Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1991, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1991.
17
íþróttir
ur og Carl báðir
I hreinan skjöld
imundsson og Carl J. Eiríksson stóðust báðir lyfjapróf
ibands íslands kallaði í
þróttamenn 1 lyfjapróf.
)á Pétur Guðmundsson
J. Eiríksson, fremsta
í skotfimi. Á dögunum
: lyfjaprófmu til lyfja-
þeir báðir prófið.
Hannes Þ. Sigurðsson, formaður
lyijanefndar íþróttasambandsins, í
samtali við DV í gærkvöldi.
Pétur Guðmundsson setti glæsilegt
íslandsmet í kúluvarpi seint á síðasta
ári eins og kunnugt er en þá kastaði
hann 21;26 metra. Og eins og oft vill
verða þegar menn ná góðum árangri
í íþróttum fóru að heyrast raddir
þess efnis að ekki væri allt með
felldu. Nú hefur það fengist staðfest
að Pétur hefur ekki neytt ólöglegra
lyfia. Hann sagði um niðurstöðuna í
gærkvöldi: „Ég vildi fá lyfjapróf um
leið og ég setti íslandsmetið. Það var
ekki gert. Ég er hins vegar mjög á-
nægður með að það hefur komið
fram að það voru engin lyf í spilinu.
Ég mun halda mínu striki og æíi nú
meira en áður ef eitthvað er,“ sagði
Pétur Guðmundson. Pétur hafði ekki
heyrt um niðurstöðuna fyrr en DV
hafði samband við hann í gærkvöldi.
Carl líka með hreinanekjöld
• Carl J. Eiríksson skotmaður var
einnig tekinn í lyfjapróf en hann
hefur verið fremsti skotmaður lands-
ins um árabil og náð mjög góðum
árangri. Carl kom einnig með hrein-
an skjöld frá lyfjaprófinu. Ekki náð-
ist í Carl í gærkvöldi.
-SK
• Pétur Guðmundsson brosti breitt
í gærkvöldi er DV tilkynnti honum
tíðindin úr lyfjaprófinu.
• Carl J. Eiríksson, besti skotmaður
tandsins, komst með glans frá lyfja-
prófinu.
la frá Kína, ásamt landa sínum, Cheng Hoe
DV-mynd GS
Xiaoqing
til íslands
Ein fremsta badmintonkona heims,
Xiaoqing Lim frá Kína, dvelst hér á
landi um þessar mundir og er að
íhuga þann möguleika að setjast hér
að. Sama er að segja um landa henn-
ar, Cheng Hoe Lim, sem hefur tekið
að sér þjálfun íslenska landsliðsins.
Xiaoqing Lim hafnaði í þriðja sæti
á síðasta heimsmeistaramóti í bad-
minton, sem fram fór í Indónesíu
áriö 1989, og segir það meira en mörg
orð um styrkleika hennar.
Hún kemur hingað frá Svíþjóð en
þar var hún einnig að kanna um
búsetu. Henni bauðst samningur þar,
og reyndar víðar, en hins vegar
reyndist erfiðleikum bundið að fá
sænskan ríkisborgararétt, og því
hyggst hún reyna fyrir sér hér á
landi.
Þau Xiaoqing og Cheng kepptu bæði
á meistaramóti TBR um síðustu helgi.
Xiaoqing keppti í A-flokki karla á
mótinu en vann samt þrefaldan sigur.
Hún vann Harald Kornelíusson, TBR,
15-2 og 15-4 í úrslitum í einliðaleik, í
tvíliðaleik sigraði hún ásamt Cheng,
og 1 tvenndarleik keppti hún í meist-
araflokki með Brodda Kristjánssyni,
og unnu þau af öryggi.
• Broddi sigraði í einliðaleik í
meistaraflokki karla á mótinu og einn-
ig í tvíliðaleik ásamt Árna Þór Hall-
grímssyni. Bima Petersen sigraði í
einliðaleik í meistaraflokki kvenna og
í tvíliðaleik ásamt Guðrúnu Júlíus-
dóttur.
