Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Side 27
FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 1990.
31
Fréttir
Skóverksmiðja flutt
upp í Reykholtsdal
Bergþór G. Úlfersson, DV, Borgarfiröi:
Á síðasta ári festu tveir ungir
menn, þeir Örn Harðarson og Magn-
ús Magnússon, kaup á skóverksmiðj-
unni TÁP sem starfrækt var í Borg-
amesi og fluttu þeir verksmiðjuna
upp í Reykholtsdal.
Þar vom þeir fyrst í húsnæði á
Kleppjárnsreykjum sem áður fyrr
halði verið notað sem þvottahús. Nú
hafa þeir flutt starfsemina í mun
stærra húsnæði að Reykholti jafn-
framt sem þeir eru að auka ljöl-
breytni í framleiðslu sinni.
TÁP-skómir, sem eru uppistaðan í
framleiðslunni, eru svokallaðir
heilsuskór framleiddir eftir þýsku
einkaleyfi og hefur framleiðslan
gengið vel það sem af er.
Nú hafa þeir hafið smíöi reiðtygja,
auk viðgerða og annarrar þjónustu
tengdrar þeim.
F.v. Ásthildur Thorsteinson, Örn Harðarson og Magnús Magnússon í skó-
verksmiðjunni TÁP.
Sauðárkrókur:
Frumkvöðlar í atvinnumálum stof na félag
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauöárkróki:
Hópur áhugamanna um atvinnu-
mál og atvinnuþróun á Sauðárkróki
hefur ákveðið aö kanna áhuga fyrir-
tækja á þátttöku í félagsskap um
sérstakt atvinnuátak í bænum.
Áformað er að það standi yfir í tvö
ár og ráðinn verði starfsmaður í
þann tíma.
Sex einstaklingar eru frumkvöðlar
í þessu efni: Árni Ragnarsson arki-
tekt, Einar Einarsson, Steinullar-
verksmiðjunni, Ingi Friðbjörnsson,
Króksverki, Guðmundur Guð-
mundsson, Trésmiðjunni Borg, og
Jón E. Friðriksson og Þórólfur Gísla-
son er starfa hjá Kaupfélagi Skag-
firðinga. Stofnfundur er áformaður í
Safnahúsinu fimmtudaginn 17. jan-
úar nk.
Hugmyndin er að vinna að frekari
eílingu atvinnulífs í bænum með
stofnun nýrra fyrirtækja og með nýj-
um starfsgreinum hjá starfandi fyr-
irtækjum. Til jöfnunar aðstöðu fyrir-
tækja við þátttöku í félaginu er ráð-
gert að skipta framlögum þeirra í
hlutafjárframlög og rekstrarframlög.
Hlutafiárframlögin yrðu jöfn, kr. 50
þúsund, en rekstrarframlögin mis-
munandi eftir stærð fyrirtækja. Fyr-
ir þau sem hafa 21 starfsmann eða
fleiri 350 þúsund, 11-20 starfsmenn
200, 6-10 100 og þau sem hefðu færri
en fimm starfsmenn greiddu 50 þús-
Sauðárkrókur:
und.
Aðrar kvaðir fylgja ekki þátttök-
unni og þau fyrirtæki, sem gerðust’
aðilar, hefðu forgang um þau tæki-
færi og möguleika sem upp kæmu.
Auk þess er gert ráð fyrir að leitað
verði aðstoðar iðnaðarráðuneytis og
Byggðastofnunar. í bréfi, sem áhuga-
hópurinn hefur sent 90 fyrirtækjum
í bænum, segir einnig að öllum sé
ljóst að þörf sé nýjunga í atvinnulífi
og þjónustu í bænum til að útvega
ungu, dugmiklu fólki starfsvettvang.
Aukning atvinnutækifæra með nýj-
um fyrirtækjum og eða stækkun
þeirra sem fyrir eru hefði margfeld-
isáhrif sem kæmu öllu atvinnulífi til
góða.
Naf ni fjölbrautaskólans breytt
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
Við undirskrift samninga milli
héraðsnefnda Skagfirðinga, Austur-
Húnvetninga og bæjarstjórnar Siglu-
fiarðar fyrir skömmu um uppbygg-
ingu fiölbrautaskólans var nafni
skólans breytt í Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðárkróki.
