Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
RStstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
MIÐVIKUDAGUR 16. JANUAR 1991.
Jón utan án
vegabréfs
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra héit í morgun utan til
Helsinki í Finnlandi á fund utanrík-
isráðherra Norðurlandanna án þess
að vera kominn með vegabréfsáritun
til Sovétríkjanna.
Jón hefur þegið boð Landsbergis,
forseta Litháens, um að koma í opin-
bera heimsókn til Litháens eftir
fundinn í Helsinki. Það er tímamóta-
heimsókn.
Samkvæmt upplýsingum DV í
morgun fór Jón utan í morgun með
þau svör frá sovéska sendiráðinu í
Reykjavík að allar vonir stæðu til að
hann fengi vegabréfsáritun til Sovét-
ríkjanna í Helsinki. -JGH
Bagdad:
Utvarp heyrist
ekki lengur
Útvarp heyrist nú ekki lengur í
Bagdad, höfuðborg íraks, vegna þess
að Bandaríkjamenn trufla allar
sendingar. Truílun á öllum fjarskipt-
um er liður í hernaðaráætlunum fjöl-
þjóðahersins við Persaflóa og hugsuð
til að koma í veg fyrir að hægt verði
að hafa skipulega stjórn á her íraka.
Þá hefur truflun á útvarpssending-
um mikil áhrif á íbúana því að nú
er ekki hægt að koma boðum til fólks
þegar eitthvað gerist. Sagt var að
nánast ekkert væri skiljanlegt af því
sem heyrðist i útvarpinu í Bagdad.
Reuter
Obreyttástand
ávarnarsvæðinu
Að sögn Þorgeirs Þorsteinssonar,
lögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli,
var ástandið þar í morgun með eðli-
legum hætti. Löggæsla og skoðun
skilríkja hefur verið hert við hliðin
aö varnarsvæðinu en umferð gekk
vel í morgun.
Aðspurður sagði Þorgeir aö ef átök
brytust út við Persaflóa yrði ástandið
á varnarsvæðinu metið með tilliti til
aðstæðna. Hann vildi ekki tjá sig um
hvort eða til hvaða aðgerða yrði grip-
ið. _ÓTT
Forseti íslands:
Heiðursdoktor
íGautaborg
Forséti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, verður siðar í þessum
mánuði sæmd heiðursdoktorsnafn-
bót við háskólann í Gautaborg fyrir
framlag sitt til norræns samstarfs i
menningarmálum. Forsetinn fer til
Gautaborgar 26. janúar og verður
viðstödd 100 ára afmælishátíð há-
skóláns í Gautaborg. -JGH
LOKI
Eitraðir málmarfrá
íslandi? Meinti maður-
inn ekki gaffalbita?
Er með aWinnuleyfi
fyrir 50 Islendinga
hyggst leigja togarann Andra til úthafsveiða
Magnús Karlsson, 26 ára gamall
Grandarfirðingur, er nýkominn til
landsins frá Nýja-Sjálandi með 50
atvinnuleyfi upp á vasann. Hann
hefur unnið að ýmsu sem snertir
uppbyggingu sjávarútvegs á Nýja-
Sjálandi og hyggst fá íslendinga til
að starfa þar með sér við útgerð.
Magnús hefur í huga að leigja
frystitogarann Andra af Norska
PK-bankanum. Bankinn keypti
togarann eins og kunnugt er þegar
íslenska úthafsútgeröarfélagið
varð gjaldþrota á siöasta ári. Magn-
ús hyggst gera skipið út á djúpsjáv-
arafla við Nýja-Sjáland.
„Ég er byrjaður að tala víð fólk
og skrá hjá mér nöfn. Síminn hefur
varla stoppað hjá mér. Andri er í
Noregi núna og er nýkominn úr
endurbyggingu í Hull. Janus Nor-
berg, útgerðarmaður frá Færeyj-
úm, er með mér í að semja um leigu
á togaranum. Ætíunin til að byrja
með er að semía um kaupleigu á
prósentum. Ég er lfka að kanna
möguleika á að gera út togveiðiskip
sem nú er i Frakklandi. Hingað
kom ég með öll leyfi sem þarf til
að gera togarana út og hef reyndar
leyfi fyrir allt að tíu báta. Kvóta
hef ég ekki en það er vel hægt aö
leigja kvóta,“ sagði Magnús í sam-
tali við DV í gær.
