Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1991.
5
dv Fréttir
Sverrir Leósson útgerðarmaður um loðnuleit fiskifræðinga:
Eins og að telja
Indverja úr flugvél
- útgerðarmönnum er smátt og smátt að blæða út
Akureyri:
Talsverð
fækkun mála
hjá rannsókn-
ariogreg i u
Gyifi Kris$ánæan, DV, Akureyri:
Máluin, sem komu tU kasta
rannsóknarlögreglunnar á Ak-
ureyri á síðasta ári, fækkaði um
85 frá árinu áður, úr 1856 í 1771,
en þess ber að geta að árið 1989
bárust íleiri mál til rannsóknar
en nokkru sinni.
Það vekur talsverða athygli
að ölvunarakstursmálum hefur
farið fækkandi áAkurejTi und-
anfarin ár. Árið 1987 voru þau
134 talsins, 123 árið 1988, árið
1989 voru þau 100 og á síöasta
ári fækkaði þeím enn og voru
þá 86 talsins.
Alls voru þjófnaðir, sem til-
kynntir voru á síðasta ári, 221,
innbrot 76 og mál sem vcirðuðu
ávísanamisferli og ávísanafals
voru 69 á móti 90 árið áður.
Af öörum málum má nelha
aö 50 minni háttar líkamsárásir
voru kærðar og 6 meirí háttar,
i 75 tilfellum stungu ökumenn
afeftir árekstur, tvö sifjaspells-
mál komu til rannsóknar og ein
gróf tilraun var gerð til nauðg-
unar.
Daníel Snorrason, yfirmaður
ramisóknarlögreglunnar á Ak-
. ureyri, sagði í samtali við DV
að þótt um fækkun mála hefði
verið að ræðaásíðaslaári, mið- ; ;
að við árið á undan, þá heíðu
fleiri stærri og tímafrekari mál
komið til rannsóknar en áður ;
og gæsluvarðhaldsúrskurðir
■ heíðu verið fleiri.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyri:
„Það verður að skilja þetta svo að
málið sé áfram til skoðunar. Það
gengur hins vegar ekki að skipin séu
hlekkjuð við bryggju og að menn viti
ekki hvað er fram undan. Verði ekki
farið til loðnuveiða á allra næstu
dögum er ljóst að það verður að út-
hluta þessum flokki fiskiskipa öðr-
um veiðiheimildum. Mönnum er
smátt og smátt aö blæöa út því þaö
rekur enginn fiskiskip sem er bundið
viö bryggju," segir Sverrir Leósson,
útgerðaimaöur á Akureyri og for-
maður Útvegsmannafélags Norður-
lands, varðandi þaö ástand sem upp
er komið varðandi loðnuveiöamar.
Sverrir, sem gerir út loðnuskipið
Súluna EA, segir það skoðun margra
að meira sé af loðnu í sjónum en
fiskifræðingamir telja.
„Það kom fram hjá þeim 6 skip-
stjórum, sem vora í loðnuleitinni
með fiskifræðingum, að meira sé af
loðnu en fræðingarnir segja. Þegar
veiðibannið var sett á var um það
rætt að of mikið væri af smáloðnu í
aflanum en nú er það út sögunni.
Nú er þetta stór og góö loðna sem er
um 17% feit svo það er ýmislegt sem
spilar þarna inn í.
Eins og aö telja Indverja
Fiskifræðingarnir voru með sterk-
ar alhæfingar um ástand loðnu-
stofnsins í byrjun desember og lýstu
því þá yfir aö stofninn væri 370 þús-
und tonn. Mér finnst það skrítið að
þeir skuli fá alveg sömu niðurstöðu
núna. Þessar mæhngar á stofninum
virka á mig eins og ef maður væri
sendur í flugvél yfir Indland og ætti
að telja aUa Indverjana. Þaö hlýtur
að vera áhtamál hversu sterkt fiski-
fræðingar geta tekiö til orða eftir
þessar mælingar og verið með al-
hæfingar þvi þessi vísindagrein
byggist mikið á líkum.
Þurfum hvajarannsóknir
Yfirlýsingar fiskifræðinga um
ástand loönustofnsins og annarra
fiskistofna okkar hljóta að leiða til
þess að við skoðum í alvöru hvort
ekki sé orðið aökallandi fyrir þjóö-
félagið, sem á allt sitt undir sjávar-
fanginu, aö könnuð verði til hhtar
tiivist hinna ýmsu hvalategunda hér
viö ísland og hvað hvalimir em fam-
ir að vega þungt í vistkerfinu í heild.
Komiö hefur fram að það mæhst í
milljónum tonna sem hvalimir rífa
úr vistkerfmu og er það ekki farið
aö hafa sterk áhrif á nytjastofnana?
Stönduiú við hreinlega ekki frammi
fyrir því vandamáli að hinar ýmsu
hvalategundir eru að éta þessa þjóð
út á gaddinn með því að mgla allt
vistkerfið?
Annað veldur en ofveiði
Við sjáum að þrátt fyrir friðunar-
aðgerðir á öllum sviðum virðist sem
stofnarnir fari minnkandi og þar
veldur eitthvað annaö en ofveiði; það
er eitthvað annað að gerast. Ég held
að það sé orðið fyllilega tímabært að
menn fari að snúa sér að hvalarann-
sóknum. Það er alltaf mikið að ger-
ast í vistkerfmu og þótt það sé ekki
allt fiskur, sem hvaiimir éta, þá er
það allt tekið úr vistkerfmu."
- Þú ert einn þeirra sem taka niður-
stöðum fiskifræðinga með fyrirvara.
Myndir þú telja óhætt að sigla loðnu-
veiðiflotanum á miðin núna til veiða?
„Eg segi að það ætti að leyfa skip-
unum að fara af stað og vinna að stíf-
um rannsóknum jafnframt. Síðan
ætti að meta það síðar hvort loðnu-
stofninn sé eins slakur og fiskifræð-
ingar halda fram, en það er ekki
búið að rannsaka það nægilega mikið
til þess núna að hægt sé að alhæfa
um það.
Hrikalegt ástand
Ef það blasir við að þessi flokkur
skipa fær ekki að fara til veiða innan
fárra daga þá verða þessi skip að fá
úthlutað aílaheimildum. Þetta eru 47
skip og það er lítið til skiptanna. Það
er ekki lítið í húíi að við nýtum það
sem við mögulega getum af fiski-
stofnum okkar og loðnan er þar eng-
in undantekning. Fiskifræðingarnir
vita þaö alveg eins og við, sem höfum
fengist við þessa útgerð, að loðnan
er dyntótt, um það geta menn verið
sammála. Ef ekki verður um loðnu-
veiðar aö ræða er ástandið vægast
sagt hrikalegt," sagði Sverrir.
Stór skóútsala
hefst á morgun,
fimmtudag
Hér eru nokkur dæmi um okkar frábæra verö:
Kr. 2.430 Kr. 2.800 Kr. 2.800
Teg. 3003
St. 28-37
Litir: Svart, brúnt
Teg. 91801
St. 40-46
Litur: Svart
Teg. Euro
St. 36-46
Litur: Svart
Sendum 1 póstkröfu
Nýtt kortatímabil
KRINGLAN 8-12 • SIMI: 686062