Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1991, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1991.
15
Einar Oddur
-hvers konar „vættur“?
Ég heimsótti vinkonu mína á
dögunum. Hún er komin nokkuð á
efri ár og þarf þess vegna að fá
heimilishjálp frá borginni. Fyrir
nokkrum vikum hafði hún mjög
góða konu (félaga í Sókn) sem kom
til hennar með regluglegu millibili.
Hún þreif það sem þrífa átti mjög
vel og svo var gaman að fá hana í
heimsókn.
En einn daginn var hringt frá
borginni og vinkonu minni var sagt
að það þyrfti að skipta um hús-
hjálp. Og nú byrjuðu miklir erf-
iðleikar hjá vinkonu minni. Hún
fékk sendar ungar skólastúlkur
sem margar hverjar kunnu lítið til
verka.
Gamla fólkið hefur skilað starfi
sínu til samfélagsins og í mörgum
tilfellum af slíkri rausn að þetta
sama samfélag á það bara ekki skil-
ið eins og það er orðið í dag. Við
hugsum lítið um að þjónustan við
það verði góð og jafnvel í nafninu
á þeim greiðslum sem það fær felst
lítilsvirðing. „Bæturnar" sem því
eru ætlaðar ættu að heita heiðurs-
laun og þære ættu ekki að vera
svona smánarlega lágar.
Vættur hinna fátæku?
Flestar stúlkurnar í heimilis-
hjálpinni eru í henni með skóla-
námi og vilja ljúka vinnunni á sem
skemmstum tíma. Svo bætir ekki
úr skák að þær vita af því að vinir
þeirra fá mun betri laun í öðrum
störfum. Þær eru því margar hverj-
ar bæði kærulaustr og latar að
mati vinkonu minnar. Mig grunar
að til viðbótar hafi þær ekki fengið
neina leiðsögn í því að umgangast
eldra fólk af þeirri alúð og virðingu
sem því ber. Vinkona mín tók það
þó sérstaklega fram að sumar
KjaUarinn
Hallgrímur
Hróðmarsson
kennari i MH
stúlkurnar væru mjög elskulegar
og vildu gera vel. En þær endast
yfirlett mun skemur í starfinu
vegna þess að einmitt þær duglegu
og samviskusömu eiga mjög gott
með að fá betur launuð störf.
En hvers vegna eru launin ekki
hærri fyrir hjálp við eldri borgara
Reykjavíkur? Það er í fyrsta lagi
af því að það er lítils metið í sam-
félaginu að hjálpa gömlu fólki. í
öðru lagi er í gildi svokölluð „þjóð-
arsátt" sem kveður á um að allir
skuli lækka í launum og þeir mest
sem lægst hafa í launin.
„Þjóðarsáttin“ leiddi raunar til
þess að verðbólgan stendur nokk-
urn veginn í stað, en það eru ekki
hópar láglaunamanna sem græða á
því. Það eru þeir ríku sem græða
og þeir græða mikið. Það sáum við
til dæmis á blaðafregnum um
hlutabréfakaup nú rétt fyrir ára-
mótin. Ég þekki enga Sóknarkonu
né kennara (jafnvel ekki kennara
í HÍK) sem hafði aura afgangs til
að kaupa sér skattfrelsi í formi
hlutafjár milli jóla og nýárs.
Þvottavatn frá Þingvöllum
Það er svo sér kapítuli að ráða-
menn Reykjavíkur með Davíð kóng
í broddi fylkingar hafa óspart látið
starfsmenn sína vita að laun megi
ekki hækka vegna „þjóðarsáttar-
innar“. Þess í stað eru peningar
borgarinnar notaðir til að byggja
monthús við Tjörninga og hálfkúlu
sem kölluð er „Perlan" - þessir
menn vita ekki einu sinni að ekta
perlur eru ekki hálfar kúlur. Og
ofan á þetta bætist svo að þar sem
peningar borgarinnar voru alhr
notaðir í þessi minnismerki Davíðs
hefur Hitaveita Reykjavíkur verið
í lamasessi um og yfir hátíðarnar.
Það er þó huggun harmi gegn að
íbúar á svæðinu sem oft er kennt
við Stórhafnarfjörð hafa fengið að
baða sig upp úr Þingvallavatni í
allt haust eftir þvi sem sérfræðing-
ar Hitaveitunnar hafa frætt okkur
á.
