Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Blaðsíða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1991.
Afmæli
Hennann Sigtryggsson
Hermann Sigtryggsson, íþrótta- og
tómstundafulltrúi Akureyrarbæjar,
Víðimýri 1, Akureyri, varð sextugur
ígær.
Hermann er fæddur á Akureyri
og ólst þar upp. Hann lauk prófi í
Gagnfræðaskólanum á Akureyri
1949 og íþróttakennaraskóla íslands
á Laugarvatni 1951. Hermann hefur
verið á ýmsum endurmenntun-
arnámskeiðum á vegum íþrótta-
kennaraskólans, menntamálaráðu-
neytisins og fleiri aðila.
Starfsferill
Hermann var íþróttakennari á
Stokkseyri og Eyrarbakka 1951 og
íþróttakennari og framkvæmda-
stjóri Ungmennasambands Eyja-
fjaröar 1952 og 1953. Hann var fram-
kvæmdastjóri Félags- og æskulýðs-
heimilis templara á Akureyri og
hótelstjóri Hótel Varðborgar 1953-56
og sýsluskrifari og síðan gjaldkeri
hjá bæjarfógetanum á Akureyri
1955-62. Hermann hefur veriö
æskulýðs- og íþróttafulltrúi, nú
íþrótta- og tómstundafuUtrúi Akur-
eyrarbæjar frá áramótunum 1962
og 1963.
Hermann var í vara- og aðalstjórn
Skíðasambands íslands 1949-86 og í
stjórn Knattspymufélags Akur-
eyrar frá 1951, formaður 1955-62.
Hann var í stjórn íþróttabandalags
Akureyrar 1958-63 og í stjórn Skíð-
aráðs Akureyrar 1969-73. Hermann
var í stjórn Ferðamannaráðs Akur-
eyrar 1969-80 og hefur verið í vara-
stjóm Æskulýðsráðs ríkisins frá
1973, var forseti Rotaryklúbbs Ak-
ureyrar 1979-80, í stjóm Norræna
félagsins 1981-89 og í stjórn íþrótta-
sambands íslands frá 1986. Her-
mann var formaður bygginganefnd-
ar íþróttahallarinnar á Akureyri
1973-86 og í ýmsum nefndum fyrir
Akureyrarbæ, eins og vallarnefnd,
íþróttahúsnefnd og byggingarnefnd
Skíðahótelsins í Hlíðaríjalli. Her-
mann var í tveimur nefndum
menntamálaráðuneytisins er fjall-
aði um lög um æskulýðsmál.
Hermann var mótsstjóri skíöa-
móts íslands 1957,1962,1965,1971
og 1976, auk fleiri móta í öömm
greinum, og var fararstjóri á ólymp-
íuleikana í Innsbmck 1976. Hann
var fararstjóri á heimsmeistaramót
í norrænum greinum skíðaíþrótta í
Lathi 1978.
Fjölskylda
Hermann kvæntist 14. nóvember
1953 Rebekku H. Guömann, f. 22.
febrúar 1928, skólaritara. Foreldrar
Rebekku voru Jón Gíslason Guö-
mann, f. 14. nóvember 1896, d. 3.
september 1958, kaupmaður og síðar
b. á Skarði á Akureyri, og kona
hans, Guðlaug ísaksdóttir Guð-
mann, f. 9. mars 1899, d. 2. nóvemb-
er 1968. Dætur Hermanns og Re-
bekku em: Anna Rebekka, f. 16.
ágúst 1954, kennari og íþróttakenn-
ari á Akureyri, gift Björgvini
Steindórssyni, garðyrkjufræðingi
og forstöðumanni Lystigarðsins á
Akureyri, og eiga þau tvö böm:
Birki Hermann, f. 22. apríl 1982, og
Maríu Björk, f. 2. ágúst 1986; Edda,
f. 28. september 1960, íþróttakennari
á Akureyri, gift Gunnari Kr. Jónas-
syniforstjóra.
Bræður Hermanns eru: Lýður, f.
6. júlí 1920, d. í september 1983, fram-
kvæmdastjóri fyrir sirkus og harm-
óníkuleikari í Osló, kvæntur Klöm
Strand, dætur hans eru: Lill Ann
Giæver og Elín, í Rvík; Ragnar, f.
26. maí 1925, lagermaður á Ak'ur-
eyri, kvæntur Sonju Gunnarsdóttur
afgreiðslustúlku, börn þeirra eru:
Sigtryggur, Ragnheiður, Kamilla,
Hermann og Bórgar.
