Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1991, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1991, Side 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ftitstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst, óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 15. JANUAR 1991. CNN-útsending á Stöð 2: Löglegt - segir Þorbjöm Broddason Þorbjöm Broddason, formaöur út- > varpsréttarnefndar, segir að senda megi beinar útsendingar án þess að efni þeirra sé textaö. Að öðru léyti sé skylt að þýða allt efni sem sent er í sjónvarpi. „Útvarpsréttamefnd hefur ekki fengið neina sérstaka tilkynningu frá Stöð 2 um þessar beinu útsendingar CNN-stöðvarinnar. Stöðin þarf held- ur ekki að fá neitt leyfi fyrir þessum útsendingum. Það má senda beinar útsendingar ótextaðar. Þess vegna sé ég ekki að útvarps- réttamefnd rjúki til handa og fóta og fari að bregða fæti fyrir þessa til- raun sem mér finnst mjög merkilegt framtak á þessum óvissutímum," segir Þorbjörn. « -JGH Sjónvarpið: íhugaðaðsenda fréttamenn út tilPersaflóa Sjónvarpið íhugaði fyrir nokkru að senda fréttamenn til Persaflóasvæð- isins. Eftir nokkrar umræður var falhð frá því. Sömuleiðis hefur Sjón- varpið rætt um að senda fréttamenn til Litháens. Úr því verður heldur ekki. „Það kom til tals að senda menn tíi Persaflóasvæðisins og raunar Eystrasaltsríkjanna Mka. Frá þessu hefur veriö fallið," sagði Helgi H. Jónsson, varafréttastjóri Sjónvarps- ins,ímorgun. -JGH Suður-Afríka: 43 létu lifið Nýr seðlabankastjóri Á fundi bankaráðs Seðlabanka Is- lands seinnipartinn í dag verður lík- lega gerð tíllaga um nýjan seðla- bankastjóra. Tillagan verður send ráðherra bankamála, Jóni Sigurðs- syni. Samkvæmt heimildum DV bendir l flest til að Birgir ísleifur Gunriarsson alþingismaður verði nýr seðlabanka- stjóri. -hlh LOKI En aðsenda þá eitthvaðáleiðis-eins ogtilsólarstranda? Tók myndir af konu og sendi henm i posti 37 ára karlmaður hefur játað að hafa margsinnis gægst á glugga ungrar konu í húsi á Seltjarnar- nesi. Hann var búinn aö valda kon- unni hugarangri og ónæði um margra mánaða skeið. Lögreglan handtók manninn í síöustu viku eftir að hafa fylgst meö feröum hans i langan tíma. Maðurinn, sem er útlendur og hefur verið búsettur hér á landi í nokkur ár, hóf að stunda hina vafa- sömu íöju sína við hús konunnar síðastliðinn vetur. Hann vandi komur sínar' að húsinu snemma á morgnana. Fyrir utan húsiö varð vart við grunsamlegan umgang og spor í snjónum. Maðurinn var hins vegar snöggur í burtu ef einhver fór að athuga með ferðir hans. Ástandið var farið að valda þeim sem í hlut áttu verulegu hugar- angri. Síðastliðiö sumar, þegar bjart var orðið, varð hins vegar ekkert vart við feröir gluggagægis- ins. Þegar líða fór á veturinn og myrkur fór vaxandi fór dóninn síð- an að láta til sín taka aftur. í des- ember sendi maöurinn myndir í pósti til konunnar sem hann hafði tekið af henni i gegnum glugga. Hann lét bréf fylgja með þar sem sagði að hann heföi stundað iðju sína við húsið í langan tíma. Lögreglan hefur fylgst náið með rnálinu í nokkrar vikur. Nokkru fyrir áramót var síðan tahð næsta öruggt hvaða maður heföi átt í hlut. Enþá fór maöurinn úr landi. Þegar hann kom aftur tíl íslands og lög- reglan varð vör við ferðir hans þóttí enginn vafi leika á að glugga- gægirinn var kominn aftur. Snemma að morgni fimmtudags- ins í siðustu viku var látið til skar- ar skríða og maðurinn handtekinn. Lögreglan fylgdist með manninum þar sem hann tók strætisvagn að Háaleitishverfi, fór þar með filmu i framköllun en hraðaöí sér síðan niður aö Suðurlandsbraut. Þar var hann handtekinn. Við yfirheyrslur hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins játaði maðurinn ofangreint athæfi á sig. -ÓTT Keflavlkurflugvöllur: 200 metra biðröð við hliðið í gær Nú er ljóst að 43 blökkumenn létu lífið í miklum óeirðum á knatt- spymuleik í bænum Sebomeng, nærri Jóhannesarborg í Suður-Afr- íku. Þetta eru alvarlegustu átök sem orðið hafa á kappleik í landinu. Flestir þeirra sem létust tróðust undir en einnig beittu óeirðaseggir bitvopnum og bareflum til að ná sér niðri á andstæðingum sínum. Ólætin spruttu upp eftir að öðru hðinu var dæmtvafasamtmark. Reuter Töluverður eldur kviknaði I kjallaraíbúð við Nönnustíg í Hafnarfirði í gærkvöldi. Miklar skemmdir urðu i íbúðinni. Götunni var lokað meðan slökkvistarf stóð yfir. Rannsóknarlögregla ríksisins hefur málið til meðferðar. DV-mynd S - hert skoðun skilríkja Vegna mjög hertrar vegabréfsskoð- unar við hhðin hjá Keflavíkurflug- velli var umferð hleypt inn á'báðum akreinum við aðalhlið varnarsvæð- isins í morgun. Þetta var gert tíl að umferð gengi greiðar fyrir sig. Þarna myndaðist um 200 metra biðröð í gærmorgun þegar verið var að skoða skilríki þeirra sem voru að fara til vinnu. Þá var umferð hins vegar hleypt inn á svæðið eins og venju- lega: Vegna breytta fyrirkomulags- ins haföi engin röö myndast klukkan átta í morgun og skoðun á skhríkjum gekk greiðlega fyrir sig. Umferð er bæði hleypt inn og út við svokahað Grænáshhð á vamarsvæðinu. Vegabréfsskoðun starfsmanna og þeirra sem eiga erindi á Keflavíkur- flugvöh hefur veriö hert verulega á síðustu dögum vegna hótana um hryðjuverk. Að minnsta kostí tveir hermenn eru nú frá varnarhðinu í hvoru hliðinu ásamt tveimur ís- lenskum lögregluþjónum. Aöeins þegar umferðin er mest, eins og þeg- ar fólk fer í vinnu á morgnana, verð- ur hleypt inn á báðum akreinum við aðalhliðið. -ÓTT Veöriö á morgun: Skúrir sunnaii' lands A morgun verður suðlæg átt, sums staðar allhvöss eða hvöss, á annesjum vestanlands en yfir- leitt stinningskaldi annars stað- ar. Skúrir verða sunnanlands og slydduél vestanlands en léttír tíl á Norður- og Austurlandi. Hiti verður á bhinu 1 til 6 stig, kald- ast vestanlands. /8M,V > c 72177 'tt, SMIÐ JUKAFFI smtm fritt ttem OPNUM KL. 18VIRKA DAGA OG KL. 12 UM HELGAR & » A R A ■» c 9 G \ 111 ALÞJÓÐA LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ LÁGMÚLA 5 • REYKJAVÍK • S. 681644 \i i \i i P V 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.