Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1991. Fréttir Alþýðuflokkurinn í Reykjavík Fjórtán gefa kost á sér í forvali Alþýðubandalagsins í Reykjavík setn fram fer næsta laugardag. Þeirra á meðal eru báðir þing- menn fiokksins í Reykjavík, þau Svavar Gestsson og Guðrún Helgadóttir. Mikla athygli vekur að Már Guömundsson, hagfræðingur og aðstoðarmaður Ólafs Ragnars Grímssonar fjármálaráðherra, gefur kost á sér í forvalinu. Taliö er að Már fái mörg atkvæði jrá félögum í Birtingu og verði t einu af efstu sætum listans. Már er engu að síöur félagi í Alþýðu- bandalaginu í Reykjavík. Eftirtaldir ijórtán taka þátt í forvalinu: Árni Þ. Sigurösson hagfræðingur, Arnór Þ. Sigfússon dýrafræðingur, Auöur Sveinsdóttir arkitekt, Birna Þórðardóttir blaöamaður, Guömundur Þ. Jónsson, form. Iftju, Guörún Helgadóttir alþingismaður, Haraldur Jóhannsson hagfræðingur, Már Guömundsson hagfræðingur, Margrét Ríkharðsdóttir þroskaþjáiíi, Matthías Matthíasson háskólanemi, Sigurrós Sigurjónsdóttir fulltrúi, Steinar Harðarson tæknifræðingur, Svavar Gestsson ráðherra, Þorvaldur Þorvaldsson trésmiður. Forvaliö fer fram næsta laugar- dag og stendur frá kiukkan 10.00 til 20.00. Þátttökurétt hafa allir félagar í Alþýðubandalaginu i Reykjavik svo og aðrir flokks- menn búsettir í Reykjavík. Þaö þýðir að félagar í Birtingu geta kosiö. Þeir hafa sagt sig úr Al- þýðubandalaginu í Reykjavik en ekki flokknum. Þá má geta þess aö utankjör* staðaatkvæöagreiðsla hefst þegar á miövikudaginn og stendur hún yfir frá miövikudegi til fóstudags, frá klukkan 16.00 til 19.00 þessa þtjá daga, irH Stef nir í harðan slag um fyrsta sætið - JónBaldvinfærharðasanikeppmmnefstasætilistans Það stefnir í harða baráttu al- þýðuflokksmanna um fyrsta sætið á framboðslistanum í Reykjavík við næstu þingkosningar. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður flokksins, býður sig fram í það sæti og lendir vafalaust í baráttu viö Jóhönnu Sig- urðardóttur, varaformann flokksins, um það sæti. Jóhanna hefur mikið fylgi og gæti staðið uppi í hárinu á formanninum; ekki í fyrsta sinn. Þar sem Jón Baldvin býður sig aðeins fram í fyrsta sætið, stendur þing- mennska hans og fellur með því að hann sigri. Jón Armann Héðinsson, fyrrverandi þingmaður Alþýðu- flokksins, verður væntanlega með og býður sig fram í fyrsta sæti og nokkur sæti þar fyrir neðan. Þá býð- ur Þorlákur Helgason, blaöamaöur á Alþýðublaðinu, sig fram í fyrsta sæt- ið og nokkur sæti þar fyrir neðan. „Bræöur munu berjast" - Jón Baldvin, Jóhanna Sigurðardóttir og Jón Ármann Héðinsson. Jóhanna hafði, þegar þetta er skrif- að, ekki játað, að hún byði sig fram í bæði fyrsta og annað sætið. En þeir sem nærri henni standa benda á, að hún eigi varla annarra kosta völ en að beijast um fyrsta sætið. Atkvæði, sem falla á menn um fyrsta sætið, eru talin með, þegar reiknaö er út, hve mikið menn hafa í annað sætið. Jón Baldvin gæti til dæmis hugsan- lega fengið um 60 prósent atkvæða í fyrsta sætiö, svo að dæmi sé nefnt. Þá fellur afgangur atkvæðanna á aðra, segjum Jón Ármann og Þorlák. Þeir hafa þau atkvæði því „með sér“, þegar reiknað er út, hver hafi náð öðru sæti. Yrði Jóhanna bara í fram- boði til annars sætisins, fengi hún engin atkvæði úr