttiands. Nánast
eina sönnunargagn'L í málinu var
sæði árásarmannsins sem fannst
meðal annars í fatnaði. í framhaldi
af þvi var ráðist í skipulega rannsókn
málsins.
Voru 60 menn, sem hugsanlega
gátu átt hlut að máli, fengnir til að
gefa blóðsýni vegna rannsóknarinn-
ar. Bogi Nilsson rannsóknarlög-
reglustjóri segir að þessir borgarar
hafi allir gefið blóðsýni af fúsum og
frjálsum vilja. Þessari aðferð hefur
aldrei verið beitt áður hér á landi.
Gögnin voru send til Bretlands og
fengust niðurstöðumar í síðustu
viku. Kom þá í ljós að nánast óyggj-
andi var að einn úr hópnum hafði
framið verknaðinn enda er rann-
sóknaraðferðin talin mjög traust og
talin lögfull sönnun í málum sem
þessum, að sögn rannsóknarlög-
reglustjóra. Var hún fyrst notuð er-
lendis árið 1987. Hún er þó tímafrek
og kostnaðarsöm. Rannsóknarlög-
reglustjóri vill ekki gefa upp kostn-
aðartölur.
Hinn grunaði var handtekinn síð-
astliðinn föstudag og var hann úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 8. okt-
óber. Hann viðurkenndi síðan á sig
verknaðinn og er máhð því upplýst.
„Þessi aðferð er stórt stökk fram á
við, sérstaklega á sviði kynferðisaf-
brotamála," sagði Bogi Nilsson í gær.
„Einnig hefur þetta mál þá sérstöðu
að hópur almennra borgara er feng-
inn til samstarfs með þeim árangri
sem fyrir liggur," sagði Bogi.
Hann sagði einnig að venjulega
minnkuðu likur á því að mál upplýs-
ist eftir þvi sem lengra liði frá at-
burðinum. í þessu tilfelli gerði fram-
angreind aðferð það hins vegar kleift
að upplýsa málið eftir svo langan
tima og raun bar vitni. DNA er erfða-
efni sem má rannsaka með blóðsýn-
um. Efniö er í frumum mannslíkam-
ans. Þessum aðferðum er einnig beitt
til að sanna faðemi bama.
Bogi sagðist reikna með að RLR
gengi sennilega frá málinu í næstu
viku og sendi það þá til ríkissaksókn-
ara eins og lög gera ráð fyrir. Þaðan
fer mál nauðgarans til dómstóla.
-ÓTT
Þeir eru ferðalúnir og hafa nú fengið nýtt hlutverk. í stað þess að bera eiganda sinn um fjöll og firnindi sóma þeir
sér vel sem blómaker uppi á vegg. Þetta er ein þeirra mynda sem borist hafa í keppnina.
Ljósmyndasamkeppni:
Skilafrestur
til mánaðamóta
Nú fer hver að verða síðastur að
senda inn mynd í ljósmyndasam-
keppni DV og Ferðamálaárs Evrópu
1990 því að síðasti skiladagur er
næstkomandi fóstudag, 31. ágúst
Myndefnið verður að tengjast
ferðalögum og útivist. Myndimar
skal senda ásamt nafni, heimilisfangi
og símanúmeri þátttakandans til DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík, merkt
ljósmyndasamkeppni. Allar myndir
verða endursendar til eigenda sinna.
Verðlaun verða veitt fyrir 10 bestu
myndirnar og eru þau ekki af lakara
taginu:
1. Lundúnaferð fyrir tvo með Flug-
leiðum. '
2. Farseðlar fyrir tvo að eigin vali
innanlands.
3. Dvöl fyrir tvo á Edduhóteli að eig-
in vali.
4. Hringmiði fyrir tvo kringum
landið.
5. Helgarferð fyrir tvo í Þórsmörk.
6-10. Bókaverðlaun.
I *-TEPPALANDS
Teppi, dúkur, parket og flísar.
Teppalandsútsalan er í fullum
gangi. Það hefur aldrei verið jafn
auðvelt að gera eins góð kaup á
gólfefnum á stórlækkuðu verði.
Við höfum lækkað verðið um allt
Nú er einstakt tækifæri því verslun- og gólfdúkabútum. Einnig fyrsta
in er full af útsölu-gólfefnum, s.s. flokks flísar, grásteinn og skífur,
gólfteppum, stökum teppum, parketafgangar, gólfkorkur og
mottum, dreglum, bútum, teppa- veggdúkur.
afgöngum, gúmmímottum, gólfdúk
að 50% - það munar um minna.
Það vilja allir spara - nú er tækifærið.
Teppaland • Dúkaland
Grensásvegi 13, sími 83577 og 83430, Rvík.