Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1991, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1991.
5
DV Viðtcdið
r
Frjálslyndur
félags-
hyggjumaður
Nafn: Jóhann Ársælsson
Aldur:47ára
Jóhann Ársælsson skipasmiöur
skipar fyrsta sæti lista Alþýöu-
bandalagsins á Vesturlandi fyrir
næstu kosningar.
Jóhann er fæddur í Ólafsvík og
uppalinn þar og í Neshreppi á
Snæfellsnesi. Ættir sínar á hann
að rekja til Snæfellsness. Effir
skyldunám á Hellissandi og í
Reykjavík fíutti Jóhann til Akra-
ness 1961 þar sem hann lærði
skipasmíöi í Iðnskólanum á Skag-
anum. Námi i skipasraíði lauk
hann 1966 og Jóhann hefur nán-
ast eingöngu unnið viö bátasmið-
ar frá því hann hóf nám. „Ég
ilentist á Akranesi, gifti mig og
hef búið hér siðan.“ Fyrir utan
bátasmíðar hefur Jóhann unníð
sera sjómaður og við hafnargerð
á Skaganum. Jóhann fór að vinna
sjálístætt sem bátasmiður 1973 og
stofnaöi fyrirtæki.
Herstöðvarmálið skipti sköpum
Jóhann var ungur þegar hann
fór að hugsa um pólitík. „Ætli ég
hafi ekki verið 17-18 ára. Ég hef
alltaf haft gaman af félagsmála-
starfi og áhuginn hefur haldist
öll þessi ár.“
Þegar Jóhann byrjaði í pólitik
var ekki sjálfgefiö að Alþýðu-
bandalagið yrði fyrir valinu. „Það
togaðist alltaf svolítiö á í mér á
þessum tíma hvort ég ætti að
velja Framsóknarflokkinn eða
Alþýðubandalagið. Það sem ég
held að hafi ráðið úrslitum voru
herstöðvarmál og landhelgis-
máiapólitík Alþýðubandalagsins.
Það má segja að ég sé fijálslyndur
félagshyggjumaöur.“
Jóhann var um tíma varaþing-
maður Skúla Alexanderssonar og
einnig hefur hann verið í bæjar-
stjórn í 12 ár. Kosningabaráttuna
í vor telur Jóhann veröa langa.
„Hún verður örugglega dálítiö
hörð og kemur væntanlega til
meö að snúast aö miklu leyti um
stjórnarsamstarfið.“
Mikil samstaða um listann
Ekki segist Jóhann kviða því
að leiða listann í vor. „Nei, ég
kvíði þvi ekki. Það er mjög góð
samstaöa um þennan lista og það
er mikil samstaða um þetta fram-
boð á Vesturlandi.“
Þegar menn eru mikið í póhtik
er oft lítill tími fyrir áhugamál.
Svo er einnig meö Jóhann. „Þeg-
ar maður er í félagsmálum, til
dæmis bæjarmálapólitík, þá get-
ur maður nánast ekki leyft sér
aö hafa áhugamál. Það er ekki
tími fyrir slikt. Þess vegna má
segja að pólitíkin hafi verið mitt
áhugamál. Annars hef ég veriö
aö smiða sumarhús við Arnar-
stapa og minn fritimi hefur lika
farið i það.“
Mottó Jóhanns i lífinu er mikil-
vægi þess að hlúa að jafnréttis-
baráttunni. ,-,Ég tel að samkeppn-
isþjóðfélagiö sé nýög hættulegt
fýrir suma þjóðfélagsþegna.“
Jóhann er kvæntur Guðbjörgu
Róbertsdóttur skólaritara og þau
eiga fjögur böm á aldrinum 13 til
24ára. -ns
Smábátaeigendur á Norðurlandi:
Kvótar undir
sultarmörkum
- vilja fá bætur frá ríkinu vegna kvótaskerðingarinnar
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Smábátaeigendur í félaginu Kletti,
sem eru á Eyjafjarðarsvæðinu,
Húsavík og Grímsey samþykktu á
fjölmennum fundi sínum ýmsar
kröfur og áskoranir til stjórnvalda
vegna þeirrar kvótaskerðingar sem
þeir telja sig hafa orðið fyrir.
í ályktun fundarins segir að ef þeir
fái ekki auknar aflaheimildir beri
stjómvöldum að bæta upp skerðing-
amar með beinum óendurkræfum
peningastyrkjum sem nema 70% af
skerðingunni miðað við markaðs-
verð á fiski hverju sinni. Efnd verði
fastmæli sjávarútvegsráðuneytisins
og Landssambands smábátaeigenda
um að búin verði til aflahlutdeild tíl
handa smábátum og sömuleiðis um
rétt hlutfall af kvóta til handa smá-
bátum af því sem kom til skipta
vegna afnáms sóknarmarks.
„Vegna náttúruhamfara í sjó síð-
ustu þrjú ár fyrir Norðurlandi, þar
sem kaldur pólsjór hefur verið alls-
ráðandi, er ljóst að kvótar smábáta
á Norðurlandi verða svo lélegir að
þeir teljist undir sultarmörkum. Þeg-
ar tíl viðbótar komi 23% meðalskerð-
ing á kvóta þá er ljóst að illa er kom-
ið fyrir smábátasjómönnum og
sömuleiðis ýmsum þeim byggðum á
Norðurlandi sem að verulegu leyti
byggja aíkomu sína á sókn smá-
báta,“ segir í frétt Kletts af fundin-
um.
Fundurinn skoraði einnig á al-
þingismenn kjördæmisins að standa
fast á rétti smábátaeigenda í fjórð-
ungnum og fylgja eftir samþykktum
fundarins með öllum tiltækum ráð-
um.
___________ Fréttir
Sjötíuíöld-
ungadeild
Hlynur Þór Magnússan, DV, Vestfj.t
Menntamálaráðuneytið hefur
heimilað stofnun öldungadeildar
á Patreksfirði. Deildin verður
útibú frá Menntaskólanum á
ísafirði en ætlunin er að hinn
fyrirhugaði Framhaldsskóli Vest-
flarða taki viö hlutverki mennta-
skólans. Stofnun öldungadeilda á
Flateyri í haust og á Patreksfirði
nú eru skref í þá átt, svo og vél-
stjórnarnám á Þingeyri.
Undirbúningur hefur staðið
yfir síðan í haust - aðeins stóð á
svari ráðuneytisins. Nú haía 70
manns látið innrita sig. Útibús-
stjóri veröur Erna Sveinbjamar-
dóttir en aðrir kennarar Frances
Taylor enskukennari, Helga
Gísladóttír, íslenska, Hilmar
Árnason stærðfræði, og Rann-
veig Haraldsdóttir, vélritun.
Nemendur eru ekki einskorð-
aðir við Patreksfjörð heldur
koma víöa að frá vestursvæðinu,
bæöi frá Tálknafirði og af Barða-
strönd, fólk sem ætlar að leggja á
sig að bijótast x skólann 3 kvöld
í viku í vetur.
iðBi HÁSKÚLABIÖ
IIIIIIBMJilililililltttmsÍMI 22140
Frábær spennumynd, gerð af hinum magnaða leikstjóra Luc Besson.
Sjálfsmorð utangarðsstúlku er sett á svið og hún síðan þjálfuð upp í miskunnarlausan leigumorðingja.
Mynd sem víða hefur fengið hæstu einkunn gagnrýnenda.
Aðalhlutverk: Anne Párillaud, Jean-Hugues Anglade (Betty Blue), Tcheky Karyo.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15.
Bönnuð innan 16 ára.