Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1991.
Fréttir
Stöðvun loðnuveiðanna:
Mjölframleiðendur munu
tapa milljörðum króna
- erfiðleikunum verði dreift, segir Kristján Ragnarsson
Félag íslenskra mjölframleiöenda
telur aö ef loðnukvótinn náist ekki
muni mjölframleiðendur tapa um 3
milljörðum króna. Á haustvertíðinni
voru framleidd um 15 þúsund tonn
af mjöli og hátt í annað eins af lýsi
en sölusamningar við Breta, Skand-
inava og Frakka hljóða upp á mun
meira.
„Við lendum ef tO vill í vandræðum
með um og innan við 10 þúsund tonn.
í samningnum er kveðið á um að ef
við getum ekki framleitt þetta magn
megi beita okkur dagsektum. Það er
hins vegar möguleiki á að við getum
losnað undan þeim því í samningun-
um er jafnframt klásúla sem kveður
á um að sé ekki hægt að veiða af ófyr-
irsjáanlegum ástæðum þá frestist
gildistaka samningsins. Loðnuveiði-
bannið fellur væntanlega undir
þessa klásúlu því það sá enginn fyrir
að það yrði sett á,“ segir Jón Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra mjölframleiðenda.
„Það hefur verið ákveðið að fram-
lengja loönubannið ótímabundið.
Hafrannsóknastofnun mun halda
áfram loðnurannsóknum og er að
vinna nýja rannsóknaráætlun þar
að lútandi," segir Halldór Ásgríms-
son sjávarútvegsráðherra.
„Við lítum svo á aö ef loðnuvertíö-
in bregst eins og allar líkur eru á þá
eigi þau skip sem gera út á loðnuna
rétt á að fá hlutdeild í botnflskkvót-
anum. Þessi skip gáfu eftir aflaheim-
ildir sínar til annarra þegar vel áraði
og nú eiga þau rétt á að fá þessar
aflaheimildir til baka. Við erum ekki
að fara fram á neitt annað en að.erf-
iðleikunum verði dreift,“ segir
Kristján Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri Landsambands íslenskra út-
vegsmanna.
„Við getum ekki beðið endalaust
eftir svörum við þessum óskum okk-
ar en sumir viröast haldnir þeirri
óskhyggju að það veiðist meiri loðna.
Ég tel hins vegar að það gerist ekki.
Loðnurannsóknir halda áfram fram
yfir mánaöamót og ætli við verðum
ekki aö bíða uns þeim er lokiö.“
„Ég hef ekki viljað svara neinu
ákveðið um óskir útvegsmanna. Við
erum að skoða þetta mál út frá öllum
hliðum og reikna dæmiö út frá sem
flestum forsendum. Ég á von á að því
veröi lokið upp úr næstu mánaða-
mótum og þá á ég von á að við getum
sett fram tillögur um hvernig verði
tekið á þessum vanda,“ segir Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra.
-J.Mar
Þessir herramenn fóru á þorskveiöar í Faxaflóa fyrir skömmu en lítiö fékkst i netin af þorski, þess í stað fengu
þeir mikið magn af trjónukrabba. DV-mynd S
Austfirðingar í slag
við Landsvirkjun
- viljabreytinguálínustæðiFljótsdalsvirkjunar
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum;
Mikil og almenn óánægja er hér
eystra með staðsetningu línulagnar
frá Fljótsdalsvirkjun vestur um há-
lendið. Náttúruvemdarsamtök Aust-
urlands (Naust), Ferðamálasamtök
Austurlands og fleiri aöilar era að
vinna að þvi að línustæði verði ann-
að en nú er ákveðið. Heimamenn
hafa fundað með þingmönnum Aust-
urlands og fyrirhugaður er fundur
með Landsvirkjun síðar í mánuðin-
um til að freista þess aö fá línuna
flutta norður.
Samkvæmt teikningum Lands-
virkjunar á væntanleg háspennulína
frá Fljótsdalsvirkjun að liggja nyrst
um Krepputungur vestur milli
Herðubreiðartagla og Dyngjuijalla
og um Ódáðahraun í Suöurárbotna.
Þarnar eru hins vegar fjölfarnar
ferðamannaslóðir og miklar náttúra-
perlur sem óhjákvæmilega myndu
setja ofan við svo áberandi m.ann-
virki að ekki sé talað um það mikla
jarðrask sem verður á meðan á fram-
kvæmdum stendur.
