Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1990, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1990, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1990. 17 Iþróttir Guðmundur Torfason verði seldur frá skoska liðinu St. Mirren: ð á BreUandseyjum iuðmundi Torfasyni ted og Nottingham Forest viröast hafa mestan áhuga ijög mikinn áhuga á að krækja i liðinu St. Mirren. Hér er um Æanchester United og Notting- 3w Celtic. Samkvæmt fréttum imundur verði seldur frá St. hafa mestan möguleika á að kom út um helgina er sagt frá hugsan- legri sölu Guömundar Torfasonar frá St. Mirren. Tímaritið segir aö það sé vissara fyrir Ferguson að drífa sig í því að kaupa Guömund, ella muni Brian Clough, framkvæmdastjóri Nottingham Forest, eiga viðskipti við St. Mirren og kaupa Guðmund. En það eru ekki eingöngu ensk lið sem áhuga hafa á Guðmundi Torfa- syni. Skosku hðin Aberdeen og Glas- gow Celtic hafa einríTg mikinn áhuga. Aberdeen hefur selt sóknarleikmann- inn Charlie Nicholas til Celtic og hefur félagið ekki enn keypt sóknarmann í hans stað. Fleck tilSt. Mirren? Það rennir stoðum undir hugsanlega sölu Guðmundar frá St. Mirren að fé- lagið hefur áhuga á að kaupa sóknar- manninn Robert Fleck frá Norwich City. Norwich vill fá 1,2 milljónir punda fyrir Fleck en St. Mirren er til- búið að greiða helming þeirrar upp- hæðar. Það er því hugsanlegt að St. Mirren vilji fá um 600 þúsund pund fyrir Guðmund Torfason eða rúmar 60 milljónir króna. Guðmundur hefur gert það gott hjá St. Mirren Guðmundur Torfason hefur náð að sýna sínar bestu hliðar hjá St. Mirren. Á síðasta keppnistímabili var hann með markahæstu leikmönnum í skosku úrvalsdeildinni og í æfinga- leikjum fyrir nýhafið tímabil hefur hann skorað og skorað. Guðmundur skoraði sem kunnugt er fjögur mörk gegn Manchester United á Old Traf- ford og það eru ekki margir knatt- spyrnumenn sem hafa gert slíka hluti á heimavelli „rauðu djöflanna." Það er því ekki undarlegt að Alex Ferguson vilji fá slíkan leikmann í sínar raðir. Leikur Guðmundur með landsliðinu gegn Frökkum? St. Mirren á að leika gegn Hearts í skosku bikarkeppninni í vikunni og ef hðið vinnur þann leik mætir St. Mirren.Uði Aberdeen í sömu keppni sama dag og íslendingar leika gegn Frökkum á Laugardalsvelh. Það gæti því farið svo að Guðmundur kæmist ekki í landsleikinn sem fram fer mið- vikudaginn 5. september. -SK • Guðmundur Torfason er eftirsóttur knattspyrnumaður á Bret- landseyjum þessa dagana. MikiU styrkur til Snæfells í körfuknattleiknum: Hreinn, Rússi og Rikki heldur áfram Valdimar Hreiðarsson, DV, Stykkishólmi: Körfuknattleikshði Snæfells í Stykk- ishólmi, sem vann sér sæti í úrvals- dehdinni, hefur bæst góður liðsauki fyrir komandi keppni í úrvalsdeild- inni í vetur. Er hér um að ræða nýj- an þjálfara, Hrein Þorkelsson, og leikmann frá Sovétríkjunum sem heitir Gennadi Peregod. Hreinn Þorkelsson lék síðasta vet- ur með UÍA og þar áður með Vals- mönnum en hann miín jafnframt leika með liði Snæfehs í vetur. „Þetta er spennandi verkefni. Reyndar verður veturinn erfiður, strákarnir eiga margt ólært því keppni í úrvalsdeild er gjörólík keppni í 1. dehd. Takmarkið er því að halda sæti okkar í úrvalsdehd en það