fyrsta sætinu. Hún stæði því mun verr að vígi en Jón Ármann og Þorlákur að því leyti. Jón Baldvin verður í kosninga- bandalagi við Össur Skarphéðins- son, fyrrum Þjóðviljaritstjóra og Birtingarmann, sem nýgenginn er í Alþýðuflokkinn og býður sig fram í Sjónarhom Haukur Helgason 3., 4. og 5. sætið. Jón Ármann hefur leitað til Jóhönnu um kosninga- bandalag, én hún hafnaöi. Menn segja, að Jóhanna sé einfari í slíkum efnum. Deilt um prófkjörsreglur Þröstur Ólafsson, fyrrverandi al- þýðubandalagsmaður og verkalýðs- frömuður með meiru, gekk í Al- þýðuflokkinn á laugardaginn. Hann hugðist bjóða sig fram í 3. sæti og einhver neðri sæti. Þröstur fór aö hringja í alþýöuflokksfólk á sunnu- daginn en fékk misgóðar móttökur. Sumir voru afgerandi á móti honum og sögðu, að hann væri of blautur bak við eyrun, of nýkominn í flokk- inn, til þess að koma til greina. Jón Baldvin og Össur áttu klíku- fund á mánudaginn. Össur hefur set- ið mikið við símann. Hann heldur einnig klíkufundi, þár sem stuðn- ingsmenn hans mæta, 2-3 fundi á dag. Hann hefur fengið þokkalegar móttökur hjá alþýðuflokksfólki. Össur á sérstaklega fylgi hjá ungu fólki. Hann hefur hins vegar lítiö gagn af þeim, sem nýkomnir eru úr Birtingu, af því að þeir eru svo fáir - aðeins 7-8 hræður. Gömlu kratarnir styðja Jóhönnu, þeir sem stundum eru kallaðir eðal- kratar eða órígínalkratar. Jón Bald- vin nýtur fylgis hóps, sem kemur saman vikulega, 20-30 manna hóps. Auk þess nýtur formaðurinn auðvit- að töluverðs fylgis flokkshollra krata, einkum þeirra, sem ekki telj- ast „gamlir kratar“. Sumir telja prófkjörsreglurnar nú ólýðræðislegar. Þær voru ákveðnar í fyrradag. Þegar Sjálfstæðisflokkur- inn hafði prófkjör i Reykjavík, var kosið í átján sæti, og komu menn til greina í öll þau sæti. Alþýðuflokkur- inn hefur það nú þannig í Reykjavík, að menn fá ekki atkvæði í önnur sæti en þau, sem frambjóðendurnir nefna sérstaklega og bjóða sig fram í. Fólk Jóhönnu kvartar til dæmis yfir þessum reglum og telur þær sett- ar af mönnum Jóns Baldvins. Slagurinn hjá krötunum í borginni verður harður, ef að líkum lætur. Málið er, að.vinsældir formannsins, Jóns Baidvins, kunna að reynast minni en hann telur. Óvíst er, að bandalagið við Össur dugi honum, þegar til kastanna kemur. Prófkjörið fer fram annan febrúar. Framboðsfrestur rennur út 21. þessa mánaðar. í dag mælir Dagfari____________________ Friðarverðlaun Gorbatsjovs Menn hafa verið aö misskilja Mikhail Gorbatsjov og þær aðgerð- ir sem Rauði herinn hefur gripið til í Litháen. Sá misskilningur er í því fólginn að Sovétríkin eru gagn- rýnd fyrir að ráðast á almenna borgara í Litháen og beita vopna- valdi gegn óvopnuðum einstakling- um á götum úti. Menn hafa jafnvel verið að ásaka Gorbatsjov fyrir að hafa sjálfur drepið þrettán eöa fjórtán manns í átökum sem áttu sér stað í Vilnu á dögunum. í einhveiju reiðikasti hafa óbil- gjarnir menn á Vesturlöndum for- dæmt friðarverðlaunanefndina norsku fyrir að veita Gorbatsjov friðarverðlaunin og vilja að sú útn- efning verði dregin til baka. Ekkja Sakharovs hefur meira að segja óskað eftir því að nafn eiginmanns hennar verði strikað út af listanum yfir verðlaunahafa, því hún vill ekki að nafn Sakharovs verði bendlað við