Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1990, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1990, Side 28
36 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1990. Menning Skemmtilegir tónleikar Sinfóniuhljómsveit íslands hélt tónleika í gærkvöld. Stjórnandi var Páll P. Pálsson en á efnisskránni voru verk eftir Hector Berlioz, stjórnandann Pál P. Pálsson og Witold Lutoslawski. í verki Páls léku þrír félagar í Sinfóníuhljómsveit íslands, þeir Ásgeir Steingríms- son, trompet, Oddur Björnsson, básúna, og Þorkell Jóelsson, horn, saman í tríói á móti hljómsveitinni Berlioz er eitt af sérkennilegri tónskáldum nítjándu aldar. Hann vann fyrir sér með því að skrifa tónlistar- gagnrýni í blöð og greinar hans úr ferð þar sem hann fór á tónleika um alla Evrópu er ein besta og skemmti- legasta heimild sem til er um tónlistarlíf þess tíma. Berlioz var alla tíð umdeildur m.a. fyrir hljómfræði sína. Jafnvel enn þann dag í dag heyrist því haldið fram að hann hafi ekki kunnað hana. í Le corsaire forleiknum mátti vel heyra að Berlioz ekki aðeins kunni hljómfræði heldur gat hann fellt hana að eigin þörfum eftir því sem hann vildi. Þetta verk vel gert og áheyrilegt enda þótt það sé ekki eins hressilega frumlegt og Symphonie Fantastique, sem er hans fræg- asta verk. Sinfonietta concertante eftir Pál er svolítið sérstök fyrir þá sök að notað er málmblásaratríó sem stiilt er upp gegn hljómsveitinni. Minnir þetta á barrokk vinnubrögð og Concerto grosso, sem byggir á á átökum og svörunum milli lítils hóps og stórs. Fleira minnti á barokk eins og þrástef og allt að því hálfgerðar passacagliur sem mátti heyra víða í verkinu. Tónamál- ið er að sjálfsögðu nýstárlegra og má segja að verkið sé blanda af gömlu og nýju. Margir lállegir staðir eru í því, einkum var margt gott í fyrsta kaflanum og þeim hæga, sem hefst á löngu básúnusólói sem Oddur blés Tónlist Finnur Torfi Stefánsson mjög fallega. Concerto grosso hugmyndin gekk full- komlega upp og blásaratríóið virkaði vel, enda spiluðu þeir félagarnir Ásgeir, Oddur og Þorkell eins og engl- ar, bæði í einleiks- og samleiksköflum. Einar Jóhann- esson klarinettuleikari fékk þarna líka tækifæri til að ylja hlustendum um hjartarætur og notaði þaö vel að vanda. Konsert fyrir hljómsveit eftir Lutoslawski er verk sem hann samdi áður en hann varð frjáls til að gera það sem hann vildi. Þetta er glæsilegt verk og nánast kennslubók í klassískri hljómsveitarútsetningu. Kon- sert fyrir hljómsveit er réttnefni því að einleikskaflar eru fyrir flest hljóðfæri hljómsveitarinnar auk marg- víslegra samleikskafla fyrir mismunandi hljóðfæra- hópa. Upphafsstefið minnir töluvert á Síbelíus. Kóral- hugmyndin, sem kemur í fjórða þætti, gæti verið feng- in að láni hjá Alban Berg. Hvað sem því líður þá er verkið skemmtilegt og hljómar vel þótt innviðir þess séu ef til vill ekki ýkja merkilegir. Flutningur hljómsveitarinnar undir stjórn Páls var svolítið misjafn. Stundum var eins og botninn dytti svolítið úr sannfæringunni. En oftast var hann þó frísklegur og tónleikarnir í heild voru mjög