Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 1990. 15 Flokkur með fortíð „Þeir höfðu ffestir (Ásgeir Hannes sjálfur, Óli Þ. Guðbjartsson og Júlíus Sólnes) einmitt tapað i prófkjörum Sjálfstæöisflokksins." Þegar talað er um konu með for- tíð, vita allir, hvað átt er við: Konan hefur eitthvað að skammast sín fyrir. - Svipað er að segja um Borg- araflokkinn. Hann er ekki flokkur með framtíð, eins og segir í áróðri hans, heldur flokkur með fortíð, því að hann hefur ýmislegt á sam- viskunni, þar á meðal ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. Hann var stofnaður í stundarbræði nokkurra fylgismanna Alberts Guðmundssonar, eftir að Albert hafði verið gert að segja af sér ráð- herradómi voriö 1987.. Forystumenn Sjálfstæðisflokks- ins voru ekki að leika sér að því að setja Albert þann kost: Þeir töldu blátt áfram ekki rétt, að mað- ur, sem hefði í fjármálaráðherratíð sinni skilað röngu skattframtali, héldi trúnaðarstöðu á vegum flokksins. Þá varð þeim og mörgum öðrum starsýnt á það, að Albert hafði um skeið verið stjórnarfor- maöur Hafskips og formaöur bankaráös Útvegsbankans, sem varð í raun gjaldþrota vegna við- skipta við Hafskip. Þetta var auð- vitað skýrt dæmi um hagsmuna- árekstur. Mildi og mannúð? Nú hefur einn fyrrverandi vinur Alberts, Ásgeir Hannes Eiríksson, pylsusali og alþingismaður, tekið saman sögu Borgaraflokksins, eins og hún lítur út frá bæjardyrum hans, og heitir hún að vonum Ein með öllu. Margt var skrýtiö um Borgara- flokkinn. Hann gekk fram undir kjörorðunum: Mildi og mannúð. KjaUajinn Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson lektor i stjórnmálafræði En hvernig fer það saman við það, að leiðtogi hans rýkur á ljósmynd- ara og brýtur úr honum tennum- ar? - Mér er fyrirmunað að koma auga á mildi og mannúð við slíkt athæfi! Þá hældi Albert sér jafnan af því að vera fyrirgreiðslumaður í stjórnmálum. En tvennt er að fyrirgreiðslu- mönnum. Annað er, að þeir kippa oft vinum sínum úr biðröð eftir gæðum, og beita með því aðra órétti. Hitt er, að þeir eru oftast góðir fyrir annarra manna fé. Manngæsku fólks er sem kunnugt er engin takmörk sett, geti það treyst því, að það þurfi ekki sjálft að greiða fyrir hana. Ekkert án Alberts Þetta breytir því ekki, að Albert Guðmundsson er um margt svip- mikill einstaklingur. Um dugnað hans og kapp efast enginn, og hann er miklu greindari en margir halda, hygg ég. Að minnsta kosti hefur hann sterka eðlisávísun og getur veriö ótrúlega orðheppinn, sér- staklega þegar á reynir. Sá mis- skilningur gengur eins og rauður þráður um alla bók Ásgeirs Hann- esar Eiríkssonar, að þeir borgara- flokksmenn hafi getað orðiö eitt- hvað án Alberts. En svo var ekki. Albert var flokkurinn og sigur hans í þingkosningunum 1987 var sigur Alberts. Án Alberts skiptu þessir menn litlu sem engu máli, eins og er nú aö koma á daginn. Þeir höfðu flest- ir (Ásgeir Hannes sjálfur, Óli Þ. Guðbjartsson og Júlíus Sólnes) ein- mitt tapað í prófkjörum Sjálfstæð- isflokksins. Eins og Friörik Soph- usson hefur sagt, senda menn ekki