Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1991, Page 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1991.
Fréttir
Menntamálaráðuneytið:
Mál aðstoðarmanns
ráðherra til Hæstaréttar
Málsókn Guörúnar Ágústsdótt-
ur, aðstoöarmanns menntamála-
ráðherra, gegn menntamála- og
fjármálaráðuneytinu var flutt fyrir
Hæstarétti þann 8. þessa mánaðar.
Dóms er að vænta innan þriggja
mánaða.
Málið snýst um rétt Guðrúnar til
biðlauna þegar henni var sagt upp
störfum sem ritara hjá Hjúkrunar-
skóla íslands þegar hann var lagð-
ur niður 1987. Samkvæmt lögum
bar ríkissjóði að greiða henni 6
mánaða biðlaun eftir að uppsögnin
tók gildi eða bjóða henni sambæri-
legt starf hjá ríkinu.
Eftir uppsögnina var Guðrúnu
boðiö starf sem ritari við náms-
braut í hjúkrunarfræðum við Há-
skóla íslands. Þar með taldist ríkis-
valdinu til að réttur hennar til bið-
launa félli niður. Starfinu hafnaði
Guðrún hins vegar þar sem hún
taldi að ekki væri um sambærilegt
starf að ræða þó svo að laun væru
þau sömu.
Að sögn Guðrúnar ákvað hún að
fara út í þessi málaferh að höfðu
samráði við Starfsmannafélag rík-
isins og að litið væri á að hér væri
um prófmál að ræða.
„Starfið, sem mér bauðst, krafð-
ist mun minni hæfni og sérþekk-
ingar heldur en ég hafði aflað mér
á 16 ára starfsferli í Hjúkrunarskó-
lanum. Að mínu mati var um ahs
ósambærilegt starf að ræöa. Það
fólst einkum í vélritun og ljósritun
en í gamla starfmu sá ég að stórum
hluta um rekstur skólans. Þessi
málsókn er í mínum huga spurning
um réttindabaráttu en ekki um
peninga.“
Á annað ár er síðan dómur féll í
máhnu fyrir Bæjarþingi Reykja-
víkur. Komst dómstóhinn að þeirri
niðurstöðu að Guðrún hefði fyrir-
gert rétti sínum til biðlauna þar
sem henni hefði verið boðið annað
sambærilegt starf. Þeim dómi vildi
Guðrún ekki una og áfrýjaði því
máhnu til Hæstaréttar.
-kaa
Prófkjör Alþýðuflokksins:
Jón Ármann í slag-
inn í Reykjavík?
Daníel Sigmundsson er nú tilbúinn í slaginn attur ef þörf krefur.
Björgunarbáturinn tilbúinn
Hlynur Þór Magnússan, DV, ísafirði:
Björgunarbáturinn stóri á ísafirði,
Daníel Sigmundsson, hefur veriö
uppi á landi síðustu vikumar vegna
bUunar en er nú kominn aftur á sinn
stað niðri í Sundahöfn. Bilunin varð
þegar sjórör sprakk með þeim afleið-
ingum að vélin saug inn á sig sjó.
Skipta varð um 3 stimpla, 3 slífar og
6 ventla. Viðgerðin tók langan tíma
vegna þess að Volvo-umboðið átti
enga varahluti og umboðsaðhinn
taldi bilunina minni og pantaði því
ekki aha nauðsynlega varahluti.
Rekstraraðilar bátsins, björgunar-
sveitimar á ísafirði og í Hnífsdal, em
að mestu leyti tryggðir fyrir þeim
kostnaði sem af biluninni hlaust.
Verið er að kanna möguleika á að
kaupa aukavél í bátinn.