Ætt
Foreldrar Hermanns voru Sig-
tryggur Sigurðsson, f. 30. apríl 1888,
d. 2. febrúar 1950, skipasmiður á
Akureyri, og kona hans, Anna Lýðs-
dóttir, f. 1. september 1893, d. 4. sept-
ember 1986. Sigtryggur var sonur
Siguröar, smiðs á Akureyri, Björns-
sonar, b. á Atlastöðum í Svarfaðar-
dal, Sigurðssonar. Móðir Sigurðar
var Sigríður Jónasdóttir, b. á Þverá
á Staðarbyggð, Jónssonai;. Móðir
Sigríöar var Guðrún Pálsdóttir, b. á
Þómstöðum í Kaupangssveit, Guð-
mundssonar, b. í Kaupangi, Guð-
mundssonar, lögréttumanns í
Stórubrekku, Guömundssonar.
Móðir Sigtryggs var Kristín Jóns-
dóttir, b. á Hánefsstöðum, Gunn-
laugssonar og konu hans, Sigríðar
Halldórsdóttur, b. á Klaufabrekk-
um, Halldórssonar, b. á Klaufa-
brekkum, Sigfússonar, b. á Melum,
Jónssonar, b. og hreppstjóra á
Stóru-Hámundarstöðum, Rögn-
valdssonar.
Anna var dóttir Lýðs, b. og hrepp-
stjóra á Skriðnesenni í Bitrufiröi,
bróður Ásgeirs, afa Ásgerðar Búa-
dóttur veflistarkonu og Sólveigar
Ásgeirsdóttur, konu Péturs Sigur-
geirSsonar biskups. Annar bróðir
Lýðs var Finnur, b. í Fagradal í
Saurbæ, langafi Hrólfs Jónssonar,
varaslökkviliðsstjóra í Reykjavík.
Lýður var sonur Jóns, b. á Skriðnes-
enni í Bitru, Jónssonar, b. á Skrið-
nesenni, bróður Sigríöar,
langömmu Þórðar, afa Þórs Magn-
ússonar þjóðminjavarðar og Lýðs
Bjömssonar sagnfræðings. Jón var
sonur Andrésar, b. á Skriðnesenni
í Bitru, Sigmundssonar, ættfóöur
Ennisættarinnar. Móðir Lýðs var
Hallfríður Brynjólfsdóttir, b. á
Kárastöðum á Vatnsnesi, Brynjólfs-
sonar.
Móðir Önnu var Anna, systir Ólaf-
ar, langömmu Jóhanns, föður
Frosta þjóðháttafræðings og Snorra,
föður Lilju Maríu, gullverðlauna-
hafa í sundi á ólympíuleikum fatl-
aðra í Seoul. Ólöf var einnig amma
Guðnýjar, móður Brands Jónsson-
ar, fyrrv. skólastjóra Heyrnleys-
ingjaskólans, og einnig amma Ragn-
heiðar, ömmu Þorgeirs Ástvalds-
sonar. Anna var dóttir Magnúsar,
b. á Óspakseyri, Jónssonar, alþing-
ismanns í Ólafsdal, Bjamasonar á
Hermann Sigtryggsson.
Hraunum í Skagafirði, Þorleifsson-
ar.
Móðir Magnúsar var Anna, systir
Einars, föður Indriða rithöfundar. •
Anna í Ólafsdal var dóttir Magnús-
- ar, prests í Glaumbæ, Magnússonar
og konu hans, Sigríðar, systur Bene-
dikts, langafa Einars Benediktsson-
ar skálds. Sigríður var dóttir Hall-
dórs Vídalíns, klausturhaldara á
Reynistað. Móðir Halldórs var
Hólmfríöur Pálsdóttir Vídalíns, lög-
manns í Víöidalstungu. Móðir Páls
var Hildur Arngrímsdóttir lærða,
vígslubiskups á Melstað, Jónssonar.
Móðir Ólafar var Guðrún Jónsdótt-
ir, alþingismanns í Keldudal í
Skagafirði, Samsonarsonar og konu
hans, Guðrúnar Sigurðardóttur.
Hermann tekur á móti gestum laug-
ardaginn 19. janúar kl. 15-17 á Hótel
KEA.
Ásmundur Uni Guðmundsson
Guðmundur Betúelsson,
Kaldá,Flateyri.
Jóhanna G. Björnsdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
90 ára
Anna Sveinsdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Charlotta Ólöf Gissurardóttir,
Þómfelli 2, Reykjavík.
70 ára
Hjörtur Guðjónsson,
Smárabraut 20, Höfn í Hornafiröi.
Haraldur Kr. Jóhannsson,
Hólmgarði66, Reykjavík.
Hann verður að heiman á afmælis-
daginn.