Héraðsnefnd Vestur-Húnvetninga
hefur ekki lokið umfiöllun um málið
og bíður það vorfundar.
Menntamálaráðherra og þingmenn
voru viðstaddir undirskrift samn-
inga. Þorbjörn Árnason, formaður
skólanefndar, stýrði fundi og þakk-
aði öllum sem að málinu hefðu unn-
ið. Um tímamótasamning væri að
ræða í sögu skólans, fram undan
væri uppbyggingin og sköpum skipti
að heimaaðilar stæðu saman.
„Samningurinn mun auðvelda
uppbyggingu skólans og hefur ótví-
rætt gildi fyrir skólann og kjördæm-
ið,“ segir Jón Hjartarson skólameist-
ari. Með samningunum er verksvið
skólans stækkað nokkuð. Sá þáttur,
sem erfiöast var að ná samkomulagi
um, var heimakstur nemenda. Hann
verður nú um aðra hverja helgi.
Valgarður Hilmarsson, formaður
héraðsnefndar Austur-Húnavatns-
sýsiu, lýsti yfir ánægju sinni með
samninginn og taldi hann góða byrj-
un á frekara samstarfi sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra um öfluga upp-
byggingu skólans og menntamála í
kjördæminu. Páll Pétursson alþing-
ismaður sagði skólann gegna mikil-
vægu hlutverki í menntun og menn-
ingu kjördæmisins og styðja bæri við
uppbyggingu hans af öllum mætti.
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra taldi samning þann, sem gerð-
ur hafði verið, gott fordæmi um sam-
starf sveitarfélaga annars staðar á
landinu.
Þess má einnig geta að í undirbún-
ingi er á vegum fiölbrautaskólans að
stofna til farskóla sem yrði með þeim
hætti að námskeiö yrðu færð milli
staða. Er þarna aðallega verið að
hugsa um að sinna þörfum atvinnu-
lífsins og verður leitað eftir sam-
vinnu fyrirtækja og verkalýðsfélaga.
Byggðasafn
í Norska
húsinu
Ingibjörg Hinriksdóttir, DV, Stykkishólini:
Á fundi Héraðsnefndar Snæfells-
ness hefur verið samþykkt reglugerð
um safna- og menningarmálanefnd
Snæfellsness. Nefndin á að sjá um
rekstur safna í héraðinu og útgáfu-
mál. Þegar hafði verið ákveðið að
hefia rekstur byggðasafns í Norska
húsinu í Stykkishólmi. Einnig að efla
rekstur annarra safna í héraðinu,
meðal annars söfnin í Ólafsvík og á
Hellissandi, bæði fiárhagslega og fag-
lega.
Norska húsið í Stykkishólmi verður innan skamms opnað sem safnhús.
DV-mynd Ingibjörg
TOSHIBA
Hátækni sjónvörp
með afburða mynd og hljómgæðum
Það stórglæsilega 34"
Eitt glæsilegasta sjónvarpstækið sem
sést hefur í Evrópu. Hlaðið tækninýj-
ungum. Sjón er sögu ríkari.
Takmarkað magn á jólatilboðsverði.
Það vinsæla 28"
Gerð 285D8D
2x15 vött, nicam
stereo, 4 hátalar-
ar, skjátexti, tele-
text-super VHS,
fjarstýring:
Verð
129.800, -
Staðgr.
120.800, -
Það kraftmikla 21
Gerð 218D9D
stereo, 2x15 vött,
lausir hátalarar,
super-VHS,
euro-multi stand-
ard.
Verð 86.900,-
Staðgr. 79.900,-
n
Það hagstæða 25
Gerð Tatung 25
stereo, 2x10 vött,
FST flatur skjár,
CX gangverk, fjar-
stilling, euro-scart
tengi.
Verð 79.900,-
Staðgr. 74.300,-
n
n
Það ódýra 20
Gerð Tatung 20
Black Quarts,
myndlampi, full-
komin fjarstýring.
Verð 44.900,-
Staðgr. 42.700,-
Euro - Visa greiðslukjör
Einar Farestveit&Co.hf.
BORGARTÚNI 28, SÍMI 622901