Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1991. 17 Iþróttir ngarerutilá im skuldum“ •maður Handknattleikssambands Islands, í samtali við DV dag fimmta besta unglingalandslið í heimi sem náði 5. sæti á HM pilta á Spáni 1989 og er eina unglingaliðið á Norðurlöndum sem tryggt hefur sér þátttökurétt á HM piltalandsliða í Grikklandi í september á þessu ári. Og það að bæði blaðamenn og aörir skuli vera eitthvað hissa á árangri okkar núna kemur mér því miður á óvart. Ef þeir hefðu fylgst betur með árangri unglingalandsliðanna und- anfarin ár þá ættu þeir hinir sömu að vita að stefnan hefur verið mark- viss og liðin hafa verið undir stjóm góðra þjálfara og leikið tugi lands- leikja með góðum árangri sem hefur gefið leikmönnunum mikla leik- reynslu." „Fjarkinn stórt áfall“ Jón Hjaltalín sagði ennfremur um fjármálin: „Við höfum lagt mikla áherslu á eflingu kvennahandbolt- ans. Við höfum varið sl. 5 árin senni- lega tugum milljóna til kvennahand- boltans og kæmi mér ekki á óvart þótt það væri hærri upphæð en öll önnur sérsámbönd hafa lagt til kvennaíþrótta til samans. Þá var þáð stórt áfall er Fjarkinn, samstarfs- fyrirtæki HSÍ og Skáksambandsins, fór á hausinn. Það var í kringum 12 milljóna króna áfall fyrir HSÍ. Það dæmi höfum við gert upp að mestu leyti við flesta okkar skuldunauta sem sýnt hafa okkur velvild." „Þigg laun fyrir ákveðin störf“ - Hvernig er launamálum þínum háttað hjá HSÍ? tarfan tundu yann Val, 72-71 sigur þeirra. Valsmenn náðu að minnka muninn í 30-24 þegar fimm mínútur voru til leikhlés en staðan í leikhléi var 45-30. Þegar fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik var staðan 63-57, UMFG í vil en þá skoruðu Valsmenn 9 stig í röð og komust yfir, 63-66. Eftir það var leik- urinn jafn og Guðmundur tryggði Grind- víkingum mjög mikilvægan sigur á síð- ustu sekúndunum. Guðmundur Bragason var bestur í hði heimamanna ásamt Rúnari Árnasyni og Dan Krebbs sem enn á þó langt í sitt gamla form eftir meiðsli. Hjá Val átti Magnús Matthíasson stórleik í síðari hálfleik og gerði þá 21 stig. Einnig voru þeir David Grissom og Ragnar Jónsson góðir. „Ég myndi helst vilja gera grein fyrir því á sambandsstjórnarfundi. Það er að ósk sambandsstjórnar- manna og stjórnarmanna HSÍ að ég þigg greiðslur fyrir ýmis þau störf sem ég legg fram. Það var frá og með 1988 eftir umsókn íslands um HM 1995. Þetta er allt til í bókhaldi hjá HSÍ.“ „Lagði sjálfur til 1,5 milljón“ - Ert þú persónulega í einhverjum ábyrgðum fyrir skuldir HSÍ? „Það er mjög algengt að stjórnar- menn HSÍ gangi í ábyrgð fyrir lántök- ur HSÍ. Ég get líka nefnt að ég þurfti að leggja fram persónulega eina og hálfa milljón fyrir þátttökugjöldum og dagpeningum leikmanna á síðustu ólympíuleikum. Annars hefðum við ekki getað tekið þátt í keppninni. Það eru þeir stjórnarmenn sem hafa trú á liðinu sem þora að gera svona hluti í trausti þess að þeir séu að vinna að eflingu íþróttanna og nýta íþróttirnar sem landkynningu fyrir ísland." Umdeild Nígeríuferð - Það hefur komið fram hörð gagn- rýni á ferð þína til Nígeríu á síðustu dögum nýliðins árs. Hver eru þín svör? „Hvað viðkemur þessari ferð minni til Afríku þá er þeim það vel kunnugt sem fylgst hafa með íþróttum að HSÍ hefur haft náið samstarf við þróun- arlönd og samveldislönd í sambandi við að efla handknattleiksíþróttina í þessum löndum. Fyrir fimm árum léku 5 samveldisþjóðir handbolta en í dag eru þær tæplega 30. Eftir 3-5 ár er reiknað með að allar þjóðirnar 53 leiki handbolta. Við teljum að fyr- ir HM 1995 sé mjög mikilvægt að handknattleikur sé spilaður í flestöll- um löndum. Keppnin mun þá vekja enn meiri athygli á íslandi þegar þar að kemur. Ferð mín til Afríku var sérstök boðsferð í boði forseta Níger- íu sem er mjög mikill áhugamaður um handknattleik og er verndari handknattleikssambands samveldis- landanna. Ástæðan fyrir þessu boði var sú að forsetinn og ríkisstjórn landsins opnuðu á gamlársdag aðal- skrifstofu handknattleikssambands samveldislandanna í Abuja, hinni