60 ára
Gísii Grímsson,
Illugagötu21, Vestmannaeyjum.
Hulda Herborg Marvinsdóttir,
Uppsölum, Öngulsstaðahreppi.
Hörður J örundsson,
Ásvegi 15, Akureyri.
50ára_________________________
Sesselja Þórdís Ásgeirsdóttir,
Einimel 15, Reykjavík.
Stefanía Guðmundsdóttir,
Illugagötu 35, Vestmannaeyjum.
Anna Lilja Leósdóttir,
Hólavegi21,
Sauðárkróki.
40 ára
Jlón Helgi Bjarnason,
Álfabrekku við Suðurlandsbraut,
Reykjavík.
Herdís Karlsdóttir,
Vesturbergi 141, Reykjavik.
Helgi Már Haraldsson,
Háteigsvegi 48, Reykjavík.
Hörður Héðinsson,
Bleikjukvísl 5, Reykjavík.
Elín Egilsdóttir,
Hásteinsvegi47,
Vestmannaeyjum.
Elisabet Egilsdóttir,
Skólabraut 2, Akranesi.
Axel Sölvason
Ásmundur Uni Guðmundsson, Suð-
urgötu 124, Akranesi, varð sextugur
ígær.
Starfsferill
Ásmundur Uni fæddist á Odds-
stöðum í Miðdalahreppi í Dalasýslu
en flutti ársgamall með foreldrum
sínum að Krossi í Haukadalshreppi
í Dalasýslu. Árið 1935 fluttu svo for-
eldrar hans að Þormóðsdal i Mos-
fellssveit en síðan aftur að Krossi
tíu árum síðar.
Ásmundur Uni nam í Brúarlands-
skóla í Mosfellssveit frá níu ára
aldri og til fermingar en hann
fermdist frá Lágafellskirkju. Fjögur
síðustu skólaárin var hann þó í far-
skóla, ýmist á Úlfarsá eða Reynis-
vatni. Hann stundaði Félagsmála-
skóla alþýðu í Ölvusborgum árin
1982,83 og 84 og var á námskeiði
MFÁ á Akranesi 1989.
Ásmundur Uni starfaði á búi for-
eldra sinna og ýmis störf á vegum
Kaupfélags Hvammsfjarðar í Búð-
ardal, var við grenjaleit og vann í
Haukadalshreppi í fimm vor. Árið
1963 flutti hann með fjölskyldu sína
á Akranes og gerðist þá starfsmaður
Sementsverksmiðjunnar og hefur
starfaðþarsíöan.
Ásmundur Uni gekk í Slysavama-
félag íslands 1958 og starfaði í Björg-
unarsveitinni Hjálp á Akranesi frá
1965-82, var um skeiö varamaður í
stjórn Slysavarnadeildar karla á
Akranesi og hefur séð um húsnæði
slysavarnadeildanna frá 1979, sat í
stjórn Starfsmannafélags Sements-
verksmiðjunnar 1978-82,-var kosinn
í stjórn Verkamannadeildar Verka-
lýðsfélags Akraness 1980, sagði sig
úr stjórninni 1985 og var endurkjör-
inn 1989. Þá sat hánn í trúnaöarráði
VLFA. Hann hefur setið í stjórn
FR-deildar 11 frá stofnun 1980.
Fjölskylda
Ásmundur Uni kvæntist 1958
Halldóru Valfríði Elisdóttur, f. 9.7.
1939, frá Sælingsdal í Dalasýslu en
hún er af ætt Ólafs Brandssonar.
Ásmundur Uni og Halldóra eign-
uðust sex börn, íjóra syni og tvær
dætur. Börn þeirra: Guðmundur
Pálmi; Bjartmann Jens, er lést af
slysfórum 1990, tuttugu og níu ára;
Guðrún; Oddný; Haraldur Ásgeir,
er dó á sóttarsæng ellefu mánaða
gamall, og Haraldur Ásgeir.
Foreldrar Ásmundar Una: Guð-
Asmundur Uni Guðmundsson.
mundur Pálmi Ásmundsson frá
Svínhól í Dalasýslu, óg Málmfríður
Jóhannsdóttir.
Guðmundur var sonur Ásmundar
Guðmundssonar á Akranesi og
Guðrúnar Þorleifsdóttur frá Vill-
ingadal. Málmfríður var dóttir Jó-
hanns, b. í Miðskógi, Guðmunds-
sonar, b. í Bíldhóli, Vigfússonar.
Móðir Jóhanns í Miðskógi var
Málmfríður Jónsdóttir. Móðir
Málmfríðar Jóhannsdóttur var
Guðrún Torfadóttir, b. i Kirkju-
skógi, Sveinssonar.