-VS
la í handknattleik í gærkvöldi:
leppið í lokin“
an sigur gegn Haukum í Eyjrnn, 25-20
ar tóku sig verulega á í síðari hálfleik
og náðu að minnka muninn í 18-17 en
lokakaflinn var heimamanna og örugg-
ur sigur í höfn.
„Þetta var mjög góður sigur og gott
fyrir okkur að vinna Haukana. Þetta var
köflóttur leikur af okkar hálfu og við
misstum of marga leikmenn út af. En
þetta gekk upp í lokin og viö erum klár-
ir í slaginn við ÍR í næsta leik,“ sagði
Guðfinnur Kristmannsson, besti leik-
maður ÍBV í leiknum. Þess má geta að
þeir Þorsteinn Viktorsson og Sigbjöm
Óskarsson fengu rauða spjaldið í lokin.
Guðfinnur Kristmannsson var bestur
í hði ÍBV en einnig átti Gylfi Birgisson
góðan leik.
í liði Hauka var Petr Baumruk bestur
en Sigurjón Sigurðsson átti einnig góða
sþretti.
• Mörk ÍBV: Gylfi Birgisson 8/4, Guð-
finnur Kristmannsson 6, Sigurður Más-
son 4, Sigbjörn Óskarsson 33, Helgi
Bragason 2, Sigurður Gunnarsson 1 og
Haraldur Hannesson 1.
• Mörk Hauka: Petr Baumruk 6/3,
Steinar Birgisson 4/1, Sigurjón Sigurðs-
son 3, Snorri Leifsson 2, Jón Örn Stef-
ánsson 2, Sveinberg Gíslason 2, og Pétur
Ingi Arnarsson 1.
• Leikinn dæmdu þeir Hákon Sigur-
jónsson og Guðjón L. Sigurðsson.
• Gylfi Birgisson haföi ástæðu til
að fagna i gærkvöldi eftir að ÍBV
haföi sigrað Hauka örugglega i Eyj-
um, 25-20.
• Staöan er þannig í 1. deild
karla í handbolta eftir leikinn í
Eyjum í gærkvöldi:
ÍBV-Haukar.................25-20
Víkingur... 16 16 0 0 402-329 32
Valur.....16 13 1 2 394-346 27
Stjarnan.... 16 11 0 5 396-376 22
FH.........16 9 2 5 384-376 20
Haukar....16 10 0 6 384-385 20
KR.........16 5 6 5 375-372 16
ÍBV........15 5 3 7 358-356 13
KA.........16 6 1 9 374-356 13
Selfoss.....16 3 3 10 327-371 9
Grótta......16 3 1 12 351-383 7
Fram........16 1 4 11 325-372 6
ÍR,.........15 2 1 12 319-367 5
• í 1. deild kvenna léku Víkingur
og Grótta í gærkvöldi. Víkingur
sigraði með yfirburðum 24-14
(10-6).
Mörk Víkings: Halla Helgadóttir
9/4, Andrea Atladóttir 7, Matthild-
ur Hannesdóttir 33, Heiða Erlings-
dóttir 2, Inga Lára Þórisdóttir 1,
Kristín Bjarnadóttir 1, og Svava
Sigurðardóttir 1.
• Mörk Gróttu: Laufey Sig-
valdadóttir 7/3, Helga Sigvalda-
dóttir 3, Ema Hjaltested 2, Elísabet
Þorgeirsdóttir 1, og Brynhildur
Þorgeirsdóttir 1.
• Keflavík sigraði ÍS, 19-23, í 2.
deild karla í Laugardalshöllinni í
gærkvöldi.
• Botnlið 1. deildar vann mjög
óvæntan sigur á liði ÍS í 1. deild í
gærkvöldi. Staðan er þá þannig:
IS-Reynir..................70-73
UÍA-Breiðablik.............79-67
Víkveiji.....8 6 2 618-580 12
ÍS...........7 4 3 520-482 8
Skallagr.....6 4 2 435-388 8
UÍA..........7 4 3 466-447 8
Akranes......6 2 4 467-500 4
UBK..........7 2 5 455-503 4
Reynir.......7 2 5 470-531 4
Sport-
stúfar
Tveir leikir fóru fram i banda-
rísku NBA-deildinni í körfu-
knattleik í fyrrinótt. Portland
vann góðan útisigur á New Jers-
ey Nets, 103-116, og Los Angeles
Lakers sigraði Houston Rockets
örugglega, 116-97, á heiraavelli.