nýju höfuðborg Nígeríu. Þá var um leið stofnaður sjóður að verðmæti 60 milljónir króna til að reka þessa skrifstofu og efla handknattleiks- íþróttina í samveldislöndunum. Þess má geta aö ég var eini gesturinn fyr- ir utan fulltrúa samveldislandanna. Tel ég það mikla viðurkenningu fyrir HSí á þeirri aðstoð sem við höfum veitt til að efla handboltann í sam- veldislöndunum. Mér fannst það mikill heiður að fá þetta boð og þáði það í fullu samráði við framkvæmda- stjórn HSÍ. Vegna þeirrar gagrýni á þessa ferð mína sem fram kom í DV á dögunum frá ótilgreindum stjórn- armönnum HSÍ þá get ég ekki alveg séð rök þeirra aðila sem annars vegar vilja að ég segi af mér og hins vegar telja mig það ómissandi að ég megi ekki víkja af landinu. En ég ber fyllsta traust til minna samstarfs- manna í stjórninni og hins nýja fram- • Jón Hjaltalín Magnússon, for- maður Handknattleikssambandsins. kvæmdastjóra okkar til að taka á móti þeim landsliðum sem voru hér á ferðinni á milli jólá og nýárs.“ „Ársþing velur formann“ - Þær raddir hafa heyrst innan HSÍ að þú eigir að segja af þér sem for- maður. Hver eru þín viðbrögð? „Það er hverjum og einum frjálst að hafa sínar skoðanir á stjórn HSÍ. Það er mjög jákvætt ef einhveijir menn telja sig hafa betri lausnir. Þá eiga menn að koma fram með þær á þeim vettvangi sem er skynsamlegur, það er að segja að óska eftir viðræð- um við framkvæmdastjóm HSÍ og mæta á fundi þar eða bera þær fram á sambandsstjórnarfundi. Það er árs- þing HSÍ sem velur sér formann sem hefur þá gefið kost á sér til starfa næsta starfstímabil. Ég hef fullan hug á að ljúka þessu starfstímabili og tel mig hafa traust mikils meiri- hluta sambandsstjórnar HSÍ og íþróttafélaganna. Það er ekkert nýtt að menn séu ósammála í sambands- stjórn HSÍ. Ég held að menn séu sam- mála um markmiðin en menn getur greint á um leiðir að markmiðunum, það er að efla íslenskar íþróttir og nota handknattleik sem landkynn- ingu fyrir ísland. Þetta er spurning um hve mikla áhættu menn eru til- búnir að taka til að ná settum mark- miðum.“ -SK • Guðmundur Bragason. • Stig UMFG: Dan Krebbs 18, Guð- mundur Bragasson 17, Steinþór Helga- son 12, Rúnar Árnason 9, Jóhannes Kristbjörnsson 9, Marel Guðlaugsson 5 og Sveinbjörn Sigurðsson 2. • Stig Vals: Magnús Matthíasson 30, David Grissom 16, Ragnar Jónsson 10, Símon Ólafsson 9, Guöni Hafsteinsson 4 og Matthías Matthíasson 2. Kristján Möller og Kristinn Óskarsson dæmdu leikinn og gerðu það vel þegar á heildina er litið en leikurinn var mjög erfiður. Leikið gegn Wales? Svo gæti farið að ísland og Wales lékju vináttulandsleik i knattspyrnu í Wales þann 1. maí í vor. Sá leikur yrði þá liður í undirbúningi landsliðs- ins fyrir Evrópuleikina gegn Albaníu og Tékkóslóvakíu sem fram fara í maílok og júníbyrjun. Knattspyrnusamband íslands var búið að komast að samkomulagi við Möltubúa um að leika við þá í Valletta sama dag, 1. maí. Þeirri dagsetn- ingu þarf að fá breytt til þess að af Walesleiknum geti orðið, en þá er hugmyndin sú að leika bæði við Wales og Möltu í sömu ferðinni. „Við í KSÍ eigum eftir að skoða þessi mál og það er allt óljóst á þessari stundu hvort af leiknum verði. Það kom óvænt boð frá knattspyrnusam- bandi Wales um að við kæmum tii þeirra og lékjum leik þann 1. maí. Við erum þegar búnir að semja um leik gegn Möltubúum á sama tíma og við getum ekki hlaupið frá honum en vissulega væri spennandi að geta leikið gegn Waiesbúum en þeir eru á þessum tíma að undirbúa lið sitt fyrir leik gegn Þjóðverjum í Evrópukeppninni. Línur ættu að skýrast á næstunni gg verið getur að ísland leiki gegn báðum þessum þjóðum í sömu ferðinni," sagði Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusam- bands íslands, í samtali við DV í gær. -VS/GH Jón í Val og Rafn í KR Jón Grétar Jónsson knattspyrnumaður hefur gengið frá félagaskiptum frá KA í Val. Jón lék með Val áður en hann hélt til Akureyrar og lék með KA keppnistímabilin 1989 og 1990. • Þá hefur Rafn Rafnsson ákveðið að ganga til liðs við