Gunnar Þórarinsson.
Kjartansson, f. 1893, d. 25. nóvember
1952, hjólbarðaviðgerðamaður og
kaupmaður í Rvík, og kona hans,
Guðrún Daníelsdóttir, f. 1895, d. 26.
apríl 1967. Þórarinn var sonur
Kjartans, verkamanns í Rvík, Árna-
sonar. Guðrún var dóttir Daníels,
ljósmyndara í Rvík, Daníelssonar
og konu hans, Níelsínu Ólafsdóttur,
systur Ólafs, fríkirkjuprests í Hafn-
arfirði.
Axel Sölvason, rafvirkjameist-
ari, Hraunbæ 44, Reykjavík, varö
sextugurígær.
Axel er fæddur á Siglufirði og
ólst þar upp og í Reykjavík.
Starfsferill
Axel lærði rafvélavirkjun í Raf-
vélaverkstæði Halldórs Ólafssonar,
Rauðárstíg 20, og var rafvirki á skip-
um Eimskips og á rafmagnsverk-
stæði SÍS. Hann rak rafvélaverk-
stæði undir eigin nafni um árabil
og síðustu fimmtán árin vann hann
sem tækjafræðingur hjá Háskóla
íslands.
Axel var formaður Skotfélags
Reykjavíkur í mörg ár og fyrsti for-
maður Skotsambands íslands. Hann
var formaður Félags radíóamatöra
umtíma.
Fjölskylda
Axel kvæntist28. febrúar 1954
Hrefnu Ragnarsdóttur, f. 18. júlí
1931. Foreldrar Hrefnu voru Ragnar
Eyjólfsson, b. ogsjómaðuráDjúpa-
vogi, og kona hans, Guðný Finn-
bogadóttir. Böm Axels og Hrefnu
eru: Axel Sölvi, f. 5. október 1952,
flugstjóri; Sigrún, f. 16. sepmber
1954, húsmóðir; Ragnar Guöni, f. 6.
mars 1958, Ijósmyndari, og Bergur,
f. 22. ágúst 1962, flugstjóri.
Foreldrar Axels voru Sölvi Valdi-
marsson, vélstjóri á Siglufirði, og
kona hans, Pálína Jóhannsdóttir,
d. 1943.
Axel og Hrefna eru á ferð um
Bandaríkin.
Gunnar Þórarinsson
Gunnar Þórarinsson sölumaður,
Arahólum 4, Reykjavík, varð sex-
tugurígær.
Gunnar er fæddur í Reykjavík og
ólst upp í Reykjavík og nágrenni.
Starfsferill
Gunnar var í Kvöldskóla KFUM,
í enskuskóla og á námskeiðum um
verslunarstörf. Hann vann við í
Tóbaksverslun 1947-53 og í Slipp-
búðinni 1955-57, var í sjómennsku á
togurum í tvö ár frá 1961 og vann
við frystihúsastörf í Vestmannaeyj-
um og Þorlákshöfn, var sjómaður á
skelfiskbátum frá Stykkishólmi
1972-74 og aflabátnum Gullborginni
VE 38, með sonum Binna í Gröf, eina
vetrarvertíð, 1976. Gunnar var sölu-
maður hjá Sælgætis- og Efnagerð-
inni Sóló í Kópavogi 1979-84 og var
sölumaöur fyrir ýmis fyrirtæki úti
á landi í nokkur ár frá 1984 en er
nú sj úkhngur eftir umferðarslys.
Hann var í eitt ár í hússtjóm sam-
býlisblokkar í Rvík, starfaði fyrir
Íslensk-Ameríska félagið fyrstu ár
þess og er áhugamaður um vest-
ræna samvinnu. Gunnar hefur
skrifaö nokkrar greinar í dagblöðin
um þjóðmál.
Fjölskyída
Systkini Gunnars eru: Gerður,
ekkja Sveins Tryggvasonar, fram-
kvæmdastjóra Framleiðsluráðs
landbúnaðarins; Daníel, kaupmað-
ur; Guöfinna, fyrrv. Símastúlka hjá
Stjómarráðinu; Kjartan, d. 1969,
flugmaður hjá Loftleiðum; Lárus,
flugumferðarstjóri; Níels, d. 1959,
vörubílstjóri og verslunarmaður;
Kristveig, d. 1954, skrifstofustúlka;
Sigríður, sjúkraliði; Ólöf, húsmóðir;
Þórir, fyrrv. sjúkraflugmaður hjá
Bimi Pálssyni og nú strætisvagn-
stjóri, ogÞóra, húsmóðir.
Ætt
Foreldrar Gunnars voru Þórarinn