Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1990, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1990, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1990. fþróttir_________ EM í frjálsum íþróttum í Split: Glæsimet hja Einari - Hvað gerist í Split 1 dag? „Verkiö er hálfnað og von- andi tekst Einari aö ljúka því í úrslitakeppninni í dag. Þetta var sérstaklega vel útfært kast hjá Einari og hann var ipjög afslappaður í kastinu," sagði Magnús Jakohsson, formaður Frjálsíþróttasambands Islands, í samtah við DV eftir að Einar Vil- hjálmsson haíði sett glæsilegt ís- landsmet í spjótkasti á Evrópumót- inu í Spht í gær, Einar kastaði aðeins einu sinni í undankeppninni, spjótið flaug 85,48 metra. Þetta var lengsta kast undan- keppninnar og Einar komst því auð- veldlega í úrshtakeppnina sem fram fer í dag. Sigurður Einarsson var nálægt því að komast einnig í úrsht- in, kastaði 77,32 metra og hafnaði í 16.-17. sæti. Hann hefur átt við þrálát meiðsli að stríða að undanfömu og verður árangur hans að teljast mjög góður miðað við aðstæður. Sigurður Matthíasson var nokkuð frá sínu besta á sínu fyrsta stórmóti og kast- aði 72,56 metra. Einar skaut flestum bestu spjótköstunnn heimsins ref fyrir rass í gær og margir frægir kastarar komust ekki í úrshtin. Þar má nefna fyrrum heimsmethafa Jan Zelezny frá Tékkóslóvakíu og Svíana Peter Borglund og Dag Wennlund. Röð efstu manna í spjótkastinu varð annars þessi: 1. EinarVilhjálmsson........85,48 2. Steve Backley, Bretl.....82,24 3. Patrik Bodén, Sviþjóð....81,36 4. ViktorZaitsev,Sovétr.....81,00 5. V. Ovchinnikov, Sovétr..79,94. 6. Klaus Tafelmeier, V-Þl...79,84 7. Seppo Raty, Finnlandi....79,50 • Astrid Kumbernuss frá Austur- Þýskalandi vann fyrstu guhverðlaun Evrópumótsins er hún sigraði í kúlu- varpi kvenna, varpaði 20,38 metra. • Rosa Mota frá Portúgal vann í gær sigur í maraþonhlaupi kvenna, í þriðja skiptið í röð á Evrópumóti. Hún fékk tímann 2:31,27 klst. • í 10 km hlaupi vann ítalinn Saal- vaatore Antibo mikinn yfirburðasig- ur á 27:41,27 mín. Annar varð Are Nakkim frá Noregi á 28:04,04 mín. • Keppt var í gær í undanrásum margra greina og var lítið sem ekk- ert um óvænt úrsht. -SK Stúfar frá Split Keppni á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Spht í Júgóslavíu hófst klukkan 6 að íslenskum tíma í gærmorgun með undankeppni í tveimur greinum. Austur-þýska langstökksdrottningin Heike Drech- sler hafði ekki mikið fyrir því að stökkva lengst í undankeppninni, sveif 6,92 metra í æfingagahanum í fyrsta stökki og haföi ekki fyrir því að reyna oftar. Það var lengsta stökk- ið en tólf stúlkur keppa th úrshta í dag. Kriss Akabushi, 31 árs gamall yfirmaður í breska hernum, fékk besta tímann í undanrásum í 400 metra grindahlaupi karla, hljóp á 50,08 sekúndum en tók lífinu þó með ró á síðustu metrunum. Cram er bjartsýnn Breski hlauparinn Steve Cram spáir því aö Bretar vinni þrefaldan sigur í 1500 metra hlaupi karla í Split á laugardaginn. „Peter Elliott er sigur- stranglegastur og síðan ég. Neh Horsfield hefur líka burði th að ná verðlaunasæti, svo það er ekkert ólíklegt að við hirðum öll verðlaun- in,“ sagði Cram í gær. Cram, sem er 29 ára