samúðarskeyti nema einu sinni. Óvild og minni- máttarkennd Raunar viðurkennir Ásgeir Hannes þetta óbeint á 101. bls. rits- ins. Hann segir þar, að Albert hafi aldrei .viljað stofna eigin flokk, heldur kunnað því best að semja sig til aðstöðu og áhrifa innan Sjálf- stæðisflokksins. Síðan segir: „Á sama hátt var það líka eigingirni hjá okkur hinum að taka þátt í framboðinu með karlin- um. Freista þess að hirða molana sem hrukku af borðum framboðs- ins og hreppa þingsæti í þessu mikla umróti. Láta gamla draum- inn rætast og jafna stigin við Sjálf- stæðisflokkinn en við höfðum sum- ir farið halloka í prófkjörum á þeim bæ. Við vorum sem betur fer bara mannlegir." Mjög gætir óvildar og minnimátt- arkenndar í garð Sjálfstæðisflokks- ins í þessari bók. En nú er Ásgeir Hannes Eiríksson kominn í lið með þeim Svani Kristjánssyni, Ámunda Ámundasyni og fleiri finum papp- írum, svo að honum hlýtur að líða betur. Hannes Hólmsteinn Gissurarson „Sá misskilningur gengur eins og rauð- ur þráður um alla bók Asgeirs Hannes- ar Eiríkssonar, að þeir borgaraflokks- menn hafi getað orðið eitthvað án Al- berts.“ Að eldast í uppaborg „Enn munu reykvískar fjöiskyldur leita vistar fyrir ættmóðurina eða -föð- urinn austur í sveitum.. I kosningabaráttunni síðastliðið vor lögðum við, fulltrúar Nýs vett- vangs, ríka áherslu á þörf fyrir stóraukna þjónustu við reykvískar fjölskyldur. Við héldum því fram að ófullnægjandi þjónusta borgar- innar bitnaði harðast á börnum og gömlu fólki. Niðurstöður kosninganna bentu ekki til þess að Reykvíkingar al- mennt væru sammála okkur um þörfina fyrir gjörbreytt ástand. Ég á þó bágt með aö trúa því að borg- arbúar séu sáttir viö þær aðstæður sem birtast í svari öldrunarþjón- ustudeildar Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar við fyrirspurn minni í borgarráði fyrir nokkru. 700 í brýnum forgangi 700 manns af þeim 1300-1400 öldr- uðum á biðlistum borgarinnar eru metnir í brýnan forgang, það er „í brýnni þörf fyrir úrlausn og geta ekki lengur búið við núverandi aöstæðúr þrátt fyrir umfangsmikla þjónustu ellegar eru í húsnæðis- hraki“. Rúmlega 200 manns af þessum 700 bíða eftir hjúkrunarrými, hinir skiptast nokkuð jafnt í brýnan for- gang eftir vistheimilisrými eða eft- ir einþvers konar íbúðarhúsnæði. í svari öldrunarþjónuStudeildar- innar kemur fram að tæplega 60% þeirra sem eru í brýnum forgangi eftir einhvers konar íbúð eru leigj- endur eða búa hjá ættingjum. Þeir hafa því enga íbúðareign til þess að láta upp í kaup á söluíbúö aldr- aðra. Viðbótarúrræði Sjálfstæöis- flokksins fyrir þennan hóp fólks frá og með árinu 1986 hafa verið kaup á 45 almennum leiguíbúðum í ná- grenni þjónustumiðstöðva sem frá- teknar eru fyrir aldraða. Engar nýjar þjónustuíbúðir, ætl- aðar til leigu, hafa bæst við í eigu borgarinnar síðustu 11 árin. Vist- Kjallariim Kristín Á. Ólafsdóttir borgarfulltrúi Nýs vettvangs heimilin Droplaugarstaðir og Selja- hlíð voru tekin í notkun 1982 og 1986. Það blasir því við að borgin hefur lítið sem ekkert gert undan- farin ár til þess að leysa vanda gamla