KR en hann hefur leikið allan sinn feril með liði Snæfells í Stykkishólmi. Rafn er fram- línumaður, bróðir Björns Rafnssonar, og þykir mjög markheppinn. -GH r udag. i Reuter Johnson ákærður Það á ekki af Ben Johnson, spretthlaupara frá Kanada, að ganga. í gær var gefin út ákæra á hendur honum fýrir árás á fyrrum félaga sinn í frjálsum íþróttum í Kanada. Johnson er ákærður fyrir árás á hlaupakonuna Cheryl Thibedeau, fyrrum félaga Johnsons í kanadiska landsliðinu, Johnson mun mæta fyrir rétt í Toronto í Kanada þann 24. janúar og standa fyrir máli sínu. Hann er ákæröur fyrir að hafa tekið hlaupakonuna hálstaki. Johnson keppti á sínu fyrsta móti um síðustu helgi og keppir aftur á föstudag í Los Angeles. -SK t Handboltí Lið Þórs frá Akureyri er komið áfram í bikarkeppni Handknatt- leikssambands íslands eftir sigur gegn Ármanni á Akureyri í gær- kvöldi, 26-16. Staöan í leikhléi var 12-9, Þór í vil. -GK/Akureyri 1 o q |X korfubotój Einn leikur fór fram í gærkvöldi í l. deild íslandsmóts kvenna í körfuknattleik. Stúlkurnar í Grindavík tóku þá á móti hði KR og vann KR mikinn yfirburðasig- ur í mjög ójöfnum leik, 28-63. Grindavík er enn án stiga en KR er með 4 stig í næstneðsta sæti. Sport- stúfar „Við ætlum að komast til botns í þessu máli eins fljótt og hægt er. Svona harmleikur hefur ekki áður átt sér stað i Suður-Afríku og má ekki endurtaka sig,“ sagði Cyril Kobus, framkvæmdastjóri knattspyrnusambands Suður- Afríku, um það atvik sem átti sér stað um síðustu helgi þegar 43 létust á knattspyrnuleik í bænum Orkney í Transvaal-héraði. Stuðningsmenn topphðanna Or- lando Pirates og Kaiser Chiefs lentu í heiftarlegum átökum þeg- ar Chiefs skoraði mark sem þótti umdeilt. Fólkið sem lést tróðst undir í múgæsingnum sem greip um sig. Middiesboro áfram Middlesboro tryggði sér í fyrra- kvöld sæti í 4. umferð ensku bik- arkeppninnar meö því að sigra Plymouth á útivelli, 1-2. Liðin höfðu áður gert markalaust jafn- tefli. Middlesboro mætir Cam- bridge í 4. umferðinni. Swindon og Orient mættust einnig ööru sinni en dómarinn flautaði leik- inn af snemma í síðari hálfleik vegna þess að völlurinn var orð- inn frosinn og hættulegur. Stað- an þá var 1-1 en liðin leika að nýju í kvöld. Chicagovann Chicago Bulls vann mikilvægan sigur á Milwaukee Bucks, 110-97. í bandarisku NBA-deildinni í körfuknattleik í fyrrinótt. Liðin leika saman í riðli og þar er Chicago með bestu stöð- una, 10 tapleiki, Detroit Pistons er með 11 og Milwaukee Bucks 12. Úrslit í fyrrinótt urðu þessi: Atlanta - NewYork.....96-82 Dallas - Detroit...... 81-89 Chicago - Milwaukee..110-97 LAClippers - Houston..130-126 KR-stúlkurunnu míkilvægan sigur Segja má að KR-stúlk- ur séu þegar öruggar með sæti í 1. deild kvenna í handknatt- * leik næsta vetur eftir sigur á Ár- marmi, 22-21, í 2. deild í Laugar- dalshölhnni í fyrrakvöld. Með þessum úrslitum er KR komiö með 12 stiga forskot á Ármann sem ér iþriðja sæti. í síðustu viku gerðu ÍR og Ármann jafntefli, 11-11. Staðan í 2. deild kvenna er þessi: KR........13 11 1 1 306-223 23 Keflavík....l0 8 1 1 208-156 17 Arniann.... 12 5 1 6 213-199 11 Haukar....12 5 1 6 210-212 11 ÍR........12 3 2 7 206-232 8 Grindavik.il 0 0 11 154-275 0 Giradelli efstur Marc Giradelli írá Lúxemborg sigraði í risasvigi í heimsmbikar- keppninni á skíðum en keppnin fór fram Adelboden í Sviss í gær. ítalinn Alberto Tomba, ítaliu, varð í öðru sæti og Austurríkis- maðurinn Rudolf Nierlich, þriðji. Með þessum sigri hefur Giradehi forystu í samalögðum greinum um heimsbikarinn, hefur 176 stig, Franz Heinzer er í öðru sæti með 129, Alberto Tomba 117 og Ole Christian Furuseth, Noregi, flórði með 112 stig. Opna KR-mótið i badminton á morgun Annað kvöld, fimmtu- dagskvöld, verður opna KR-meistaramót- ið í einbðaleik og tvi- liðaleik karla og kvenna i bad- minton lialdið i íþróttahúsi fé- lagsins og hefst það klukkan 18.30. Allir bestu badmintonspil- arar landsins verða á meðal þátt- takenda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.