Báturinn var keyptur til landsins
fyrir 2'A ári og hefur fyrir löngu
sannað gildi sitt með ótal ferðuni út
á haf. Þegar báturinn var keyptur
var tekið lán með tíu afborgunum á
hálfs árs fresti. Nú er búið að borga
átta afborganir en tvær eru eftir. Sú
síðasta er tryggð með framlögum
sem væntanleg eru með vorinu en
nú vantar þá björgunarsveitarmenn
400 til 500 þúsund krónur til að klára
næstu greiöslu sem gjaldfellur í lok
janúar.
„Ég hef ekki tekið endanlega
ákvörðun en ég og margir aðrir vilj-
um að fram fari raunverulegt próf-
kjör í Reykjavík sem skipti alþýðu-
flokksmenn einhverju máli. Ég hef
fengið margar áskoranir frá mönn-
um, bæði innan og utan flokksins,
um að gefa kost á mér. Ef af veröur
þá mun ég bjóða mig fram í 1.^4.
sæti,“ sagði Jón Ármann Héðinsson,
fyrrverandi þingmaður Alþýðu-
flokksins, í samtali við DV.
Samkvæmt heimhdum DV myndi
framboði Jóns einkum verða beint
gegn svokölluðum undanvhlingum
úr öðrum flokkum.
Regína Thorarensen, DV, Selfosá:
Á síðasta ári voru 17 útköll hjá
Brunavörnum Árnessýslu - Slökkvi-
hðinu á Selfossi - en 19 útköh voru
Samkvæmt heimildum DV eru aðr-
ir sem gefa kost sér í prófkjörinu
þessir: Jóhanna Sigurðardóttir ráð-
herra, Þorlákur Helgason, Jón Bald-
vin Hannibalsson ráðherra, Jón
Bragi Bjarnason, Magnús Jónsson
veðurfræðingur, Steindór Karvels-
son fiskifræðingur, Valgerður Gunn-
arsdóttir Schram, Össur Skarphéð-
insson, Þröstur Ólafsson, Ragnheið-
ur Davíðsdóttir og Björgvin Guð-
mundsson, fyrrum borgarfuhtrúi
Alþýðuflokksins í Reykjavík.
Prófkjörið fer fram 2. febrúar en
framboðsfrestur rennur út 21. janúar
næstkomandi.
1989.
Af þessum 17 útköhum í fyrra voru
12 útköh þar sem eldur var slökktur,
átta vegna elds í byggingum en þrjú
vegna elds í bifreiðum.
Ámessýsla:
Eldur slökktur 12 sinnum
í dag mælir Dagfari
Pappírstígrisdýrið
Á hátíðarstundum hæla menn
Sameinuðu þjóðunum. Sameinuðu
þjóðimar eiga að vera sú alþjóða-
stofnun sem réttir bágstöddum
þjóðum og undirokuðum hjálpar-
hönd og gætir friðar og réttlætis
úti um víðan völl. í aðalbækistöðv-
um Sameinuðu þjóðanna sitja
hundruð ef ekki þúsundir manna
og hafa það fyrir atvinnu að semja
ályktanir og áskoranir út og suður
og skora á ofstækismenn og of-
beldissinna að láta af illmennsku
sinni og valdníðslu. Sumir hafa
jafnvel gengið svo langt að leggja
th að Sameinuðu þjóðimar tækju
við hlutverki Atlantshafsbanda-
lagsins og svipaðra vamarbanda-
laga og sá söngur hefur suðað í
eyrum manna í hálfa öld.
En hvers virði er svo máttur
Sameinuðu þjóðanna þegar á reyn-
ir? Áskoranimar em ekki einu
sinni virði þess pappírs sem þær
em skrifaðar á. Sameinuðu þjóð-
imar hafa enga burði og enga stöðu
th að láta nokkuð að sér kveða,
frekar en lóan í móanum eða smá-
titthngarnir í varpinu.