Davíð vill það
En hvað segja fylgismenn Davíðs
þegar þeir eru spurðir álits á þessu
háttalagi? Af hverju eru starfs-
menn borgarinnar ekki hærra
launaðir? Að sjálfsögðu vísa þeir í
dag eins og Davíð á „þjóðarsátt-
ina“, en einn fylgismaður Davíðs
spurði hann rétt fyrir síðustu kosn-
ingar: „Heyrðu Davíð, af hverju
hafa starfsmennirnir þínir svona
lág laun?“
Svarið stóð ekki í Davíð frekar
en fyrri daginn: „Það er, skal ég
segja þér, af því að þeir hafa svo
lélega samningamenn. Einnig skal
ég segja þér - í trúnaði - að ég sjálf-
ur vil horga hærri laun, en ég bara
fæ það ekki.“ - Það skal tekið fram
að áðurnefndur fylgismaður Dav-
íðs trúði honum.
Vættur hinna ríku!
Bjargvættur hverra er þessi títt-
nefndi Einar Oddur hjá VSÍ? Ég
held að hann sé ekki „vættur"
þeirra lágt launuðu í samfélaginu
- kvennanna í Sókn eða fólks í
uppeldisstéttum (jafnvel ekki held-
ur þó það sé í HÍK). Hann er ekki
heldur „vættur" lækna því um að-
stoðarlækna segir hann að launa-
kröfur þeirra jafngildi 60% hækk-
un á launum. Forsvarsmenn ASÍ
hafa mér vitanlega ekki gert neina
athugasemd við þau ummæli. Þeir
eru trúlega á því að afnema beri
vökulögin sem tók marga áratugi
að ná í gegn.
Einar Oddur er heldur ekki
„vættur" gamla fólksins því smán-
arlegar „bætur“ þess hafa rýrnað
meira en nokkru hófi gegnir og
þjónustan versnað á tímum svo-
kallaðrar „þjóðarsáttar“. Að mínu
mati er Einar Oddur „vættur"
hinna ríku í samfélaginu.
Hallgrímur Hrómarsson
,„,Þjóðarsáttin“ leiddi raunar til þess
að verðbólgan stendur nokkurn veginn
í stað en það eru ekki hópar láglauna-
manna sem græða á því.“
„Hermönnum hefur orðið starsýnt á farangurinn i flugvélunum sem
fluttu þá til flóans - likpoka fyrir heimförina." Simamynd Reuter
Blóð og olía
Varnarlína íraka í Kúvæt, sem
nær með landamærum Saudi-
Arabíu og strönd Persaflóa, er 25
km breið. Fremst eru gaddavírs-
raðir, síðan svæði lagt tugþúsund-
um jarðsprengna gegn skriðdrek-
um og fólki og þá skurður þar sem
komið hefur verið fyrir tunnum
meö olíu, napalm og öðru eldfimu
en þær verða sprengdar og kveikt
í innihaldinu við árás. Að vísu má
komast yfir um færanlegar brýr en
það myndi mjókka og tefja fram-
rás, gera liðið að auðveldum skot-
mörkum fyrir 2300 fallstykki íraka
en alþjóðahðið hefur mun færri og
skammdrægari byssur. Aftast eru
hundruð skriðdreka undir margra
metra þykkum sandþökum.
Bandaríkjamenn hyggjast senda
B-52 sprengjuvélar gegn þeim í von
um að hristingur frá þungum
sprengjum fehi sandinn ofan á þá.
Síðan eigi að brjóta leiðir gegnum
Ununa og taka hana aftan frá. Eftir
8 ára stríð við íran og hálfa milljón
faUinna eru írakar færir í varnar-
stríði og frægir fyrir þrautseigju
en hafa barist án frumlegra að-
ferða. Verði reynt að minnka
mannfall Bandaríkjamanna með
því að gera harðar loftárásir á írak
og Kúvæt mun það bitna á alþýðu
þessara landa en sjálfir eiga írakar
um 800 orustuþotur, þ.á m. Mirage
F-1 með nákvæmum flaugum til
árása á landmörk og 30 af hinni
fullkomnu Mig-29.
Án markmiðs, án áætlunar
írakar fylltu 3 oUuskip og lögðu
þeim fyrir utan hafnarborgina Ras
el Kuleia. Yröi landganga reynd
myndu skipin verða sprengd og
hundruð þúsunda tonna flæða út
sem síðan yrði kveikt í þegar land-
KjaUarinn
Jón Hjálmar Sveinsson
fyrrv. sjóliðsforingi
gönguprammar nálguðust. Talið er
að Bandaríkjafloti hafi aldrei
reiknað með stríði, annars hefði
hann vart sent flugmóðurskip inn
á Persaflóa þröngan, grunnan og
íjölfarinn því að þau þurfa mikið
rými við að senda upp og taka á
móti vélum.