Boston Celtics iiefur tapað fæst-
um leikjum allra liða í deildinni,
aðeins 6. Portiand Trail Blazers
hefur tapað 7 leikjum, San An-
tonio Spurs 8 og Chicago Bears
10 leikjum.
Firmakeppni
á Keflvíkingum
Hin árlega flrraa- og
hópakeppni UMFK í
innanhússknatt-
..... spyrnu fer fram í
íþróttahúsi Keflavíkur dagana 19.
og 20. janúar. Fyrirtækí jafnt sem
hópar geta skráð sig til þátttöku
og þá jafnvel tvö fyrirtæki sam-
eínast í eitt lið. Leikið er á lítil
mörk og leiktími er 2x8 mínútur.
Þátttökutilkynningar berist fyrir
17. janúar til Gísla Jóhannssonar
í síma 92-14472 og/eða 92-13044
(símsvari).
Fjögur liðeftirí
ameríska fótboltanum
Átta liða úrshtin í ameríska fót-
boltanum, NFL-deildinni, voru
leikin um síðustu helgi. í AC riðl-
inum vann Buffalo Bihs sigur á
Miami Dolphins, 44-34, og Los
Angeles Raiders sigraði Cincinn-
ati Bengals, 20-10. Þar mætast því
Bills og Raiders í úrshtaleik um
næstu helgi. í NFC-riðlinum vann
San Francisco 49ers sigur á Was-
hington Redskins, 28-10, og New
York Gíants burstaði Cliicago
Bears, 31-3. Þar leika því 49ers
og Giants til úrslita. Sigurvegar-
arnir í þessum úrshtaleikjum
leika síðan „Super-Bowl" leikinn
fræga um meistaratignina í am-
eríska fótboltanum.
Finnar og Sviar hættu
við Eystrasaltsmótið
Bæði Finnar og Svíar
hafa ákveðið að taka
ekki þátt í Eystrasalts-
mótinu í handknatt-
leik, Baltic Cup, sem átti að hefj-
ast í Minsk i Sovétríkjunum nú í
vikunni. Báðar þjóðir hættu víð
þátttöku vegna hernaöarástands-
ins í Litháen en Minsk er skammt
frá Vilnu, höfuðborg Litháens.
Finnar áttu að leika vináttuleik
gegn Eistlendingum i Talhnn í
gær á leið sinni til Minsk og voru
í þann veginn aö ganga um borð
í ferjuna frá Helsinki til Tallinn
þegar ákvörðunin vai* tekin.
Ónnur þátttökulið í mótinu áttu
að vera Pólland, Sovétríkin,
Rússland og sovéska 21 árs lands-
liðið.
Björn vann tvöfalt
hjá Skotfélagi Reykjavíkur
Björn Birgisson vann sigur á
tveimur innanfélagsmótum lijá
Skotfélagi Reykjavikur á laugar-
daginn. I keppni með loftskamm-
byssu, 60 skot, hlaut hann 551
stig, Carl J. Efríksson 548 og Árni
Þ. Helgason, sem jafnfranit sigr-
aði í 1. flokki, 528 stig. í keppni
meö staðlaöri skammbyssu, 3x20
skot, hlaut Bjöm 546 stig, Ámi
543 og Carl 539 stig. Athygh vakti
að Ólafur V. Birgisson, skotmaö-
ur ársins 1990, mátti sætta sig við
sjötta sætið í fyrri keppninni og
fjórða sæti í þeirri síöari.
Trausti sleit hásin
Eins og viö sögðum frá í DV í gær
meiddist Trausti Ómarsson í leik
með Víkingum á innanhússmót-
inu í knattspyrnu um helgina.
Nú hefúr konuð i ljós að Trausti
sleit hásin og verður frá knatt-
spyrnuiökun í aht aö 3 mánuöí.