verður ekki þrautalaust," sagði Hreinn í samtah við DV. Nýja íþróttahúsið gjörbreytir aðstöðunni Gamla landshðskempan Ríkharður Hrafnkelsson leikur með hði Snæ- feUs í veto en hann lék á árum áður með Val. „Þetta leggst vel í mig. Reyndar er úrvalsdeUdin annar heimur, en nýi leikmaðurinn frá Sovétríkjunum og nýtt íþróttahús breyta myndinni. Nú æfum við þrisvar í viku í Grundar- firði og þrisvar í viku í gamla húsinu hér í Stykkishólmi. Nú er stefnt að því að nýja húsið verði tekið í notkun um mánaðamótin október-nóvember og það verður því nýtt fyrir okkur að leika heimaleiki okkar hér í Stykkishólmi. Við teystum á Hólm- ara að mæta og hvetja sína menn í baráttunni í vetur,“ sagði Ríkharður Hrafnkelsson í samtali við DV. • Jóhannes Finnur HaUdórsson er formaður körfuknattleiksráðs og er það mál manna að ráðið hafi stutt vel við bakið á liðinu og að hluta velgengni þess megi rekja til ötuhar framgöngu ráðsins. >gud og Ríkharður Hrafnkelsson. DV-mynd Valdimar Turf an mættur til Víkings - Guðmundur þjálfar og Ami verður tiðsstjóri Sovétmaðurinn, Alexi Ivanov Turfan, sem leikur með Víkingum í handboltanum í vetur, kom tU íslands fyrir helgina. Turfan hefur æft með Víkingum síðan og leikið einn æfmgaleik og eru forráða- menn hðsins mjög ánægðir með það sem þeir hafa séð til Sovét- mannsins. Alexi Turfan hefur verið talinn einn besti varnarleikmaður í Sov- étríkjunum síðastliðinn tíu ár og einnig er hann mjös frambærilegur sóknarleikmaður. Turfan lék með 1. maí frá Moskvu og hefur að baki marga unglingalandsleiki og sömu- leiðis hefur hann æft með A-lands- hði Sovétmanna. Víkingar halda utan til Svíþjóðar á miðvikudaginn og taka þátt í mjög sterku móti sem í taka þátt 32 félaglið Trá Evrópu. Mótið fer fram í Ystad og leika Víkingar gegn Ystad æfingaleik á miðvikudags- kvöldið en með sænska liðinu leik- ur Gunnar Gunnarsson sem unnið hefur sér sæti í íslenska landshð- ihu. Víkingar eru þarna á fomu slóðum en eins og mörgum rekur minni tU léku Víkingar gegn Ystad í Evrópukeppninni fyrir nokkrum árum en eftir leikinn ytra var þeim vikið úr keppninni, voru sakaðir um ólæti. Guðmundur Guðmundsson verð- ur áfram þjálfari Víkinga í vetur en Ámi Indriðason verður hðs- stjóri. -JKS • Neville Southall. Southall til Utd? NevUle Southah, markvörður Everton í ensku knattspymunni, er ekki yfir sig ánægður hjá lið- inu og hefur reyndar ekki litið glaðan dag á Goodison Park í langan tíma. Um þverbak keyrði sl. laugar- dag er Everton lék á heimavelli gegn nýhðum Leeds United. í leikhléi rifust þeir sem hundur og köttur, Southah og Colin Harvey, framkvæmdastjóri Ever- ton. Lyktaði málum þannig að Southall strunsaði út úr búnings- klefa Everton. Var ferðinni heitið í annað markið á vellinum en þar sat markvörðurinn síðustu fimm mínútur lcikhlésins. Var Southall sektaður fyrir þetta uppátæki um sem nemur rúmum 400 þúsmrd krónum. Southall, sem þykir einn snjallasti markvörður Bretlands- eyja. hefur í þrígang farið frani á sölu frá Everton en ávaUt verið vísað á dyr. Manchester United er tilbúið að kaupa kappann og telja menn nú miklar hkur á þvi að liann veröi seldur tU bikar- meistaranna. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.