Árni Gunnarsson kennir kvótakerfi um Qölgun slysa:
Vökulög í stór-
hættu á frysti-
togurunum
„Mér hefur borist til eyrna að frí-
vaktir á sumum frystitogurum séu
skornar niður um allt að- helming
. vegna hinnar gífurlegu áherslu sem
lögð er á vinnslu aflans um borð.
Munu frívaktirnar vera skornar nið-
ur úr sex tímum í þrjá. Um borð eru
24 menn að anna vinnu sem allt aö
150 menn sjá vanalega um í landi.
Vökulögin eru í verulegri hættu og
það gefur auga leið að við slíkar að-
stæður stóreykst hættan á slysum.
Það sem á sér stað um borð í frysti-
togurum jaðrar við lögbrot," sagði
Árni Gunnarsson meðal annars í
umræðum á Alþingi í gær.
Árni er ásamt þingmönnum úr öll-
um flokkum flutningsmaður laga-
frumvarps um slysavarnaskóla sjó-
manna. I lok umræðunnar, þar sem
einhugur var um framgang þess,
kom Arni inn á áhrif kvótakerflsins
í þá átt að auka slysatíðni um borð
í íslenskum fiskiskipum og einnig
áhrif þess á vinnuna um borð í frysti-
togurum.
„Núgildandi kvótakerfi, með með-
fylgjandi ofurkappi, hefur dregið úr
öryggi sjómanna í hluta fiskiskipa-
flotans. En það er með ólíkindum hve
mikil heill og hamingja er yfir trillu-
sjómönnum eftir að kvótakerfið tók
gildi. Kapp er meira en forsjá í út-
gerð bátanna sem stóreykur aftur
slysahættuna."
Eftir umræðurnar gat Árni ekki
nefnt ákveðna togara en sagðist hafa
heyrt um málið frá Vestmannaeyj-
um. Hann sagðist hafa heyrt að ef
sjómenn kvörtuðu yflr styttingu frí-
vakta væri þeim einfaldlega sagt að
taka pokann sinn.
Árni leggur fram fyrirspurn til
sjávarútvegsráðherra þar sem hann
spyr hvernig eftirliti með fram-
kvæmd vökulaga um borð í frystitog-
urum sé háttað.
-hlh
Þróunarsldpiö Fengur leigt:
Ekkert fjármagn til
þess að reka skipið
- segir Bjöm Dagbjartsson framkvæmdastjóri
„Það kom fyrirspurn frá þýsku
þróunarstofnuninni um hvort hugs-
anlegt væri að þeir gætu fengið Feng
á leigu. í kjölfarið kom maður að
skoða hann og það var skrifað undir
viljayfirlýsingu um leigu á skipinu.
Ef samningar ganga saman verður
skrifað undir þá á næstu vikum.
Verði samið um leigu á skipinu mun
Fengur fara til hafrannsókna úti fyr-
ir ströndum Alsír og Marokkó,“ seg-
ir Bjöm Dagbjartsson, framkvæmda-
stjóri Þróunarsamvinnustofnunar
íslands.
„Ástæðan fyrir því að við verðum
að leigja Feng ec. sú aö við höfum
ekki næga peninga til að reka hann
þrátt fyrir að næg verkefni séu fyrir
skipiö. Síðastliðið sumar komu til að
mynda þijár fyrirspurnir frá Afríku-
ríkjum um hvort hægt væri að fá
skipið til rannsóknarstarfa úti fyrir
ströndum Afríku en það var ekki til
fjármagn til að sinna þeim óskum."
Fengur hefur legið bundinn við
festar í rúmt ár. Það kostar um 25
milljónir að reka Feng á ári með lág-
marksveiðarfærum. 15 manna áhöfn
er um borð þar af þrír íslendingar
og munu þeir fylgja skipinu ef þaö
verður leigt.
Skipið er 160 tonn, sex ára gamalt,
en það var smíðað hjá Slippfélaginu
á Akureyri. Upphaflega var Fengur
smíðaður til að sinna þróunaraðstoð
við Grænhöfðaeyjar og var hann þar
við rannsóknarstörf og veiðar þar til
fyrir ári.
- Nú eru íslendingar stöðugt gagn-
rýndir fyrir að sinna þróunaraðstoð
ekki sem skyldi, væri ekki nær að
við gerðum Feng út sjálf?
„Það heföi verið betra ef íslending-
ar hefðu sjálfir getað rekið Feng. Það
er hins vegar alltaf spurning um
hvernig eigi að verja því fjármagni
sem ríkiö veitir í þróunaraðstoð,"
segirBjörn. -J.Mar