Stýriflaugar flotans eru vopn sem
óvíst er að virki þar sem þær hafa
aðeins verið reyndar yfir vel kort-
lögðu landi og tölvur þeirra þurfa
nýjar stafrænar gervihnattamynd-
ir til leiðsagnar og smávægUegar
breytingar á staðháttum villa um
fyrir þeim. Yfirburðir Bandaríkja-
manna á rafeindasviðinu eru ekki
ótvíræðir. Tækni þeirra er einfald-
lega ekki nægilega innstillt á að
fást við hin mörgu vestrænu vopn
íraka, nokkuð sem sýndi sig 1987
þegar ratsjártölva bandarísku frei-
gátunnar Stark að vísu uppgötvaði
íraska orustuþotu en greindi
hvorki hana né Exocet skeyti henn-
ar - hvort tveggja franskt - sem
fjandsamleg. Skeytið hitti og nær
sökkti freigátunni.
Bandaríkjamenn sendu heiman
að 800 Abrams M-1 skriðdreka til
Saudi-Árabíu en í þá vantar bæði
loftkælingu og búnað til varnar eit-
urgasi. Þá vinnur 105 mm byssa
drekans ekki á marglaga vörn T-72
dreka íraka en þeir eiga 1000 slíka.
Nær, þ.e. í Evrópu, voru þó M-1
A1 drekar búnir loftkælingu, efna-
vörn og 120 mm byssu (sem grand-
ar T-72) en þessa var seint byijað
að flytja tU Arabíu. Efni það sem
bandaríski herinn notar til að
hreinsa búnað af eiturgasi er sjálft
eitrað og tærandi.
Foringjarnir guggnuðu
Fullkomnar njósnir áttu að vera
stærsti kostur bandaríska Uðsins
en þeir viðurkenna að ekki hafi
tekist að finna allar stjómstöðvar
og eldflaugastöðvar íraka sem
reyndar eru alltaf áð færa hð sitt
til. Þá hafa írakar slökkt á hundr-
uðum ratsjáa sinna og því finna
Bandaríkjamenn þær ekki þrátt
fyrir leit með AWACS og TR-1
njósnavélum.
Þetta kemur í veg fyrir að Banda-
ríkjamenn finni hvaða tíðnir írak-
ar nota og hindrar þá í að beita
gagnradarflauginni Harm. Ekki
aðeins um 1000 Roland loftvama-
flaugar íraka ógna handarísku
flugvélunum, heldur einnig um 150
Hawk flaugar sem féllu í hendur
íraka við töku Kúvæt þegar her
Kúvæt slökkti á varnarkerfum sín-
um, laumaðist hurtu og lét and-
spymu eftir ungum og óþjálfuðum
fullhugum sem um tíma drápu á
þriðja tug hemámsliða daglega.
Leynilögreglu Husseins, Muk-
habarat, sem stjórnað er af frænda
hans, Ah Hassan al-Majid og hefur
um 7000 manns á að skipa í Kú-
væt, tókst þó fljótt að kæfa and-
spyrnu enda hefur hún reynt sig á
Kúrdum. Skautahöll Kúvæt-borgar
var breytt í líkhús, pyntingarstöðv-
um komið upp í opinberum bygg-
ingum og með andspyrnumenn var
farið heim til fjölskyldna þeirra þar
sem þeir voru geltir í augsýn sinna
nánustu.
Að kjafta sig út I horn
Ólíklegt er að nokkur af araba-
ríkjunum muni taka þátt í að gera
innrás í írak. Þau hafa undirstrik-
að að þeirra hlutverk sé að vernda
Saudi-Arabíu og kannski frelsa
Kúvæt. „Hver hefur sagt að við
munum berjast við hhð Banda-
ríkjamanna?" er haft eftir tals-
manni Assads Sýrlandsforseta.
„Við verðum að búa hérna áfram
á eftir,“ gefa arabar sem skýringu
á tregðu sinni.
Það að Bandaríkjamenn sendu
meira hð en þurfti til varnar
(reyndar minna en þyrfti til sigurs
þeirra einná) og að ekki mun verða
hægt að skipta um lið, ásamt dýrk-
un meints óskeikuheika Banda-
ríkjahers og málæði Bush hefur
komið þeim í sjálfheldu. Hermönn-
unum hefur því orðið starsýnt á
farangurinn í flugvélunum sem
fluttu þá til flóans - líkpoka fyrir
heimfórina.
Jón Hjálmar Sveinsson
„Fullkomnar njósnir áttu að vera
stærsti kostur bandaríska liðsins en
þeir viðurkenna að ekki hafi tekist að
finna allar stjórnstöðvar og eldflauga-
stöðvar íraka...