Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Side 32
36
FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 1990.
Andlát
Jóhannes Jónsson frá Flóðatanga
lést 21. desember á dvalarheimili
aldraðra í Borgarnesi.
Kristín Jakobína Sigurðardóttir,
Furugerði 1, Reykjavík, andaðist á
Borgarspítalanum 19. desember.
Gunnlaugur S. Björnsson, Stranda-
seli 9, lést fostudaginn 21. desember.
Jarðarfarir
Sveinn Sveinsson, Gyðufelli 2,
Reykjavík, lést á Landspítalanum
þann 19. þessa mánaðar. Utfórin fer
fram frá Fossvogskirkju í dag,
fimmtudaginn 27. desember, kl. 13.30.
Ágúst H. Kristjónsson, fyrrverandi
lögregluþjónn, Akralandi 3, verður
jarðsunginn frá Kristskirkju, Landa-
koti, fimmtudaginn 27. desember kl.
13.30.
Maria Sigurðardóttir, Sólheimum 44,
Reykjavík, sem lést á heimili sínu
þann 18. desember, verður jarðsung-
/ /
EINSTAKT A ISLANDI
BLAÐSÍÐUR
FYRIR
KRONUR
8ÝÐUR NOKKUR BEIUR?
Úrval
TÍMARIT FYRIRALLA
in frá Fossvogskirkju þann 28. des-
ember kl. 15.
Árni Sæmundsson, Bala, Þykkvabæ,
verður jarðsunginn frá Hábæjar-
kirkju, Þykkvabæ, 28. desember kl.
14. Bílferð verður frá BSÍ kl. 11.30
sama dag.
Ambergur Stefánsson verður jarð-
sunginn frá Borgameskirkju laugar-
daginn 29. desember kl. 14.
Messur
Laugarneskirkja:Kyrrðarstund í hádeg-
inu í dag. Orgelleikur, fyrirbænir, altaris-
ganga. Léttur hádegisverður eftir stund-
ina.
Happdrætti
Hausthappdrætti Félags
heyrnarlausra
Dregið var í Hausthappdrætti Félags
heymarlausra þann 18. desember sl. og
eru vinningsnúmer eftirfarandi: 1.15408,
2. 270, 3. 13829, 4. 273, 5. 18001, 6. 12720,
7. 3105, 8. 16634, 9. 7290, 10. 17553. Vinn-
inga má vitja á skrifstofu Félags heymar-
lausra, Klapparstíg 28, alla virka daga,
sími 91-13560. Félagið þakkar veittan
stuðning.
Tilkyimingar
„Norðaustan ljóðátt“
Ut er komin ijóðabókin „Norðaustan Ijóð-
átt“. í bókinni em ljóð eftir 8 höfunda sem
á einn eða annan hátt em tengdir Ólafs-
firði. Þeir em: Benedikt Þorkelsson, GísU
Gíslason, Helga Bökku, Herdís Pála Páls-
dóttir, Jón Ámason, Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, Svavar Alfreð Jónsson og
Þórhildur Þorsteinsdóttir. Hér yrkir hver
með sinu nefi, bóndinh, neminn, blóma-
konan, bóndakonan, kennarinn, heildsal-
inn og presturinn. Ljóðin em bæði rímuð
og órímuð. Benedikt Þorkelsson er heið-
ursgestur í „Norðaustan ljóðátt". Hann
orti langt ljóð um ævi sína sem birtist í
þessari bók. Hann fæddist árið 1850 og
lést árið 1931. Hjónin Jón Ámason og
Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Ytri-Á em
fædd 1928 og 1929, aðrir 1953 og síðar. Sú
yngsta, Herdís Pála Pálsdóttir, er 19 ára.
Bókin er kilja, 118 bls„ prentuð í Prent-
smiðjunni Odda. Helga Pálina Brynjólfs-
dóttir frá Ólafsfirði hannaði kápu. Höf-
undar gefa út.
Passið
ykkurá
myrkriQu!
NOTUM^
ENDURSKINS-
MERKI!
Þaufástí
apótekum
og víðar.
UMFERÐAR
RÁÐ
Meiming
Húrra
íslenska óperan frumsýndi í gærkvöldi óperuna
Rigoletto eftir Giuseppe Verdi. Hljómsveitarstjóri var
Per Áke Anderson en sviösetningu annaðist Bríet
Héðinsdóttir. í aðalhlutverkum voru Kostas Paskalis,
sem söng hiutverk Rigolettos, Sigrún Hjálmtýsdóttir í
hlutverki Gildu dóttur hans, Garðar Cortes í hlutverki
hertogans af Mantúa, Guðjón Óskarsson í hlutverki
Sparafucile leigumorðingja og Sigríður Ella Magnús-
dóttir sem söng hlutverk Maddalenu systur hans.
