Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1990, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990.
Utlönd
Heruppbyggingin við Persaílóa:
Liðstyrkur Bandaríkjanna
kannski tvöfaldaður
olíuverð hækkar vegna aukinnar spennu
Portúgala fagnaö við komuna til Lissabon frá Irak í gær. Tuttugu og fimm Portúgalir, sem unnið höfðu við bygg-
ingu nýrrar hallar fyrir íraksforseta, fengu leyfi til að fara frá írak.
Bandaríkin íhuga nú eflingu lið-
styrks síns við Persaflóa. Dick Che-
ney, vamarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, sagði í sjónvarpsviðtali í
gær að yfirvöld kynnu aö senda
hundrað þúsund hermenn til við-
bótar þeim tvö hundruð og tíu þús-
und sem fyrir eru.
Cheney sagði að Bandaríkjamenn
þyrftu að vera viðbúnir árás íraka á
Israel og olíuhndir í Saudi-Arabíu.
Saddam Hussein íraksforseti, sem
fyrirskipaö hefur bensínskömmtun í
írak, hefur hótað slíkum árásum ef
viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna
þrengir mjög að efnahag íraks.
Taismaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins kvaðst ekki útiloka að
liðstyrkurinn við Persaflóa yrði tvö-
faldaður. WiUiam Webster, yfirmað-
ur bandarísku leyniþjónustunnar,
CLA, sagði í ræðu að írakar heföu
fjölgað í herhði sínu í Kúvæt síðustu
þrjár vikurnar og að þeir væru búnir
undir efnavopnastríð.
Edward Heath, fyrrum forsætis-
ráðherra Bretlands, sem hitti Sadd-
am Hussein í Bagdad á sunnudaginn
og fékk með sér heim tugi breskra
gísla, er sagður hafa tjáö flokksfélög-
um sínum að Saddam myndi beita
efnavopnum og fara illa með gísla
ef ráðist yrði á hann.
Blaðið The Financial Times greinir
frá þvi að írakar hafi nær lokið við
að reisa markalínu úr steinsteypu
og gaddavír gegnum Kúvæt meðfram
hinum nýju syðri landamærum
Basrahéraðs í írak. Fréttir frá Sovét-
ríkjunum herma aö írakar kunni að
vera fúsir til að hörfa frá suðurhluta
Kúvæts. í Bagdad hefur þeim fregn-
um verið vísað á bug. írakar eru
einnig sagðir hafa komið fyrir
sprengjum við þrjú hundruð af þús-
und ohuborholum í Kúvæt til aö
hindra árásir Bandaríkjanna og
bandamanna þeirra.
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, sem nýkominn er úr ferö um
Miðausturlönd, hefur samþykkt aö
sendir verði fleiri skriðdrekar og
herflugvélar frá Egyptalandi til
Saudi-Arabíu og Sameinuðu arab-
ísku furstadæmanna. Þetta kom
fram í egypskum dagblöðum í morg-
un en hefur ekki verið staðfest opin-
berlega.
Heimsmarkaðsverð á hráolíu
hækkaði talsvert í gær. Var það með-
al annars vegna ummæla Mitter-
rands Frakklandsforseta um að hann
tryði ekki á friðsamlega lausn Persa-
flóadeilunnar og orðróms um að
Bandaríkin hefðu ráðist inn í Kú-
væt. Á mörkuöum í New York fór
verðið í 34,25 dollara á tunnuna en á
mánudaginn var þaö komið niður í
28,38 dollara.
Saddam Hussein hefur ákveðið að
veita sjö 'hundruð Búlgörum, sem
verið hafa innlyksa í írak, fararleyfi.
Þetta var tilkynnt í lok fjögurra daga
heimsóknar varaforseta Búlgaríu,
Atanas Semerjhev, til íraks. Fyrrum
forsætisráðherra Japans, Yasuhiro
Nakasone, hyggur nú á ferð til Jap-
ans í byrjun nóvember. Um þrjú
Símamynd Reuter
hundruð og fimmtíu Japanir eru í
írak og Kúvæt. Margir þeirra eru
sagðir vera í haldi á hernaðarlega
mikilvægum stöðum.
Tuttugu og átta írum, sem unnið
hafa að byggingu hallar fyrir Sadd-
am Hussein, verður veitt fararleyfi
þar sem forsetinn er svo ánægður
með vinnubrögð þeirra. í gær fóru
tuttugu og fimm Portúgahr, sem
unnið höfðu við haharbygginguna,
heim.