ánægjuleg- ir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, Helgu Fjólu Pálsdóttur, Kleppsvegi 30. Sæmundur Sæmundsson Sigriður Theodóra Sæmundsdóttir Guðni Kristinsson Margrét Sæmundsdóttir Jón Marvin Guðmundsson Sæmundur Sæmundsson Elisabet Kristjánsdóttir og barnabörn Leiðrétting Eiríkur Jónsson, dagskrárgerðar- maður á Bylgjunni, hafði samband við DV vegna Sandkorns sem birtist í blaðinu á miðvikudag en þar var sagt frá leiðindapúkakosningum. Eiríkur kvað það alrangt sem kom fram í Sandkorni að hann hefði stað- ið fyrir því að láta kjósa leiðindapúka vikunnar í þáttum sínum, það hefði verið gert á annarri útvarpsstöð og hann hefði þar hvergi komið nærri. DV biður hlutaðeigandi afsökunar á mistökunum. Jarðarfarir Elísabet Björnsdóttir, Lindarflöt 6, Garðabæ, andaðist í Landakotsspít- ala 18. þessa mánaðar. Jarðarförin hefur farið fram í kyyrþey að ósk hinnar látnu. Randver Kristjánsson, Hveramörk 14, Hveragerði, verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 24. nóvember kl. 14. Haraldur Elíasson múrarameistari, Dalbraut 27, verður jarðsunginn frá Hábæjarkirkju, Þykkvabæ, laugar- daginn 24. nóvember kl. 14. Gísli Guðmundsson bifreiðastjóri, Teigaseli 3, Reykjavík, verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju mánu- daginn 26. nóvember kl. 13.30. Sigríður Árnadóttir lést 11. nóvem- ber. Hún fæddist í Reykjavík 9. sept- ember 1909. Foreldrar hennar voru Árni Árnason og Valgerður Gísla- dóttir. Sigríður giftist Ingólfl Einars- syni og eignuðustþau þrjú börn. Þau slitu samvistum. Utför Sigríðar verð- ur gerð frá Fossvogskapellu í dag kl. 15. Þórgunnur Kristbjörg Sveinsdóttir lést 13. nóvember. Hún fæddist á Akureyri 1. apríl 1922, dóttir hjón- anna Svövu Magnúsdóttur og Sveins Helgasonar. Þórgunnur giftist Birni Jónssyni en hann lést árið 1985. Þau eignuðust fjögur börn. Útför Þór- gunnar verður gerð frá Hallgríms- kirkju í dag kl. 13.30. Tilkyiiningar Borgfirðingafélagið í Reykjavík heldur upp á 45 ára afmæli sitt laugardag- inn 1. desember með árshátíð í Hreyfils- húsinu viö Grensásveg. Skemmtiatriði, dans og matur. Húsið opnað kl. 20. Þátt- taka óskast tilkynnt til Svavars s. 38174, Sigurðar s. 24713 og Sölva s. 14335 sem gefa allar nánari upplýsingar. Svikinn - ný bók frá Lilju Komin er út bókin Svikinn eftir Banda- rikjamanninn Stan Telchin. Bókagerðin Lilja annast útgáfuna 1 samvinnu við Samtök um kristna boðun meðal gyð- inga. í bókinni er rakinn eins konar trú- arárekstur sem verður innan banda- rískrar gyðingaijölskyldu þegar önnur dóttirin á heimilinu gerist kristin. Bókina þýddu sr. Magnús GuðmundSson og Benedikt Jasonarson en prentvinnsla fór fram hjá Prentstofu G. Benediktssonar. Bókin er kiþa, 144 bls. að stærð. Fyrirlestrahald um dulspeki Leifnr Leopoldsson vökumiðill býður upp á fyrirlestrahald fyrir skóla, klúbba og aöra hópa um dulspeki, fyrri lif, frjáls- an vilja, karma og „andlegt kynlíf' og annað er tengist heildrænum málefnum. Þá svarar hann einnig fyrirspurnum. Upplýsingar í síma 29144 milli kl. 16 og 19 virka daga. Glerlistamaður í verslun Hjartar Nielsen í versluninni Hirti Nielsen, Mjódd, er nú staddur