fólksins sem býr í ótryggu eða óhentugu húsnæði og ræður ekki við fasteignakaup. Við Lindargötu byggir borgin nú 94 íbúðir aldraðra sem áætlað er aö ljúka við 1993. Sjálfstæðismenn felldu tillögu minnihlutans um að það yrðu eingöngu leigu- og hlut- deildaríbúðir. Rúman fjórðung á að selja fullu verði en leiguíbúðir verða 54. Hætt er því við að þeir hátt í 150 manns, sem metnir eru í brýnan forgang eftir einhvers kon- ar íbúð og eiga ekki fasteign sjálfir, fái að bíða enn um sinn. Beðið fram að aldamótum? Sárast er þó úrræðaleysið hjá því gamlaíólki sem misst hefur heils- una og bíður eftir hjúkrunarrými. Þannig er nú ástatt með rúmlega 200 íbúa ríkasta sveitarfélags landsins, sveitarfélags sem horfir ekki í eyrinn þegar velmegunin skal sýnd í glæstum ytri táknum. Eftir að hafa fellt nokkrum sinnum tillögur frá minnihlutanum í borg- arstjórn um að hefja byggingu hjúkrunarheimilis fóru Sjálfstæð- ismenn loks af stað á síðasta ári í samvinnu viö fleiri aðila. Heimilið verður tekiö í gagnið í áföngum 1992-1994. Þar verða að hámarki 100 rúm og þau nýtast ekki öll Reykvíkingum. Enn munu því Sjálfstæðismenn hvetja elstu Reykvíkingana til þess að sýna biðlund, jafnvel fram undir aldamót. Enn munu reykvískar fjölskyldur leita vistar fyrir ætt- móðurina eða -foöurinn austur í sveitum, á Kumbaravogi nærri Stokkseyri eða að Blesastööum á Skeiðum. Hvert renna milljarðarnir? Fyrir 60 árum hófu Reykvíkingar framkvæmdir við hitaveitu og kostuðu miklu til. Þeir sem báru þungann af þeim kostnaði fylla nú hóp eldri borgarbúa. Skyldi það ekki vera þeim umhugsunarefni að þetta stönduga fyrirtæki þeirra notar rúman milljarð af arði sínum til þess að reisa glæsilegt veitinga- hús? Hefði ekki verið betur við hæfi að verja umframfénu í þágu þess fólks sem byggöi upp þetta þarfaþing borgarbúa? Milljarðinn í Öskjuhlíðarhúsið má líka skoða í ljósi þeirra fjár- hæða sem borgarsjóður leggur í framkvæmdir í þágu aldraðra á fjögurra ára tímabili, 1987-1990.870 milljónum er varið í þessar þarfir en á sama tímabili setja Reykvík- ingar 1770 miUjónir í ráðhússbygg- ingu sem hvergi er þó lokið enn. Hjúkrunarheimili, húsnæðisöryggi og heimaþjónusta Fjárfesting í hjúkrunarrýmum, húsnæðisöryggi og stórbættri heimaþjónustu fyrir aldraða er nauðsyn í Reykjavík. Tvennt hið síðarnefnda er forsenda þess að gamalt fólk geti búið heima hjá sér í stað þess að dvelja á stofnunum. Ef Reykvíkingar kjósa umhyggju fyrir fólki frekar en ytri tákn um velferð verða þeir að veita úr sjóð- um sínum til þessara þarfa. Um jól og áramót veltum viö fyr- ir okkur spurningum um raun- veruleg verömæti. Er þá gjarnan stillt upp sem andstæðum: um- hyggju meðal manna og ytri um- búðum hátíðanna. Spurningar sem þessar mættu veröa áleitnari allt árið í reykvískum stjórnmálum. Gleðilega hátíð! Kristín Á. Ólafsdóttir „Sárast er þó úrræðaleysið hjá því gamla fólki sem misst hefur heilsuna og bíður eftir hjúkrunarrými. Þannig er nú ástatt með rúmlega 200 íbúa rík- asta sveitarfélags landsins...“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.