Gorbatsjov og verðlaun sem hann hafi fengið. í fyrsta lagi er vert að benda á að Sovétríkin hafa vanist því í sjö- tíu ár að friðurinn sé best tryggður- með því að beita vopnavaldi. Rauði herinn hefur annast eftirlit með friðinum austur þar og gengið bærilega. Ekki hefur nokkur mað- ur heyrt af æmti né skræmti frá íbúum Sovétríkjanna, ef frá er skil- inn Sakharov og nokkrir aðrir and- ófsmenn sem misskildu hvort sem er agann sem fylgdi friöarviljanum austur þar. Rauöi herinn hefur tryggt Sovétríkjunum og þegnum þeirra öryggi, frið og stjórnarfar, þar sem aldrei hefur komiö til þess að fólk hafi þurft aö þyrpast út á torg og stræti til að heimta frið. Friðurinn hefur verið útbreiddur og reyndar algjör í borgum og bæj- um, hvarvetna um Sovétlýðveldin og einnig í nágrannaríkjunum í Austur Evrópu. Það var ekki fyrr en bölvað ekkisins frelsið kom til sögunnar að allt hefur farið upp í loft. Gor- batsjov hefur gefið þessu fólki frelsi, en svo misnotar það frelsið meö þeim herfilega hætti að það heimtar sjálfstæði og fullveldi og stofnar friðnum í hættu. Gor- batsjov lætur slíkt ekki yfir sig ganga og er í rauninni aðtryggja áframhaldandi frið í Sovétríkjun- um með því að bæla niður mótþróa og uppistand sem veldur óróa og upplausn. Friöinn ber að treysta og herinn hefur það hlutverk. Gor- batsjov hefur þess vegna ekki gert annað en það sem alltaf hefur verið gert í Sovét. í öðru lagi geta menn ekki ætlast til að Gorbatsjov fylgist með því persónulega hvort einhverjir ein- staklingar verða fyrir skriðdrek- unum þegar þeir aka inn í borgirn- ar. Það er verst fyrir fólkið sjálft og það verður að gæta þess að vera ekki fyrir þegar skriðdrekarnir koma. Gorbatsjov er góður leiðtogi en hann fylgist ekki með hverju fótmáli tvö hundruð og fimmtíu milljón manna og honum var þar af leiðandi ókunnugt um það um- ferðarslys sem átti sér stað í Vilnu. í þriðja lagi bað Gorbatsjov aldrei um þessi friðarverölaun. Það er mál Norðmanna og annarra friðar- dúfna í vestrinu hvernig þeir ráð- stafa sínum friðarverðlaunum. Gorbatsjov tók ekki einu sinni á móti verðlaununum. Hann var upptekinn við sinn frið í Moskvu og mátti ekki vera að því að mæta í Osló til að þakka fyrir sig. Nú vita menn hvers vegna hann var upptekinn. Hann var að leggja á ráðin heima fyrir hvernig friður- inn yrði best tryggður i því stóra landi, Sovét. Menn verða að átta sig á þeirri staðreynd að fólkið, sem lést í um- ferðarslysinu í Vilnu, var fólk sem tilheyrir ríki Gorbatsjovs. Ráða- menn Sovétríkjanna hafa alltaf lit- iö svo á að þeir hafi óskoraðan rétt yfir lífi og dauða þegna sinna og það kemur engum öðrum viö hve- nær eða hvernig fólk lætur lífið í Sovétríkjunum. Þetta er yfirráöa- svæði Moskvuvaldsins og það er ögrun og afskiptasemi af innanrík- ismálum Sovétríkjanna þegar aör- ar þjóðir eins og íslendingar eru að hafa skoðanir á því hvað gerist innan landamæra Sovétríkjanna. Gorbatsjov hefur hagað sér eins og allir forverar hans þar í landi. Hann hefur skipað Rauða hernum að varðveita friðinn. Fyrir þaö fékk hann friðarverðlaun Nóbels og það er vandamál Vesturlanda en ekki Gorbatsjovs ef þau hafa misskilið friöarvilja Gorbatsjovs. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.