gamall og var á hátindi ferhs síns árið 1986, hefur átt við meiðsli að stríða síðustu tvö árin en segist nú vera kominn í gott form á nýjan leik. Tvö ný mót á vegum Evrópusambandsins Stjórn Fijálsíþróttasambands Evr- ópu, EAA, ákvað á fundi í Spht um helgina að hrinda af stað tveimur nýjum mótum. Evrópubikarkeppni fyrir keppendur yngri en 23 ára verð- ur haldin í fyrsta skipti á næsta ári og síðan verður gerð tilraun með Evrópukeppni í boðhiaupum, og fer hún fram í Bretlandi í júnímánuði 1991. Þór Akureyrarmeistari Þórsarar tryggðu sér Akureyrarmeistaratithinn í knattspymu í gær- kvöldi með því að sigra erkióvininn, KA, 3-1, eftir framiengdan leik. Mark KA skoraði Ormarr Örlygsson en mörk Þórsara gerðu þeir Valdi- mar Pálsson og Ámi Þór Ámason 2. Þetta var langþráður sigur hjá Þórs- umm því KA hefur unnið tithinn síðustu fjögur árin. GK/Akureyri BADMINTONDEILD KR Æfingar byrja 1. september nk. Skráning stendur yfir. DV Svo kann að fara að Fjögur li áeftirG - Manchester Unii F^ögur knattspyrnulið á Bretlandseyjum hafa nú rr 1 landsliðsmanninn Guðmund Torfason hjá skoska tvö ensk lið að ræða og tvö skosk. Ensku hðin eru 1\ ham Forest en skosku hðin eru Aberdeen og Glasgi í breskum blöðum eru taldar miklar líkur á því að Guc Mirren og eru Manchester United og Nottingham talin krækja í kappann. • Frank Rijkard - hættur i hol- lenska landstiðinu. Joaquin Peiro varð í gær fyrsti þjálfarinn th að missa atvinnuna í spænsku knattspyrnunni á þessu keppnistímabih þrátt fyrir aö sjálf deildakeppnín sé ekki hafin þar í landi! Hann mátti taka pokann sinn eftir að Atletico Madrid liafði tapaö tveimur æf- ingaleikjum um helgina, en hann var áttundi þjálfari Atletico á aðeins þremur árum! Peiro tók þessu með jaínaðargeði og sagði: „Sá sem er ráðinn þjálfari hjá Atletico verður jafnan að hafa ferðatöskurnar tilbúnar." Þrírnýliðarí vestur-þýska liðinu Berti Vogts, hinn nýi iandsliðs- þjálfari vestur-þýsku heims- meistaranna í knattspyrnu, hefur valiö þrjá nýliða í hóp sinn fyrir vináttuleik gegn Portúgölum sem fram fer í Lissabon annað kvöld. Það era Thomas Strunz, 22 ára miðjumaður frá Bayern Munchen, Manfred Binz, 24 ára vamarmaður frá Frankfurt, og Maurizio Gaudino, 23 ára raiðju- raaður frá Stuttgart. Þeir Pierre Littbarski og Thomas Hássler geta ekki leikið með. Rijkaard hættur Frank Rijkaard, hinn snjalli leik- maður AC Miian, thkynnti á sunnudaginn aö hann væri hætt- ur að leika með hollenska lands- hðinu. Rijkaard er aöeins 27 ára en sagði að hann heföi ekki nægi- legan metnað fyrir því að leika fyrir hönd Hohands. Hann sagði ennfremur að atvikið í HM-leikn- um gegn Vestur-Þýskalandi í heimsmeistarakeppninní í sumar þegar hann hrækti á Rudi Völler, var rekinn af velli og fékk þriggja leikja bann, heföi ekkert með þessa ákvörðun sína að gera. Svíarnir tryggðu sigurinn Svíamir Stefan Schwarz og Jonas Them tryggöu Benfica sigur, 2-0, á Guimaraes í annarri umferð portúgölsku 1. deildarinnar í knattspymu á sunnudaginn. Þeir skoraöu sitt markiö hvor í leikn- um. Þetta var fyrsti leikur Benfica en liðiö fékk frí í fyrstu umferðinni. Meistarar Porto unnu sinn annan leik, lögðu ný- hðana Salgueiros, 1-3, á útivelh. Sporting