Hann hefur verið á Nýsjálensk-
um fiskiskipum í sex ár og segir
að mikið sé um djúpsjávarfisk fyrir
utan 200 mílna lögsöguna.
„I síöasta túr fengum við eitt þús-
und tonn á 11 dögum. Við fengum
80 tonna poka í hali. Fískurinn er
svipaður og karfi og er á um þús-
und metra dýpi,“ sagði hann.
Magnús segir góðar horfur á út-
gerð togara frá Nýja-Sjálandi. Ætl-
un hans er að gera út frá Tarranga
þar sem íbúar era 30 þúsund.
„Frambyggjarnir þarna hafa
fengið mikið fjármagn frá ríkinu
og þeir vilja ólmir komast inn í
útgerðina ef góð skip koma. Ég
ætla að taka gott fólk með mér héð-
an og hef 50 atvinnuíeyfi meðferðis
sem gilda í allt að fimm ár. Fólkið
myndi þá vinna á togaranum og á
netaverkstæði. Eftir fyrsta túrinn
myndum við setja upp frystihús.
Andri flakar allt um borð en hinn
togarinn myndi hausa aflarrn og
heilfrysta. -ÓTT
Ofsóknaræöi 1 Sovét:
„Eiturmálmar
frá lslandi“
Bullandi hatur gagnvart útlend-
ingum og útlendum áhrifum, sér-
staklega vestrænum, er enn mjög
áberandi í Sovétríkjunum ef marka
má ofsóknarkenndar blaöa- og tíma-
ritsgreinar frá harðlínumönnum.
Nýjasta tölublað sovéska mánaðar-
ritsins Molodaya Gvardia, sem er
íhaldssamt, mun þannig hafa verið
gegnsýrt Vesturlanda- og gyðinga-
hatri.
Samkvæmt erlendum blaðafregn-
um er yfirmaður KGB, Vladimir A.
Kryuchkov, meðal áköfustu tals-
manna andvestrænna viðhorfa
ásamt fleirum úr kommúnista-
flokknum, hernum og leyniþjón-
ustunni. í síðustu viku sakaði hann
Vesturlönd um að senda eitrað korn
til Moskvu og að flýta hruni Sovét-
ríkjanna með stuðningi við eða stofn-
un þjóðernishópa í lýðveldunum.
í Molodaya Gvardia er tortryggnin
á nótum KGB-foringjans. Þar voru
lesendur meðal annars varaðir við
„eitruðum málmum“ frá íslandi,
krabbameinsvaldandi sjampói frá
Póllandi og menguðum brauðkörfum
og innkaupatöskum frá Víetnam.
KGB-foringinn sagði um helgina,
er hann ræddi um leiðir til að sporna
við þessum fjandsamlegu vestrænu
áhrifum, að líklegast þyrfti blóðbað
tilaðkomaálögumogreglu. -hlh
íranar fella niður allt f lug
Lögreglan í Reykjavik hefur nú eftirlit með nokkrum byggingum sendiráða
erlendra ríkja i Reykjavík vegna ástandsins við Persaflóa. Myndin er tekin
í morgun við bandaríska sendiráðið við Laufásveg. DV-mynd GVA
Stjórn írans hefur látið fella niður
allt farþegaflug í nágrenni Persa-
flóans meðan styrjaldarhættan vofir
þar enn yfir.
Ríkisflugfélagið Iran Air tilkynnti
að flug suður yfir Persaflóann til
Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna kæmi ekki til greina á meðan
núverandi ástand stæði. Þá hefur
flug til Jódaníu einnig verið fellt nið-
ur af ótta við að átök brjótist út á
hverri stundu.
Reuter
Veðrið á morgun:
sunnan-
og vestan-
lands
A morgun verður sunnan- og
suðaustanátt, stinningskaldi eða
allhvasst með éljum sunnan- og
vestanlands en hægara og úr-
komulaust norðan- og norðaust-
anlands. Frost á bilinu 1 til 3 stig.
/SM\
SMIÐJUKAFFI
SBNDUM fRm HfM
0PNUM KL. 18VIRKA DAGA
OG KL. 12 UM HELGAR
* A R A «
lll ALÞJÓÐA
<QB> LÍFTRYGGINGARFÉLAOIÐ
LÁOMÚLA 5 • REYKJAVlK • S. 681644
0
4
i
i
4
$