Aðalritari Sameinuöu þjóðanna
fór til Bagdad um helgina. Ekki var
sú ferð th íjár. De Quellar var lát-
inn bíða í hehan sólarhring þangað
til Saddam Hussein þóknaðist að
tala við hann. Fundur þeirra stóð
í klukkutíma og hafði engin áhrif
á Saddam Hussein. Ekki frekar en
að skvetta vatni á gæs. De Quellar
gekk bónleiður til búðar enda fór
maðurinn á fundinn án þess að
hafa nokkrar tillögur aörar en þær
sem Bandaríkin höfðu áður lagt á
borðið. Hann hafði ekki annað
umboð heldur en það sem fólst í
hervaldi Bandaríkjamanna. Hann
var eins og hver annar túristi í
Bagdad, að öðm leyti en því að túr-
istum er þó yfirleitt sýnd viðeig-
andi gestrisni. Saddam Hussein
kann ekki slíka mannasiði.
Ofbeldissinnar kunna yfirleitt
ekki mannasiði og vita sem er að
Sameinuðu þjóðirnar eru pappír-
stígrisdýr, sem sýnir ekki aðrar
vígtennur en þær, sem Bandaríkin
geta sýnt. Án herstyrks og forystu
Bandaríkjanna komast ofstopa-
mennirnir upp með hvaða vitfirr-
ingu sem er. Þeir geta lagt undir
sig önnur lönd, þeir geta beitt
skriðdrekum í Vhna, þeir geta
hlegið upp í opið geðið á fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna. Sameinuðu þjóðimar eru
máttlaus kjaftasamkunda ef ekki
væri fyrir hemaðarmátt og við-
leitni Bandaríkjamanna th að
stemma stigu viö óaldarmönnum
og einræðisherrum.
Hér á landi virðist sumt fólk hald-
ið þeirri þráhyggju að friðnum sé
best borgiö með því að vera góður
við vígamennina. Þegar Saddam
Hussein leggur undir sig Kúvæt og
skekur vopnin framan í umheim-
inn, stíga svokallaðir friðarsinnar
fram á sjónarsviðið og mótmæla
stríði. Þeir sthla sér upp fyrir fram-
,an bandaríska sendiráðið, rétt eins
og Bandaríkjamenn séu höfuðsk-
úrkamir í heimsófriðnum. Þeir
halda að kröfuspjöld um frið sé
árangursríkasta aðferðin til að
Saddam Hussein leggi niður vopn!
Það ætti að senda þessa friðar-
sinna til Bagdad og láta þá bera
kröfuspjöldin fyrir utan hahir
Saddam. Það ætti að senda þá th
Vhna og fylgjast með skriðdrekum
Rauða hersins þegar þeir aka yfir
fólkið. Það ætti að senda þetta fólk
til bækistöðva Sameinuðu þjóð-
anna í New York og láta það taka
að sér að senda út pappírana fyrir
hönd friðarins og leyfa því sjálfu
að kynnast af eigin raun, hvers
virði kröfuspjöldin eru í augum
þeirra sem efna til ófriðar um
heimsbyggðina.
Fólkið með kröfuspjöldin, de Qu-
ellar og aðrir friðarpostular eiga
að gera sér grein fyrir þeirri stað-
reynd, áður en það verður um sein-
an, að friður verður aldrei tryggður
með tannlausum tígrisdýrum. Þeir
eru ekki mestu friðarsinnarnir sem
ganga vopnlausir fram á vígvöll-
inn. Hinir sönnu friðarsinnar eru
þeir, sem hafa afl til að berjast til
friðar og frelsis, sem láta ekki of-
beldissinnana komast upp með of-
beldið og þeir sem hafa þor th aö
láta vopnin tala þegar vopnum er
beitt.
Atburðimir við Persaflóa og í
Litháen eru til vitnis um þann ár-
angur sem Sameinuðu þjóðirnar
hafa náð á fjörutíu ára ferh sínum.
Skriðdrekunum er stjómað af þeim
mönnum sem hafa haft mesta ást
á friðardúfunum. Það er kominn
tími til að kröfuspjaldaliðið læri
sína lexíu af þeim friði sem þar er
stundaöur.
Dagfari