vann Penafiel, 5-2. Sex borgir bítast um ÓL Alþjóða ólympíunefndin mun ákveða á fundí sínum í Tókíó þann 18. september hvaða borg fær aö halda ólympiuleikana áriö 1996. Sex borgir koma til greina, Aþena í Grikklandí, Atlanta í Bandarikj- unum, Belgrad í Júgóslavíu, Manchester 1 Bretlandi, Melbo- urne í Ástralíu og Toronto í Kanada. Samkvæmt óopinberrí könnun sem nefndín hefur látið gera í borguntim sex eru aöstæður í Atlanta, Melboume og Toronto „frábærari', en „góðar" í Aþenu, Manchester og Betgrad. Margir vhja aö Aþena hreppi hnossiö, vegna þess aö þar vora fyrstu ólympíuleikar nútímans haldnir 100 árum áöur, árið 1896. í frétt í enska blaðinu Sunday People er sagt frá því að Alex Ferguson, fram- kvæmdastjóri Manchester United, hafi haft mikinn áhuga á að kaupa Guö- mund en eftir að hann meiddist í bikar- leik gegn Arbroath fyrir viku hafi máhð verið sett th hhöar, „í kæli í 3 mánuöi". Ráða má af fréttinni í Sunday People að menn hafa tahð meiðsli Guömundar alvarlegrftn þau í raun em en hann er þegar orðinn góður af meiðslunum. Handboitastúfar • Þjálfararáðstefna veröur haldin í Hafnarfirði 7.-9. september. Aðal- fyrirlesari á ráöstefnunni yerður landsliösþjálfari Spánverja, Javier Cuesta. Einnig mun Þorþergur Aðal- steinsson landsliösþjálfari halda er- indi. Ráöstefnan verður í fyrirlestra- formi og aðalþemað verður útfærsla á 6-0 vöminni en Spánverjar og Svíar hafa náð hvað bestum tökum á henni. • Siguijón Sigurösson, sem lék með Val á síðasta keppnistímabili hefur ákveðið að leika með Haukum í vetur en gengið var frá félagaskiptum um helgina. Sigurjón er kunnugur í her- búðum Hauka því hann lék með fé- laginu fyrir fáeinum árum. • Fræðslunefnd HSÍ undir stjórn Þórs Valtýssonar mum hefja útgáfu á fréttabréfi HSÍ og hefur fyrsta fréttabréfið göngu sína í 1. umferð á íslandsmótinu. Bréfið verður gefiö út í átta þúsund eintökum og veröur dreift út á keppnisstöðum og í því verða helstu upplýsingar um starf- andi nefndir innan HSI. Fréttabréfið mun koma út fjórum sinnum í vetur. • Um hádegisbilið í dag verður dreg- ið á Evrópumótunum í handknatt- leik. Drátturinn fer fram í aðalstöðv- um alþjóðahandknattleikssam- bandsins í Basel í Sviss. Þrjú íslensk karlahð eru í hattinum, FH í keppni meistaraliða, Valur í keppni bikar- hafa og Stjaman í keppni félagshða. Framstúlkur taka þátt í Evrópu- keppni meistarahða. • 16. september veröur dregið í riðlakeppni í B-heimsmeistara- keppninni í handknattleik. Keppnin verður haldin í Austurríki 1992 og mup dráttur í riðlakeppnina fara fram í Vín. Nokkur spenna ríkir fyr- ir dráttinn því margar sleipar hand- knattleiksþjóðir verða í hattinum og því ekki auðunnið að vinna sæti í A-keppninni sem verður í Sviþjóð 1993. Það er því spurning hvað Ferguson gerir þegar hann fréttir að „Ejólfur sé að hressast." í Sunday People á sunnu- dag segir einnig að áhugi Fergusons á að kaupa Guðmunmd hafi kviknað eft ir að hann hafi skorað 3 mörk gegn Manchester United í æfingaleik á dög- unum. Ferguson verður að vera fljótur að opna veskið. í knattspyrnutímaritinu Shoot sem • Hreinn Þorkelsson þjálfari, Gennadi Perc

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.