Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1990, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1990.
27
LífsstOI
Sala á Landverndarpokum
hefur minnkað um 30%
Þegar Landvemd gerði samning
við Kaupmannasamtök íslands um
sölu á sérmerktum plastpokum var
gert ráð fyrir að í kjölfarið myndi
plastpokanotkun íslendinga minnka.
Sú virðist ekki vera raunin.
Sala á Landvemdarpokum hefur
að visu dregist saman um 30% en
samkvæmt upplýsingum frá plast-
pokaframleiðendum hefur poka-
framleiðsla staðið í stað. Því virðist
sem svo að framleiðsla á ómerktum
pokum hafl aukist á kostnað Land-
vemdarpoka og að kaupmenn séu
annaðhvort farnir að taka upp fyrri
siði og gefa plastpokana eða að selja
þá og taka ágóðann beint til sín.
Frjáls verðlagning á
ómerktum plastpokum
„Við teljum að samkomulagiö sem
við gerðum við Landvernd um plast-
pokana byggist á því að allir sem
stunda verslun og viðskipti í ein-
hveijum mæh taki þátt í því að selja
- ekki hefur dregið úr plastpokanotkun íslendinga
Landverndarpoka á 5 krónur. Það
em einhverjir kaupmenn sem standa
fyrir utan samkomulagið en ég held
nú samt að þeir séu ekki margir.
Hins vegar er kaupmönnum heimilt
Neytendur
aö selja ómerkta poka á því verði sem
þeir kjósa því verðlag á plastpokum
er fijálst," segir Magnús E. Finnsson,
framkvæmdastjóri Kaupmannasam-
taka íslands.
Því hefur verið fleygt að sumar
verslanir séu farnar að selja plast-
poka sína hærra verði en um var
samið á milii Kaupmannasamtak-
anna og Landverndar. Neytendur
eru beðnir að athuga að plastpoka
sem hafa merki Landverndar á
hankanum má aðeins selja á fimm
krónur samkvæmt samkómulaginu.
Sumar verslanir hafa hætt að vera
með sérmerkta Landverndarpoka til
sölu en gefa í staðinn ómerkta poka
til viðskiptavina sinna eins og áður
var. Nokkrar verslanir hafa einnig
byrjað að bjóða viðskiptavinum sín-
um stóra og ókeypis skrjáfpoka sem
eru þynnri og eyöast fyrr en hinir
þykku, venjulegu. Svo eru alltaf ein-
hveijar verslanir sem eru með
ómerkta poka og selja viðskiptavin-
um sínum.
Söluandvirði Landverndarplast-
pokanna skiptist þannig að Land-
vernd fær tvær krónur, kaupmaður-
inn tvær krónur og ríkið 1 krónu.
Að sögn Maríu Haraldsdóttur, skrif-
stofustjóra Landverndar, hafa um 18
milljónir runnið í plastpokasjóðinn
frá upphafi og peningum hefur verið
úthlutað til aðila um allt land í skóg-
rækt og landgræðslu.
-BÓl
Ef plastpokar hafa Landverndarmerki á hankanum eiga þeir að kosta fimm
krónur. Hins vegar er frjáls verðlagning á ómerktum pokum. Þeir geta
verið ókeypis eða kostað einhverjar krónur sem þá renna til kaupmannsins.
DV-mynd JAK
Það kemur sér vel nú þegar skólar fara að byrja að fá 20% lækkun á
bókum sem skrifaðar eru á islensku.
Afnám virðisaukaskatts um mánaðamót:
Bækur lækka um 20%
Eftir næstu mánaðamót verður
virðisaukaskattur ekki innheimtur
af sölu bóka á íslensku, hvorki frum-
saminna né þýddra. Bækur faha þar
með í sama flokk og blöð og tímarit
sem þegar eru undanþegin virðis-
aukaskatti.
Upphaflega átti undanþágan ekki
að ganga í gildi fyrr en um miðjan
nóvember en með bráðabirgðalögum
í sumar var afnámi skattsins flýtt til
1. september. Ghdistöku undanþág-
unnar var flýtt th að lækka fram-
færsluvísitölu og halda í við rauðu
strikin en einnig th að taka tillit th
skólamanna sem hafa óskað eftir því
að niðurfellingin nái th bókakaupa
strax í upphafi skólaársins.
Þegar 24,5% virðisaukaskattur er
afnuminn af bókum eiga þær að
lækka um nákvæmlega 19,68%, eöa
um tæpan flmmtung. Þessi verð-
lækkun á verða í bókaverslunum
strax eftir mánaðamót.
Þessi lækkun kemur sér vel fyrir
skólafólk í menntaskólum landsins
en háskólanemar fá hins vegar ekki
neina kjarabót þar sem flestar
kennslubækur, sem þar eru kennd-
ar, eru á erlendum tungumálum.
-BÓl
Verðtilboði á
lambakjöti að ljúka
Um næstu mánaðamót verður
hætt að bjóða upp á hálfa lamba-
skrokka á thboðsverðinu, 417 krónur
kílóið.