Reuter
Þjóðernisdeil-
ur magnast
Þjóðernisdeilur í Moldóvu
magnast nú dag frá degi og gætu
endað með borgarastryjöld takist
stjórn lýöveldisins ekki að lægja
öldurnar. Kaha þurfti út nokkur
þúsund her- og lögreglumenn til
að koma í veg fyrir að fjöldi
manna af rúmenskum uppruna
legði til atlögu við Tyrki sem eru
minnihlutahópur syðst í landinu.
Moldóva hét áður Sovétlýðveld-
ið Moldavía en í sumar var
ákveðið að skipta um nafn eftir
að sjálfstæði var lýst yfir. Sjálf-
stæðið er þó ekki enn nema oröin
tóm og Moldóva er enn eitt af
fimmtán lýðveldum Sovétríkj-
anna.
íbúar þar eru flestir af rúm-
enskum uppruna en þó eru í
landinu minihlutahópar bæði
Tyrkja og Rússa.
Tyrkneski minnihlutinn hefur
þegar lýst landsvæðið, sem hann
byggir, sjálfstætt og efndi th þing-
kosninga i gær þrátt fyrir að
stjórn lýðveldisins hefði varað
hann við að gera nokkuð það sem
valdið gæti óróa i öðrum lands-
hlutum.
„Staðan, sem upp er komin, er
mjög flókin en nú sem stendur
stefnir aht í átök fyrr eða síðar,*‘
er haft eftir Pyotr Buzadishi, ein-
um af leiðtogum lýöveldis Tyrkja
í Moldóvu.
Gorbatsjov Sovétleiðtogi hefur
hvatt menn til að sýna stilhngu
en þau orð hans virðast hafa
komíð fyrir htið. Tyrkir í landinu
eru aöeins um 150 þúsund og hafa
aörir ibúar Moldóvu lengi haft
hom í síðu þeirra.
Blóðbaöiö í Jerúsalem:
Búistviðgagn-
rýni álögregiu
Opínber skýrsla ísraeiskra yfir-
valda á blóðbaðinu á Musteris-
hæðinni í Jerúsalem verður
kynnt í dag. Búist er við að yfir-
menn Iögreglunnar verði gagn-
rýndir og að einhverjir þurfi að
víkja úr starfí.
Bæði ísraelskir lögreglumenn
og mannréttindasamtök Palest-
ínumanna iýstu þvi yfir i gær að
átján Palestínumenn hefðu falhð
fyrir hendi ísraelskra lögreglu-
manna en ekki tuttugu og einn
eins og hingað th hefur verið
haldið fram.
ísraelsk yfirvöld neita enn að
eiga samvinnu við rannsóknar-
nefnd á vegum Sameinuðu þjóð-
anna vegna manndrápanna en
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti ályktun gegn ísrael
vegna málsins.
símtöl NATO
Stasi, fyrrum öryggislögregla
Austur-Þýskaiands, hlustaöi á
símtöl í aðalstöðvum Atlants-
hafsbandalagsins, NATO, án
nokkurra örðugleika. Þessu lýsir
yfirmaður þeirra er umsjón hafa
með því að kanna hlerunarút-
búnað Stasimanna yfir í blaöa-
viötáh í dag. Segir yfirmaöurinn,
Klaus-Dieter Heyde, búnaðinn
hafa veriö svo fullkominn að
hægt hafi verið að hlera öh sim-
töl innan Evrópu.
Tæknin var svo háþróuð að
Austur-Þjóðveijar gátu ekki að-
eins vitað hvenær hringt hafði
verið heldur einnig í hvaða núm-
er hafði verið hringt. Mestallur
hlerunarbúnaðurinn var kominn
frá Vesturlöndum en Heyde gefur
ekki nánari skýringu á þvi.
Hann segir allar segulbands-
spólur sem hafa fundist vera auð-
ar sem þýðir að annaðhvort hafi
aht verið þurrkað út eða þær
aldrei notaðar. Hinar hafi líkleg-
ast verið eyðilagðar.
Reuter
Er ekki kominn tími til
að fá nýjan þingmann sem hefur
þekkingu og áhuga á
rekstri og stjórnun
fyrirtækja ?
Kjósum Láru Margréti Ragnarsdóttur
í 4.-6. sæti
í prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík 26.-27. október n.k.
Burt með höft, miðstýringu
og rfkiseinokun.
Kosningaskrifstofa í síma:
27804, 27810, 28817 og 28847.