tékkneski glerlistamaðurinn Josef Adamek. Hann sker í glös og aðra muni bæði stafi, dagsetningar og annað skraut. Vélin, sem hann notar, er niutíu ára gömul og var áður fótstigin. Hann kom með hana með sér frá Tékkóslóvak- íu og vinnur hann munina eftir aldagam- alli hefð. Verslunin Hjörtur Nielsen selur kristal frá Tékkóslóvakiu sem er allur handunrúnn á þennan hátt. Josef Ada- mek hefur unnið viö þetta frá 15 ára aldri Hann hefur í fjölda ára hannað munstur og unnið að gerð glerhstaverka. Eftir fall kommúnistastjórnarinnar og rekur hann sitt eigiö fyrirtæki. Hann verður í versl- uninni til og með 1. desember nk. kl. 12-18 alla virka daga og kl. 10-16 laugardaga. Jólamerki kvenfélagsins „Framtíðin“, Akureyri er komið út. Aö þessu sinni teiknaði frú Kristín Pálsdóttir merkið. Sölustaðir eru pósthúsið á Akureyri, Frímerkjahúsið og Frímerkjamiðstöðin í Reykjavík. Auk þess sjá félagskonur um sölu á Akur- eyri. Merkið kostar 15 kr. stykkið, 180 kr. örkin. Ágóðin rennur í elliheimilis- sjóð. " Tapadfundið Týnd læða Þessi læða týndist laugardaginn 10. nóv- ember frá Vesturgötu 58 b. Hún er svört og hvít, sex mánaða gömul, fingerð og sérstaklega gæf. Hún var merkt með sjálflýsandi ól og rauðu merkispjaldi. Það sást til hennar í Fischersundi vikuna 11.-17. nóv. Ef einhver hefur séð til henn- ar eftir það og getur gefið upplýsingar, þá vinsamlegast hringið í síma 601912 frá kl. 8-16 eða í síma 625553 eftir kl. 16 og spyijið um Silvíu. 3 kettir týndir 2 þrílitar læður og 1 bröndóttur högni og eru í óskilum hjá Kattavinafélaginu. Upp- lýsingar í síma 672909. Athugasemd Hjörleifur Guttormsson gerði at- hugasemd við það sem haft er eftir honum í DV á miðvikudag um trún- aðarmenn KGB á íslandi. í fyrsta lagi benti Hjörleifur á að Vínarsátt- málinn sé frá 1961, ekki 1985, og hafí verið lögfestur hér á landi 1971. í öðru lagi sagðist Hjörleifur hafa komið við á kaupstefnu í Leipzig 1975, ekki ráðstefnu 1985, á leiö sinni til Vestur-Þýskalands. Þurfti hann ekki vegabréfsáritun þangað. Beðist er velvirðingar á mistökunum. -hlh Leikhús HUGLEIKUR sýnir sjónleikinn ALDREI FER ÉG SUÐUR Höfundar: Ingibjörg Hjartardóttir og Sigrún Óskarsdóttir. Leikstjóri: Ingibjörg Hjartardóttir. Lýsing: Árni J. Baldvinsson. Frumsýning 24.11. kl. 20.30. 2. sýn. 27.11. kl. 20.30. 3. sýn. 29.11. kl. 20.30. 4. sýn. 1.12. kl. 20.30. 5. sýn. 2.12. kl. 20.30. 6. sýn. 5.12. kl. 20.30. 7. sýn. 7.12. kl. 20.30. 8. sýn. 8.12. kl. 20.30. 9. sýn.12.12. kl. 20.30. 10. sýn.14.12. kl. 20.30. Aðeins þessar 10 sýningar. Sýnt er á Galdraloftinu, Hafnarstræti 9. Miðapantanir allan sólarhringinn i síma 24650. Barnaleikritið Elsku Míó minn eftir Astrid Lindgren í Hlégaröi, Mosfellsbæ. Laugard. 24. nóv. kl. 14.00. Laugard. 24. nóv. kl. 16.30. Laugard. 1. des. kl. 14.00. Laugard. 1. des. kl. 16.30. Sunnud. 2. des. kl. 14.00. Sunnud. 2. des. kl. 16.30. Miðasala i Hlégarði opin virka daga kl. 17 19 og sýningar- daga tveim timum fyrirsýning- ar. Ósóttar miðapantanir seldar degi fyrir sýningardag. Miðapantanir í síma 667788. Leikfélag Mosfellssveitar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.