Það er Samstarfshópur um sölu á
lambakjöti sem stendur fyrir söluá-
takinu undir slagorðinu lambakjöt á
lágmarksverði. Lambakjötið, sem
boðiö er upp á í þessum tilboðspoka,
er kjöt síðan í fyrrahaust, sérstaklega
sneitt og snyrt th grillsteikingar. Að
meðaltali eru um sex kíló í hverjum
poka sem selst á 2500 krónur.
í sama söluátaki í fyrrasumar seld-
ust um 900 tonn en ekki er búist við
að jafnmikið hafi selst í sumar.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Hvammstanga:
2,5% verðlækkun
síðan í apríl
Samanburður á matvöruverslunum á Norðvesturlandi
Verðsaman- burðurmiðað við meðalverð = 100 Meöalverð- breyting frá apríl 1990
Gestur Fanndal, Sigluf. 91,5 0,8%
Kaupf. V-Hún., Hvammstanga 94,2 -2,5%
Skagfirðingabúð, Sauðárkróki 95,5 1,5%
Vísir, Blönduósi 95,9 2,9%
Útibú, Kaupf. Eyfirðinga, Sigluf. 98,6 0,0%
Haraldur Júlíusson, Sauðárkróki 98,9 2,1%
Fiskbúð Siglufjarðar, Sigluf. 99,5 1,2%
Kaupf. Hrútfirðinga, Borðeyri 100,2 2,5%
Versl. Tindastóll, Sauðárkróki 100,7 5,0%
Vöruhús Hvammstanga 100,9 2,1%
Kaupf. Steingrímsfj., Hólmavík 101,6 1,2%
Kaupf. A-Hún„ Blönduósi 101,8 3,4%
Verslunarfél. Ásgeir, Sigluf. 102,5 4,0%
Kaupf. Skagf., Varmahlíð 103,0 3,9%
Matvörubúðin hf„ Sauðárkróki 103,5 3,0%
Kaupf. Skagfirðinga, Hofsósi 105,0 2,2%
Kaupf. Hún., Hólanesútibú, Skagast. 105,9 3,8%
Th að fylgjast með verðlagi á tím-
um þjóðarsáttar og verðstöðvunar
hefur Verðlagsstofnun gert tvær
samanburðarkannanir á verði í
nokkrum matvöruverslunum á
Norðurlandi vestra.
Fyrri könnunin var gerð í apríllok
og tók til 50 algengra tegunda af
mat-, drykkjar-, snyrti- og hreinlæt-
isvörum í 17 matvöruverslunum.
Þremur mánuðum síöar eða nú í júlí-
mánuði var aftur farið í sömu versl-
anir og verð sömu vörutegunda
kannað.
Samanburðurinn á milh þessara
tveggja kannana var ánægjulegur
því í 58% thvika var vöruverð
óbreytt eða lægra. í sams konar sam-
anburðarkönnun á höfuðborgar-
svæðinu varð svipuð niðurstaða því
þar var vöruverð óbreytt eða lægra
í 56% thvika.
Að meðaltah hækkaði verðið á vör-
unum 50 í þeim 17 verslunum, sem
könnunin náði til, um 2,2% á tímabil-
inu frá apríl til júlí. Meðalhækkun í
verslunum á höfuðborgarsvæðinu
var 2,8% á sama tíma. Meðalverð í
einstaka verslunum hækkaði um
0,8%, í versluninni Gesti Fanndal,
Siglufirði, til 5,0%, í versluninni
Tindastóli á Sauðárkróki. í Kaup-
félagi Vestur-Húnvetninga lækkaði
hins vegar meðalverð vörutegund-
anna um 2,5%
Til að gefa hugmynd um almennt
verðlag í einstökum verslunum var
reiknað út meðalverð hverrar vöru-
tegundar og það síðan notað sem
stuðull til viðmiðunar. Þessir stuðull
er ákveðinn 100 og vöruverð í versl-
un, sem er með meðaltöluna 100, er
því í meðallagi miðað við hinar versl-
anirnar í könnuninni. Frávik frá
meðaltahnu gefur svo hugmynd um
hve mikið verð í einstökum verslun-
um er fyrir neðan eða ofan meðai-
verð.
Samkvæmt þessum samanburöi er
meðalverð vörutegundanna 50 lang-
lægst hjá Gesti Fanndal, Siglufirði,
og síðan kemur Kaupfélag Vestur-
Húnvetninga, Hvammstanga. Hæsta
meðalverð er hins vegar hjá Kaup-
félagi Skagflrðinga, Hofsósi, og
Kaupfélagi Húnvetninga, Hólanes-
útibúi, Skagaströnd.
-BÓl
Frá því i april hefur vöruverð á Norðurlandi vestra haldist óbreytt eða lækkað i 58% tilvika. Lægsta meðalverðið er
að finna i versluninni Gesti Fanndal á Siglufirði.