Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1990, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1990, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1990. 13 Lesendur „Eru kennimenn guðs að verða jafnspilltir og aðrir í þessu þjóðfélagi," spyr bréfritari. Myndi Kristur kvarta? Þorgrímur E. Grímdal leikmaður skrifar Enn á ný hefur það sannast að það er ekki sama hvort ég er séra Jón eða bara Jón. Yfirleitt hefur það ver- ið á þann veg að séra Jón hefur haft þaö betra en bara Jón en nú virðist sem það sé að breytast. Aumingja séra Jón. Nú hefur hon- um verið gert að greiöa hækkaða húsaleigu til hins opinbera. Ég er nú ekkert á móti því aö séra Jón greiði raunhæft verð fyrir húsnæði, sem og aðrir þeir er leigja hjá ríkinu. Þó má færa ýmis rök fyrir því hvers vegna þeir ættu að greiða minni leigu. í viðtaii á rás 2 þann 20. ágúst var rætt við prest frá prestasamtökunum þar sem hann var spurður spjörun- um úr um ástæðu þá að þurfa ekki að greiða hærri leigu. Svaraði hann því meðal annars til að svo mikill kostnaður fylgdi því.embætti að vera prestur. Þar á meðal að þurfa að út- búa skrifstofu á sinn kostnað, mikill akstur, sem fæst aðeins greiddur að hluta, og það að húsnæði það sem þeir búa í sé alltaf opið öllum og því líkara félagsheimili en einkaheimili. Það eru til svör við öllum spurning- um. Það er jú réttlætanlegt að fá fjár- magn til kaupa á útbúnaði til skrif- stofustarfa, svo framarlega sem ekki er splæst í dýrasta útbúnaðinn. Hvað viðkemur kostnaöi á rekstri bifreiðar þá þurfa allir að aka í vinnuna, hvort sem þeir eru bara eða séra. Og varð- andi félagsheimili prestanna þá veit ég ekki betur en að allir bændur hleypi öllum inn til sín ef bankað er upp á hjá þeim. Það þykir bara sjálf- sagt að gera slíkt. Niðurstaða mín eftir þessa snagg- aralegu umfjöllun, sem byggð er á mjög þröngum grunni, er að mér fmnst allt í lagi að prestar geri það er Kristur flutti að gjalda keisaran- um það sem keisarans er og guöi það sem guðs er. Því má svo bæta við að ef prestar hefðu það mikið að gera við embætt- isstörf þá kæmi vel til greina að lækka leigu þeirra. En þar sem ég þekki til mætti halda að sóknarprest- ur minn væri í verkbanni þar sem hann sinnir aðeins bráðatilfellum, líkt og læknir í verkfalh. Eru kennimenn guðs að verða jafn- spilltir og aðrir í þessu þjóðfélagi? Eru þeir hættir að sinna kalli Krists um að kenna það sem hann kenndi og feta í fótspor hans? Hvað sagði ekki Kristur? Til að öðlast eilíft líf hjá guði skaltu gefa allar eigur þínar og þá muntu verða hjá guði til eilífð- ar. Prestar, áður en þið geriö næsta leik, hugsið þá fyrst um það hvað Kristur myndi gera í ykkar sporum. Myndi hann kvarta um of háa húsa- leigu? VANTAR - VANTAR - VANTAR Feiknarsala, feiknarsala Vantar allar gerðir bíla á staðinn. Sé bíllinn á staðnum selst hann fljótt. Bílasala ,)Q GARÐARS Borgartúni 1 - s. 19615, 18085 RÍKISSPÍTALAR Dagheimilið Sunnuhlíð Fóstra og starfsmaður óskast til starfa frá 1. septemb- er á dagheimilið Sunnuhlíð v. Klepp. Nánari upplýsingar veitir Kolbrún Vigfúsdóttir for- stöðumaður í síma 602584. Reykjavík, 28. ágúst 1990 RÍKISSPÍTALAR Dagheimilið Stubbasel Fóstra og starfsmaður óskast til starfa frá 1. septemb- er nk. á dagheimilið Stubbasel, Kópavogsbraut 19. Um fullt starf er að ræða. Nánari upplýsingar veitir Anna Geirsdóttir forstöðu- maður í síma 44024 Reykjavík, 28. ágúst 1990 Malbikunarframkvæmdir á Reykjanesbrautinni eru gagnrýniverðar á ýmsan hátt að mati bréfritara. Malbikimarframkvæmd á Reykjanesbraut: Vitaverð vinnu- brögð Páll hringdi: Ég ek Reykjanesbrautina daglega fram og til baka, alla leið til Keflavík- ur. Mér blöskrar hvernig staðið er að framkvæmd þeirri sem verið er að vinna þar í malbikunarmálum. - Það er einkum á tveimur stöðum sem ástandið er slæmt. Annars vegar við Kúagerði og þar suöur af og svo aftur við afleggjarann við Voga, sunnan megin. Þaö sem ég vil gagnrýna er þá aðal- lega þrennt: í fyrsta lagi að sam- skeytin í miðjunni eru afar ójöfn. í öðru lagi að malbikið nær ekki alls staðar að fullu út í kantinn þar sem gamla steypan er fyrir. - Og í þriðja lagi það að þar sem hætt er vinnu að kvöldi verða eins konar kafla- skipti þar sem brúnirnar koma sam- an, misháar. - Það er eins og telja megi dagsverkin, svo glögg eru skihn frá degi til dags. Þetta finnst á keyrslu og er það haft í flimtíngum ýmissa sem þarna aka að telja dags- verkin á meðan á akstri stendur. Þetta er þó miklu alvarlegra mál en svo að láta megi afskiptalaust og ber þeim sem annast öryggismál á þessum þjóðvegi og kosta verkið að kanna málið áður en framkvæmdum lýkur svo að ekki komi til alvarlegra atburða þarna áður en varir. - EINSTAKÍ AISLANDI TÍMARIT FYRIR ALLA Urval sími 27022 6 noe^aö b\aðsoWís' • í helgreipum óttans • Ertu örgeója? • Þeim tókst ekki aó deyja • Ríki ryksins • Lótra-Björg • Hver ó aó annast foreldrana? • Þú getur sigrast ó þunglyndi • Krosstölugótan Efni meóal annars: • Ætti aö lögleióa fíkniefnin? • Hvaöa gagn gera trén? • Hann bjó til rifu ö jörntjaldió • Hinn ógleymanlegi Laurence Olivier • Hugsun í oróum • Meó tímasprengju í höfóinu • Heimshöfin snjóboltar utan úr geimnum? • Dularfullu Michelin-mennimir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.