Eins og kunnugt er ríkti í haust óvissa um það hvort
óperan fengi fjárstyrk til áframhaldandi starfs, uns
ríkisstjórnin tók nýlega af skarið. Er vonandi að þeir
hæstvirtir ráðherrar, sem voru viðstaddir sýninguna,
hafi fengið þar fullvissu um að fénu hafi veriö vel
varið. Að minnsta kosti tókst sýningin ágætlega. Mið-
að við þær fæðingarhríðir, sem þessi fjárveiting gekk
í gegnum, mætti halda aö um verulegar fjárhæðir
væri að tefla. Svo er þó ekki. Ópera á íslandi er metin
á við hálft minkabú eða svo. Á það verður seint of oft
minnst aö lífið er ekki bara fiskur og það er sér í lagi
mikilvægt fyrir smáþjóð, sem á í stöðugri sjálfstæðis-
baráttu, að skilja að sú barátta snýst fyrst og fremst
um menningu. Ríkið ætti að hugsa minna um atvinnu-
rekstur, þar sem afskipti þess eru umdeilanleg og oft
til hins verra, en meira um hstina þar sem þaö getur
gert augljóst gagn.
Rigoletto er með vinsælustu óperum og ein þriggja
sem lagði grundvölhnn að frægð Verdis. Tónlistin er
fjölbreytt, myndrík og alltaf trú atburðarásinni. Þar
er að finna grípandi popplög eins og „La donna e
mobile" en einnig tónlist svo djúpa og ríka sem best
getur orðið. Má þar nefna kvartettinn „Bella figha
dell amore“. Óperan lýsir lífi tillitslausrar skemmtana-
fíknar þar sem Rigoletto leikur lykilhlutverk. Hann á
andlegt afdrep í ást sinni á dótturinni sem hlýtur að
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
farast. Eini maðurinn í óperunni, sem ekki fellur fyrir
fýsnum sínum og er heiöarlegur, er morðinginn Spara-
fucile sem neitar að rjúfa samning við viðskiptavin.
Uppfærsla íslensku óperunnar á þessu magnaða
verki er vel heppnuð og á köflum hrífandi. Hljómsveit-
arstjóri og hljómsveit komust mjög vel frá sínu og
kóratriðin voru áberandi vel flutt. Kostas Paskahis
söng hlutverk Rigolettos af öryggi og á köflum meö
góðum tilþrifum. Garðar Cortes geröi einnig margt
fallega eins og hans var von og visa. Stjarna kvöldsins
var Sigrún Hjálmtýsdóttir sem hitti áheyrendur beint
í hjartastaö með yndislegum söng og geislandi fram-
komu. Hlutverk Ghdu býður upp á átök, bæði hvað
tækni og túlkun varðar, sem ekki komast aðrar úr
óskaddaðar en hæfustu söngkonur. Sigrún skilaði
þessu meö glæsibrag og brást í engu vonum aðdáenda
sinna. Guðjón Grétar ðskarsson hefur sérlega fallega
rödd og söng hlutverk Sparafucile mjög vel. Sigríður
Ella Magnúsdóttir gerði sínu hlutverki einnig ágæt
skil eins og við mátti búast.
Sviðsetningin var um margt góö, þótt stundum virt-
ist fólkið fuh kyrrstætt en það stafar áreiðanlega að
einhverju leyti af húsþrengslum. Sviðsmyndin virtist
þjóna hlutverki sínu vel en var ef til vih óþarflega
dökk og drungaleg. Dansatriði komu ágætlega út. Þá
er ástæða th að geta sérstaklega vandaðrar efnisskrár
sem var full af fróðleik um verkiö og sýninguna.
Sviðsljós
(<V
‘iom; Æ
ssiss
Það er ekki nóg með að sagt sé frá innihaldi sorptunnu Michaels Jackson heldur er birt mynd af þvi líka,
BPPIillP
|pj|j ð
p |
fmm
Sorpblaðamennska
Það er hreint með ólíkindum
hvað bandarískir blaðamenn leggja
á sig th að ná í „fréttir" af frægu
fólki. Eitt af því ótrúlegasta sem
þeir leggja sig niður við er að
læðast að næturþeli að heimhum
stjamanna og tæma sorpkörfur
þeirra! Síðan er því slegið upp í
slúðurblöðum hvað þar var að
finna.
Nýlega birtu þessir „sorpblaða-
menn“ niðurstöður sínar um inni-
hald ruslatunnu Michaels Jackson
og þóttust heldur betur hafa komist
í feitt. Þeir fundu nefnilega nokkrar
tómar kókdósir í ruslakörfunni en
eins og kunnugt er hefur Jackson
halað inn ótaldar mhljónir fyrir að
auglýsa pepsí.
Það þætti saga th næsta bæjar ef
fyrirsagnir í isíenskum blöðum
færu að hljóða eitthvað á þessa leið:
Tætlur úr Þjóðviljanum finnast í
sorptunnu borgarstjórans. - Pepsí-
dós í ruslapoka forstjóra Vífhfells.
Hákarlsbiti fannst í bílskúr Magn-
úsar Skarphéðinssonar!
H.Guð.
I, ■ II I 11 lllllll mmiiM ro iim m i imi
oaa
Þífæriwudimvá gQmfriton. t
GÆÐAFRAMKOLLUN
TTiUTT
Opnum
akl. 8.30
■ I 11 ■ EX3
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN HF
Laugavegi 178 - Simi 68-58-11 (næsta hús við S jónvarpið)